Morgunblaðið - 11.11.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 29
LISTIR
Langferðir í
Providence
að skoða sumar, hér stendui' gestur-
inn frammi fyrir hinum raunveru-
legu undrum sköpunarverksins,
þeim undram sem svo margir virð-
ast hafa gleymt í síbylju dagsins,
þeim staðlaða gerviheimi sem menn
lifa og hrærast í.
Að gera svona myndir óaðfmnan-
lega og helst mun betur, er auðvitað
að vissu marki list, í öllu falli er þetta
lifandi og listrænt fag, en vitaskuld
era myndh' fuglamálara eins og t.d.
Danans Johannes Larsens, Svíans
Brano Liljefors og Islendingsins
Höskuldar Bjömssonar allt annar
handleggur og ekki til samanburð-
ar.
Jón Baldur Hlíðberg er að vísu
ekki sá fysti sem gerir slíkar myndir
hér á landi og má nefna Finnboga
Pétursson og Brian Pilkington, en
hann er sá sem gengur vísindalegast
til verks, missir þó hvergi lífræna
þráðinn. En þrátt fyrir öll vísindi
era þetta afar fallegar myndir og
sumar jaðra við að vera stórsnjallar
og ýta mjög við hugarfluginu. Hér
kemur nefnilega enn einu sinni
áþreifanlega fram, að náttúran er
strangasti byggingaiTneistarinn og
án nokkurs vafa einnig mesti lista-
maðurinn, í öllu falli sá er aldrei
staðnar.
Auðvelt mál að mæla með þessari
sýningu, hún svíkur engan.
Bragi Ásgeirsson
LANGFERÐIR, íslensk menn-
ingarhátíð í Bandaríkjunum,
hófst í Brown háskóla í Provi-
dence á föstudag. Undir stjórn
Guðmundar Emilssonar flutti
baltneska Fílharmónían og kór
Brown háskólans íslensk og
bandarísk tónverk tileinkuð
landafundunum.
Dagskráin í Providence er upp-
haf tónleikaferðar um Bandarík-
in. Að þessu sinni voru frumflutt
sex tónverk: Doloroso eftir Atla
Heimi Sveinsson, samið í minn-
ingu Guðrúnar Katrínar Þor-
bergsdóttur forsetafrúar; eftir
Mist Þorkelsdóttur verkið Kvinn-
an fróma; eftir Þorkel Sigur-
björnsson verkið Good night við
ljóð eftir Guttorm Guttormsson
með söng Lynn Helding; fiðlu-
konsert eftir Gerald Shapiro við
undirleik Sigrúnar Eðvaldsdótt-
ur; Eldur og ís eftir Mark W.
Philips og Marlíðendur eftir
William Hudson Harper sem
byggist á samnefndu ljóði eftir
Jóhann Hjálmarsson og texta úr
Eyrbyggju. Skáldið flutti ljóðið
áður en tónleikarnir hófust.
Tónleikar voru einnig á
fimmtudaginn en þá flutti forseti
’lslands, ’Olafur Ragnar Gríms-
son, erindi. Forsetinn var við-
staddur tónleikana á föstudaginn.
Tónleikarnir voru fluttir fyrir
fullskipuðum tónleikasal Brown
háskóla og var Guðmundur Em-
ilsson hljómsveitarstjóri og hljóð-
færaleikararnir ákaft hylltir fyrir
framlag þeirra.
Yatnslita-
myndir
í Nönnu-
koti
NÚ stendur yfir sýning Jean
Posocco í kaffihúsinu Nönnu-
koti í Hafnarfirði á vatnslita-
myndum úr íslenskri nátt-
úru.
Myndirnar eru allar gerð-
ar á þessu ári. Sýningin er
opin á opnunartíma kaffi-
hússins, alla daga nema
mánudaga milli klukkan tvö
og sjö.
Sýningin stendur til mán-
aðamóta.
*
Uthlutun úr Söngvarasjóði
ÞREMUR styi'kjum var nýverið
úthlutað úr Söngvarasjóði FIL, en
markmið sjóðsins er að styrkja
efnilega söngnema til framhalds-
náms. Styrkþegar að þessu sinni
eru þau Olafur Kjartan Sigurðsson,
Kristjana Stefánsdóttir og Val-
gerður Guðnadóttir.
I stjórn Söngvarasjóðsins era
Stefán Amgrímsson, Hrönn Hafl-
iðadóttir og Ingveldur G. Olafsdótt-
r
Riki.sbréf í m arkfl okkum
í dagkl. 14:00 ferframhjáLánasýsluríkisinsútboð áríkisbréfumtil4 ára.
í boði verður eftirfarandi markflokkur ríkisbréfa:
Flokkur
Gjalddagi
Núverandi
Lámtími staða*
Áætlaðhámaik:
telduna tilboða*
RBo3-ioio/KO 10. október s;oo3 4 ár 8.390 1.000
* Milljónir króna.
RÍKISVERDBRCF
nokkurra landa
bretland
VEXTIR
6 . 0 i
LANSTIUI
4 A R
LENDING
DANMORK
PYSKALAND
bandarikin
I S L A N D
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgata 6, 2. hæð • Sími: 562 4070 • Fax: 562 6068
Heimasíða: www.lanasysla.is • Netfang: utbod@lanasysla.is
Sölufyrirkomulag:
Rllásbréfin verða seld með tilboðs-
fyrirkomulagi. Öllum er heimilt að bjóða í
ríkisbréf að þvl tilskyldu að lágmarksfjárhæð
tilboðsins sé ekki lægri en s>o milljónir.
Öðrum aðilum en bönkum, sparisjóðum,
fjárfestingalánasjóðum, verðbréfafyrir-
tækjum, verðbréfasjóðum, lifeyrissjóðum
og tiyggingafélögum er heimilt að gera tilboð
í meðalverð samþykktra tilboða, að lágmarki
500.000 krónur.
Öll tilboð í ríkisbréf þurfa að hafa borist
Lánasýslu rikisins fyrir kl. 14:00 í dag,
fimmtudaginn 11. nóvember 1999.
Utboðsskilmálar, önnur tilboðsgögn ogallar
nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu
ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 56? 4070.