Morgunblaðið - 11.11.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 59
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kveðja frá Haraldi Hamri
Haraldur Hamar Thorsteinson
Frá Þorsteini Antonssyni
ÉG VAR á leið út úr fjölbýlishúsi
um daginn þangað sem ég á stund-
um erindi og kominn á neðsta
stigapallinn þegar maður í ljósum
frakka vék sér að mér og stakk upp
á því við mig formálalaust að ég
kæmi með sér inn í íbúð sína þarna
við pallinn, sig langaði til að sýna
mér mynd. Maðurinn var sennilega
um áttrætt, grannvaxinn og kvikur
á fæti, og lagði fyi-ir mig póstkort
þegar inn í stofuna kom, með orð-
unum: „Hér hefurðu Prinsinn af
Wales!"
Helgina áður hafði birst grein
eftir mig í Lesbók Morgunblaðsins
um Harald Hamar Thorsteinson
skáld sem stundum kallaði sig
Prinsinn af Wales og engin hérl-
endur hafði látið svo lítið að fjalla
um opinberlega til þessa. Mér þyk-
ir myndin, sem líklega er tekin á
baðströnd á Englandi, lýsandi um
tímamót í lífi Haraldar þessa;
mann sem frændi hans Gunnar
Thorsteinson vill samkvæmt grein
sinni í Morgunblaðinu miðvikudag-
inn 27. október síðastliðinn að
þögnin ein varðveiti. Kveðjan frá
Haraldi er til Jóhannesar Kjarvals,
send til Kaupmannahafnar 10.
sept. 1915 þar sem Kjarval bjó um
þær mundir ásamt konu sinni To-
ve. Haraldur hafði kynnst þeim
hjónum er hann dvaldi í borginni
árið áður við nám. Á kortið ritar
Haraldur með blýanti: „Kæri vin!
Ég lifi betur en nokkur konungur.
Kysstu Tove. - Einar B. farinn
heim, er ég kom. Enn ókominn.
Þinn Haraldur."
Af þessum stuttu kveðjuorðum
má nema hástéttarlegt viðmót
Haraldar og jafnframt veikleikann
hans að þurfa að tengjast hefðar-
fólki - í þessu dæmi Einari Bene-
diktssyni - og hafa þó varla annað
en til að leggja á móti en heiman-
íylgju sína - Haraldur var sonur
Steingríms Thorsteinsonar ljóð-
skálds. Það hefur reynst mörgum
manni þungt í vöfunum um ævina
að vera í ætt við íslenskt þjóðskáld,
goðsögn smáþjóðar um mikilleika
eins manns, bera nafn skáldsins en
koma annars ekki við sögu þjóðar
sinnar. Ég met grein Gunnars í því
samhengi.
Af grein hans - en ég er aðalefni
hennar - les ég það helst að grein-
arhöfundi hafi hnykkt við er hann
las afdráttarlausa umfjöllun mína
um ævintýralega ævi Haraldar
Hamars. Við slíku er að búast af
manni sem grafíð hefur minningu
annars manns og fréttir svo af
henni lifandi í katakombum Þjóðar-
bókhlöðunnar.
„Sekkur sá sem ber stóru stein-
ana, segir í ljóði eftir George Sefer-
is, grískt ljóðskáld. Svo fór fyrir
Haraldi Hamri. Hann færðist
meira í fang en hann stóð undir.
Slíkt er enginn skömm því þannig
kanna menn djúp sín, og með engu
öðru móti. Hvað þá að útskúfun í
lifanda lífi réttlæti að þögnin ein sé
látin varðveita minningu manns, og
þá ekki afkomanda þjóðskálds
fremur en annarra.
ÞORSTEINN ANTONSSON,
rithöfundur.
Betri föt efif
Klæðskeraverkstæði
__________Pantið________
aldamótafatnaðinn__
núna!
Sími 557 8700
TÆTARAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Vefsíða: www.oba.is
Bókhaldskerfi
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
JÓLACkLAÐNlNCkUR
Ath.: Aðeins
í nokkra
daga
Nýbýlavegi 12,Kóp.,
sími 554 4433.
:
i
8.511474?
SPAR SPORT
TOPPTILBOÐ
HERRASKOR
Breiðir með loftbólstruðum innsóla
Verð: 2.995,
Teg. 48048
Stærðir 4I-46
Litur: Svartir
verð áðutAWý’-
Italskir spariskór með
Verð: 2.995,-
Teg. 73371
Stærðir 41 -46
Litur: Svartir
verð óðuc-4r9957-
POSTSENDUM SAMDÆGURS
Toppskórinn
Veltusundi v/Ingólfstorg, sími 552 1212.
Fjöldi kvenna þekkir Face Sculptor linuna vegna áhrifaríkrar virkni á sviði lyftingar.
„Andlitslyfting án skurðgerðar.” Nú bjóðum við Night Sculptor, nýtt næturkrem fyrir
andlit og augnsvæði sem vinnur á vökvasöfnun, mótar og lyftir.
Kynning i dag og á morgun.
Glæsilegur kaupauki fylgir þegar
verslað er fyrir kr, 4.000 eða meira.
Nýtt kortatímabil, sendum í póstkröfu. Bankastræti 8, Sfmi 551 3140
Þessi úlpa var hönnuð í
nístandi kulda!
Pilelander úlpa
Kr. 12.900.-
Ath. einnlg bamastærðir kr. 8.900.-
sá^Columbia
“ Sportswear Company®
www.columbia.com
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeifunni 19 - S. 5681717-
Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 16