Morgunblaðið - 11.11.1999, Side 16

Morgunblaðið - 11.11.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Mjaltir á Fossvöllum Vaðbrekku, Jökuldal - Starfið er margt til sveita, meðal annars þarf að mjólka kýrnar á málum svo fólk geti fengið sína mjólk að drekka refjalaust. Ragnheiður Ragnarsdóttir bóndi á Fossvöll- um sinnir hér mjöltum á búi sínu. Ein yngsta fískvinnsla landsins er á Hólmavík UNDIR þaki, sem byggt var yf- ir tvo fjörutíu feta gáma á Hólmavík, starfar ein yngsta fiskvinnsla landsins, Særoði ehf. Það eru hjónin Sævar Benediktsson og Elísabet Páls- dóttir, sem reka vinnsluna, en hún hóf starfsemi í mars. Þau eru líka einu starfsmennirnir. „Ég er að reyna að auka kvótaverðmætið hjá mér með því að vinna fískinn sjálfur,“ sagði Sævar í samtali við Morg- unblaðið nýverið. „Síðustu sex mánuði heíúr meðalverð á þorski verið um 160 krónur kílóið hjá mér, en ef ég myndi selja fískinn beint á markað fengi ég líklega ekki nema 110 krónur fyrir kílóið." Þegar horft er á fiskvinnslu- húsið, er ekki hægt að sjá að þetta séu tveir gámar með þaki, því húsið er klætt bárujárni og mjög snyrtilegt, bæði að utan sem innan. Innandyra vinna hjónin saltfísk, sem þau selja til SIF, en einnig er þar beitning- araðstaða. Kostaði 10 milljónir Að sögn Sævars kostaði húsið ásamt öllum búnaði um 10 millj- ónir króna, en inni í því verði eru tvær vélar, annars vegar flatningsvél og hins vegar flök- unarvél. Auk hússins á fyrir- tækið 6 tonna bát, sem nefnist Morgunblaðið/RAX Sævar Benediktsson og kona hans Elísabet Pálsdóttir eiga eina yngstu fiskvinnslu landsins, Særoða ehf. á Hólmavík. Upp á síðkastið hefur Sæv- ar aðallega verið að beita, þar sem mikil bræla hefur verið á miðunum. Særoði líkt og fyrirtækið og 50 tonna þorskkvóta. „Það eina sem dugir í dag er að stofna eigið fyrirtæki.“ Að- spurður hvernig hefði gengið svaraði Sævar: „Mjög vel. Að vísu er búin að vera bræla í hálfan mánuð og ég er því bara að safna upp böl- um af beitu og á nú í tvo róðra. Reyndar er veðrið búið að vera frekar leiðinlegt í allt haust, þótt það hafi komið einn og einn dagur.“ Að sögn Sævars tekur það hann um þrjá tíma að komast á góð mið. „Það er alveg hægt að veiða hérna inni í fírðinum (Stein- grímsfirði), en það er bara alltof mikill ormur í þeim físki og það líkar mér ekki.“ Fyrirtækið byggt á tveim- ur fj örutíu feta gámum ■ SsSSStíi liplll ~i ■ - :■ Nú er veturinn aö ganga í garö af fullum þunga. Þá veröur enn mikilvægara aö klæðast hlýjum og þægilegum fötum frá framleiðendum sem hafa mikla reynslu og þekkingu á sviði útivistar. (NAN0Q býðst þér mikið úrval af þægilegum og fallegum fatnaði REVKJAVÍKURTJÖRN Tjuroin í íijarta Reykjauikur er í raun sjávarlón og var hún upirhaflega um fjúrðungí stærri en „ hún er núna. 40-S0 tegundir fugia hafa lengri eða skemmri víödviil á Tjöminni á ári hverju, en viö hana verpa aó staðaldri 5 andartegundir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.