Morgunblaðið - 11.11.1999, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 11.11.1999, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Tillögur varnarmálaráðherra Finnlands um varnarvídd ESB Neyðarástand á Austur-Indlandi Osammála sjónarmið- um Islands og Noregs Stokkhölmi. Morgunblaðið. JAN-ERIK Enestam, varnarmála- ráðherra Finnlands, kynnti í gær hugmyndir Finna um varnarvídd Evrópusambandsins, ESB. Hug- myndirnar verða uppistaðan í grundvallaratriðum um vamarmál ESB, sem ætlað er að verði sam- þykkt á leiðtogafundi ESB í Helsinki í desember. A blaðamannafundi í Stokkhólmi í gær sagði Enestam að Finnum sem formennskulandi væri umhug- að um að gæta hagsmuna allra Norðurlandanna, en stóð hins veg- ar fast á að Islendingar og Norð- menn gætu ekki búist við að rétt- indi þeirra í Vestur-Evrópusam- bandinu, VES, héldust þegar ESB tæki yfír hlutverk VES. Þar með er erfitt að sjá að Is- lendingar og Norðmenn geti sætt sig við hugmyndir Finna þrátt fyr- ir fullyrðingar Finna um að þeir gæti hagsmuna allra Norðurland- anna. Halldór Asgrímsson utanrík- isráðherra nefndi málið í fram- söguræðu sinni um utanríkismál á Norðurlandaráðsþinginu í gær, þar sem hann lagði áherslu á að brýnt væri að tryggja hagsmuni allra Norðurlandanna. Varnarvídd ESB ekki yfírþjóðleg Málið bar einnig á góma í um- ræðum um utanríkismál þar, þar sem Hans Engell undraðist að Hans Hækkerup vamarmálaráð- herra Dana, sem hafði framsögu um varnarmál, hefði sagt svo lítið um einmitt þessa nýju stöðu, sem Island og Noregur stæðu frammi fyrir. Tillaga Finna fyrir leiðtogafund- inn byggir á ákvörðunum Amster- dam-sáttmálans um að verksvið Hugmyndirnar verða uppistaðan í stefnumótun um varnarmál ESB ESB taki nú til varnarmála, þar sem gengið er út frá friðargæslu. Hún á að svara fjórum spurning- um. í fyrsta lagi hvemig skilgreina eigi hvenær ESB eigi að grípa til aðgerða. I öðra lagi hvernig ákvarðanatakan eigi að ganga fyrir sig, í þriðja lagi hvernig samhæfíng við Atlantshafsbandalagið (NATO) eigi að ganga fyrir sig og í fjórða lagi hvernig gæta eigi hagsmuna NATO-landa, sem ekki era í ESB. Enestam lagði áherslu á að til- lögurnar byggðu alls ekki á yfir- þjóðlegu valdi, heldur á að hvert land gæti ákveðið hvort það vildi taka þátt í aðgerðum. Til að fjalla um þetta svið þyrfti ESB að koma sér upp vettvangi til að meta að- stæður. Gert væri ráð fyrir að bæði yrði hugað að pólitískum hliðum og borgaralegum hliðum. Hemaðar- hliðin yrði metin í samráði við Nato og með tilliti til að ekki yrði um tví- verknað að ræða. Geta ekki gert sér vonir um áhrif á ákvarðanir ESB „Það liggur í hlutarins eðli að ákvarðanir ESB em teknar af ESB-löndunum og engum öðmm,“ sagði Jan-Erik Enestam varnar- málaráðherra Finna í samtali við Morgunblaðið. Islendingar og Norðmenn hafa lagt á það áherslu að þeir héldu þeim réttindum, sem þeir hafa í VES sem aukaaðilar, nú þegar ESB tekur yfír hlutverk VES. í VES hafa þeir tillögu- og umræðurétt, en eðlilega ekki at- kvæðisrétt. Aðspurður hvort íslendingar og Norðmenn gætu gert sér vonir um að halda þessum réttindum sínum svaraði Enestam að það væri fjarri lagi að gera ráð fyrir að hægt væri að flytja réttindi úr einni stofnun í aðra. Hann benti á að VES yrði áfram til, en tók undir að öll starf- semin þar ætti að falla undir ESB, svo tilvera VES á pappírnum hefði ekkert gildi. Geta eftir sem áður beitt sér í NATO „Finnar hafa heldur ekki at- kvæðisrétt í NATO, þar sem þeir era ekki NATO-meðlimir,“ sagði Enestam. „Islendingar og Norð- menn geta eftir sem áður beitt sér í NATO og komið að ákvörðunum um evrópsk varnarmál þar. Hann tók ekki undir íslensk og norsk sjónarmið um að með þessu fyrir- komulagi hefðu þær ESB-þjóðir, sem ekki eru með í NATO í raun áhrif á ákvarðanir NATO, meðan áhrif NATO-landa eins og Islend- inga og Norðmanna, sem ekki era í NATO, rýrnuðu við þessar breyt- ingar. „Islendingum og Norðmönnum verður boðið að setja fram sínar skoðanir eftir að ESB hefur tekið sína ákvörðun," sagði Enestam. Það er óljóst hvernig NATO kem- ur að ákvarðanatökunni, en gert er ráð fyrir samráði við NATO áð- ur en ESB tekur endanlega ákvörðun sína. „Sem NATO-með- limir geta Islendingar og Norð- menn komið að ákvarðanatökunni þeim megin.“ Reuters Mikill skortur er á flestum lífsnauðsynjum á því svæði sem mest varð fyr- ir barðinu á fellibylnum fyrir hálfum mánuði. Ibúar Bhubaneshwar í Orissa-ríki á A-Indlandi bíða í röð eftir því að krælga sér í eldsneytislögg. 7.500 látnir af völdum fellibyls Bhubaneshwar á Indlandi. AFP. STJÓRNVÖLD í Orissa-ríki á Austur-Indlandi greindu frá því í gær, að nærri 7.500 manns hefðu látið lífið í kjölfar fellibyls sem gekk yfír héraðið fyrir hálfum mánuði. Drepsóttir hafa breiðzt út á hluta hamfarasvæðisins og þess er vænzt að tala látinna eigi eftir að hækka. R.N. Padhi, sem fyi-ir hönd stjórnvalda í Orissa hefur yfirum- sjón með neyðarhjálp á hamfara- svæðinu, sagði á blaðamannafundi í héraðshöfuðborginni Bhubaneshw- ar að staðfest tala látinna hefði hækkað svo mjög eftir að flem lík hefðu fundizt í Ersama-sýslu, sem næst lá miðju fellibylsins er hann gekk yfir hinn 29. október. Sagði Padhi þess vænzt, að fleiri lík eigi eftir að finnast. Ersama er i Jagatsinghpur, einu 12 strandhéraða Bengalflóans, sem verst urðu úti í veðurofsanum, en vindhraði í fellibylnum náði 260 km hraða. „í Jagatsinghpur-héraði einu hafa 6.838 lík fundizt. Tala látinna á öragglega eftir að hækka enn frek- ar,“ sagði Padhi. Hann telur þó ólík- legt að fjöldi þeirra sem fórast fari yfir 10.000. En samkvæmt óopin- beram ágizkunum hjálparstofnana er vel mögulegt að yfir 10.000 hafi farizt, þar sem hundrað þorpa séu enn á kafi undir flóðvatni eftir ham- farimar. Flestir íbúanna í Ersama- sýslu munu vera íslamskir innflytj- endur frá Bangladesh, sem aldrei hafa verið skráðir í opinberar íbúa- bækur. Þúsundir hafa sýkzt Þúsundir hafa sýkzt af gama- kvefi og fleiri farsóttum sem hætta er á að breiðist út á flóðasvæðum. Heilbrigðisráðherra Orissa-ríkis, Meena Gupta, sagði hins vegar stjómvöld hafa stjóm á ástandinu og ástæðulaust að óttast að ekki takist að hefta útbreiðslu farsótta. Einkaleyfí og velmegun Reuters Kaffibóndi í Kenýa stendur vörð um uppskeruna vopnaður boga. Jeffrey Sachs segir tækniþróunina stefna í að breikka bilið milli hinna þróaðri ríkja heims og vanþróaðra. eftir Jeffrey Sachs The Project Syndicate FLESTUM er ljós hinn gífurlegi tekjumismunur sem er á milli þróunarlandanna og þeirra þró- uðu. Færri gera sér hins vegar grein fyrir að á sviði vísinda og tækni er bilið ennþá stærra. Ríku löndin sem hýsa um 16% af mannkyni, og hafa um 60% af kaupgetu heimsins hafa yfir að ráða 99% allra einkaleyfa fyrir tækninýjungar sem gefin vora út í Bandaríkjnum og Evrópu á síð- ustu áram. Ef okkur er alvara með því að minnka tekjubilið milli ríkra og fátækra landa þurfum við að hugsa alvarlega um það hvem- ig hægt er að beina vísindum og tækni að því að leysa vandamál hinna fátækari landa. í nútímasamfélagi er efnahags- leg hagsæld ekki komin undir náttúralegum auðlindum, eða framleiðslu iðnaðaravara á borð við kol og jám, heldur framleiðslu á nýjum hugmyndum og vöram. Bandaríska hagkerfið á vöxt sinn að miklu leyti að þakka hæfileik- um til nýsköpunar hvort sem er á sviði upplýsingatækni, eins og tölvubúnaðar eða forrita, eða líf- tækniiðnaðar eins og lyfja og fjöl- breyttum tegundum til ræktunar, eða nýrri fjarskiptatækni eins og þróaðra ljósleiðara og gervi- hnatta. í fátækustu löndunum á sér á hinn bóginn ekki stað nein nýsköpun. Af því leiðir að mörg þeirra treysta á helstu útflutn- ingsvörur sínar sem hafa lítið breyst frá ári til árs eða áratugs til áratugs. Þannig lifa mörg hita- beltislönd á sömu blöndu af kaffi, te, kakó og banönum eða námu afurðum, svo sem verið hefur í heilan mannsaldur. Heimsverðið á mörgum þessara vara hefur hins vegar fallið mikið á þessum tíma (að minnsta kosti í saman- burði við kostnaðinn við innflutn- ing), en fátækustu löndin hafa ekki nógu mikinn sveigjanleika eða möguleika til nýsköpunar til að geta farið að framleiða nýjar vörar, hvað þá að skapa vörar sem ekki hafa komið fram á heimsmarkaði. Nýlegar upplýsingar frá Einka- leyfisstofunni í Bandaríkjunum segja ótrúlega sögu. Af þeim 163.000 einkaleyfum sem voru gefin út í Bandaríkjunum árið 1998 vora 90.000 þeirra veitt til bandarískra og 72.000 til erlendra hugvitsmanna. Af erlendum hug- vitsmönnunum vora 32.000 þeirra Japanir, Þjóðverjar áttu 9.500 og 28.000 skiptust niður á 15 lönd sem öll eru þróuð lönd. Þrjú þeirra, Kórea, Taívan og ísrael, voru álitin þróunarlönd fyrir ára- tug, en hvert þeirra hefur búið við hraðan og varanlegan vöxt í mörg ár og á vísindaleg velgengni ekki minnstan hlut að máli. Heildar- magn einkaleyfa frá þróunarríkj- unum og fyrrum kommúnistaríkj- um á árinum 1998 er minna en 1% af heildareinkaleyfum í Banda- ríkjunum. Hlutur hitabeltisland- Þar sem vanþróuðu löndin eru algjöriega háð nýjungum frá ríku löndunum eru vanda- málin sem brenna á þeim og eru einkenn- andi fyrir þau vanrækt af vísindamönnum heimsins og leiðandi fyrirtækjum í hátækni. anna í heildarútgáfu einkaleyfa, sem eru næstum öll fátæk, er nánast enginn. (Singapúr er eina undantekningin.) Það er ef til vill eðlilegt að þró- uðu ríkin séu skapandi á sviði tækninýjunga en vanþróuðu ríkin notendur. En hið óbreytta ástand er mjög áhættusamt fyrir fátæku löndin. Þar sem vanþróuðu löndin eru algjörlega háð nýjungum frá ríku löndunum era vandamálin sem brenna á þeim og eru ein- kennandi fyrir þau vanrækt af vísindamönnum heimsins og leið- andi fyrirtækjum í hátækni. Sem dæmi má nefna eru mörg fátæk- ustu landanna í hitabeltinu og vandamál tengd hitabeltissjúk- dómum eins og malaríu og land- búnaði í hitabeltinu almennt ekki sinnt af vísindamönnum ríku landanna. Orfá lönd, til að mynda Israel, Kórea og Taívan, hafa náð þeim umskiptum að gerast framleið- endur hátæknibúnaðar. Þau hafa öll hagnast vel fyrir vikið. Það er því kominn tími fyrir þróunar- löndin að setja vísindi og tækni framar í forgangsröðina við stefnumörkun. Breyting á stefnumörkun þyrfti að ná til eftirfarandi þátta: - Styrkja háskólana. (Þar á meðal þarf að hvetja einkaháskóla til að veita ríkisháskólum sam- keppni.) -Auka opinber framlög til vís- indastofnana. - Hvetja fyrirtæki í hátækniiðn- aði í þróuðu löndunum til fjárfest- inga í þróunarlöndunum. - Glæða vísinda- og tæknisam- starf milli háskóla ríku landanna og fyrirtækja á sömu sviðum í þróunarlöndunum. - Auka vernd og réttindi á sviði hugvits til að hvetja til nýsköpun- ar. - Beina alþjóðlegu hjálparfé að rannsóknum og þróun á forgangs- verkefnum (til dæmis heilbriðis- og landbúnaðarmálum), í stað lána frá Alþjóðlega gjaldeyris- sjóðnum til uppbyggingar og að- lögunar. Þessi skref myndu auka kraft vísinda og tækni í þróunarlöndun- um og hleypa þar með nýjum þrótti inní í heildarþróun hagkerf- isins. Höfuadurínn er forstöðumaður Alþjóðlegrar þróunarstofnunar við Harvard-háskóla og efnahags- ráðgjafi ríkisstjórna f Suður- Ameriku, Afríku, Evrópu og Asíu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.