Morgunblaðið - 11.11.1999, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Sitt af hvoru
Helgi Hjaltalín sem á að baki
einkasýningar og hefur átt verk á
samsýningum í flestum helstu
söfnum, auk þess sem verk haris
hafa verið keypt til Listasafns Is-
lands. Það sem Helgi sýnir hér er
eins konar endurómur af nýlegum
sýningum hans og nefnir hann
framlag sitt Gjafír. Þar hefur
hann pakkað verkum inn í ramm-
gerða kassa sem standa á gólfinu
merktir viðtakendum en á veggn-
um fyrir ofan hanga ljósmyndir
sem sýna innihald kassanna.
Þannig fer um sýningargripi
listamannsins; þeim er pakkað
niður og þeir svo sendir út um
hvippinn og hvappinn.
Sólveig Þorbergsdóttir á mörg
verk á þessari sýningu og þau eru
af ýmsum toga. Hún sýnir texta-
verk á vegg og í glugga, hálfklár-
uð málverk af tólf mönnum og
verkið SKÖP-UN sem virðist gert
með því að setjast á strigann.
Pétur Öm Friðriksson sýnir eina
innsetningu þar sem hann beitir,
eins og hann hefur áður gert,
ýmsum tækjum til að líkja eftir
tilraunum raunvísindamanna án
þess þó að nokkur sýnilegur tilg-
angur sé með samsuðunni. Guð-
rún Vera á hér nokkur verk sem
líkt og verk Sólveigar eru ólík svo
erfitt er að átta sig á því hvert
hún vill stefna. Tvö þeirra virðast
þó ramma inn framlag hennar,
annars vegar verkið Ég er lifandi
þar sem hjartalaga kólfur sveifl-
ast neðan úr kassa og hins vegar
verkið I am dying þar sem titill-
inn hefur verið grafinn í stóran
stein.
Elsa Dóróthea sýnir einungis
tvö verk en þau eru líka ansi
áhugaverð. í aðalsal sýnir hún
verkið Ilmurinn úr garðinum þar
sem hún hefur gert ilmvatn af
blómunum í garði sínum og býður
gestum að lykta af því. I gryfj-
unni á neðri hæð sýnir hún hins
vegar ljósmynd af sjálfri sér sem
er liður í allumfangsmiklu verk-
efni sem Elsa nefnir Uppkast að
verki. I því felur hún öðrum að
ráða því hvernig hún er ljósmynd-
uð og að þessu sinni fylgir hún
forskrift „Ömmu Bjargar" eins og
kemur fram í texta með verkinu.
Með þessum hætti felur Elsa
bæði gerð verksins og sig sjálfa í
annars hendur og verður þannig
sjálf aðeins viðfang verksins.
Þetta er ansi ögrandi aðferð og
ekki laust við að hugmyndin veki
ónot hjá áhorfandanum.
Jón Bergmann er eini málarinn
í þessum hópi og sýnir allstór
verk þar sem hann styðst við vör-
umerki þekktra íþróttavörufra-
mleiðenda, Adidas og Nike. Mál-
verkin eru vandlega unnin og
formin látin ráða byggingu svo úr
verður hlutlaus og frekar líflítil
heild eins og kannski hæfir best
auglýsingasamfélaginu. Hugur
manns hvarflar til verks sem An-
dy Warhol vann með þessum
hætti en Jón virðist þó fyrst og
fremst hafa áhuga á formrænu
inntaki vörumerkjanna sem hann
velur sér og er ekki gott að sjá
hvort verkunum er ætlað að hafa
frekari skírskotun, samfélagslega
eða listasögulega.
Sýningin í ASÍ líður fyrir það
að vera nokkuð ósamstæð, auk
þess sem verkin eru missterk,
sum mjög ágeng og umhugsunar-
verð en önnur eins og gerð í flýti
og án mikillar umhugsunar.
Flestir listamennirnir komast þó
vel frá sínum hluta. Eins er enn
ógetið, Hreins Friðfinnssonar,
sem hér fylgir yngi'i kynslóðinni
með tveimur ljósmyndum af sjálf-
um sér að lesa úr bók eftir Rema-
rque, annars vegar í herbergi
fullu af drasli og hins vegar í
tómu rými. Þannig sveiflast listin
milli tómarúms og ofhlæðis og
hver sýning er tilraun til að finna
einhvers konar jafnvægi milli
þessara tveggja póla.
Nyr stciður fyrir
notoðo bílo
MYNÐLIST
Listasafn ASÍ
BLANDAÐ EFNI
ÝMSIR
Safnið er opið frá 14 til 18 alla daga
nema mánudaga. Sýningin stendur
til 14. nóvember.
í LISTASAFNI ASÍ stendur yfir
samsýning nokkurra listamanna,
þeirra Sólveigar Þorbergsdóttur,
Péturs Arnar Friðrikssonar, Elsu
Dórótheu Gísladóttur, Helga
Hjaltalín, Guðrúnar Veru Hjart-
ardóttur og Jóns Bergmanns
Kjartanssonar, auk Hreins Frið-
finnssonar. Eins og von er á eru
verkin úr ýmsum áttum, enda
ekki um neitt sameiginlegt hug-
myndastef að ræða heldur sýna
listamennirnir frá því helsta sem
þeir hafa sjálfir verið að fást við.
Yngri listamennirnir á sýning-
unni hafa allir látið nokkuð á sér
bera í sýningarhaldi undanfarin
ár, mismikið þó, og mótað sér
nokkuð skýra stefnu, stfl og
vinnulag. Reyndastur þeirra er
Sýningin í ASI líður fyrir það að vera nokkuð ósamstæð, segir m.a. í
umfjölluninni. Á myndinni eru sex af listamönnunum sjö sem eiga
verk á sýningunni.
bílci
IQ
B&L
on d
notaóir bílar
Bílaland B&L er ein stærsta bílasala landsins meó notaóa bíla af öllum stæróum og
gerðum. Bílaland er í nýja B&L húsinu við Grjótháls 1 (rétt ofan við Select við
Vesturlandsveg) og þú gengur inn frá Fosshálsi.
Hyundai H1 stuttur,
5.1998, 2500CC
5 g., 4d.,
ek. 29 þ.
hvítur
Land Rover
TDl, 11.1997, 2500CC, 5
g., 4 d., blár, ek. 63 þ
Veró 2,300
Veró 1,420
Hyundai H1 Starex,
02.1999, 2500CC, 5
g., 4 d., þlár, ek. 25 þ
Veró 1,870
Hyundai H-100,
07.1995, 2400CC, 5 g.
4 d., hvítur, ek. 61 þ.
Mazda E-2200 pallbíll,
07.1995, 2200CC,
5 g., 2 d., blár,
ek. 71
Renault Clio Societe RN,
1994, 1200CC, 5 g„
hvítur, ek. 53 þ.
Toyota Hiace
11.1991,
5 g„ 4 d„ hvítur,
ek. 153 þ.
Veró 890
Verð 550
Ford Transit Bus,
05.1996, 2500CC, s]sk„
4 d„ blár, ek. 127 þ.
Veró 1,890
Grjóthálsi 1, sími 575 1230 VerÓ 780
Veró 890
Hyundai H-100,
10.1998, 2500CC, 5
4 d„ hvítur, ek. 28 þ.
Veró 1,390
Verð 790
Renault Clio Societe RN,
04.1997, 1200CC,
5 g„ 3 d„ hvítur,
ek„ 40 þ.
Veró 880
Peugeot Partner,
1.1997, 1100CC, 5 d„
3 d„ grænn, ek. 15 þ.
Verð 370
Veró 880
Renault Express,
11.1990, 1400CC,
5 g„ 3 d„ hvítur,
ek„ 95 þ.
\
\
Jón Proppé