Morgunblaðið - 11.11.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 35
mikilvægur í þjónustu sjóðsins til
að námsmenn geti gert grein fyrir
viðkvæmum málum er varða nám
þeirra og persónulegar aðstæður.
Sama gildir um útskýringar fyrir
þá sem telja á sér brotið og með-
ferð vafamála.
Hagnýtar
upplýsingar
í áðurnefndri skýrslu er einnig
bent á fleiri atriði sem talin eru
nauðsynleg á vefnum. Má þar
nefna úthlutunarreglur LÍN og
útskýringar á þeim og reiknilíkan
þar sem hægt er að reikna út hvað
maður fær í lán, hver endur-
greiðslubyrðin verði o.s.frv. Til
viðbótar getur vefurinn gegnt
hefðbundnu upplýsingahlutverki.
Lánasjóðurinn þarf oftar en ekki
að koma upplýsingum á framfæri
og reglulegar fréttir af starfsemi
sjóðins myndu gefa vefnum aukið
vægi. Einnig er sjálfsagt að fund-
argerðir stjórnar LIN verði settar
á Netið að undanskildum trúnað-
armálum er varða einstaka náms-
menn. Sama má segja um árs-
skýrslu sjóðsins.
Endurbætur
hafnar
Námsmannahreyfíngarnar hafa
með umræddri skýrslu bryddað
upp á breytingum sem þær telja
nauðsynlegar á netsíðu LÍN. Þær
hafa einnig gengið eftir því að
breytingarnar verði gerðar. Nú
hefur aðili verið ráðinn til að vinna
endurbætur á heimasíðu sjóðsins.
Þær munu eiga sér stað í áföngum
og eru þegar hafnar.
Ég tel afar mikilvægt að við lok
þessarar endurskoðunar hafi
ábendingar námsmanna verið
teknar til greina og umtalsverður
hluti þjónustu LÍN fluttur yfir á
Netið. Breytingarnar munu horfa
til mikilla hagsbóta fyrir bæði
námsmenn og sjóðinn. Þær munu
spara námsmönnum og aðstand-
endum þeirra sporin, létta álagi af
starfsfólki sjóðsins og tryggja ör-
uggari gagnaflutning.
Höfundur situr í Stúdentaráði fyrir
Röskvu og er fulltrúi SHÍ ( stjöm
LÍN.
eins og aðrir atvinnurekendur
hljóta að verða að bregðast við þeg-
ar samkeppni um vinnuafl er hörð,
eigi þeir að geta veitt þá þjónustu
sem þeim ber. Leikskólar eru hluti
af þeirri samfélagsþjónustu sem
nútímaþjóðfélag krefst og ættu í
raun að vera ókeypis að stærstum
hluta ef réttlætið væri haft í fyrir-
rúmi og litið væri á leikskólarekst-
ur sem samfélagslega ábyrgð.
Foreldravandamál
Það hefur komið fram hjá borg-
arstjóra að foreldrar séu tilbúnir að
greiða hærri leikskólagjöld svo
greiða megi hærri laun og til standi
að hrinda því í framkvæmd. Þó
nokkrir foreldrar hafi í öngum sín-
um við þessar aðstæður sagst vera
tilbúnir til þess, er ómaklegt að al-
hæfa út frá því. I kjölfar mikils óör-
yggis með barnið sitt, væri það eins
og köld gusa í andlitið á foreldrum,
að mati undirritaðrar. Þar að auki
væri það neyðarlegt fyrir Reykja-
víkurlistann að ætla að leita í
smiðju sjálfstæðismanna á Sel-
tjarnarnesi og senda reikninginn til
foreldra leikskólabama. Eigi að
fara þessa leið á líka að hækka taxt-
ana umbúðalaust, en ekki vera í
einhverjum feluleik með aukafjár-
magn. Starfsfólk leikskólanna þarf
hærri laun fyrir þá vinnu sem innt
er af hendi, það er ekki að biðja um
yfirvinnutíma.
Nokkrar fleiri hugmyndir hafa
komið fram um lausn vandans, eins
og að íjölga bömum og einkavæða
leikskólana. Ég ætla ekki að gera
þær að umfjöllunarefni hér öðmvísi
en að vísa þeim alfarið til föðurhús-
anna. Reykjavíkurlistinn verður án
tafar að grípa til ráða sem duga og
leysa böm, starfsfólk og foreldra úr
þessu óvissuástandi sem víða ríkir.
Leikskólinn má ekki verða pólitískt
bitbein._________________________
Höfundur er formaður Félags
fslenskra leikskólakennara.
Áfengi í matvöruverslanir!
EKKI alls fyrir
löngu hóf verslunin
Nýkaup þarfa um-
ræðu sem alltof lengi
hefur legið í dvala og
ekki verið sinnt sem
skyldi, nefnilega þá að
leyfa sölu léttvíns og
bjórs í matvöruversl-
unum. Ekki leið held-
ur á löngu þar til góð-
templari nokkur reis
upp á afturfætuma og
úthúðaði téðu fyrir-
tæki fyrir glæpsam-
legt athæfi og sakaði
verslunina um brot á
áfengislöggjöfinni fyr-
ir að hefja máls á
þessu þarfa máli. Fyrr átti ég á
dauða mínum von en að það athæfi
Nýkaups að hefja umræðu í þjóðfé-
laginu teldist brot á lögum og er
það raunar með ólíkindum að menn
skuli láta þetta út úr sér. Umrædd-
ar auglýsingar geta á engan hátt
talist brot á áfengislöggjöfinni enda
ræðir Nýkaup þar einfaldlega al-
mennt um frelsi í sölu á áfengi og
styður þessa hvatningu sína til
stjómvalda um að leyfa sölu áfeng-
is í matvörubúðum, með sviðsettri
uppstillingu af óaðgengilegu víni á
bak við lás og slá. Hvergi er þar
minnst á einstakar tegundir áfeng-
is og á engan hátt er hvatt til neyslu
á áfenginu, heldur er
einungis verið að sýna
fram á þá tímaskekkju
sem tilvera ÁTVR
augljóslega er. Hér
hefur Nýkaup eins og
aðrir þegnar og lög-
persónur í landinu
skilyrðislausan rétt til
tjáningar sem bundið
er kyrfilega í tjáning-
arfrelsisákvæðum
stjórnarskrár.
En umræðan er
þörf því alltof lengi
hefur það vertö látið
viðgangast að ÁTVR
selji í lokuðum og af-
mörkuðum sölubúðum
vökva sem víða um heim hefur ver-
ið talinn sjálfsögð mannréttindi að
geta nálgast á aðgengilegan hátt.
Til að bæta svo gráu ofan á svart er
það oft á tíðum háð geðþóttaá-
kvörðunum innan stofnunarinnar
hvort og hvar áfengisútsölur em
staðsettar um landið þannig að
íbúar ýmissa afskekktari byggðar-
laga landsins þurfa oft að ferðast
yfir fjöll og fimindi til að geta nálg-
ast þessar guðaveigar. Brýtur
þetta í bága við þá vitund manna að
njóta jafnræðis af hálfu ríkisvalds-
inshvar svo sem þeir búa.
I annan stað er það svo verðlagið
í Ríkinu sem alla tíð hefur verið yf-
Áfengismál
Nýkaup á hrós skílið, að
mati Arnars Þórs
Stefánssonar, fyrir að
vekja máls á þessu
brýna máli.
irgengilega hátt. Mörg hundmð og
jafnvel þúsund prósentum hærra
en gerist og gengur í þeim löndum
sem við berum okkur saman við, og
jafnvel þar sem áfengiseinkasölur
em þó við lýði. Verðlag sem þetta
er einfaldlega ekki hægt að rétt-
læta og myndi fljótlega hrapa niður
um helming þegar fólki verða
tryggð þessi sjálfsögðu mannrétt-
indi að geta skroppið út í búð til að
kaupa áfengi. Auðvitað þyrfti að
gera ákveðnar kröfur til kaup-
manna, s.s. um hindran á aðgengi
of ungs fólks o.þ.h. en sannast
sagna þá er það staðreynd sem ekki
verður á móti mælt að ef krakkar
ætla sér að ná í áfengi þá tekst það,
sama þótt það sé selt í áfengis-
einkasölum eða annars staðar auk
þess sem áfengiskaupaaldur sá sem
nú er við lýði er enn ein tíma-
skekkjan.
í rauninni er sala áfengis í búð-
um aðeins einn þáttur í þessu máli
og raunar þarfur þáttur. Og þó að
góðtemplarinn galvaski, Sigurður
Magnússon, hóti því að versla
aldrei aftur í Nýkaupi þá verður að
telja augljóst að Nýkaup trekkir að
margfalt fleiri viðskiptavini sem
styðja þetta framtak verslunarinn-
ar en sem nemur missinum á Sig-
urði og hans líkum sem viðskipta-
vinum. Nýkaup á því hrós skilið
fyrir að vekja máls á þessu brýna
máli og nýta sér þar með óumdeild-
an rétt til tjáningarfrelsis. Umræða
Nýkaups er því ekki frekar áfengis-
auglýsing en þessi grein er slík
auglýsing.
Höfundur er nemi við HÍ.
ÞÚ GETUR jtíml
SPARAÐ ■llÍÍII.
ÞÚSUNDIR
Gleraugnaverslunin
SJÓNARHÓLL
HAFNARFIRÐI & GLÆSIBÆ
Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á íslandi
Arnar Þór Stefáns-
son
1.830.000 te
Rétta veröió fyrirrétta veöriöl
Suzuki Vitara - raunhæft ráð gegn íslenskum vetri
Traustur, upphækkanlegur, alvöru 4x4 jeppi á ÓTRÚLEGU verði • Hátt og lágt drif
Byggður á grind • Kraftmikil og hljóðlát vél • Einstaklega góður í endursölu
ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ:
• vökvastýri • 2 ioftpúða •
• aflmikfar vélar • samfæsingar •
• rafmagn f rúðum og speglum •
• styrktarbita í hurðum •
Sjálfskipting kostar 150.000 KR.
$ SUZUKI
/A
SUZUKIBILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
é
Aukahlutur á mynd: staerri dekk
.■v «*.