Morgunblaðið - 11.11.1999, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999 53
JON KRISTINN
RÖGNVALDSSON
+ Jón Kristinn
Rögnvaldsson
fæddist í Dæli í
Skíðadal 26. janúar
1913. Hann lést á
Dalbæ, heimili aldr-
aðra á Dalvík, 4.
október síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Dalvíkur-
kirkju 12. október.
Elsku afi. Ertu þá
farinn og loksins frjáls.
Frjáls frá súrefninu og
það aftrar þér ekki
lengur. Nú loksins get-
urðu gert eins og þig langar til.
Eins og Margrét, litla systir mín,
sagði að nú getur þú verið hjá kind-
unum sem þú gast ekki síðustu ár
vegna veikinda þinna. Það er á
svona stundum sem maður hugsar
um allt það góða og skemmtilega
sem við gerðum saman þegar ég var
yngri. Ef ég ætti að taka það allt
væri það sjálfsagt efni í heila bók en
nokkrar minningar komu upp í hug-
ann.
Maður mun aldrei gleyma þér og
margar minningar úr æskunni í
sveitinni eru tengdar þér. Eg man
alltaf þegar þú gafst mér veiði-
stöngina þína. Þú varst búinn að fá
nýja og stærri stöng og þess vegna
gafstu mér þá gömlu. Mér fannst
mér allir vegir færir og allir fisk-
arnir í ánni máttu fara að vara sig
því ég hafði fengið gömlu stöngina
hans afa að gjöf.
Einnig sagðirðu mér oft sögur af
miklum veiðiskap frá fyrri árum
þegar þið pabbi veidduð mikið þó
svo að minna höfum við fengið nú á
síðari árum.
Ljóslifandi eru einnig fyrir mér
minningarnar þegar þú varst oftar
en ekki á dráttarvélinni og ég fékk
að standa hjá þér. Mér fannst þetta
alveg rosalega gaman og ekki var
það síðra þegar ég fékk að stýra
með þér. Þú varst líka fyrsti kenn-
arinn minn á dráttarvélamar og
fannst mér það rosalega gaman að
geta loksins gert eins og þú.
Fleiri útiverk eru mjög svo tengd
þér í minningunni. Fjárhúsin munu
alltaf eiga stóran sess í huga mín-
um. Ég man það svo vel að þú reifst
heyið í sundur og pabbi gaf á garð-
ann. Svo þegar ég varð nógu gamall
til að geta hjálpað til við að gefa var
sú ábending frá þér, að ekki mætti
slæða á hausana á kindunum sem
Til marks um hve ró-
legur og yfirvegaður
þú varst var það hrein
unun að fylgjast með
ykkur pabba horfa á
handboltaleik. Hvort
sem það var KA eða ís-
lenska landsliðið og allt
á suðupunkti þá sátuð
þið sallarólegir og lét-
uð ekki læti okkar
hinna í fjölskyldunni
yfir leiknum hafa ein
einustu áhrif á ykkur.
Sem dæmi um góð-
vild þína var að Skó-
dinn þinn var alltaf til
reiðu þegar ég þurfti að.fá hann lán-
aðan, svo og rakvélin þín þegar mér
fór að vaxa smáskegg.
Elsku afi, þegar frá líður koma
fallegar minningar í stað sárs-
aukans og það sem gerði mann
sorgmæddan er í raun allai- fallegu
minningamar. Það að vita að nú
sértu frjáls og að þér líði vel er ljós í
myrkrinu.
Nú blundar fold í bllðri ró,
á brott er dagsins strið,
og b'ður yfir land og sjó
hin ljúfa næturtíð
Þá mæða sálar hverfúr hver,
svo hvílst þú getur rótt,
og sjálfur Drottinn sendir þér,
er sefur, góða nótt.
(J. Helgason)
Guð geymi þig, elsku afi minn.
Svanberg Snorrason.
+
Ástkær faðir okkar og sambýlismaður, tengda-
faðir, afi og langafi,
HARALDUR S. GÍSLASON
rafverktaki
frá Stykkishólmi,
Stelkshólum 10, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 9. nóvember á líknardeild
Landspítalans.
Sjöfn Haraldsdóttir,
Hlöðver Haraldsson,
Sif Haraldsdóttir, Benedikt Sveinsson,
Sigríður I. Haraldsdóttir, B. Gunnar Ingvarsson,
Valdís H. Haraldsdóttir, Björn Guðmundsson,
Magnea Á. Haraldsdóttir, Marius Zimmermann,
Albert Haraldsson,
barnabörn, barnabarnabarn
og Ingibjörg Axelsdóttir.
+
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
JÓHANNES ÓLAFSSON,
lést á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagins 9.
nóvember.
Oddný Ólafsdóttir Frederiksen, Jens Frederiksen,
Gestur Ólafsson, Monika Kuss,
Elín Þorgerður Ólafsdóttir, Grétar Ottó Róbertsson,
Jóna Ólafsdóttir, Helgi Valdimarsson,
Yngvi Ólafsson, Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir,
Óttar Ólafsson, Sigríður G. Valdimarsdóttir
og systkinabörn.
rótgróin í huga mér og ég reyndi
eftir bestu getu að fara eftir henni
þó svo að það gengi ekki alltaf sem
skyldi í byrjun.
Ljóslifandi er það mér í minning-
unni þegar þú varst að reyna að
kenna mér að slá með orfi og ljá. Þú
varst alger snillingur með ljáinn en
það gekk frekar brösótt að reyna að
kenna mér.
Þær voru ekki síðri stundimar
sem við áttum saman inni. Ég man
alltaf þegar við vorum að tefla. Ég
var byrjandi og þú varst alltaf að
kenna mér hvemig væri hægt að
verjast sókn taflmannanna. Það
gekk svo sem ekki vel í fyrstu því
þú vannst oftast og í þau skipti sem
ég vann held ég að þú hafir alveg
getað unnið en bara viljað láta mig
vinna. Svo ekki sé talað um kasín-
una sem við spiluðum. Það vom sér-
stakar stundir að liggja inni á svefn-
bekk hjá þér og spila við þig. Einnig
þótti oklair systkinunum á unga
aldri gaman að leggjast inn tii ykk-
ar ömmu á svefnbekkina á kvöldin
og sofna þar. En pabbi bar okkur
síðan yfir í okkar rúm þegar leið á
kvöldið.
Óheppni mín í íþróttum og þá að-
allega fótbolta var mikil um tíma.
Og alltaf baðst þú mig að hætta að
spila þegar ég kom meiddur heim.
Ég ætti ekki að vera að þessu. Þú
sagðir að ég hefði ekkert annað en
beinbrot og önnur meiðsli upp úr
því og það kom svo á daginn að
þetta hélt áfram. Hef ég síðan farið
að þínum ráðum, hætt í fótboltanum
og verið heill maður upp frá því.
+
Elskuleg eiginkona mín, móöir okkar, tengda-
móðir og amma,
VERONIKA E. JÓHANNESDÓTTIR,
Lágholti 2,
Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju föstu-
daginn 12. nóvember kl. 13.30.
Axel Albertsson,
Aldís Anna Axelsdóttir,
Albert Axelsson,
Agnar Logi Axelsson, Ágústa Hallsdóttir,
Karl Axel, Sveindís Björk,
Halla Ýr, Tinna Rut, Vera Ósk,
Hallur Ólafur, Gunnar Logi.
+
Innilgar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við andlát og útför sonar
okkar, bróður, mágs og frænda,
SIGURGEIRS STEFÁNSSONAR,
Ytri-Neslöndum.
Stefán Axelsson, Kristín Sigurgeirsdóttir,
Aðalbjörg Stefánsdóttir, Guðmundur Magnússon,
Axel Stefánsson,
Sigríður Stefánsdóttir, Pétur Bjarni Gíslason,
Stefanía Stefánsdóttir,
Álfdís Stefánsdóttir,
Guðfinna Axelsdóttir og frændsystkini.
+
Ástkær unnusti minn og faðir, sonur okkar og
bróðir,
VALTÝR MAGNÚS HELGASON,
lést af slysförum laugardaginn 6. nóvember.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 12. nóvember kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem
vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð í
Landsbanka íslands, nr. 0115-05-061877.
Elín Karol Guðmundsdóttir,
Alexander Aron Valtýsson,
Helgi Björgvinsson, Marín Valtýsdóttir,
Helgi Björgvin Helgason,
Jón Bjarni Helgason og fjölskylda,
Alexander Helgason og fjölskylda.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INDRIÐI NÍELSSON
byggingameistari,
Flókagötu 43,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 12. nóvember kl. 13.30.
Ingunn Hoffmann,
Hans Indriðason, Erla Einarsdóttir,
Níels Indriðason, Guðlaug Ástmundsdóttir,
Indriði Indriðason, Anna Toft,
Gunnar Indriðason, Hildur Þorvaldsdóttir,
Ragnheiður Indriðadóttir, Kristinn Karlsson
og afabörn.
+
Bróðir okkar,
PÁLLÁRNASON
frá Setbergi,
Hornafirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju laugar-
daginn 13. nóvember kl. 14.00.
Jarðsett verður í Hoffellskirkjugarði.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Skjól-
garð, dvalarheimili aldraðra, Hornafirði eða líknarfélög.
Ari og Helgi Árnasynir
og aðrir aðstandendur.
+
Systir okkar,
SIGRÚN SIGMUNDSDÓTTIR,
Mýrargötu 18,
Neskaupstað,
verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju laugar-
daginn 13. nóvember kl. 14.00.
Guðrún Sigmundsdóttir,
Stefán Sigmundsson,
Árnína Sigmundsdóttir.
+
GUÐMUNDUR VIGFÚSSON
bóndi,
Kvoslæk,
Fljótshlíð,
verður jarðsunginn frá Breiðabólsstað, Fljótshlíð laugardaginn
13. nóvember kl. 13.00.
Vandamenn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SÓLVEIGAR JÓNU MAGNÚSDÓTTUR,
Húsatóftum,
Skeiðum.
Guðmundur Eyjólfsson,
Guðrún Eygló Guðmundsdóttir, Markús Alexandersson,
Grétar Magnús Guðmundsson, Katrín Svala Jensdóttir,
Ingibjörg Sigríður Guðmundsdóttir, Gunnar Einarsson,
Aðalsteinn Guðmundsson, Ástrún Davíðson,
Gylfi Guðmundsson, Margrét Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.