Morgunblaðið - 16.12.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stjórn Samtaka atvinnulífsins telur ekki nóg að gert í ríkisfj ármálum
Fyrirtækin og heimilin þola
ekki að verðbólga fari af stað
STOÐUGLEIKINN í efnahagslíf-
inu er í mikiili hættu, að mati Sam-
taka atvinnulífsins. I ályktun stjóm-
arinnar um áherslur við efnahags-
stjórn er tekið undir sjónarmið
Seðlabankans um að auka þurfi að-
hald í ríkisfjármálum, áfram verði
aðhaldssöm peningastefna og að
gerðir verði raunhæfir kjarasamn-
ingar.
Hættumerkin birtast í þenslu á
vinnumarkaði, segir í ályktun stjóm-
ar Samtaka atvinnulífsins, vaxandi
verðbólgu, miklum viðskiptahalla og
versnandi afkomu í útflutnings- og
samkeppnisgreinum. „Fyrirtækin
og heimilin þola ekki að verðbólgan
fari af stað á ný.“ I því sambandi er
vakin athygli á auknum skuldum
heimilanna sem muni nema 144% af
ráðstöfunartekjum á þessu ári, þrátt
fyrir að kaupmáttur hafi aukist um
fjórðung undanfarin ár.
Fram kemur að ofþenslan í efna-
hagslífinu hefur leitt til versnandi
samkeppnisstöðu fyrirtækja í al-
þjóðlegri samkeppni, minnkandi
hagnaðar og markaðshlutdeildar.
Undanfarin ár hafi launahækkanir
hér á landi verið tvöfalt meiri en í
viðskiptalöndum. „Til lengri tíma
leiðir þessi þróun til þess að störfum
fækkar og verðmætasköpun minnk-
ar. Ef viðhalda á hlutdeild þess hluta
atvinnulífsins sem býr við alþjóðlega
samkeppni verður verðlags- og
kostnaðarþróun að vera svipuð og í
viðskiptalöndunum," segir í ályktun-
inni.
Óraunhæfar væntingar um
miklar launahækkanir
Stjóm SA tekur undir sjónarmið
Seðlabankans um að forsendur þess
að verðbólgan hjaðni á ný séu að
saman þurfi að fara aukið aðhald í
ríkisfjármálum frá því sem verið hef-
ur, áframhaldandi aðhaldssöm pen-
ingastefna og raunhæfir kjarasamn-
ingar. Ljóst sé að fjárlagafrumvarp-
ið, sem nú er til lokaafgreiðslu á
Alþingi, skili ekki þeim afgangi sem
nægir til að draga úr þenslunni í
efnahagslífinu. Aukist ekki aðhald í
ríkisfjármálum sé stöðugt gengi
krónunnar í hættu. „Við teljum að
aðhaldið þurfi að vera meira,“ segir
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins. „Benda má á
að samneysla á vegum ríkis og sveit-
arfélaga hefur aukist um næstum því
50% frá árinu 1996. Samtök atvinnu-
lífsins geta ekki verið sammála fjár-
málaráðherranum um að ekki sé
hægt að gera betur en þetta,“ segir
Ari og vekur jafnframt athygli á því
að stjórn samtakanna telji að sér-
staks átaks sé þörf á vettvangi ríkis
og sveitarfélaga í því að nýta mark-
aðslausnir til að auka framleiðni og
lækka opinber útgjöld.
Stjóm SA telur að það sé grund-
vallaratriði að almenni vinnumark-
aðurinn marki launastefnuna á
hverjum tíma og að opinberir aðilar
fylgi henni. Þessu hafi verið þveröf-
ugt farið undanfarin ár þar sem
launaþróun innan opinbera geirans
hafi farið langt umfram það sem
gerst hafi almennt á vinnumarkaði.
Fram kemur að einstök fordæmi af
hinum opinbera vettvangi hafi skap-
að óraunhæfar væntingar um miklar
launahækkanir. „Þessar væntingar
eiga sér ekki stoð í þeim efnahags-
lega vemleika sem við blasir um
þessar mundir og er útilokað fyrir
atvinnurekstur í samkeppni að
standa undir þeim.“ Ari Edwald seg-
ir að Samtök atvinnulífsins hafi mik-
inn áhuga á að taka höndum saman
við aðra aðila í efnahagslífinu í þeim
tilgangi að verja eins og kostur er
þann kaupmátt sem áunnist hafi, áð-
ur en það verði um seinan.
Hald lagt á
70 grömm
af kókaíni
LÖGREGLUMENN í eftirlitsferð
handtóku í fyrrinótt þrjá menn sem
grunaðir voru um að reyna að vitja
falinna fíkniefna innan borgarmark-
anna. Við nánari leit fundust um 70
grömm af kókaíni sem lögreglan
lagði hald á.
Mennirnir voru jdirheyrðh' af
starfsmönnum fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík þar sem þeir
gerðu grein fyrir málum sínum.
--------------
Berglín dregin
til hafnar
BJÖRGUNARSKIPIÐ Hannes
Hafstein dró togskipið Berglín GK
til hafnar í gær vegna vélarbilunar.
Berglín var á leið á togveiðar á Vest-
fjarðamiðum er bilunar varð vart í
vélinni um klukkan þrjú í fyrrinótt.
Var skipið þá á siglingu rúmar 20
sjómílur norðaustur af Garðskaga.
Kallað var eftir aðstoð Hannesar
Hafstein, sem tók Berglín í tog um
níuleytið í gærmorgun.
Sala á 15% hlutabréfa í Búnaðar-
banka og Landsbanka hafín
V erð á markaði
5-10% hærra
en útboðsgengi
SALA á 15% hlut ríkisins í Lands-
banka og Búnaðarbanka hófst í gær
en henni lýkur kl. 16 á föstudag, 17.
desember.
Almenningi býðst að kaupa allt að
10% hlutafjár ríkisins með áskrift.
Eins er óskað eftir tilboðum í 5%
hlutafjár ríkisins. Tilboðssala fer
fram á sama tíma og sala til almenn-
ings. Það hlutafé sem ekki selst í al-
mennri sölu bætist við þann hluta
sem seldur er með tilboðsfyrirkomu-
iagi.
I Landsbanka Islands hf. getur
hver áskrifandi skráð sig fyrir hluta-
fé að hámarki 270.000 krónur að
nafnvirði á genginu 3,8. í gær námu
viðskipti á Verðbréfaþingi Islands
með bréf í Landsbankanum 43 millj-
ónum króna og hækkaði gengi bréf-
anna um 0,2%, úr 4,15 í 4,16 sem er
9,5% hærra en útboðsgengi bankans.
í Búnaðarbanka Islands hf. getur
hver áskrifandi skráð sig fyrir hluta-
fé að hámarki 250.000 krónur að
nafnvirði á genginu 4,1. Um 5 millj-
óna króna viðskipti voru með Búnað-
arbankabréf á VÞÍ í gær og stóð
gengi þeirra í stað, í 4,30, sem er tæp-
lega 5% hærra en útboðsgengið.
Verði um umframáskrift í al-
mennri sölu að ræða skerðist hlutur
þeirra sem skrá sig fyrir hæstu fjár-
hæðunum fyrst og síðan þeirra sem
næst koma þar til jafnvægi hefur
náðst milli framboðs og eftirspurnar.
Skerðingin verður því mest á hæstu
áskriftarfjárhæðunum og minnst eða
engin á þeim lægstu.
I tilboðssölu er gengi við almennt
útboð notað sem lágmarksviðmiðun.
I Landsbankanum er lágmarksfjár-
hæð í tilboðssölu 270 þúsund krónur
að nafnverði og hámark til hvers
kaupanda 55 milljónir króna að nafn-
verði. I Búnaðarbankanum er lág-
marksfjárhæð í tilboðssölu 250 þús-
und krónur að nafnverði og hámark
til hvers kaupanda 35 milljónir króna.
Síðasti greiðsludagur
er 11. janúar
Greiðsluseðlar verða sendir út inn-
an viku frá lokum áskriftartímabils
og er síðasti greiðsludagur þriðju-
daginn 11. janúar 2000. Kaup á hluta-
bréfum í bönkunum veita almenningi
rétt til skattafsláttar vegna hluta-
bréfakaupa á árinu 1999.
Með sölunni er ætlunin að uppfylla
skilyrði Verðbréfaþings íslands um
að a.m.k. 25% hlutafjár og atkvæðis-
réttar sé í dreifðri eign. Þegar Verð-
bréfaþing samþykkti að skrá hlutafé
bankanna á aðallista þingsins síðla
árs 1998 var veitt undanþága frá skil-
yrði um dreifða eign, með þeim kvöð-
um að dreifing hlutafjár í samræmi
við reglur þingsins yrði tryggð eigi
síðar en l.júní2000.
Morgunblaðið/Júlíus
Eldur í
flutningabfl
í Örfirisey
ELDUR kom upp í flutningabíl
Skeljungs hf. innan athafnasvæðis
fyrirtækisins í Örfirisey laust fyrir
klukkan 21 í gærkvöldi.
Eldurinn kom upp í hlíf ofan á vél
bflsins, að sögn varðstjóra í slökkvi-
liði Reykjavíkur. Slökkviliðið kom
fljótt á vettvang og gekk greiðlega
að slökkva eldinn.
Að sögn varðstjóra var fjarkegð
bifreiðarinnar frá olíutönkum fyr-
irtækisins það mikil að ekki var
veruleg hætta á ferðum.
Kvikmyndahátíðin í Gautaborg
Englar alheimsins
opnunarmynd
NY mynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, „Englar alheimsins", sem
byggð er á samnefndri sögu Ein-
ars Más Guðmundssonar, verður
opnunai-mynd kvikmyndahátíðar-
innar í Gautaborg í Svíþjóð sem
hefst 28. janúar næstkomandi.
Myndin verður frumsýnd á
nýársdag á íslandi, en fyrsta
sýning hennar erlendis verður á
kvikmyndahátíðinni. Frá þessu
segir í netútgáfu dagblaðsins
Dagens Nyheter. Þar segir
einnig að mikil áhersla verði lögð
á íslenskar myndir á hátíðinni,
bæði gamlar og nýjar.
llSUi
íslendingar gerðu jafntefli
við ítali / B2
Arnar skoraði fyrir
Leicester City / B3
Jílorounblnbll)
5SBÆKUR
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is