Morgunblaðið - 30.12.1999, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 30. DESEMBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Jörð skalf
í Mexíkó
JARÐSKJÁLFTI sem mældist
5,9 stig á Richter varð á Kyrra-
hafsströnd Mexíkós á þriðju-
dagskvöld (eða snemma í gær-
morgun að íslenskum tíma), en
engar fréttir hafa borist af
manntjóni eða skemmdum.
Upptök skjálftans voru um 90
km norður af Petatlan, sem er
um 160 km frá ferðamanna-
staðnum Acapulco.
Fórst í
Svartahafí
TALIÐ er að úkraínsk flutn-
ingaflugvél, með að minnsta
kosti fimm manns innanborðs,
hafi farist í Svartahafi úti fyrir
strönd Tyrklands á þriðjudag,
að því er tyrknesk yfirvöld
greindu frá í gær. Vélin var af
gerðinni Antonov-28, tveggja
hreyfla. Samband við vélina
rofnaði skömmu eftir að hún
kom inn í tyrkneska lofthelgi, og
segja þarlendir embættismenn
að allar líkur séu á að hún hafi
farist því ekki hafi borist fregnir
af því að hún hafi lent í neinu
nágrannalandanna.
Engin hátíð í
Jerúsalem
LÍTIÐ verður um hátíðahöld í
Jerúsalem á gamlárskvöld,
bæði vegna mjög strangrar ör-
yggisgæslu og banns sem
rabbínar hafa lagt við veislu-
höldum. Áætlað hafði verið að
Messías eftir Handel, yrði flutt-
ur, en hætt hefur verið við það
þar eð ekki tókst að afla fjár til
að stand straum af öryggis-
gæslu. Þá hefur lögregla bann-
að fyrirhugaðan dansleik, sem
halda átti á knattspymuleik-
vangi, vegna ótta við hryðju-
verk.
Lewinsky í
megrun
MONICA Lewinsky, sem öðlað-
ist heimsfrægð vegna meintra
tengsla við Bandaríkjaforseta,
hyggst græða á frægð sinni með
því að koma fram í sjónvarps-
auglýsingu fyrir skipulagðan
megrunarkúr. Munu birtast af
henni myndir „fyrir“ og „eftir“
að hún grenntist, en hún segir
að þessi megrunarkúr hafi
hjálpað sér að léttast um 15 kíló.
I fangelsi fyr-
ir nauðgun
EGYPTI sem fékk ísraelskt rík-
isfang eftir að hafa unnið með
ísraelsku leyniþjónustunni hef-
ur verið dæmdur í 16 ára fang-
elsi fyrir að nauðga ísraelsku
stúlkunni Lior Abargail á Italíu
í fyrra, en hún var kjörin ungfrú
heimur um tveim mánuðum síð-
ar. Maðurinn kveðst saklaus.
Moskvubúar
bjartsýnir
ÍBÚAR í höfuðborg Rússlands
mæta nýárinu með óvenjulega
mikilli bjartsýni á að afkoma
fjölskyldna þeirrá batni, sam-
kvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar sem fréttastofan IT-
AR-Tass greindi frá í gær.
Fjörutíu og tveir af hundraði að-
spurðra væntu betri tíðar, en í
könnunum undanfarin ár hefur
hlutfall þeirra sem eru
bjartsýnir aldrei farið yfir 30%.
Saksóknari
hefur rannsókn
á málum Kohls
Berlín. AFP, AP, Reuters.
SAKSÓKNARINN í
Bonn tilkynnti þýzka
þinginu í gær, að hann
hygðist hefja saka-
rannsókn á málum
Helmuts Kohls, fyrr-
verandi kanzlara,
vegna meintra ólög-
legra greiðslna í
flokkssjóð Kristilegra
demókrata, CDU, sem
Kohl hefur viðurkennt
að hafa tekið við.
Forseta þingsins,
Wolfgang Thierse,
barst þessi tilkynning í
gærmorgun, en Kohl
situr enn á þingi.
Thierse hefur tvo daga
til að andmæla rannsókninni, en
ekki er búizt við að hann geri það.
Ekki mun þörf á því að svipta Kohl
þinghelgi til að rannsóknin geti haf-
izt, en engu að síður kom Thierse
bréfi saksóknara í hendur þing-
nefndar þeirrar sem fjallar um þing-
helgismál.
í tilkynningu frá
skrifstofu Kohls segir
að hann harmi ákvörð-
un saksóknara, en heiti
góðum samstarfsvilja.
„Hann setur traust sitt
á fagleg vinnubrögð
saksóknaryfirvalda og
mun liðsinna þeim við
þetta verk eins vel og
honum er unnt,“ segir í
tilkynningunni, sem
talsmaður Kohls miðl-
aði til fjölmiðla.
Kanzlarinn fyrrver-
andi sat á valdastóli í
16 ár samfleytt unz
hann tapaði þingkosn-
ingum í fyrrahaust og
var formaður CDU í 25 ár. Hann
viðurkenndi fyrir nokkrum vikum
að hafa ráðið yfir kerfi leynilegra
bankareikninga, þar sem geymd
voru framlög til flokksins frá aðilum
sem heitið var nafnleynd. Slíkar
leynigreiðslur eru brot á þýzkri lög-
gjöf um stjórnmálaflokka.
Síðasti forsætisráð-
herra de Gaulle látinn
MAURICE Couve de Murville, síð-
asti forsætisráðherra Frakklands á
valdatíma Charles de Gaulle, lést á
aðfangadag, 92 ára að aldri.
Couve de Murville starfaði fyrir
frönsku andspymuhreyfinguna í
Alsír í síðari heimsstyrjöldinni og
varð einn af nánustu samstarfs-
mönnum de Gaulle eftir að stríðinu
lauk. Þegar de Gaulle komst til valda
árið 1958 skipaði hann Couve de
Mimville utanríkisráðherra og hann
gegndi því embætti í tíu ár.
Couve de Murville þótti mjög hæf-
ur utanríkisráðherra og átti stóran
þátt í að móta utanríkisstefnu de
Gaulle sem miðaði að því að tryggja
Frökkum forystu í Vestur-Evrópu
og gera þá óháða Bandaríkjunum.
Hann stuðlaði meðal annars að vin-
áttusamningi Frakka við Vestur-
Þjóðverja og beitti sér fyrir því að
Frakkar hindruðu aðild Breta að
Efnahagsbandalagi Evrópu, slitu
hernaðarsamstarfinu við Atlants-
hafsbandalagið og viðurkenndu
stjóm kommúnistaflokksins í Kína.
De Gaulle skipaði hann fjármála-
ráðherra í maí 1968 og gerði hann að
forsætisráðherra tveimur mánuðum
síðar eftir óeirðir námsmanna og
verkamanna í París. Couve de Mur-
ville tók við embættinu af George
Pompidou en gegndi því aðeins í
tæpt ár. Hann lét af embætti i júní
1969 eftir að de Gaulle sagði af sér.
Nýr vagn páfa
JÓHANNES Páll páfi tók í gær í notkun þennan hjólavagn til þess að
komast leiðar sinnar þegar hann heilsaði fólki sem safnaðist saman í
Péturskirkjunni. Tveir starfsmenn Vatíkansins ýttu vagninum, sem er
upphækkaður, til þess að páfi, sem er 79 ára, verði betur sýnilegur.
Skýrt frá atburðum í Norður-Noregi 1968
Lá við stríðsátökum
við Sovétríkin
HÆTTUÁSTAND ríkti í fjóra sólar-
hringa á landamærum Noregs og
Sovétríkjanna gömlu í júnímánuði
árið 1968 og virtist um hríð að til
átaka gæti komið, segir í dagblaðinu
Aftenposten í gær.
Af ástæðum sem ekki hafa enn
verið upplýstar söfnuðu Sovétmenn
saman 60-70 T-54 skriðdrekum, 40
fallbyssum og meira en 400 öðrum
farartækjum við landamærin í Finn-
mörku, liðið var aðeins um 30 metra
frá sjálfum landamærunum. Fengu
norsku hermennirnir á staðnum
skipun um að skjóta ef liðsmenn sov-
éthersins færu inn á norskt land.
Að sögn norska blaðsins var
byssuhlaupum Sovétmanna beint að
norsku hermönnunum allan tímann,
jafnvel að mönnum sem brugðu sér á
kamar. Eftir fjögurra daga þóf
drógu Sovétmenn lið sitt á brott frá
landamærunum, að sögn AP-frétta-
stofunnar.
Sagt er frá atburðunum í skjölum
sem leynd hefur nýlega verið létt af
en lítið var áður vitað um þá utan
stjórnkerfisins.
Arild Hjerde vinnur nú hjá yfir-
stjórn norska hersins en var Iiðsfor-
ingi og yfirmaður Elvenes-landa-
mærastöðvarinnar 7. júní þegar
sovétliðið birtist. Hann segir í sam-
tali við Aftenposten að liðið hafi
fengið skipun um að veita mót-
spyrnu. „Við vorum reiðubúnir að
verja landið okkar jafnvel þótt við
vissum að sovéska liðið væri miklu
öflugra. Sumir vörðu biðtímanum í
að brýna byssustingina.“
Tíu sovéskum skriðdrekum var
stillt upp við orkuverið Borís-Gleb
en andspænis voru Norðmenn m.a.
með 88 millimetra skriðdrekavarna-
byssur. Hjerde segir að allir hafi
gert sér grein íyrir að kæmi til átaka
myndu þau ekki standa lengi yfir en
þau myndu geta orðið örlagarík.
Hann segir sögusagnir um að liðsfor-
ingjar hafi flúið yfir til Svíþjóðar
vera uppspuna, liðsandinn hafi verið
mjög góður.
Tor Kristoffersen er majór á eftir-
launum og hann minnist undarlegra
tilfinninga sem spennuástandið hafi
vakið. „Jafnvel þótt við hefðum hlot-
ið þjálfun í að bregðast við svona
ástandi virtist þetta óraunverulegt,“
segir hann í viðtali við blað norska
hersins, FKN Nytt. Hann segir að
starfsmenn í höfuðstöðvum hersins í
Norður-Noregi hafi verið í herklæð-
um nótt sem dag og drunurnar í vél-
um skriðdrekanna hafi heyrst alla
leið til Höybuktmoen sem er í tíu km
fjarlægð frá landamærastöðvunum.
Sagt er að Sovétmenn hafi verið
með mörg þúsund manna lið í við-
bragðsstöðu á svæðinu. Merki um
viðbúnaðinn hafi sést frá borginni
Nikkel til árinnar Jakobselv. Einnig
hafi mikið verið um að vera á her-
flugvöllum á Kólaskaga.
Ýmsar getgátur
Ýmsar getgátur hafa verið á lofti
um orsök þessarar hegðunar sovét-
hersins. Bent hefur verið á að ef til
vill hafi ætlunin verið að leiða athygl-
ina frá innrás herja Varsjárbanda-
lagsins í Tékkóslóvakíu, sem var
gerð rúmum tveim mánuðun síðai’.
Onnur kenning er að ráðamenn Sov-
étríkjanna hafi reiðst vegna þess að
þýskir hermenn tóku þátt í æfingu
Atlantshafsbandalagsins, Polar
Express, sem hófst 7. júní í Norður-
Noregi. Var þetta í fyrsta sinn sem
þýskir hermenn komu til svæðisins
síðan vorið 1945 er Rauði herinn
hrakti hernámslið Þjóðverja á brott
frá norðurhluta Noregs í hörðum
bardögum.
Meintur stríðs-
glæpamaður í
Bretlandi
Kalejs
London. Reuters.
LÖGREGLA á Bretlandi rannsakar
nú hvað hæft sé í þeim fullyrðingum
að Konrad Kalejs, sem býr á elli-
heimili í Leicest-
ershire á Bret-
„ landi, sé sami
f ; maður og grun-
' aður er um að
hafa átt þátt í
morðum á um 30
þúsund gyðing-
um í Lettlandi í
seinni heims-
styrjöld.
„Við höfðum
samband við Simon Wiesenthal-
stofnunina. Það er bara þáttur í
rannsókninni, sem enn stendur, á
því hver maðurinn er,“ sagði tals-
maður lögreglunnar í Leicester-
shire í gær.
Fulltrúar Simon Wiesenthal-
stofnunarinnar segja að rannsókn
þeirra hafí rakið slóð Kalejs til Bret-
lands fyrir hálfum mánuði, en hann
hafi komist inn í landið fyrr á þessu
ári. Hefði honum verið vísað úr landi
í Bandaríkjunum og Kanada fyrir
stríðsglæpi. Kalejs hefur jafnan
neitað öllum ásökunum.
Kalejs er sagður hafa verið liðs-
maður hersveita sem nasistaveiðar-
ar segja að hafi tekið virkan þátt í
morðum á þúsundum óbreyttra
borgara, sem flestir hafi verið gyð-
ingar, í Lettlandi.