Morgunblaðið - 25.01.2000, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 11
FRÉTTIR
Hátæknihjúkrunarheimilið sem reisa á við Sóltún
Byggingarkostnaður
um 1,2 milljarðar
rv-
' j) Hjúkrunarheimili
m-
við Sóltún
90 herbergi á þrem hæðum
Samtals 7.000 fermetrar
Byggingarkostnaður 1.200 milljónir kr.
Teikning: Vinnustofa artdtekta, Skólavöröustíg 12
HJÚKRUNARHEIMILIÐ sem
ráðgert er að reisa við Sóltún í
Reykjavík verður um 7.000 fermetr-
ar og á þremur hæðum. Að sögn
Guðmundar Arasonar, aðstoðar-
framkvæmdastjóra Securitas hf., er
áætlaður byggingarkostnaður um
1.200 milljónir króna en húsið verður
að öllum líkindum tekið í notkun
haustið 2001. Á heimilinu munu
starfa um 100 manns og sagði Guð-
mundur að áætlaður rekstrarkostn-
aður þess væri um 460 milljónir á ári.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið, Securitas hf. og Islensk-
ir Aðalverktakar hf. hafa þegar und-
irritað viljayfirlýsingu um byggingu
og rekstur heimilisins en um er að
ræða fyrstu einkaframkvæmdina í
heilbrigðisgeiranum. Heimilið er
fyrir mikið veikt eldra fólk og sagði
Guðmundur að það myndi rúma 90
íbúa og lagði sérstaka áherslu á að
það yrði gert sem heimilislegast.
Enn á eftir að gera deiliskipulag
fyrir svæðið þar sem húsið á að rísa,
þ.e. á horninu á Nóatúni og Sóltúni,
en þar eru nú m.a. tækjageymslur
Reykjavíkurborgar. Guðmundur
sagði að upphaflega hefði fengist
samþykkt að byggja tveggja hæða
hús fyrir um 60 íbúa á svæðinu, en
þar sem áætlanir hefðu breyst þyrfti
að fá samþykki fyrir þeim. Hann
sagði að ef allt gengi samkvæmt ósk-
um ættu framkvæmdir að geta hafíst
í vor.
Skynjarar í herbergjum
Guðmundur sagði að mikil vinna
hefði verið lögð í hönnun hússins en
það er Vinnustofa arkitekta sem séð
hefur um það verk og hefur Hró-
bjartur Hróbjartsson verið verkefn-
isstjóri. Að sögn Guðmundar hefur
megináherslan verið lögð á tækni og
góðan heimilisbrag. M.a. hefðu hug-
myndir verið sóttar út fyrir land-
steinana en einnig hefði verið haft
samráð við íslenska sérfræðinga í
heilbrigðisgeir anum.
Tæknibúnaðurinn kemur frá Kan-
ada og sagði Guðmundur að hann
væri mjög fullkominn. Viðamikið
tölvukerfi yrði sett upp, sem myndi
fyrst og fremst auka öryggi íbúanna.
Skynjarar yrðu í hverju herbergi,
sem skynjuðu hreyfingar fólksins, og
ef t.d. íbúi, sem vanalega færi á sal-
emið á ákveðnum tíma á nóttunni,
gerði það ekki eina nóttina myndu
starfsmenn heimilisins fá boð um
það og gætu þá athugað hvort ekki
væri allt með felldu.
Að sögn Guðmundar er sá hluti
hönnunarinnar sem snýr að því að
gera heimilið sem vistlegast mikið til
sóttur til Norðurlandanna, en farið
var í heimsókn til nokkun-a hjúkrun-
arheimila í Danmörku og Svíþjóð.
Hver íbúi mun búa í um 30 fermetra
herbergi og sagði Guðmundur að
reynt yrði að hafa það sem allra
heimilislegast, t.d. yrðu bjöllur við
hvert herbergi, þannig að íbúarnir
hefðu ákveðið næði. Þá sagði hann að
tæknibúnaðurinn væri einnig hugs-
aður til þess að skapa íbúunum næði,
því án hans þyrftu starfsmenn að
fara í mun fleiri vitjanir, sem óhjá-
kvæmilega ylli íbúunum ónæði.
Yfirlýsing vegna
V atney rarmálsins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Áhugahópi
um auðlindir í almannaþágu vegna
Vatneyrarmálsins:
„í dómi Hæstaréttar í máli Valdi-
mars Jóhannssonar gegn íslenska
ríkinu frá 3. desember 1998 segir
m.a.: „Eins og áður getur taldi
löggjafinn brýnt að grípa til sér-
stakra úrræða á árinu 1983 vegna
þverrandi fískistofna við ísland. Var
skipting hámarksafla þá felld í þann
farveg, sem hún hefur síðan verið í,
að úthlutun veiðiheimilda yrði bund-
in við skip. Er óhjákvæmilegt að líta
svo á, að þessi tilhögun feli í sér mis-
munun milli þeirra, sem leiða rétt
sinn til veiðiheimilda til eignarhalds
á skipum á tilteknum tíma, og hinna,
sem hafa ekki átt og eiga þess ekki
kost að komast í slíka aðstöðu. Þótt
tímabundnai- aðgerðir af þessu tagi
til varnar hruni fiskistofna kunni að
hafa verið réttlætanlegar, en um það
er ekki dæmt í málinu, verður ekki
séð, að rökbundin nauðsyn hnígi til
þess að lögbinda um ókomna tíð þá
mismunun, sem leiðir af reglu 5. gr.
laga nr. 38/1990 um úthlutun veiði-
heimilda. Stefndi hefur ekki sýnt
fram á, að aðrar leiðir séu ekki færar
til að ná því lögmæta markmiði að
vernda fiskistofna við ísland.... Þeg-
ar allt er virt verður ekki fallist á, að
til frambúðar sé heimilt að gera þann
greinarmun á mönnum, sem hér hef-
ur verið lýst. Hið umdeilda ákvæði 5.
gr. laga nr. 38/1990 er því að þessu
leyti í andstöðu við jafnræðisreglu 1.
mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar og
þau sjónarmið um jafnræði, sem
gæta þarf við takmörkun á atvinnu-
frelsi samkvæmt 1. mgr. 75. gr.
hennar. Eins og alþjóð veit kaus rík-
isstjórnin, forysta framkvæmda-
valdsins, að vinna sér málið létt og
breyta lögum sem minnst í framhaldi
af þessum dómi Hæstaréttar, sem er
forysta dómsvaldsins í landinu.
Margir vöruðu við þessu og orð
þeirra eru nú að sannast með rök-
studdum dómi undirréttar í Vatn-
eyrarmálinu. Hann þarf því ekki að
koma neinum á óvart. Allir vita úr
daglegu lífi að það er oft skammgóð-
ur vermir að vinna sér málin létt í
stað þess að kafa dýpra og vanda til
verka. Margir brjóta nú heilann um
það, hvort Hæstiréttur muni stað-
festa dóm undirréttar, hafna honum
eða vísa málinu frá. En þessi spurn-
ing hefur takmarkað gildi. Þó að
rétturinn kysi að staðfesta ekki fyrri
dóm er ólíklegt að þar með yrði eytt
þeirri réttaróvissu sem ríkt hefur um
þessi mál. Ný dómsmál mundu rísa
með sífellt nýjum hætti þar til
löggjafarvaldið setur lög sem
tryggja bæði viðhald fiskistofnanna,
hagkvæma nýtingu þeirra og jafn-
ræði þegnanna. Ymsar leiðir er um
að velja til að fullnægja þessum
grundvallarsjónarmiðum til fram-
búðar. Ein þeirra er sú að hafa til-
tekinn heildarkvóta og bjóða hann
upp á almennum markaði. Þannig
mundi kerfið stuðla að því að þeir
veiði fiskinn sem geta gert það með
minnstum tilkostnaði. Það er regin-
misskilningur að þetta kerfi yrði
sjálfkrafa stærri fyrirtækjum í hag
og að smærri byggðir stæðu enn
verr en áður. Þessi misskilningur
stafar af því að menn ímynda sér að
verð heildarkvótans á uppboði yrði
sambærilegt við himinhátt verð þess
jaðarkvóta sem gengur nú kaupum
og sölum. En slíkt gengur augljós-
lega ekki upp, heldur yrði verð heild-
arkvótans á uppboðsmarkaði vænt-
anlega til dæmis 10-30% af fiskverði
eftir tegundum og ástæðum á hverj-
um tíma. Útgerðarfyrirtækin bjóða
að sjálfsögðu ekki til lengdar hærra
verð fyrir kvótann en afkoma þeirra
leyfir.
Og vel rekin smáfyrirtæki þurfa
alls ekki að standa verr að vígi en
þau stóru þegar verði kvótans er í
hóf stillt. Hitt er líka misskilningur
að dómur Hæstaréttar eða dómur
undirréttar í Vatneyrarmálinu þurfi
að leiða til kollsteypu í fiskveiði-
stjórn.
Þetta sést glöggt af orðum Hæsta-
réttar um „að lögbinda um ókomna
tíð“.
Ekkert bendir til að dómstólar
muni amast við lögum sem breyta
núverandi kerfi í áföngum, til dæmis
á 10 árum, í það horf að jafnræði yrði
þá fullnægt.
Sumir virðast halda að vandinn
leysist með því að leggja fyrirfram
ákveðið og takmarkað auðlindagjald
á veiðiheimildir.
Slíkt stuðlar að vísu að því að jafna
reikningana milli útgerðarmanna og
þjóðar og er að því leyti skref í rétta
átt.
En ef gjaldið er lítið yrðu veiði-
heimildir áfram veruleg verðmæti og
menn yrðu jafnnær um það, til
hverra ætti að úthluta þeim. Því er
ekki sýnilegt að þessi leið takmark-
aðs auðlindagjalds geti tryggt jafn-
ræðið sem stjórnarskráin kveður á
um og allir vilja væntanlega hafa í
nútíma þjóðfélagi.
Við hvetjum andstæðinga kvóta-
kerfisins í núverandi mynd, sem eru
meirihluti þjóðarinnar, til að fylkja
sér um uppboðsleiðina. Hana má
skilgreina nánar með ýmsum hætti
eins og til dæmis er gert á vefsíðu
áhugahópsins, www.kvotinn.is.
En meginatriði málsins er það að
færar leiðir eins og Hæstiréttur hef-
ur kallað eftir eru sannarlega til. Við
getum vel verndað fiskistofna við ís-
land án þess að ganga á svig við jafn-
ræði landsmanna, án þess að taka
kollsteypu og án þess að fórna hag-
ræði. “
Sérstakur vefur
með gögnum um
rekstrarleyfi
MORGUNBLAÐIÐ hefur sett upp
sérstakan vef á mbl.is í tilefni af
útgáfu rekstrarleyfis til gerðar og
starfrækslu gagnagrunns á heil-
brigðissviði og reglugerðar um
gagnagrunn á heilbrigðissviði.
Þar er að finna rekstrarleyfið,
sem Islenskri erfðagreiningu hefur
verið veitt, reglugerðina, sem ráð-
herra gaf út í gær vegna rekstrar-
leyfisins, og samning þann sem
ráðherra og fyrirtækið gerðu í til-
efni af útgáfu starfsleyfisins.
Einnig eru á vefnum fjölmörg
önnur gögn, viðaukar, þar sem
birtast ýmsar forsendur rekstrar-
leyfisins, samningsins og reglu-
gerðarinnar.
í viðaukunum er að finna um-
fjöllun um eftirfarandi efni:
► Almenna kröfulýsingu fyrir
sjúkraskrárkerfi gagnagrunnsins.
► Greinargerð vegna flutnings
upplýsinga í gagnagrunn á heil-
brigðissviði.
► Helstu form- og efnisatriði
samninga rekstrarleyfishafa og
heilbrigðisstofnana og sjálfstætt
starfandi heilbrigðisstarfsmanna.
► Stöðulýsingu á heilbrigðis-
upplýsingum.
► Skilmála um fjárhagslegan
aðskilnað starfrækslu gagna-
gi'unnsins frá annarri starfrækslu
leyfishafa.
► Skrá yfir heilbrigðisstéttir.
► Almenna öryggisskilmála
tölvunefndar.
► Hluta af tækni-, öryggis- og
skipulagsskilmálum tölvunefndar.
Morgunblaðið hefur undir höndum
þrjá kafla af átta. í hinum fimm
köflunum eru ákvæði um stjórnun-
arlegt öryggi og fleira og birtir
Tölvunefnd þá ekki af öryggis-
ástæðum.
Að auki er að finna á vefnum allt
það efni, sem áður hefur birst á
mbl.is um gagnagrunn á heilbrigð-
issviði.
Lægsta verðið
tn London
frá kr,
7.
í sumar
með Heimsferðum
Forsala
400
sæjum BUondon
ótrúlegu
verði
Heimsferðir kynna nú flug
sín til London í sumar, en
við munum fljúga alla
fimmtudaga til London frá
og með 18. maí á hreint ein-
stökum kjörum.
Nú getur þú valið um 4 daga helgarferð til heims-
borgarinnar í sumar, 11 daga eða 18 nætur, flogið út á
fímmtudegi og heim á mánudegi.
Hvergi í Evrópu er jafnmikið um að vera í listum og
menningarlífi og hjá Heimsferðum getur þú valið um
gott úrval hótela, frá 2-4 stjörnu á frábærum kjörum.
Við bjóðum nú forsölu á 400 fyrstu sætunum til
London á frábæru verði og tryggjum þér besta verðið
til London í sumar.
Verðkr.
7.900
Verð kr.
14.200
Flugsæti aðra leiðina til London í sumar.
Flugvallarskattar kr. 1.830 ekki innifaldir.
Flugsæti fram og tilbaka. Flugvallarskattar
kr. 3.790 ekki innifaldir. Fyrstu 400 sætin.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600. www.heimsferdir.is