Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bandarísk stjórnvöld sýna áhuga á að koma á námskeiðum fyrir íslenska lögreglumenn
Stendur til boða marg-
vísleg þjálfun hjá FBI
Morgunblaðið/Kristinn
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra á fundi með Robert Patton,
fulltrúa FBI, sem situr annar frá vinstri, Barböru J. Griffiths, banda-
ríska sendiherranum á íslandi, og William Muller sendiráðsstarfsmanni.
BANDARÍSK stjórnvöld hafa sýnt
því áhuga að koma á sérstökum
námskeiðum fyrir íslenska lög-
reglumenn í landamæraeftirliti og
vegabréfaskoðun. Einnig hafa þau
boðist til þess að veita íslenskri lög-
reglu margvíslega aðra þjálfun, s.s.
við rannsókn efnahagsbrota, í rann-
sóknaraðferðum lögreglu og lög-
gæslu á flugvöllum. Þá hefur verið
leitað eftir því að íslenskir lögreglu-
menn fái að taka þátt í sérstökum
námskeiðum og fái þjálfun á vegum
bandarísku alríkislögreglunnar,
FBI, í nýjustu aðferðum við rann-
sóknir tölvubrota og brota sem
tengd eru alþjóðlegri glæpastarf-
semi, svo sem peningaþvætti.
Þetta hefur komið fram á fundum
sem Sólveig Pétursdóttir dómsmál-
aráðherra hefur ásamt íslenskum
embættismönnum átt með sendi-
herra Bandaríkjanna á Islandi,
Barböru J. Griffiths, og bandarísk-
um embættismönnum um samstarf
bandarískrar og íslenskrar lög-
reglu.
Þessar viðræður eru haldnar í
kjölfar funda dómsmálaráðherra
með Janet Reno, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, og háttsett-
um embættismönnum í löggæslum-
álum og forsvarsmönnum í baráttu
gegn eiturlyfjavandanum í Wash-
ington í nóvember sl.
Samvinna í
fíkniefnalöggæslu
Var þar rætt um að stofna til
samvinnu milli ríkjanna, m.a. um
aðferðir við að koma á grenndar-
löggæslu, þjálfun lögreglumanna,
bæði hvað varðar fíkniefnalöggæslu
og þjálfun við landamæraeftirlit,
um nýjasta tækjabúnað sem beitt
er við leit að ííkniefnum, um aðra
fíkniefnalöggæslu og aukið eftirlit
til að uppræta flutning fíkniefna
milli landanna.
Þegar eru komnar fram nokkrar
hugmyndir um framkvæmd þjálf-
unar í vegabréfaeftirliti sem fer
fram samhliða námskeiðum í
SCHENGEN-reglum. Til stendur
að veita um hundrað löggæslu-
mönnum grundvallarþjálfun á
þriggja daga námskeiði, en öðrum
tíu mun víðtækari þjálfun. Þessi
námskeið verða í sumar og haust og
er vonast eftir þátttöku banda-
rískra sérfræðinga á þeim.
Að sögn Sólveigar Pétursdóttur
má líta á samstarf íslenskra og
bandarískra yfirvalda sem svar við
kröfum samtímans, breyttum að-
stæðum og nýjum viðfangsefnum í
löggæslu.
„Fíkniefnavandamálið verður
t.a.m. að taka mun ákveðnari tökum
nú en áður var gert, enda hefur
þetta vandamál að mörgu leyti
fengið sama svipmót og það hefur í
stærri samfélögum á Vesturlönd-
um,“ segir hún. „Reynsla og þekk-
ing Bandaríkjamanna kemur vissu-
lega að notum þegar hugað er að
því að efla löggæsluna í baráttunni
gegn skipulagðri brotastarfsemi."
íslensk lögregla staðið
sig vel að undanförnu
Sólveig segir íslensk lögregluyf-
irvöld hafa staðið sig mjög vel und-
anfarið og náð góðum árangri í mál-
um sem fengið hafa mikla athygli
almennings og er hún þess fullviss
að samstarf við bandarísku lög-
regluna muni styrkja íslensku lög-
regluna enn frekar.
„Þar eru margir kostir íýrir
hendi, allt frá því að fá fyrirlesara á
ráðstefnur til lengra náms og þjálf-
unar. Þeir fundir sem nú þegar hafa
fai'ið fram hafa að mínu mati verið
mjög árangursríkir. Þar er m.a. um
að ræða sérfræðinga í málefnum
Norðurlanda og Eystrasaltsríkja,
sem veitt hafa mjög gagnlegar upp-
lýsingar um þróun í ákveðnum teg-
undum afbrota sem ljóst er að gef-
ur okkur tilefni til viðbragða.
Þjálfun íslenskra lögreglumanna er
sérstaklega gagnleg á ýmsum
sérsviðum,“ segir Sólveig og nefnir
í því tilliti rannsóknaraðferðir
vegna peningaþvættis og upptöku
ólöglegs hagnaðar.
„Lögreglan er nú að stíga sín
fyrstu spor í að beita þessum úr-
ræðum gegn skipulagðri glæpa-
starfsemi og getur án efa notið góðs
af langri reynslu Bandaríkjamanna
í þessum efnum. Sama má segja um
nýjar tegundir afbrota eins og
tölvuglæpi.“
Rflrisstjórnin samþykkir að ekki verði ráðist í innheimtu aðgangseyris að friðuðum svæðum
Rekstur ferðamiðstöðvar
við Gullfoss boðinn út
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra lagði á ríkisstjórnarfundi sl.
föstudag fram tillögur um að rekstur
þjónustumiðstöðvarinnar við Gull-
foss verði boðinn út. Segist Siv hafa
séð ýmsa annmarka á þeim hug-
myndum, sem verið höfðu uppi, um
að ráðist yrði í innheimtu aðgangs-
eyris að friðuðum svæðum, og ákvað
hún því í samráði við Sturlu Böð-
varsson samgönguráðherra að
leggja frekar drög að því að fólk
borgi framvegis fyrir þá þjónustu
sem það sækist eftir á þessum svæð-
um.
í fjárlögum fyrir árið 2000 er
kveðið á um það að innheimtur verði
aðgangseyrir að friðlýstum svæðum
og tekjum varið til uppbyggingar
þeirra svæða þar sem aðgangur er
tekinn. Var áætlað að með þessum
hætti yrðu innheimtar 15 milljónir
króna.
Siv segist hafa séð ákveðna ann-
marka á þessari hugmynd enda séu
fáir staðir landfræðilega sem bjóða
upp á þennan möguleika, nema
menn leggi í það verk að girða svæð-
in af. Slíkar framkvæmdir hefðu án
efa orðið mikil lýti á landslaginu
enda engin tré á Islandi til að hylja
þessháttar girðingar. Aukinheldur
myndi þurfa að ráða manneskju til
að innheimta gjaldið, „fyrir utan það
að þá væri fólk að borga fyrir það
eitt að horfa á náttúruna," segir Siv.
Fleiri staðir koma til
greina í framtíðinni
Þrátt fyrir þessar efasemdir
ákvað Siv þó í samráði við sam-
gönguráðherra að skipa sérstaka
nefnd til að fara yfir hvort unnt væri
að innheimta aðgangseyri að
friðlýstum svæðum. Klofnaði nefnd-
in í afstöðu sinni og höfðu þau Siv og
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra samráð um framhaldið. Kom-
ust þau að þeirri niðurstöðu að ekki
væri rétt að stíga þetta skref.
Leggja þau í staðinn til að boðinn
verði út rekstur þjónustumiðstöðv-
arinnar við Gullfoss.
Að Gullfossi koma um 150 þúsund
ferðamenn á ári hverju, að sögn Sivj-
ar, og er gert ráð fyrir að Náttúru-
vernd ríkisins bjóði út alla þá rekstr-
arþætti sem mögulegt er að bjóða út
á þeirra vegum. Mun Náttúruvernd
ásamt Ríkiskaupum væntanlega sjá
um útboðið, í samráði við Ferða-
málaráð.
Ovíst er hvort áðurnefndar 15
milljónir náist með þessu móti en Siv
segir upphæðina reyndar ekki skipta
höfuðmáli enda sé gert ráð fyrir að
fjármagnið fari út aftur. Hitt sé ljóst
að auka þurfi það fé, sem eyrna-
merkt er Ferðamálaráði og Náttúru-
vemd ríkisins vegna uppbyggingar-
starfs á friðlýstum svæðum.
Segir Siv að einungis sé um það að
ræða að þessu sinni, að þjónustan við
Gullfoss sé boðin út, en fleiri staðir
komi að sjálfsögðu til greina í fram-
tíðinni.
- »
m
a v i
Faxafem 8 sími: 533 1555
? QQá
■ r , , . ■ . 1 1 : OXFORD STREET~|
mi ■ OPIÐ: MÁN.-FIM. 10-18 FÖSTUDAGA10-19 LAUGARDAGA10-18 SUNNUDAGA 13-17 603 Akureyri Sunnuhlíð sími: 462 4111