Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 23
Loðnan
gengin upp
á grunnið
GOÐ veiði var hjá loðnuskipunum
um helgina og voru fjölmörg skip
ýmist á landleið með fullfermi eða að
landa afla sínum í gær. Loðnan er nú
gengin upp á landgrunnið suður af
Hvalbak og styttist óðum í að hægt
verði að byrja að frysta loðnu fyrir
Japansmarkað.
Nótaskipin fengu góðan afla í
fyrrinótt, allt upp í 600 tonna köst, að
sögn Sævars Þórarinssonar, skip-
stjóra á Emi KE, en skipið landaði
fullfermi, um 1.100 tonnum á Seyðis-
firði í gær. Aflinn fékkst um 30 mflur
suður af Hvalbak og sagði Sævar að
loðnan væri því í þann mund að
ganga upp á landgrunnið. „Hún virð-
ist vera á mikilli siglingu upp á
gmnnið. Þetta er því allt á réttri leið
og nú ætti að fara í hönd mokveiði, ef
veðrið helst skaplegt. Skipin fara
fljótlega að skipta yfir i gmnnu næt-
umar eða þegar loðnan gengur enn
grynnra,“ sagði Sævar.
Styttist í frystingu fyrir
Japansmarkað
Loðnan sem veiðist nú er stór og
falleg og var hrognafyllingin í henni í
gær orðin tæp 9%. Frysting fyrir
Japansmarkað hefst þegar hrogna-
fyllingin hefur náð um 12% og gerði
Sævar ráð fyrir að það gæti orðið
þegar næst er stórstreymt eða eftir
um það bil viku. Nokkur skip hafa
undanfama daga verið með flottroll-
ið á loðnunni og hafa fengið góðan
afla. Gera má ráð fyrir að skipin
skipti yfir á nót þegar líða fer á vik-
una. Norsku loðnuskipin hafa nú
langflest yfirgefið íslandsmið, enda
berast nú fréttir af góðri loðnuveiði í
Barentshafi.
Samkvæmt upplýsingum frá Sam-
tökum fiskvinnslustöðva höfðu í
gærmorgun borist um 94.284 tonn af
loðnu til fiskimjölsverksmiðja hér-
lendis frá áramótum. Alls nam afli á
UA selur Icedan
veiðarfæragerð
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hefur gert samning við ICEDAN
ehf. um kaup þess á veiðarfæragerð
ÚA. Um leið var gengið frá þvi að
ÚA, ásamt fleirum, festi kaup á öllu
hlutafé ICEDAN. Kaupverð hlutar
ÚA er 32,5 milljónir króna.
ÚA hefur rekið eigin veiðarfæra-
gerð allt frá árinu 1948. Á síðustu
árum hefur starfsemi hennar farið
vaxandi og auk þess að þjóna skip-
um félagsins hefur hún í æ ríkari
mæli selt þjónustu til annarra út-
gerða. Tekjur hennar á síðasta ári
vora tæpar 130 milljónir króna og
námu viðskiptin við aðra en ÚA um
tveimur þriðju hluta teknanna.
Starfsmenn era 13 talsins og verða
þeim boðin störf hjá ICEDAN.
ICEDAN ehf. hefur sérhæft sig í
að veita skipum og bátum þjónustu
með veiðarfæri og aðrar rekstrar-
vörur. Félagið er með höfuðstöðvar
í Hafnarfirði og rekur að auki dótt-
urfélag í Kanada. Við kaup á veið-
arfæragerð ÚA verður því starf-
semi félagsins á þremur stöðum.
Engin breyting er fyrirhuguð á
rekstri veiðarfæragerðarinnar á
Akureyri og mun Hermann Guð-
mundsson, netagerðarmeistari,
veita henni forstöðu. Áætluð velta
þessa árs hjá ICEDAN-samstæð-
unni er hátt í einn milljarður króna.
ICEDAN ehf. er hlutafélag í
eigu Eignarhaldsfélagsins ICE-
DAN ehf. þar sem ÚA á 25%, Sel-
stad í Noregi 40%, Þorsteinn Bene-
diktsson 25% og Pétur Stefánsson
10%.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Loðnan hefiir mokveiðst á miðunum fyrir austan land að undanförnu. Hér hefur Sveinn Benediktsson SU fengið
gott hol í flottrollið, nég til að fylla skipið og vel það og njóta skipverjar á Þórði Jónassyni EA góðs af.
sumar- og haustvertíð um 83.488 frá áramótum eða um 20.445 tonn- veiðum en lítið er eftir af sfldarkvót-
tonnum. Enn eru því eftir um 398 um. Um 17.420 tonnum hefur verið anum, auk þess sem búið er að verka
þúsund tonn af upphafsloðnukvótan- landað hjá Síldarvinnslunni hf. á upp í flesta samninga. Jóna Eðvalds
um en gera má ráð fyrir að kvótinn Neskaupstað og rúmum 13 þúsund SF var á leið á miðin vestur af Snæ-
verði aukinn þegar líður á vetrarver- tonnum hjá SR mjöli hf. á Seyðis- fellsnesi í gær en ágæt sfldveiði var á
tíðina. Mestum afla hefur verið iand- firði. þessum slóðum í síðustu viku.
að hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar Aðeins eitt skip er nú ennþá á sfld-
Hæpin höfuðprýði
ÞESSI sérkennilegi þorskur veidd-
ist við Noreg fyrir skömmu. Hann
er með gífurlegt æxli á hausnum,
sem mældist stærra en sjálfur
hausinn á þeim gula. Rannsóknir
sýna að æxlið var góðkynja svipað
og stundum finnst í móðurlífi
kvenna. Greinilegt er að æxlið hef-
ur byrgt þorskinum sýn, svo hann
hefur átt erfitt með að afla sér
fæðu. Þegar þorskurinn veiddist
vó hann 2 kfló og var 60 sentimetra
langur. Þvermál æxlisins var 9
sentimetrar. Ekki er vitað um sam-
bærileg tilfelli við Noreg, en víst
er að þetta er hæpin höfuðprýði.
Síðasti skiladagur
nýskráninga og/eða
breytinga vegna
simaskrár 2000 er
mánudaginn 3i.janúar.
Nánarí upplýsingar veitir
skrífstofa símaskrár,
Síðumúla 15, í síma 550 7050.