Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Her guðs, uppreisnarhreyfíng frá Burma, nær sjúkrahúsi í Ratchaburi í Taflandi á sitt vald
Allt að 800 manns
haldið í gíslingu
Ratchaburi. AP, AFP.
RÚMLEGA tíu uppreisnarmenn frá
Burma náðu sjúkrahúsi í bænum
Ratchaburi í Taílandi á sitt vald í
gær og héldu allt að 800 manns í
gíslingu. Talið er að þeir séu í upp-
reisnarhreyfingu, sem nefnist Her
guðs og er undir stjórn tólf ára tví-
bura.
Enginn mun hafa særst í árásinni
á sjúkrahúsið en uppreisnarmenn-
imir komu fyrir fjarstýrðum
sprengjum við innganga sjúkrahúss-
ins og lögðu jarðsprengjur umhverf-
is bygginguna. Haft var eftir emb-
ættismanni í bænum að uppreisnar-
mennirnir hefðu hótað að sprengja
sjúkrahúsið í loft upp. Einn upp-
reisnarmannanna sagði þó við
fréttamann í farsíma að þeir hefðu
ekki í hyggju að gera fólkinu mein.
Taflandsher lofar að hætta
árásum yfír landamærin
Bækistöðvar uppreisnarmann-
anna eru í fjöllunum nálægt landa-
mærum Burma og Taílands. Her
Burma hefur haldið uppi hörðum
árásum á vígi uppreisnarmanna við
landamærin frá því í vikunni sem
leið og að minnsta kosti þúsund Kar-
enar hafa flúið af átakasvæðinu til
Taílands. Taílenski herinn hefur
einnig gert sprengjuárásir á svæðið
til að koma í veg fyrir að uppreisnar-
mennimir flýi einnig yfir landamær-
in.
Uppreisnarmennimir kröfðust
þess m.a. að her Taílands réðist ekki
inn í bygginguna og hætti sprengju-
árásunum yfir landamærin. Yfir-
maður hersins, Surayudh Chulan-
ont, sagði að hann hefði orðið við
þessum kröfum.
Uppreisnarmennirnir kröfðust
ennfremur þess að særðir félagar
sínir fengju að fara á sjúkrahús í
Taílandi. Chulanont kvaðst hafa fall-
ist á að hleypa óvopnuðum flótta-
mönnum yfir landamærin til að þeir
gætu leitað lækninga en taflenskir
embættismenn sögðu þó síðar að
særðir uppreisnarmenn fengju ekki
að fara til Taflands.
Þá kröfðust uppreisnarmennimir
þess að fá afnot af tveimur þyrlum
til að geta flúið yfir landamærin.
Embættismaður í taflenska heil-
brigðisráðuneytinu sagði að 800
manns hefðu verið á sjúkrahúsinu,
600 sjúklingar og 200 starfsmenn.
Uppreisnarmennimir slepptu fljót-
lega 15 mönnum, nokkmm þeirra í
skiptum fyrir matvæli, og um 90
manns tókst að flýja úr byggingunni.
Drengirnir sagðir búa
yfír yfírskilvitlegum mætti
Sanan Kachornprasart, innamík-
isráðherra Taflands, sem stjórnaði
samningaviðræðunum við uppreisn-
armennina í Ratchaburi, sagði að
þeir væra í Her guðs en aðrir emb-
ættismenn sögðust ekki vera vissir
um það.
Her guðs er undir stjórn tólf ára
tvíbura, Johnnys og Luthers Htoo,
en fylgismenn þeirra telja þá búa yf-
ir yfirskilvitlegum mætti. Fullorðnir
liðsmenn hreyfingarinnar era sagðir
hlýða drengjunum þar sem þeir líti á
þá sem einhvers konar verndardýrl-
inga og frelsara.
Talið er að um 200 manns séu í
Her guðs og hreyfingin hefur vernd-
að fimm andófsmenn, sem réðust inn
í sendiráð Burma í Bangkok 1. októ-
ber og héldu um 40 manns í gíslingu
til að krefjast þess að herforingja-
stjómin í Búrma færi frá og kæmi á
lýðræði. Gíslunum var sleppt daginn
eftir og andófsmönnunum var leyft
að flýja á yfirráðasvæði uppreisnar-
mannanna.
Álitnir „hryðjuverkamenn“
Stjórn Taílands sagði að ekki yrði
tekið jafnvægt á gíslatökunni í
Ratchaburi og litið væri á uppreisn-
armennina sem „hryðjuverkamenn".
Uppreisnarmennirnir rændu rútu
við landamærin í gærmorgun og
neyddu bflstjórann til að aka henni
til Ratchaburi, um 65 km leið. Bfl-
stjórinn sagði að þeir hefðu ekið
framhjá tíu eftirlitsstöðvum á leið-
inni en þær hefðu allar verið ómann-
aðar.
Hjúkranarfræðingur, sem rætt
var við í farsíma, sagði að hópurinn
hefði fyrst náð læknum og hjúkran-
arfræðingum sjúkrahússins, ógnað
þeim með byssum og haldið þeim í
bráðamóttökunni. Þeim hefði þó síð-
ar verið hleypt út og leyft að halda
áfram störfum sínum. „Eg held ekki
að þeir hafi ætlað að gera fólki
mein,“ sagði hjúkranarfræðingur-
inn. „Þeir virtust glorsoltnir, fóra í
mötuneytið og báðu um pott af soðn-
um hrísgrjónum."
Reuters
Vopnaðir uppreisnarmenn frá Burma sleppa nokkrum
gíslum úr sjúkrahúsi í Taílandi.
AP
Tólf ára tvíburar, Johnny og Luther Htoo, eru leiðtogar uppreisnar-
hreyfingarinnar Hers guðs í Burma.
Time Warner og EMI samemast um framleiðslu og dreifíngu tónlistarefnis
Eitt stærsta fyrirtækið
á sviði tónlistarútsráfu
Washington Post, New York Times.
TILKYNNT var í Lundúnum í gær
að fyrirtækin Time Warner og EMI
hygðust sameina krafta sína á sviði
framleiðslu og sölu á tónlistarefni.
Með því verður til einn stærsti tón-
listarútgefandi heims, með um fjórð-
ungs hlutdeild á markaði fyrir
popptónlist. Samanlagt markaðs-
virði fyrirtækjanna er í kringum 20
milljarðar Bandaríkjadollara, eða
um 1.400 milljarðar króna.
Nýtt sameinað fyrirtæki, sem
nefnast mun Wamer EMI Music,
mun hafa um 2.500 tónlistarmenn á
sínum snæram. Undir EMI heyra
útgáfumerkin Virgin, Priority og
Capitol, en Time Warner hefur inn-
an sinna vébanda merkin Atlantic,
Electra og Warner Brothers.
Með samrananum hyggjast fyrir-
tækin spara sem svarar rúmum 28
milljörðum íslenskra króna á næstu
þremur áram. Sparnaðurinn mun
m.a. koma fram í uppsögnum starfs-
fólks, en búist er við því að allt að
3.000 af um 23.000 starfsmönnum
verði sagt upp störfum.
Greiða fyrir að fá
meirihluta í stjórn
Miðað við núverandi stöðu hvors
fyrirtækis um sig má reikna með að
hið nýja fyrirtæki, Warner EMI
Music, muni hafa sölutekjur upp á 8
milljarða dollara, jafnvirði um 568
milljarða króna. A sama hátt má
gera ráð fyrir að hagnaður fyrir
skatta muni nema um 1 milljarði
dollara, eða 71 milljarði króna. Búist
er við því að nýja fyrirtækið hefji
starfsemi á seinni hluta þessa árs.
Ekki er um eiginlegan samruna
Roger Ames, aðalframkvæmda-
stjóri nýja fyrirtækisins, faðmar
að sér rekstrarstjórann, Ken
Berry, í London í gær.
fyrirtækjanna að ræða heldur hefur,
eins og áður segir, verið ákveðið að
mynda nýtt fyrirtæki um framleiðslu
og dreifingu á tónlistarefni sem gefið
er út undir merkjum þeirra. EMI
Warner Music verður helminga-
skiptafélag en samkvæmt samkomu-
lagi fyrirtækjanna mun Time Warn-
er greiða hluthöfum í EMI 1,24
milljarða dollara, um 88 milljarða ís-
lenskra króna, gegn því að fá meiri-
hluta í stjórn hins nýja fyrirtækis.
EMI mun skipa fimm menn í stjórn
en Time Warner sex og leggur EMI
nær alla starfsemi sína undir nýja
fyrirtækið, þ.e. nema hlut sinn í
verslunarkeðjunni HMV Media
Group, en Time Warner færir tón-
listardeild sína, Warner Music, undir
fyrirtækið.
Fyrr í mánuðinum var tilkynnt um
samrana Time Wamer og netþjón-
ustufyrirtækisins America Online
(AOL). Að margra mati markar
samraninn upphaf að byltingu á sviði
fjölmiðlunar og netþjónustu þar sem
hann er talinn opna nýja möguleika í
tengslum við dreifingu sjónvarpsefn-
is á Netinu. Talið er að stofnun
Warner EMI Music muni geta haft
sams konar áhrif á dreifingu tónlist-
ar á Netinu. Tónlistarútgefendur
hafa að undanförnu leitað aðferða til
að geta selt tónlistarefni á Netinu án
þess að eiga á hættu ólöglega fjöl-
földun og s.k. sjóræningjaverslun.
Með tengslum sínum við AOL er
Waraer EMI Music talið vera í mjög
góðri aðstöðu til að þróa nýja tækni
til að dreifa tónlist á Netinu og jafn-
vel verða leiðandi á því sviði.
„Fullkomin samsetning“
Aðalframkvæmdastjóri hins nýja
fyrirtækis verður Roger Ames, nú-
verandi stjórnarformaður og aðal-
framkvæmdastjóri Warner Music.
Stjórnarformaður EMI, Eric Nicoli,
og Richard Parsons, forstjóri Time
Warner, munu sameiginlega gegna
stöðu stjórnarformanns í nýja fyrir-
tækinu.
„Ef til er hin fullkomna samsetn-
ing, þá er það Warner EMI Music,“
sagði Parsons í gær.
Líklegt er að Parsons eigi þar
einkum við markaðsstöðu fyrirtæk-
isins. Staða EMI á bandarískum
markaði hefur ekki verið sterk, en
fyrirtækið er stærsta útgáfufyrir-
tækið í Evrópu og í Japan. Time
Warner hefur aftur á móti lengi ver-
ið með stærstu fyrirtækjum á banda-
ríska markaðnum en átt erfitt með
að færa út kvíamar til annarra
heimshluta. Nú er Time Warner
fjórða stærsta fyrirtækið í Banda-
ríkjunum á sviði tónlistarútgáfu, sé
tekið mið af sölu geislaplatna. Fyrir-
tækið hefur reyndar verið að tapa
markaðshlutdeild á síðustu áram, en
árið 1996 var það efst á lista yfir
söluhæstu útgáfufyrirtækin í Banda-
ííkjunum. EMI er í fimmta sæti á
þeim lista.
Stjórnendur Time Warner hafa
verið gagnrýndir fyrir að treysta um
of á eldri poppstjörnur á borð við Er-
ic Clapton, Phil Collins og Madonnu,
í stað þess að uppgötva nýjar. Meðal
tónlistarmanna sem era samnings-
bundnir hjá EMI era Rolling Stones,
Spice Girls og Robby Williams.
Sé tekið mið af núverandi stöðu
verður fyrirtækið álíka stórt og Uni-
versal Music sem nú er stærst á
bandaríska markaðnum. Universal
Music varð til er Seagram Co. keypti
útgáfufyrirtækið Polygram árið
1998. Með stofnun Warner EMI
Music fækkar stóra tónlistarútgáfu-
fyrirtækjunum í Bandaríkjunum úr
fimm í fjögur. Til að af geti orðið þarf
þó að liggja fyrir staðfesting sam-
keppnisyfirvalda í Bandaríkjunum
og Evrópu, en þau eru talin líkleg til
að fara gaumgæfilega ofan í saum-
ana á samninginum.O
Gengi hlutabréfa í EMI hækkaði
töluvert á markaði í London í gær,
eða um allt að 14%. Aftur á móti
lækkuðu bréf í Time Warner lítillega
við upphaf viðskipta á Wall Street í
gær.
Weizman
situr áfram
þrátt fyrir
gagnrýni
Jerúsalem. AFP.
STUÐNINGUR _rið Ezer
Weizman, forseta ísraels, fer
minnkandi en á fréttamanna-
fundi á sunnudag lýsti hann yf-
ir að hann hygðist hvorki taka
sér frí frá störfum né segja af
sér þótt verið sé að rannsaka
hvort hann hafi gerst sekur um
skattsvik
og spill-
ingu.
Weiz-
man ætl-
aði að
stýra sér-
stökum
þingfundi
í gær
vegna 51
árs afmæl-
is ísra-
elska þingsins og var ekki búist
við, að hann fengi þar mjög
hlýjar móttökur. Mikill meiri-
hluti þingmanna hefur hvatt
hann til að draga sig í hlé um
stundarsakir og sömu skoðunar
er helmingur kjósenda sam-
kvæmt skoðanakönnun sem
birt var í gær. 38% sögðu að
hann ætti að sitja áfram þar til
rannsókn lyki.
Einn þingmanna Likud-
llokksins, Yossi Katz, vinnur nú
að því að safna 20 undirskrift-
um þingmanna, sem þarf til að
þingið hefji umræðu um mál
Weizmans og hugsanlega emb-
ættissviptingu hans.
Málið gegn Weizman snýst
um tugi milljóna króna sem
hann þáði af vini sínum, franska
milljónamæringnum Edouard
Saroussi.
Ezer
Weizman