Morgunblaðið - 25.01.2000, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Stefnuyfírlýsing nýs forseta Ekvadors fyrsta dag hans í embætti
Vill standa
við upptöku
dollarans
Noboa sagður laus við spillingu
embættismannakerfísins
Quito, Ekvador. AP, AFP.
Reuters
Gustavo Noboa, nýr forseti Ekvador, ræðir við innanríkisráðherra
landsins, Francisco Huerta.
GUSTAVO Noboa, fyrrverandi
varaforseti Ekvador sem samþykkt-
ur var af þjóðþingi landsins sem for-
seti á laugardag, segist munu halda
fast við áætlun fyrrverandi forseta,
Jamil Mahuad, að gera Bandaríkja-
dollar að gjaldmiðli landsins.
Noboa tók við embætti forseta í
kjölfar mikilla sviptinga í Ekvador
um helgina. Hundruð indíána efndu
til múgæsingamótmæla við stjóm-
arbyggingar í höfuðborginni Quito á
föstudag vegna erfiðrar efnahags-
stöðu landsins og kröfðust afsagnar
Mahuads forseta. í framhaldi lýsti
þriggja manna bráðabirgðastjórn -
sem skipuð var Carlos Mendoza
nýskipuðum varnarmálaráðherra
og yfirmanni hersins, indíánaleið-
toganum Antonio Vargas og fyrr-
verandi hæstaréttardómaranum
Carlos Solorzano - því yfir að hún
hefði tekið við völdum. Stjórnin varð
þó ekki langlíf og leystist upp á
Tókýó. AFP, AP.
STJÓRNVÖLD í Japan hafa harð-
lega mótmælt yfirlýsingum og mót-
mælum ríkisstjórnar Nýja-Sjálands
við hvalveiðum Japana í vísinda-
skyni.
I bréfinu, sem Tokuichiro Tama-
zawa, landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra Japans, skrifar fyrir hönd
stjórnarinnar, segist hann „draga í
efa hyggindi" Helen Clark, forsætis-
ráðherra Nýja-Sjálands, vegna
laugardag í kjölfar þrýstings frá
Bandaríkjamönnum, sem hótuðu að
hætta efnahagsaðstoð við Ekvador
yrði stjórnarskrá landsins ekki virt.
Þarf að takast á við verstu
efnahagskreppu í áratugi
Mörg vandamál bíða nýja forset-
ans, Noboa, sem er sjötti forseti
Ekvador síðan 1996. Óðaverðbólga
er í landinu, en verðbólga mældist
yfir 60% á sl. ári og var sú mesta í
Suður-Ameríku annað árið í röð.
Noboa þarf að takast á við versta
efnahagsástand sem ríkt hefur í
landinu um áratuga skeið, en gríðar-
leg verðbólga, neikvæður hagvöxt-
ur, atvinnuleysi og fátækt jukust þá
17 mánuði sem Mahuad var við völd.
Tilraun Mahuads frá því fyrr í
þessum mánuði til að bæta ástandið
i efnahagslífinu með því taka upp
Bandaríkjadollar sem gjaldmiðil
landsins - í þeirri von að sú ráðstöf-
stuðnings hennar við grænfriðunga,
sem hann kallar samtök ofbeldis-
manna. Er bréfið viðbrögð við yfir-
lýsingu Clark sl. föstudag en þá
kvaðst hún styðja baráttu grænfrið-
unga fyrir alfriðun hvala. Gagnrýndi
hún einnig hvalveiðar Japana og
sagði það á allra vitorði, að kjötið af
hvölunum, sem þeir veiddu í „vís-
indaskyni11, færi á almennan markað
í Japan.
un skapaði stöðugleika - mætti and-
stöðu verkalýðsfélaga og hags-
munahópa frumbyggja af
indíánaættum. Skoðanakannanir
sýndu m.a. að rúmlega 60% þjóðar-
innar höfnuðu þessari áætlun og
leiðtogar indíána sögðu hana sví-
virðingu sem aðeins gagnaðist hin-
um ríku.
Regnhlífarsamtök indíána
(CONAIE) stóðu fyrir mótmælum í
Quito í kjölfar þessa og voru komin
vel á veg með að safna stuðningi við
allsheijarverkfall gegn Mahuad
þegar kom til múgæsingarmótmæl-
anna á föstudag. Ekki var ljóst í
fyrstu hvort mótmælendur myndu
mæta andstöðu stuðningsmanna
forsetans, en þegar hermenn sem
studdu málstað mótælenda slógust í
lið með þeim yfirgaf Mahuad for-
setahöllina. í kjölfarið lýsti bráða-
birgðastjórnin því yfir að hún hefði
tekið við völdum af ríkisstjórninni
Við vorum að reyna að hindra al-
þjóðlega einangrun Ekvador,“ sagði
Mendoza um þá ákvörðun sína að
leysa upp bráðabirgðastjórnina. En
Mendoza, sem sagði af sér sem yfir-
maður hersins í kjölfar atburða
helgarinnar, kvaðst aldrei hafa haft
hug á að stjórna landinu sjálfur.
Bráðabirgðastjórnin hefði verið
mynduð til að hindra blóðbað, þar
sem Mahuad hefði verið óákveðinn
og skort tengsl við almenning.
Meðstjórnendur Mendozas voru
hins vegar mótfallnir þeirri ákvörð-
un að leysa upp bráðabirgðastjórn-
ina og afneitaði Vargas Mendoza í
kjölfarið og sagði hann svikara. Þær
fjórar milljónir indíána sem búa í
Ekvador myndu ekki viðurkenna
stjórn Noboas, heldur halda áfram
að berjast fyrir breytingum. Flestir
mótmælenda höfðu þó yfirgefið Qui-
to í gær og haldið til síns heima.
Spillt valdastétt
Að sögn stjórnmálaskýrenda má í
mörgu rekja vanda Ekvadors til
spilltra ráðamanna, sem margir
hverjir sækjast aðeins eftir embætti
til að skara eld að eigin köku.
Þá sýna skoðanakannanir að al-
menningur ber lítið traust til stjórn-
málamanna og að sögn stjórnmála-
fræðingsins Simons Pachanos,
þjónar stjórnkerfi landsins ekki
lengur því hlutverki að gæta hags-
muna þjóðarinnar.
Noboa er hins vegar af flestum
álitinn laus við spillingu, þó ákveð-
innar tortryggni gæti meðal Ekva-
dorbúa, sem eru því vanir að leið-
togabreytingar hafi lítil áhrif á
efnahag landsins. Noboa virðist þó
eiga stuðning Mahuads vísan, en
hann sagði í viðtali við Channel 8
sjónvarpsstöðina um helgina að
hann fordæmdi byltinguna, en ósk-
aði Noboa alls hins besta.
Mannskæð
kuldatíð í
A-Evrópu
FROSTHÖRKUR og snjó-
stormar hafa valdið usla í Aust-
ur-Evrópu að undanförnu. I
Rússlandi og Póllandi hafa
hundruð manna dáið úr kulda
það sem af er vetri, og í fjalla-
héruðum A-Evrópu allt frá
Austurríki til Tyrklands hafa
snjóþyngsli valdið skaðræðis
sjóflóðum. Samkvæmt niður-
stöðum nýrrar skýrslu pólskra
stjórnvalda hafa 123 látið lífið í
nokkmm kuldaköstum sem
gengið hafa yfir landið. 27
gráða frost mældist í norðausL
urhluta landsins um helgina. I
Moskvu hafa níu manns frosið í
hel og 246 verið fluttir á
sjúkrahús vegna ofkælingar og
kals á síðustu sjö dögum. Alls
hafa 143 látið lífið af völdum
kulda í rússnesku höfuðborg-
inni í vetur. Flestir þeirra vom
heimilislausir eða sofnuðu ut-
andyra eftir áfengisdrykkju.
Utanríkis-
ráðherra Ira
hættir
BERTIE Ahern, forsætisráð-
herra írlands, fær tækifæri til
að stokka upp í stjórn sinni í
vikunni því David Andrews ut-
anríkisráðherra hefur ákveðið
að láta af embætti. Andrews
hefur skýrt Ahern frá því að
hann hyggist segja af sér form-
lega á morgun, að sögn dag-
blaðsins The Irish Times. And-
rews, sem er 65 ára, tilkynnti í
júlí að hann hygðist ekki gefa
kost á sér til endurkjörs í
næstu þingkosningum.
Milljdnir Kín-
verja misstu
heimili sin
353 milljónir Kínverja urðu
fyrir barðinu á náttúrahamför-
um á liðnu ári og þær kostuðu
2.966 manns lífið, að sögn
Rauða krossins í Kína. Áætlað
er að tjónið af völdum hamfar-
anna nemi andvirði 1.700 millj-
arða króna. 6,65 milljónir Kín-
verja urðu að flytja búferlum
vegna náttúrahamfara, þar af
tæpar 1,8 milljónir manna sem
misstu heimili sín vegna flóða í
Yangtze-fljóti.
Vegum að
Ósló lokað
NORSKIR vörubílstjórar lok-
uðu helstu vegum að Ósló í gær
til að mótmæla háum sköttum á
eldsneyti. Hundruð vörubíla
námu staðar á vegunum og lok-
uðu þeim í þrjár klukkustund-
ir. Áætlunarbílum og sjúkrabíl-
um var þó leyft að aka um
vegina. Þetta var í þriðja sinn á
átta dögum sem bílstjórarnir
grípa til slíkra mótmælaað-
gerða.
Kýr „endur-
klónuð“
JAPANSKIR vísindamenn
sögðust í gær hafa einræktað
kálf með því að nota framu úr
klónaðri kú og mun þetta vera í
fyrsta sinn sem stórt klónað
spendýr er „endurklónað".
Þeir sögðu kálfinn eðlilegan og
klónunina sanna að erfðaefni
klónaðra kúa væra eðlileg.
macromediá
Prenttæknistofnun
14
Margmiðlunorskólinn
soo
www.aco.is
Vefsíðuhönnuðir
Margmiðlarar
Þann 28. janúar verður haldin kynning á
Macromedia hugbúnaði á vegum Aco,
Prenttæknistofnunar og Margmiðlunarskólans.
Kynnt verða forritin Dreamweaver 3, Fireworks 3,
Flash4, Generator og Drumbeat 2000
Sýndir verða notkunarmöguleikar þeirra og einnig nýjungar
í DW3 og FW3.
Fyrirlesari verður Peter Freund frá Macromedia.
Kynningin hefst kl. 09:00 og stendur til 12:00
Skráning fer eingöngu fram á heimasíðu Aco Apple
www.apple.is/macromedia
Þetta er tækifæri sem engin vefsíðuhönnuður má láta fram hjá sér fara
DIRECTOR SHOCKWAVE'" DREAMWEAVER’" FIREWORKS (FLASH™)(FREEHAND() SENERATOR’"
Stjórnvöld Nýja-Sjálands og Japans
Deilt um hvalveiðar