Morgunblaðið - 25.01.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 33
LISTIR
Brot úr heimspekisögu
BÆKUR
Heimspeki
FRUMSPEKI OGÓEND-
ANLEIKI í VERKUM
SKULA THORLACIUSAR:
ÍSLENSK HEIMSPEKI
A 18. ÖLD.
eftir Henry Alexander Henrysson.
Útg. Hið íslenska bókmenntafélag,
1999.
MARKMIÐ Henrys Alexanders
Henryssonar í Frumspeki og óend-
anleika er „að rekja sig eftir þræði
sem liggui' frá umróti í menntalífi
Parísar árið 1277 og til þess að ungur
íslenskur stúdent skrifar sína fyrstu
framsöguræðu á Garði í Kaupmanna-
höfn árið 1761“ (bls. 111). Þessi stúd-
ent var Skúli Þórðarson Thorlacius.
Henry leitast við að gera grein fyr-
ir inntakinu í heimspeki þeiiri sem
Skúli skrifaði, greina helstu áhrifa-
valda og setja í hugmyndasögulegt
samhengi. Nefndir eru allir helstu
heimspekingar sögunnar, allt frá
fomgrikkjanum Þalesi til Þjóðverj-
ans Immanúels Kants.
Stiklað er á stóru í sögu heimspek-
innar og hringurinn smám saman
þrengdur að Kaupmannahafnarhá-
skóla á 18. öld og þeim íslensku
námsmönnum sem þar voru að læra
heimspeki. Þeir voru hvorki fleiri né
færri en á sjötta tuginn (sjá bls. 99),
þótt ekki sé alveg á hreinu að þeir
hafi verið að iðka heimspeki sem sé
sambærileg við það sem nú er kallað
heimspeki í háskólum.
Reyndar virðist hin svokallaða
skólaspeki, sem oft er kennd við
miðaldir, hafa verið kjaminn í spek-
inni þá, og til sanns vegar má færa að
nú á dögum sé einnig iðkuð „skóla-
speki“ í heimspekideildum háskóla
víða um heim. Fræðin eiga sjaldnast
vísun út fyrir háskólaveröldina og
vafasamt að sá sem ekki hefur eytt
löngum tíma í að læra hugtök og
orðaforða skólaspeki nútímans hafi
nokkuð upp úr því að leggja sig eftir
þeirri heimspeki sem nú er iðkuð.
Ef marka má tilvitnanir þær, sem
Hemy tekur til, hefur heimspeki
Skúla Thorlaciusar verið heldur tyrf-
in og ekki fyrir ólærða að fylgja
þræði hjá honum og átta sig á því
hvað hann er að fara. Henry endur-
segir heimspeki Skúla, en ekki er víst
að maður verði miklu nær um
óendanleikann og hugmyndir Skúla
um hann.
En nákvæm grein er gerð fyrir því
hverjir hafi að öllum líkindum verið
helstu áhrifavaldar í heimspekihugs-
un Skúla, og var þar fremstur Norð-
maðurinn Johan Ernst Gunnerus.
Einnig verður Ijóst að heimspeki
Skúla var af ætt rökhyggju í anda
Descartes fremur en raunhyggju að
hætti Humes.
Vegna hins gífurlega fjölda heim-
spekinga, bæði frægra og minna
þekktra, sem nefndur er í Frumspeki
og óendanleika, hefði verið mikil
hjálp í því ef í bókinni væri nafnaskrá.
Kristján G. Arngrímsson
Bókakaffí á
Súfístanum
FÉLAG barnabókahöfunda og sam-
tökin Böm og bækur boða í annað
sinn til bókakaffis á Súfistanum í húsi
Máls og menning-
ar við Laugaveg
fimmtudags-
kvöldið 27. janúar
næstkomandi kl.
20.
Andri Snær
Magnason rit-
höfundur mun
flytja erindi sem
hann nefnir: Leit-
in að týnda mark-
Andri Snær
Magnason
hópnum. Hugleiðing um unglinga-
bækur og þá sem lesa þær ekki.
Einnig verður sagt frá hinni vin-
sælu bók Harry Potter og heldur
Anna Heiða Pálsdóttir bókmennta-
fræðingur stutt erindi um söguna
sem kom út í fyrsta sinn á íslensku
nú fyrir jólin, söguna bak við verkið
og efnistök.
Að loknum fyrirlestri verður létt
kaffispjall um bæði erindin.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
Yfir 1.500 notendur
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
GRAND VITARA
TEGUND: VERÐ:
1,6 GLX4x4 4d 1.595.000 KR.
1,6 GLX WAGON 4x4 1.695.000 KR.
TEGUND:
GR.VITARA3 dvra
Vissir þú að 80% þeirra Suzukibíla
sem keyptir eru í dag
eru fjórhjóladrifnir?
WAG0N R+
TEGUND: VERÐ:
WAGONR+4X4 1.299.000 KR.
VITARA
GUND: VERÐ:
SE5d 1.840.000 KR
Sjálfskipting 150.000 KR.
TEGUND: VERÐ:
Beinskiptur 1.459.000 KR.
Sjálfskipting 130.000 KR.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur 6. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufésgötu 9, sími 462 63 00. Hafnarfjörður: Guövarður Eliasson,
Grænukinn 20, slmi 555 15 50, Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 26 17. isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sfmi 456 30 95.
Keflavík: BG bllakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.
~~—! ! “ z*