Morgunblaðið - 25.01.2000, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 25. JANÚAR 2000 41
UMRÆÐAN
Opið bréf til
fjármálaráðherra
í SÍÐUSTU viku
var greint frá því að
ríkisstjórnin hefði
ákveðið að gera
samning við fyrir-
tækið Securitas um
rekstur á elliheimil-
um á grundvelli
svokallaðrar einka-
framkvæmdar.
Þetta ætti ekki að
þurfa að koma nein-
um á óvart því ríkis-
stjómin hefur ekki
farið í grafgötur með
þann ásetning sinn
að innleiða einka-
framkvæmd í al-
mannaþjónustunni á
Islandi. Fyrir íslenskt þjóðfélag er
hér hins vegar grafalvarlegt mál á
ferðinni og er nauðsynlegt áður en
haldið er lengra út á þessa braut að
ráðamenn geri grein fyrir áformum
sínum, hve langt verður gengið í
einkavæðingu velferðarþjónustunn-
ar og hvað þar hangi á spýtu. Því er-
indi er hér með komið á framfæri
við fjármálaráðherra. Þegar þessi
mál hefur borið á góma hefur það
hent að ráðamenn hafa ekki viljað
kannast við eigin verk. Það henti til
dæmis fjármálaráðherra í umræðu
um einkaframkvæmd á Alþingi
skömmu fyrir jól.
OECD og ríkisstjdrn íslands
Tilefni umræðnanna var nýút-
komin skýrsla OECD. Þar voru ís-
lensk stjórnvöld lofuð og prísuð fyr-
ir framgöngu sína í einkavæðingu
auk þess sem ráðlagt var um næstu
skref. I skýrslunni sagði meðal ann-
ars um aldrað fólk og elliheimili:
„Hægt væri að takmarka kostnað
ríkissjóðs vegna umönnunar aldr-
aðra með því að leggja á hærri þjón-
ustugjöld. Eins og er greiða aldrað-
ir á hjúkrunarheimilum lítið meira
en lágan grunnlífeyri fyrir þjónust-
una. Þótt greiðslur ættu að hækka
jafnhliða því sem lífeyrisgreiðslur
hækka er ólíklegt að kostnaður við
vist á hjúkrunarheimili verði
greiddur að fullu. Svig-
rúm er til að auka þjón-
ustugjöld með því að
lækka þann hluta af líf-
eyrisgreiðslum sem ein-
staklingar á hjúkrunar-
heimilum halda eftir. En
í ijósi eigna aldraðra,
ættu stjórnvöld að íhuga
að fara fram á að hluti
þeirra eigna verði notað-
ur til að greiða fyrir
dvölina á hjúkrunar-
heimilum, þótt ekki væri
nema í því formi að safna
skuld við ríkissjóð sem
yrði greidd að lokum. í
þessu ljósi yrði að setja
reglur sem takmörkuðu
hættuna á því að einstaklingar
neyttu eigna sinna snemma eða á-
nöfnuðu þeim til barna sinna.“
Þegar vísað var til þessarar
skýrslu í umræðum á Aiþingi brást
fjármálaráðherra hinn versti við og
er gott til þess að vita að hann
skyldi telja út í hött að setja öldruðu
fólki stólinn fyrir dyrnar um ráð-
stöfun eigna sinna. En hvað með
þann kjarna í ábendingum OECD
sem lýtur að þjónustugjöldum og
nauðsyn þess að hækka þau? Er það
ekki þegar allt kemur til alls í fullu
samræmi við áform ríkisstjórnar-
innar í tengslum við einkafram-
kvæmd velferðarþjónustunnar, þar
á meðal á elliheimilum?
Hvað er einkaframkvæmd?
Einkaframkvæmd felur það í sér
að samið er við fyrirtæki um að
reisa og reka stofnanir sem sinna
þjónustu sem samstaða er um að
samfélagið sinni. Þetta getur átt við
um skóla, sjúkrahús, elliheimili,
fangelsi, veitukerfi og nánast hvers
kyns starfsemi sem þjóðfélagið þarf
lífsnauðsynlega á að halda. Enda
þótt einkaframkvæmdin hafi reynst
dýrari en fjármögnun og rekstur í
höndum hins opinbera hefur hún
engu að síður víða orðið fyrir valinu.
Astæðan er að hluta til pólitísk, þ.e.
byggir á þeirri trúarsannfæringu að
Einkaframkvæmdir
En það sem ekki er síð-
ur alvarlegt, segir
Ogmundur Jónasson, er
að þetta nýja fyrir-
komulag er mun kostn-
aðarsamara en þegar
reksturinn er á vegum
ríkis eða sveitarfélaga.
alls staðar þar sem því verður kom-
ið við eigi að láta markaðsfyrirtæki
annast rekstur en alls ekki hið opin-
bera. Ekki þarf að koma á óvart að
stjórnmálaflokkar tengdir fjár-
magni skuli halda þessu hagsmuna-
tengda sjónarmiði mjög á lofti.
Hitt er svo einnig staðreynd að
með einkaframkvæmd má auðveld-
lega fela opinberar skuldir, yfirfæra
þær úr bókhaldinu og yfir í pólitísk-
ar skuldbindingar. Þannig er láns-
fjármagn sem notað er til að reisa
stofnanir í einkaframkvæmd fært í
skuldadálka viðkomandi fyrirtækis
en hjá hinu opinbera er hins vegar
að finna loforð og skuldbindingar
um að sjá fyrirtækinu fyrir verkefn-
um út samningstímann, tvo eða þrjá
áratugi eftir atvikum.
Þetta fyrirkomulag byggir ekki á
framsýni heldur ótrúlegri
skammsýni og er reyndar undarlegt
að á tímum jafn örra breytinga og
við nú lifum skuli stjórnvöld vera
reiðubúin að að njörva okkur niður
með þessum hætti til langs tíma. En
það sem ekki er síður alvarlegt er
að þetta nýja fyrirkomulag er mun
kostnaðarsamara en þegar rekstur-
inn er á vegum ríkis eða sveitarfé-
laga. Þar kemur til hærri fjár-
magnskostnaður en einnig hitt að
nú eru komnir til sögunnar eigend-
ur og fjárfestar sem heimta arð af
fjárfestingum sínum. Þegar því er
Ögmundur
Jónasson
haldið fram að íslendingar hafi þeg-
ar allt kemur til alls um langt skeið
búið við einkarekstur margra heil-
brigðisstofnana með ágætum ár-
angri þá gleymist að þar er um að
ræða starfsemi sem sprottin er úr
jarðvegi verkalýðshreyfingar eða
samtökum sjúklinga með það
markmið eitt að leiðarljósi að veita
þjónustu eins og tíðkast hjá ríki og
sveitarfélögum. Með einkafram-
kvæmdinni er hins vegar hugsunin
sú að byggja þessa starfsemi upp
eins og hvern annan atvinnurekstur
sem settur er á fót til að skapa eig-
endum sínum arð. Þessu tvennu er
engan veginn saman að jafna.
Alvarlegnr veikleiki
í þessu liggur alvarlegasti veik-
leiki einkaframkvæmdar innan vel-
ferðarþjónustunnar. Iðulega hefur
það gerst að fyrirtæki, sem treyst
hefur verið fyrir viðkvæmri þjón-
ustu, til dæmis sjúkrastofnunum og
elliheimilum, hafa leitað allra
bragða til að draga úr þjónustu til
þess eins að fullnægja kröfum eig-
enda um arðgreiðslur.
Fjölþjóðafyrirtækið ISS, sem
fyrir nokkrum dögum keypti
hreingerningardeild Securitas á Is-
landi, rekur sjúkrahús og elliheimili
víða um heim. Þetta fyrirtæki hefur
sætt harðri gagnrýni í Svíþjóð, þar
sem það rekur elliheimili, fyrir að
vanrækja vistmenn. í reynd liggur
það í augum uppi að sú freisting er
fyrir hendi hjá fyrirtæki af þessu
tagi að draga úr aðhlynningu, fæði
og umönnun til að ná kostnaði nið-
ur. Auðvitað má reyna að koma við
aðhaldi og eftirliti til að sporna
gegn þessu. En það er á brattann að
sækja ef hvatinn að baki rekstrinum
er gróðavon en ekki velferð þeirra
sem þjónustunnar eiga að njóta.
En víkjum aftur að kostnaðinum.
Hvemig geta sveitarfélög og ríki
brugðist við hækkandi útgjöldum
vegna einkaframkvæmdar? Hér
koma tvær leiðir til álita, annars
vegar að hækka skatta, hins vegar
að láta notendur sjálfa borga. Ríkis-
stjórn Islands hefur valið síðari
kostinn. í bæklingi um einkafram-
kvæmd sem Fjármálaráðuneytið
gaf út í júní árið 1998 segir að
leggja beri „áherslu á að sem
stærstur hluti tekna rekstraraðila
sé fenginn með notendagjöldum..."
Enda þótt Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra vilji ekki ganga svo
langt að banna öldraðu fólki að ráð-
stafa eignum sínum þá stendur hitt
eftir að fyrir þeirri ríkisstjórn sem
hann á sæti í vakir að fjármagna
rándýra einkaframkvæmd í þágu
útvalinna með auknum þjónustu-
gjöldum. Með öðrum orðum, rándýr
einkaframkvæmdin verður á kostn-
að aldraðra þegar fram líða stundir.
I sjónmáli eru stórhækkaðar álögur
á þá. Auðvitað munu sumir geta
borgað. Aðrir munu hins vegar eiga
erfitt með það. Þetta er sú ávísun
sem fjármálaráðherra er að gefa út
þessa dagana með einkafram-
kvæmd velferðarþjónustunnar.
Þetta er ávísun á misrétti.
Höfundur er alþingismaður og form.
BSRB.
1 • ftkl I hreinsunin
sími 533 3634, gsm 897 3634
Allan sólarhringinn.
ÞP
&CO
Rutland þéttir,
bætir og kætir
þegar þakið
fer að leka
Rutland er einn
helsti framleiðandi
þakviðgerðarefna í
Bandaríkjunum
Veldu rétta efnið - veldu Rutland!
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA29 S: 553 8640 & 568 6100
Springdýnur
Skútuvogfi 11 • Sími 568 5588