Morgunblaðið - 25.01.2000, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
/ ! ........................
UMRÆÐAN
Hvað þýðir orð-
ið „háskóli44?
Á ÍSLANDI eru nú
nokkrir skólar sem
bera orðið háskóli í
heiti sínu.
Háskóli Islands er
þeirra elstur. Á ensku
heitir Háskóli Islands
University of Iceland.
Ljóst er þó að merk-
ing orðsins háskóli er
" ekki sú sama og uni-
versity. Hún er víðari,
merkir bæði college
og university. Það á-
lykta ég af því að
starfsemi sumra skóla
á Islandi sem bera
nafnið háskóli er frá-
brugðið þeirri starf-
semi sem einkennir university.
Eftir að námi í framhaldsskólum
lýkur taka við tvö skólastig, grunn-
nám og framhaldsnám í háskóla.
Það er meiri munur á þessum
tveimur skólastigum er nokkrum
öðrum tveimur samliggjandi skóla-
stigum. Það kemur gleggst fram í
þeim kröfum sem gerðar eru til
starfsmanna (kennara) en einnig í
aðstöðu, vinnulagi og markmiðum.
Það sem einkennir university um
gjörvallan heim eru rannsóknir (í
merkingunni research, en þess má
geta að íslenska orðið rannsókn er
notað í mikli víðari merkingu en
enska orðið research). Bæði vestan
hafs og austan einkennist starf
„university-kennara“ af rannsókn-
um. Það sem einkennir rann-
sóknarferlið í dag er að fyrst þurfa
kennarar að móta hugmyndir um
rannsóknaverkefni, síðan að afla
'fjár til þess, ýmist úr sjóðum eða
frá fyrirtækjum, vinna verkið og
skila frá sér niðurstöðunum.
Samkvæmt erlendum viðmiðum
standa þeir háskólakennarar sig
vel sem eru duglegir að afla fjár til
rannsókna. Með alla þá háskóla
sem nú eru á Islandi og kalla sig
university væri fróðlegt að fá upp-
lýsingar um rann-
sóknaferil starfs-
manna og fjáröflun til
rannsóknastarfsins.
Mér segir svo hugur
að margar skólastofn-
anir hér á landi sigli
undir fölsku flaggi í
þesum efnum. Rétt
væri að nefna þær
college á ensku, ekki
university. Þess má
geta hér að í Vestur-
Evrópu eru 1-2 millj-
ónir íbúa á hvert uni-
versity. Á íslandi eru
nú sjö háskólar ef ég
tel rétt. Þýðir það að
hér séu sjö universiti-
es, eitt á hverja 40 þúsund íbúa?
Rannsóknarstörf eru oft mjög sér-
hæfð og stundum markmið þeirra
torskilin bæði leikmönnum sem
Skólar
Ljóst er að merking
orðsins háskóli er ekki
sú sama og university,
segir Stefán Arnórsson.
Hún er víðari, merkir
bæði college og uni-
versity.
öðrum sem ekki hafa til að bera
sérþekkingu á því sviði sem til-
teknar rannsóknir tengjast. Eftir
sem áður er auðvelt með fáum
spurningum að átta sig á því hvort
sá sem vinnur að rannsóknum sé
virkur í starfí. Fyrst er að spyrja á
hvaða sérsviði hinn spurði starfar,
næst að hvaða verkefnum hann
vinnur að og hversu miklu fé hann
ráðstafar til rannsókna og loks
Stefán
Arnórsson
hvaða verkefnum hann hafi síðast
lokið og hverjar séu helstu niður-
stöðurnar. Síðan er jafningjamat
besta aðferðin til að meta gæðin.
Ég legg til, lesandi góður, að þú
hafir þessar spurningar í huga ef
þú vilt átta þig á rannsóknarstarfi
við íslenska háskóla og hvort um
sé að ræða college eða university.
Undirritaður gegnir nú starfl
formanns stjórnar Raunvísinda-
stofnunar Háskólans. Sú stofnun
er ein stærsta rannsóknastofnun
hér á landi með 170 milljónir króna
í fjárveitingu af fjárlögum á síð-
asta ári og annað eins í sjálfsaflafé,
úr innlendum og erlendum rann-
sóknarsjóðum og frá fyrirtækjum.
Kennarar við raunvísindadeild
Háskólans hafa rannsóknaraðstöðu
við Raunvísindastofnun. Það ætti
að segja sig sjálft að starfsemi
Raunvísindastofnunar og raunvís-
indadeildar Háskóla íslands er
með öðrum hætti og annars eðlis
eða ýmissa annarra skóla hér á
landi sem bera háskólaheiti. Okkur
ber að nefna hlutina réttum nöfn-
um. Að þýða orðið háskóli yfir á
ensku með orðinu university eins
og nú virðist gert er allt í senn
hlægilegt, grátlegt, barnalegt og
íslenskri þjóð að athlægi. Með
þessum orðum er ég ekki gera lítið
úr störfum eins né neins, hvorki
þeirra sem sinna vel starfi sínu við
grunnskóla, framhaldsskóla eða
skóla á háskólastigi.
I grein í Morgunblaðinu frá 15.
janúar um breytingu á nafni Við-
skiptaháskólans í Háskólinn í
Reykjavík (Reykjavík University)
minnist Guðfinna S. Bjarnadóttir,
rektor ekki einu orði á annað í
sambandi við starfsemi skólans og
framtíð hans en kennslu. Er það
tilviljun eða áttar hún síg ekki á
því hvað orðið university stendur
fyrir og að íslenska orðið háskóli
hefur víðari og því aðra merkingu?
Hitt má öllum vera ljóst að skóli
þar sem kennd eru fá fög en er
kenndur við stað eins og Háskólinn
í Reykjavík gefur ekki rétta mynd
af starfsemi sinni með nafninu.
Höfundur er prófessor íjarð-
efna fræði og formaður sljórnar
Raunvísindastofnunar Hdskólans.
Virkjunar-
svæðið Island
Björn
Þorsteinsson
UM NYLIÐNAR
stórhátíðir mátti sjá í
sjónvarpinu athyglis-
verða auglýsingu frá
Landsvirkjun. Fal-
legir fossar í grænni
náttúru Islands, lækj-
arsprænur og stærri
vatnsföll, og þekkt
ættjarðarlag sungið
undh’. I upphafi
auglýsingarinnar
birtist á skjánum boð
sem ber vott um
mikla gestrisni: „Vel-
komin á virlq'unar-
svæði Landsvirkjun-
ar“ og litlu síðar
fylgdi slagorðið
„Nýtum og njótum“. I lok auglýsing-
arinnar kom svo í ljós að hér var á
ferð nýárskveðja Landsvirkjunar til
landsmanna.
Því er ekki að neita að það er fal-
legt af stórfyrirtækinu að sýna lands-
mönnum, umbjóðendum sínum, hug
sinn í verki með þessum hætti. Ljóst
er að almannatengsladeild fyrirtæk-
isins hefur hér unnið sitt starf af alúð
og vandvirkni. Þó má vera að að-
standendum auglýsingarinnar hafi
yfirsést ofurlítill merkingarþrunginn
túlkunarmöguleiki sem hér verður
vakið máls á. Skoðum boðskap
auglýsingarinnar nánar. Landsvirkj-
un býður landsmenn velkomna á
virkjunarsvæði sitt. Er þar átt við
Eyjabakka eða Sultartanga? Mynd-
irnar sem fylgja benda til annars:
Þær eru teknar hér og hvar í náttúru
landsins og sýna allt annað en stíflur,
stöðvarhús og uppistöðulón. Séu í-
myndasmiðir Landsvirkjunar teknir
hér á orðinu verður niðurstaðan því
þessi: Virkjunarsvæði Landsvirkjun-
ar er gjörvöll náttúra landsins, jafnt
þau svæði sem þegar hafa verið
„nýtt“ og þau svæði sem við megum
ennþá „njóta“ í óspjallaðri mynd.
Þar höfum við það svart á hvítu og
ætti engum að koma á óvart: eins og
sjálft nafnið ber með sér
er Landsvirkjun fyrirtæki
sem ætlað er að virkja
landið; hún er glæstur
fulltrúi þess viðhorfs að
landið hafi ekki gildi í
sjálfu sér heldur sé það
ekki annað en safn virkj-
unarkosta. Þegar þetta er
haft í huga sjáum við að
þegar Landsvirkjun býð-
ur okkur landsmenn vel-
komna á virkjunarsvæði
sitt - virkjunarsvæðið Isl-
and - er það til marks um
nokkra þröngsýni sem
jafnvel jaðrar við dramb,
því að til eru þeir sem líta
svo á að landið sé ekki
virkjunarsvæði, það sé ekki eign til-
tekinna fyrirtækja heldur sé það í
umsjá þeirra sem í landinu búa. Það
Virkjanir
Séu ímyndasmiðir
Landsvirkjunar teknir
hér á orðinu verður nið-
urstaðan því þessi, segir
Björn Þorsteinsson:
Virkjunarsvæði Lands-
virkjunar er gjörvöll
náttúra landsins.
sé því í verkahring landsmanna að
bjóða Landsvirkjun velkomna í nátt-
úru landsins þegar brýna nauðsyn
ber til - þegar allir aðrir kostir hafa
verið fullkannaðir og sýnt þykir að
ekki séu aðrar leiðir færar en að
leggja land undir virkjun.
Höfundur stundar doktorsnám í
heimspeki ( París.
EIGA stórfyrirtæki
eins og ísal að reka rík-
isstyrktan starfsþjálf-
unarskóla? Um þessar
mundir eru 16 manns í
Verkalýðsfélaginu Hlíf
að útskrifast úr Stór-
iðjuskóla Isal.
I tvö ár eða fram til
haustsins 1998 vann
nefnd hjá ísal að hug-
myndum varðandi
starfsnám sem ætlað er
fyrir ófaglærða starfs-
menn. Þegar námið
hófst, fundu fulltrúar
verkalýðsfélaganna út,
að Isal hefði einhliða
> ákveðið að störfum
nefndarinnar væri lokið. Fram-
kvæmdastjórn tók síðan ákvarðanir
um ýmis atriði námsins án samráðs
við nefndina.
I kjarasamningi stendur m.a.:
„...aðilar að yfirlýsingu varðandi
starfsnámið meti hvort þörf sé á
frekari störfum nefndarinnar, en
gert er ráð fyrir að hún ljúki störfum
þegar starfsnámið hefst“.
Átta milljón króna styrkur frá fé-
lagsmálaráðuneyti til verkefnisins
var úthlutað sameiginlega til ísal og
Trúnaðarráðs/Verkal.fél. Hlífar.
■ 3 fulltrúar voru frá verkalýðsfé-
lögunum og 3 frá Isal. Frá verka-
lýðsfélögunum voru Kolbeinn Gunn-
arsson frá Hlíf, Gylfi Ingvarsson
aðaltrúnaðarmaður og undh'ritaður
frá Hlíf. Þakka ber Sigurði Þór
steypuskálastjóra vandvirk störf í
nefndinni en hann var aðaldriffjöðrin
af hálfu ísal við að koma náminu á.
->Það er afar mikilvægt að staðið sé
rétt að skipulagi og
framkvæmd svona
náms í upphafi sem og
á seinni stigum svo þeir
sem það eiga að stunda,
verði ekki fráhverfir
því. Fylgst er með því
hvernig til tekst og
hvort vænlegt sé fyrir
vinnumarkaðinn að til-
einka sér slíkt eða svip-
að starfsnám.
Námskráin
Við lögðum upp með,
eins og í venjulegu
námi, að menn yrðu að
„læra“ en þá er spum-
ingin hve mikið? Nám-
skráin fjallar ítarlega um það. Hún
var samþykkt og undirrituð af stjórn
ísal og trúnaðarráði. Hugmynda-
fræði okkar Hlífarmanna er fengin
frá MFA og er einföld: Að allir ófag-
lærðir geti farið í skóla, lært út frá
eigin forsendum og náð að hífa sig
upp, burtséð frá grunnnámi. Við höf-
um kynnst áhrifaríkum kennsluað-
ferðum MFA, sem leggur áherslu á
að meta námsárangur út frá hverj-
um einstaklingi fyrir sig og tengja
námsefnið við það sem menn þekkja.
Nemi getur t.d. verið í tölvunámi um
leið og hann lærir íblöndun efna eða
stærðfræði.
í raun er gert ráð fyrir tengingu
námsins við vinnustaðinn í nám-
skránni.
Meðal efnisatriða eru: Fram-
leiðsluþekking, einfaldar greiningar
og mat á niðurstöðum, vinnuvernd
og samskipti á vinnustað. Það síð-
astnefnda mættu stjórnendur einnig
Starfsþjálfun
ÍSAL tók sér sjálfræðis-
vald þrátt fyrir samn-
inga, segir Jóhannes
Gunnarsson, og sameig-
inlega peningastyrki
með verkalýðsfélögun-
um.
læra.
Einar Guðmundsson aðstoðarfor-
stjóri skýrði það út fyrir mér að hann
hefði verið í skóla í 18 ár og hann
vissi nákvæmlega hvernig nám ætti
að vera! Kannski að þarna sé meinið?
Ég hef þá reynslu umfram hann að
hafa ekki vérið 18 ár í skóla. Það er
ekki sjálfgefið að menn hafi t.d. þann
grunn sem þarf til að hefja nám í
stærðfræði 102.
Geðþóttaákvarðanir
Ófaglærðir eru misjafnlega vel
undir það búnir að hefja nám. Það er
margt sem þarf að taka tillit tik Sam-
ið var um að námið yrði fyrir ófag-
lærða starfsmenn með enga grunn-
menntun.
Stjórnendur ísal völdu 18 manns í
fyrsta hóp. Valdir voru 9 manns sem
höfðu eitthvað nám að baki eins og
t.d. iðnmenntun og menntaskólanám
og líklegir væru til að sýna árangur.
9 manns voru ófaglærðir.
Það kom fram á einum fundinum
að valið hefði verið þannig að t.d. ein-
hver með lesblindu væri örugglega,
ekki í hópnum. Okkur var sagt að
það væri til að tryggja góða útkomu
hjá fyrsta hóp og skapa náminu góða
ímynd út á við! Að sögn stjórnanda
Isal í nefndinni var einn neminn val-
inn vegna þess að hann hélt góða
ræðu, að mati forstjórans, í veislu
sem hún hélt á Hótel Borg! Flokk-
stjórar og varaflokkstjórar voru sér-
staklega valdir í námið og skólinn
fékk uppnefnið „Flokkstjóraskólinn"
á meðal starfsmanna.
Þetta allt vekur upp spurningu um
jafnrétti til náms og hvort styrkja
eigi auðhring eins og Alusuisse í að
halda uppi starfsþjálfun t.d. á flokk-
stjórum hjá Isal. Val í skólanám sem
er styrkt með skattpeningum má
aldrei byggjast á geðþóttaákvörðun-
um og hveijir séu þóknanlegir þeim
sem í það velja. Svona nám þyrfti að
verða almennara í þjóðfélaginu. Ef
ríkið styrkir það áfram verður að
finna sanngjarna aðila til að sjá um
ogveljaíþað.
Aðferðin
Hlífarmenn lögðu mikla áherslu á
að tölvur væru notaðar við kennslu
og úrvinnslu verkefna. Að auðvelt
væri að vera með nýjar útfærslur á
námsgögnunum og einfalt fyrir leið-
beinendur að fylgjast með hvar nemi
væri staddur í náminu. í lokaprófi
væri hægt að nýta vistað efni í tölv-
unum. Kenna þyi’fti hagnýta stærð-
fræði, prósentureikning, vísitölur og
aðferðafræði í tölvum, á vasareikni
eða með öðrum hjálpargögnum.
Starfsmenn ísal segja að þetta sé
ekki það sem við höfum kynnt þeim í
samningum. Ég bið menn að afsaka
en lokaorðið var hjá ísal.
Yfir 100 manns sóttu um að kom-
ast í fyrsta hóp. I kringum 30 manns
sóttu um að komast í næsta hóp. Það
var eftir að fréttir frá fyrsta hóp fóru
að berast um að námið væri annað en
kynnt var.
Að heimalærdómur hafi verið við-
tekin venja hjá hópnum sem er að út-
skrifast segir okkur að of mikið
námsefni hafi verið innan þess tíma
sem til námsins var ætlaður. Ekki
var rætt um það í nefndinni né í
samningum að menn þyrftu að
stunda heimalærdóm enda hafa
vaktavinnumenn í fullri vinnu litla
aðstöðu til þess. Fulltrúar starfs-
manna vöruðu við því að vera með sí-
felld próf, létt eða þung.
Mikil yfirferð og próf skapa
spennu og óánægju sem er eingöngu
til að fæla væntanlega nemendur frá
námi. Samið var um að prófað yrði að
loknum hverjum námsþætti úr þeim
þætti sem tilheyrir starfsferlinu en
ekki t.d. beint í stærðfræði. Sumir
geta lært stærðfræði sem dugar
þeim til að vinna sitt starf og til
léttra útreikninga án þess að hafa til-
skildar einkunnir úr iðn- eða
menntaskóla.
Lokaorð
Þurft hefði að viðhafa vandaðri
vinnubrögð strax í upphafi. ísal tók
sér sjálfræðisvald þrátt fyrir samn-
inga og sameiginlega peningastyrki
með verkalýðsfélögunum.
Þetta hófst allt með hugmyndum
og vinnu verkamanna og hefur ísal
ekki svo mikið sem sagt takk fyrir.
Að lokum vil ég óska þeim 16
mönnum úr Verkalýðsfélaginu Hlíf,
sem eru að útskrifast úr Stóriðju-
skólanum, til hamingju með þennan
merka áfanga.
Höfundur var í starfsnámsnefnd sem
vann að þvíað koma á starfsnámi lljd
ÍSAL.
Eiga stórfyrirtæki eins og ÍS AL að reka
ríkisstyrktan starfsþj álfunar skóla?
Jóhannes
Gunnarsson