Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
Samkeppni og fjöl-
breytni í spóna-
framboði að aukast
Sú var tíðin að spænir kostuðu ekki neitt og nánast gustukaverk ef
einhver vildi hirða þá. I dag er öldin önnur, spænir orðnir eftirsótt
söluvara og þurfa sumir að greiða stórfé fyrir þá og flutning
á þeim. Um helgina var kynnt ný tegund innfluttra spóna og ákvað
Valdimar Kristinsson í framhaldi af því að kynna sér hvaða kostir
eru í boði í undirburði undir hross, bæði verð og gæði.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Nýju spænirnar Woody Pet virðast búa yfir mikilli rakadrægni og halda
vatni vel í sér. í prófun kom ekkert vatn úr skál þar sem einum lítra
hafði verið hellt saman við spænimar og það látið standa í 15 mínútur.
Nýju spænirnar minna meira á fóðurbæti eða morg- Ýmsir valkostir eru varðandi undirburð. Hér eru
unkorn og segja má að það líti undarlega út að sjá þrjár tegundir innfluttra spóna en auk þess selja
hross standa í hrúgu af „fóðri“ í hesthúsinu. stærstu trésmiðjur mikið af íslenskum spónum.
Á SÍÐUSTU tuttugu árum hafa orðið
miklar breytingar á hestahaldi og öll-
um aðbúnaði hrossa. Hestamönnum í
þéttbýli hefur fjölgað gífurlega á
þessum tíma, hesthús hafa þróast úr
kassafjalakofum yfir í glæsilegar
byggingar þar sem vel er búið að
mönnum og hestum. Lausagöngu-
stíur hafa tekið völdin og básamir
sem voru algengastir eru orðnir úrelt-
ir, tilheyra fortíðinni og algjör undan-
tekning að gert sé ráð fyrir básum í
nýjum hesthúsum. Víðast hvar er um
að ræða safnstíur þar sem mokað er
út vikulega eða sjaldnar og útheimta
þær mikið af spónum. Hefur því
spónanotkun í hestmennskunni auk-
ist umtalsvert á þessum tíma sam-
hliða því sem ört stækkandi og fjölg-
andi hænsna- og svínabú hafa aukið
notkun á spónum. Markaðslögmálin
hafa því óneitanlega sett svip sinn á
V,pónamarkaðinn því með auldnni eft-
irspum hefur verð breyst úr því að
vera nánast ekki neitt upp í 16-20
þúsund krónur 20 feta gámur eins og
algengt er að afgreiða lausa spæni úr.
Kröfur um þrifnað, gott loft og
góða birtu í hesthúsum hafa aukist
mjög og þar má segja að spænirnar
gegni lykilhlutverki. Samfara aukinni
eftirspum hefur einnig örlað á örlítilli
samkeppni. Fyrir hefur komið suma
vetur að spæni hafi skort og hafa
menn brugðist við með því að flytja
inn spæni og hefur það leitt til þess
undanfarin ár hefur eitthvað af spón-
um verið flutt inn. Nú um helgina var
kynnt í versluninni Töltheimum ný
tegund spóna (jg um árabil hafa bæði
v- MR-búðin og Ástund flutt inn spæni í
takmörkuðu magní sem þó virðist
fara vaxandi. Trésmiðjur Byko og
Húsasmiðjunnar hafa gefið mest af
spónum af sér en auk þess hefur Lím-
tré á Flúðum verið afkastamikið á
þessu sviði. Síðan fellur alltaf eitthvað
til af spónum frá minni íyrirtækjum
þar sem menn telja sig góða að losna
við spænina án kostnaðar þannig að
hægt er að fá ókeypis spæni enn í dag.
Lausir
spænir ódýrastir
En það eru ýmsar hliðar á spóna-
málum hestamanna því spænir eru
ekki bara spænir og að mörgu þarf að
hyggja með auknu framboði. Verðið
> er það sem flestir líta fyrst á en það er
margt annað sem hefur áhrif. Vissu-
lega skiptir máli fjöldi hrossanna í
hesthúsinu og má ætla að dæmið líti
öðru vísi út þar sem eru til dæmis 40
hross í húsi en þar sem eru 4 til 6
hross. Ef við byijum á íslensku spón-
unum þá kostar gámurinn, sem inni-
heldur að meðaltali 250 poka, 16 þús-
und krónur ef honum er sturtað og
bíllinn fer strax, annars 20 þúsund
krónur ef losað er beint af bílnum í
poka eða blásið er inn eins algengt er
orðið. í fyrra tilfellinu kostar þá pok-
inn 64 krónur en annars 80 krónur. Ef
seldir eru pokaðir spænir er pokinn
seldur á 250 krónur ef keypt er mikið í
einu, 25 pokar eða fleiri, annars kosta
þeir um 330 krónur. Það að fá fullan
gám af spónum og þurfa að poka hann
er sá hluti hestamennskunnar sem
flestum finnst fyrirkvíðanlegur. Mjög
óþrifaleg vinna og sjálfsagt ekki mikil
hollusta í henni fólgin. Segja má að
það sé helsti gallinn við að fá þessa
ódýru spæni. Þótt í langflestum tilvik-
um séu þessir gámaspænir ágætis
vara til síns brúks þá kemur það fyrir
að trésmiðjurnar þurfa að hefla mjög
blautt timbur og eðli málsins sam-
kvæmt reynast þeir spænir ekki góðir
til að draga í sig raka þegar undir
hrossin er komið. Getur því komið
fyrir að menn kaupi köttinn í sekkn-
um ef svo ólíklega vill til að þeir lendi
á slíkum gámi. Þá fer lykið eða sagið í
þessum spónum hvorki vel í öndunar-
færi manna né hesta þótt vart sé
hægt að tala um að stórhætta sé á
ferðum. En það er verðið sem er
stærsti plúsinn við þessa spæni. Yfir
háannatímann frá janúar fram í maí
er langur afgreiðslufrestur á lausum
spónum, 3 tíl 5 mánuðir.
Ástund og MR-búðin hafa flutt inn
pressaða og þurrkaða spæni undan-
farin ár í ferköntuðum böggum svip-
uðum heyböggum að lögun og stærð.
Þessir spænir eru kynntir sem ryk-
lausir og þurrkunin á þeim á að
tryggja betri rakadrægni. Baggamir
eru um 25 kíló að þyngd og kosta hjá
MR 1.260 krónur en 1.250 krónur hjá
Ástund. Því má ætla að að jafnaði sé
tvöfalt það magn sem er í venjulegum
sorppoka eins og lausu spænimir em
gjaman settir í. Nú liggur ekkert fyr-
ir um hvort eða hversu miklu betur
þessir spænir draga raka í sig en
þessir lausu íslensku en verðmunur-
inn er allnokkur. Þeim sem þekkja til
SVO virðist sem landsmótið í sumar
ætli að sefja strik í reikninginn varð-
andi framboð stóðhesta á Sæðinga-
stöðina í Gunnarsholti í sæðistöku til
frystingar. Sagði Páll Stefánsson
forstöðumaður stöðvarinnar að sér
virtist að stefnt væri með flesta stóð-
hesta landsins á landsmótið og því
ekki mikið hugsað um að láta frysta
sæði úr hestum þessa stundina.
Sagði Páll að óðum styttist í að þeir
hestar sem ætti að frysta sæði úr
yrðu að vera komnir á stöðina og
nefndi hann 20. febrúar sem siðasta
dag. Byrjað verður á því að taka sýni
úr hrossunum til að kanna hugsan-
lega sjúkdóma og tekur það um viku
en si'ðan tekur að jafnaði tvær vikur
að ná upp viðunandi sæðisgæðum.
Úr einni sæðistöku fást frá tveim-
ur til þremur skömmtum upp í
fimmtán skammta hjá þeim hestum
beggja tegunda virðist þó bera saman
um að minna þurfi af þessum inn-
fluttu spónum en þeim íslensku. Aðrir
kostir við innfluttu spænina eru þeir
helstir að sökum pressunar taka þeir
mun minna pláss, þeir eru ryklausir
og menn losna við óþrifin við pokun
sem er að sjálfsögðu stór kostur. Þá
eru pressaðir spænir álitlegur kostur
fyrir þá sem þurfa að láta flytja vör-
una um langan veg.
Líkjast fóðurbæti
eða morgunkorni
Þá er röðin komin að þessum nýju
spónum, Woody Pet, sem eru frá
Bandaríkjunum, mjög byltingar-
kenndir spænir svo ekki sé meira
sagt. Blaðamanni fannst þeir helst
líkjast fóðurbæti fyrir hross á að líta
Leyfí til útflutn-
ings sæðis fást
sem eru með bestu gæðin. Tvo
skammta þarf að jafnaði til að fylja
eina hryssu með frystu sæði. Tekið
verður sæði úr hveijum hesti þijá
daga í viku. Páll sagði nú ljóst að
leyfi til útflutnings sæðis fengist en
hinsvegar vantaði meiri umræðu
meðal hagsmunaaðila í hrossarækt-
inni um málefnið. Menn þurfa að
koma sér saman um það hvort þeir
séu almennt með eða móti út-
flutningi sæðis og eins ef til út-
flutnings kemur að koma sér saman
um hvemig skuli að honum staðið.
Aðspurður kvaðst Páll sjá fyrir
sér lakari rekstrargmndvöll Sæð-
ingastöðvarinnar ef tekið yrði fyrir
útflutning. Enginn geti sagt fyrir-
eða jafnvel gimilegu morgunkomi til
manneldis. Þessir spænir eru hitaðir
við ríflega 600°C hita og síðan köggl-
aðir svipað og fóðurbætir og fljótt á
litið virðast þeir ekki líklegir til að
draga í sig mikinn raka. Innflytjand-
inn, Kristinn Skúlason, sýndi blaða-
manni hvemig þessir spænir virkuðu
með því að hella einum lítra af vatni
yfir kögglana í skál og til samanburð-
ar sama vatnsmagni yfir íslenska
spæni. Eftir á að giska 15 mínútur
höfðu innfluttu spænimir aukið rúm-
mál sitt um þriðjung en þeir íslensku
vom nánast óbreyttir að rúmmáli. Því
næst snéri hann skálinni við og hélt
hendinni yfir spónunum svo þeir
rynnu ekki úr skálinni en ekki kom
dropi af vatni. Þegar svo íslensku
spónunum var snúið við runnu ókjör-
in öll af vatni úr skálinni sem segir að
þessir þurrkuðu spænir virðast sam-
kvæmt þessu draga mun meira vatn í
sig heldur en þeir íslensku. Hér er að
sjálfsögðu ekki um að ræða neina
marktæka könnun á gæðum en vissu-
lega er þessi nýja tegund áhugaverð.
Þá segir í upplýsingum að spænimar
eyði ammóníakslykt og öðra ólofti
sem gjaman myndast út frá þvagi og
taði. Pokinn af þessu efni kostar 790
krónur og inniheldur hann um 14 kíló.
Sagði Kristínn að best væri að setja
tvo poka í tveggja hesta stíu í byijun
og síðan að hreinsa taðið úr daglega
og bæta nýjum spónum í eftir þörfum
næstu daga eða vikur.
Til þess að fá góðan samanburð á
þeim spónakostum sem í boði era í
dag mun hestaþátturinn bera saman
þessar fjórar spónategundir á næstu
tveimur til þremur vikum og fá til liðs
við sig hæfa menn til að tryggja að
faglega og hlutlaust sé að málum
staðið. Slíkar upplýsingar geta auð-
veldað hestamönnum að velja það
sem hentar þeim best og kannski gott
að hafa álit hlutlauss aðila á virkni
vörannar sem þeir kaupa. Fyrirfram
má ætla að allar hafi þessar tegundir
spóna sína kostí og kannski einhverja
galla og svo hefur verðið sitt að segja
og sú fyrirhöfn sem fylgir því að koma
spónunum í þær umbúðir eða á þann
stað þar sem þeir verða notaðir.
fram hvort hægt sé að reka stöðina
án útflutnings, það fari eftir því
hversu menn séu viljugir að nýta sér
þessa þjónustu. Hann benti hinsveg-
ar á, að sæðingar væru góður kostur
ef smitsjúkdómar færu að skjóta upp
kollinum í auknum mæli hér á landi.
Það væri mun minni smithætta að
flyija sæði miili landshluta en að
fara með hrossin á milli.
Vel lítur út með fersksæðingar í
vor. Eins og fram hefúr komið í
hestaþætti verða þar í sæðistöku
Andvari frá Ey, Hrynjandi frá
Hrepphólum eftir 20. maí og Þorvar
frá Hólum, sem er undan Þrá frá
Hólum og Orra frá Þúfú. Páll sagði
að vissulega væri öllum heimilt að
koma með hesta í fersksæðingar en
það þjónaði ekki tilgangi nema um
eftirsótta hesta væri að ræða, sem
auka þyrfti afköstin Iijá.
Vantar fleiri hesta í frystingu