Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 49
deildar á Akureyri hátíð sumarið
1981 sem tókst sérlega vel. Fólkið
mætti eftir hádegi á laugardegi í
verksmiðjunum og það var opið hús
fyrir alla. Ferill vinnunnar var sýnd-
ur og í brekku sunnan við verk-
smiðjurnar afhjúpaði formaður Iðju
koparskjöld á kletti með eftirfarandi
áletrun: „Þorsteinslundur 1921-
1981. íslensk samvinnuhreyflng
þakkar Þorsteini Davíðssyni og þús-
undum annarra starfsmanna Sam-
bandsverksmiðjanna fórnfús störf.
A sex áratugum hafa þeir séð þenn-
an iðnað vaxa úr mjóum vísi í mikinn
meið.“ Starfsmenn höfðu plantað
200 myndarlegum lerkitrjám kring-
um klettinn og lagfært umhverfið,
þannig að þetta var orðinn fallegur
reitur. Við starfslok var Þorsteini
afhent stórt og mikið stuttklippt
gæruskinn sem starfsmenn höfðu
sett nafn sitt á, ennfremur eftirfar-
andi vísa sem Páll Helgason, sem
vann á skrifstofu verksmiðjanna,
orkti:
Þegar ævi kemur kvöld
krýndur þökkum ferðu.
Heila brynju og hreinan skjöld
héðan með þér berðu.
Þorsteinn hlaut gullmerki Sam-
bandsins eftir 40 ára heillarík starfs-
ár og var sæmdur fálkaorðunni 17.
júní 1981. Hann var alltaf boðinn á
aðalfundi Sambandsins og hygg eg
að enginn maður hafi setið jafn
marga aðaflundi hjá Sambandinu og
Þorsteinn Davíðsson.
Þrátt fyrir háan aldur var Þor-
steinn ótrúlega duglegur fram á sið-
ustu stund. Hann fór til sona sinna á
Akureyri um síðustu jól og áramót
og gekk óstuddur upp stigana sem
þar eru. Nú að leiðarlokum minnist
eg Þorsteins sérstaklega fyiir hans
mikla dugnað og seiglu. Hann gafst
aldrei upp þrátt fyrir ótal erfiðleika
sem oft komu upp í starfi. Við hjónin
kveðjum Þorstein Davíðsson með
virðingu og þökk og sendum sonum
hans og fjölskyldum þeirra innilegar
kveðjur. Einnig hef eg verið beðinn
fyiir kveðjur frá stjórn Sambands-
ins. Hún þakkar honum öll hans fjöl-
mörgu og miklu störf fyrir Sam-
vinnuhreyfinguna. Þorsteinn var
mikill og einlægur samvinnumaður.
Sonum og fjölskyldum þeirra sendir
stjórnin hlýjar kveðjur.
Hjörtur Eiríksson.
Þorsteinn Davíðsson er meðal
þeirra manna, sem mér eru kærastir
í minningu minni um ágæta menn.
Hann mátti kallast gagnheill að eðl-
isgerð og mannkostum. Fáa átti
hann sína líka sem trúr og dugandi
starfsmaður að hverju sem hann
gekk. Aldrei lét hann þó mikið yfir
sér eða að hann færi mikinn á vinnu-
stað. Þótt hann bæri mikla ábyrgð
og hefði yfir fjölda manns að ráða
sem verkstjóri og framkvæmda-
stjóri iðnfyi'irtækja brýndi hann
ekki raustina eða yggldi brúnir þeg-
ar hann sagði fyrir verkum eða leit
eftir störfum í verksmiðju. Það var
nú eitthvað annað.
A hans vinnustað var skipulagið
svo öniggt að allt var til taks sem
eitt væri: vélar, verkfæri og manns-
höndin. Og starfsfólkið var ekki
„vinnuafl“, heldur lifandi manneskj-
ur, sem verkstjórnandinn þekkti,
treysti og virti. Og starfsfólkið
þekkti, treysti og virti stjórnanda
sinn. Sú virðing var ekki sprottin af
þrælsótta eða hræðslugæðum, held-
ur átti hún rót í því gagnkvæma
trausti sem réð ríkjum á vinnustaðn-
um. Þar átti Þorsteinn sinn stóra
hlut að máli. Þótt hann væri eftir
skipuriti yfirmaður, í hærra sessi en
„verkamaðurinn á gólfinu", þá
brúaði hann bilið með því að um-
gangast starfsfólkið sem jafningja
og gi-ípa í verk hvert sem var, ef svo
bar undir. Þorsteinn var reyndar
ekki einn um að sýna þetta viðmót
jafnstöðunnar af hálfu stjórnenda
iðnfyrirtækja Sambands ísl. sam-
vinnufélaga á blómaskeiði þeirra.
Þetta var ríkjandi stjórnunarandi í
Sambandsverksmiðjunum á Akur-
eyri og var yfirmönnum þar til
sóma.
Þorsteinn Davíðsson lifði langa
ævi og hlaut mikla lífsreynslu. Læt-
ur nærri að hann hafi tyllt tá á þrjár
aldir. Vel mætti vera að hann hafi
náð að komast í snertingu við átta
kynslóðir, ættlið af ættlið. En fyrst
og fremst var hann 20. aldar maður.
Af elju, trúmennsku og hyggjuviti
lagði hann lið þeim framförum, fé-
lagsumbótum og hugsjónum ýmiss
konar sem einkenna íslenskt þjóðlíf
á líðandi öld.
Minningin um Þorstein Davíðsson
er mörgum kær. Eftirlifandi vanda-
mönnum hans og venslafólki sendi
ég hugheila samúðarkveðju.
Ingvar Gislason.
Kveðja frá Skógræktarfélagi
Eyfírðinga
A upphafsárum skógræktar í
Eyjafirði var það gæfa Skógræktar-
félags Eyfirðinga að njóta starfa
margra kostum búinna félags-
manna. Þorsteinn Davíðsson var
einn þeirra. Þorsteinn leitaði sér
skógræktarmenntunar í Noregi árið
1927 og var meðal fyrstu íslendinga
til þess að efla þekkingu sína erlend-
is á skógrækt. Hann var skógar-
vörður á Vöglum í Fnjóskadal frá
árinu 1931 til 1936.
Áhuga og eljusemi Þorsteins Dav-
íðssonar var við brugðið. Hann tók
þátt í að móta stefnu Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga skömmu
eftir stofnun þess 1930 og sat í
stjóm félagsins um árabil.
Þorsteinn var öflugur sjálfboðaliði
við gi-óðursetningar bæði í Vaðla-
skógi og Kjarnaskógi. Sú reynsla og
þekking sem hann bjó að kom Skóg-
ræktarfélagi Eyfirðinga í góðar
þarfir. Þorsteinn Davíðsson var
gerður að heiðursfélaga í Skógrækt-
arfélagi Eyfirðinga á aðalfundi fé-
lagsins árið 1990.
Með Þorsteini Davíðssyni er
genginn sá síðasti af frumherjum
skógræktarstarfsins í héraðinu.
Stjórn Skógræktarfélags Eyfirðinga
þakkar langa og árangursríka sam-
fylgd ötuls ræktunarmanns.
Hallgrímur Indriðason.
• Fleiri minningargreinar um Þor-
stein Davíðsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGILEIF GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Sveinseyri
í Tálknafirði,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, 8. janúar.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu. __
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, fyrir kær-
leiksríka umönnun.
Sigrún Jóhannsdóttir, Ævar Karl Ólafsson,
Jónas Jóhannsson, Guðrún Þorsteinsdóttir,
Guðmundur S. Jóhannsson, Ingibjörg Þórarinsdóttir,
Jón Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn og afi okkar,
JÓN ÞORSTEINSSON,
Álftahólum 8,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn
21. janúar,
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju mánu-
daginn 31. janúar kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hans, er bent á líknarstofnanir.
Sigríður Jakobsdóttir,
Sigurjón Jónsson, Helga Jónsdóttir,
Þráinn Steinsson, Eyþóra Geirsdóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐRÚN GUÐBJÖRNSDÓTTIR,
Skólabraut 5,
Seltjarnarnesi,
lést á Landspítalanum mánudaginn 17. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Stuðningsfélag einstakra
barna.
Þórður Björnsson,
Bára Þórðardóttir, Valtýr Þórðarson,
Gunnar Þórðarson, Guðbirna K. Þórðardóttir,
Guðbjörg Þórðardóttir, Þórdís G. Þórðardóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t V f -
Hjartkær móðir okkar,
FREYJA EIRÍKSDÓTTIR, ■4 Ifáf
Engimýri 2,
Akureyri, 5 ■
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnu- daginn 23. janúar. . JW
Viðar Garðarsson,
Ása Bryndís Garðarsdóttir.
t
Faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
KOLBEINN GUÐMUNDSSON
frá Kílhrauni,
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu sunnudaginn 23. janúar.
Kristleifur Kolbeinsson, Stefanía Erla Gunnarsdóttir,
Kjartan Kolbeinsson, Helga Haraldsdóttir,
Guðmundur Kolbeinsson, Kolbrún Jóhannsdóttir,
Marteinn Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG RAGNA ÓLAFSDÓTTIR,
Fannborg 9,
Kópavogi,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans aðfara-
nótt mánudagsins 24. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Frímann Árnason,
Guðrún Ágústa Árnadóttir, Kristmundur Jónasson,
Ragna Kristmundsdóttir, Bjarni V. Halldórsson,
Árni Jónas Kristmundsson,
Snædís Kristmundsdóttir,
Martha Guðrún Bjarnadóttir.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
AUÐBJÖRG BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Stekkjarflöt 15,
Garðabæ,
sem lést mánudaginn 17. janúar, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðviku-
daginn 26. janúar kl. 13.30.
Gunnar H. Kristinsson,
Gunnar I. Birgisson, Vigdís Karlsdóttir,
Þórarinn Sigurðsson, María Sif Sveinsdóttir,
Kristinn H. Gunnarsson, Elsa Friðfinnsdóttir,
Sigrún B. Gunnarsdóttir, Hjörleifur Ingólfsson,
Kari Á. Gunnarsson, Guðlaug Bernódusdóttir,
Guðrún J. Gunnarsdóttir,
Katrín Gunnarsdóttir,
Hafsteinn H. Gunnarsson,
Auðbjörg B. Bjarnadóttir, Bjarki V. Guðnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og
systir,
SNJÓLAUG GUÐRÚN STURLUDÓTTIR,
Goðheimum 16,
sem lést á líknardeild Landspítalans föstu-
daginn 21. janúar, verður jarðsungin frá Lang-
holtskirkju föstudaginn 28. janúar, kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á heimahlynningu Krabba-
meinsfélags íslands.
Helmut Maier,
Eiríkur Sturla Ólafsson, Óskar Jósef Maier,
Solveig Thorarensen, Sturla Eiríksson,
Ingunn Ósk Sturludóttir,
Steinunn Rósa Sturludóttir,
Óskar Sturluson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HÖRÐUR INGÓLFSSON
vörubifreiðastjóri,
Hólabraut 7,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 27. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Kristjana Valdimarsdóttir,
Guðbjörg Harðardóttir, Helgi Sæmundsson,
Erlingur Harðarson, Arnfríður Arnardóttir,
Linda Björk Harðardóttir, Finnbjörn Birgisson
og barnabörn.