Morgunblaðið - 25.01.2000, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HERDÍS S. JÓNSDÓTTIR,
Árskógum 8,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn
23. janúar sl.
Sigurður Guðleifsson,
Guðleifur Sigurðsson, Ingibjörg B. Frímannsdóttir,
G. Kolbrún Sigurðardóttir,
Sigríður E. Sigurðardóttir, Þórarinn Sigvaldason,
Gróa Sigurðardóttir,
Sólrún Alda Sigurðardóttir, Gunnar Júlíusson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg föðursystir mín,
GUÐBORG EINARSDÓTTIR,
lengst af til heimilis
á Rauðarárstíg 30,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
23. janúar sl.
F.h. systkinabarna,
Þorsteinn Júlíusson.
+
SIGURGEIR ÞORSTEINSSON
frá Háholti,
sem lést mánudaginn 17. janúar, verður
jarðsunginn frá Stóra-Núpskirkju fimmtu-
daginn 27. janúar kl. 14.00.
Sigríður Þorsteinsdóttir,
Bergþóra Þorsteinsdóttir,
Ragnheiður Haraldsdóttir og Haraldur Bjarnason,
Stóru-Mástungu.
+
Okkar ástkæri,
ÖRLYGUR ARON STURLUSON,
Draumahæð 6, Garðabæ,
til heimilis
í Lágmóa 1, Njarðvík,
lést af slysförum sunnudaginn 16. janúar.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtu-
daginn 27. janúar kl. 14.00.
Unnt verður að fylgjast með athöfninni í íþróttahúsinu í Njarðvík.
Elvar Þór Sturluson,
Særún Lúðvíksdóttir, Valdímar Björnsson,
Sturla Örlygsson, Andrea Gunnarsdóttir,
Örlygur Þorvaldsson, Erna Agnarsdóttir
og hálfsystkini hins látna.
+
Þökkum auðsúnda samúð vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar,
móður okkar og tengdamóður,
MARÍU GUÐMUNDSDÓTTUR.
GEIRLAUG
BENEDIKTSDÓTTIR
+ Geirlaug Bene-
diktsdóttir fædd-
ist á fsafirði 28. júní
1910. Hún Ióst á
hjartadeild Land-
spítalans 13. janúar
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru Bene-
dikt Jónsson skip-
stjóri, f. 17. desember
1883, d. 22. mars
1959, og Guðrún
Jónsdóttir húsnióðir,
f. 4. mars 1886, d. 27.
ágúst 1961. Geirlaug
var elst fjögurra
systra, næst var Að-
alheiður, f. 29. september 1913, d.
12. ágúst 1976, þá Ragna, f. 14.
mars 1917, og yngst var Hulda, f.
4. júní 1921, d. 23. nóvember 1992.
Hinn 11. október 1930 giftist
Geirlaug Guðmundi Þórði Sig-
urðssyni, skipstjóra og útgerðar-
manni, f. 28. september 1908, d. 9.
ágúst 1981. Börn þeirra eru: 1)
Benedikt G. Guðmundsson, f. 14.
september 1934, maki Hjördís
Kröyer, f. 7. febrúar 1936. Þeirra
börn eru: Guðmundur Geir, maki
Sigurbjörg Sveinbjörnsdóttir, og
eiga þau þrjú börn. Haraldur Ingi,
maki Ingibjörg Maríusdóttir, og
eiga þau þrjú börn. Hafsteinn Þór
Elskuleg vinkona mín, sem allir
þekktu sem ömmu Laugu, er látin.
Kynni okkar hófust fyrir 22 árum er
ég og sonarsonur hennar felldum
hugi saman. Strax í upphafi náðum
við vel saman þótt 50 ára aldursmun-
ur væri á okkur. Það eru mikil for-
réttindi að hafa fengið að kynnast
skoðunum ömmu Laugu og þeirri
þekkingu og reynslu sem hún öðlað-
ist á langri ævi. Það eru dýrmætar
perlur sem eiga eftir að fylgja mér og
mínum um ókomin ár.
Minningamar eru margar því
amma Lauga tengdist okkur sterk-
um böndum. Þær voru t.d. ófáar
sumarbústaðaferðimar sem við fór-
um saman í. Ýmislegt var brallað í
þeim ferðum. Við veiddum murtu,
fórum í snú-snú og spiluðum. Níu
sinnum dvaldi hún með mér, fjöl-
skyldu minni og vinum um áramót.
Allir skemmtu sér konunglega.
Það var alltaf gaman að bjóða
ömmu Laugu í mat. Hún var mikill
sælkeri og naut þess að bragða á
framandi réttum og velta íyrir sér
uppskriftum. Hún var mjög hlý og
gefandi og hafði mikinn áhuga á öllu
mannlegu. Spurði alltaf frétta af fjöl-
skyldumeðlimum og vinum og bar
hag allra fyrir brjósti. Það má segja
að því hafi einnig verið á hinn veginn
því allir þekktu ömmu Laugu og öll-
um þótti afar vænt um hana. Hún
fylgdist einnig vel með öllum fjöl-
miðlum, las blöð og tímarit og fylgd-
ist með sjónvarpi.
Eins og fyrr segir er margs að
minnast í okkar samskiptum og sam-
verustundirnar urðu margar. Sú hefð
komst á í gegnum öll okkar kynni að
á bolludaginn kom ég með bollurnar
en hún sá um kaffið.
Hjá ömmu Laugu var ekkert kyn-
og á hann einn son.
2) Iljördís, f. 6. apríl
1940, d. 27. október
1999, maki Kristinn
Stefánsson, f. 7.
október 1937, dætur
þeirra eru Svava,
maki Guðmundur
Ómar Halldórsson,
og eiga þau þrjú
börn. Birna Geir-
laug, maki Sveinn
Kjartansson, og eiga
þau tvö börn. Helena
Sif, sambýlismaður
Símon Guðlaugur
Sveinsson. Áður átti
Hjördís Guðmund Þórð Ragnars-
son og á hann þrjú börn.
Guðlaug bjó á Isafirði til 13 ára
aldurs en þá fluttist fjölskyldan til
Reykjavíkur og bjó fyrstu árin í
Stöðlakoti, síðan Bókhlöðustig 6.
Fyrstu hjúskaparárin bjuggu
Geirlaug og Guðmundur á Bók-
hlöðustíg 6, fluttust síðan að
Steinum á Bráðræðisholti, þaðan í
Álftamýri 36, en síðustu 5 árin
dvaldi hún á Hrafnistu í Reykja-
vfk.
_ Utför Geirlaugar fer fram frá
Áskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30. Jarðsett verður í
Fossvogskirkjugarði.
slóðabil. Hún var eins gagnvart böm-
um og fullorðnum. Eitt sinn spurði
hún son sinn: „Finnst þér þú vera
gamall?" Hann svaraði því neitandi.
„Ekki mér heldur,“ svaraði hún. Þá
var hún orðin 87 ára gömul. Það sýn-
ir hvað aldur getur verið afstæður.
Síðustu fimm ár ævi sinnar bjó
amma Lauga á Hrafnistu í Reykja-
vík. Þar undi hún hag sínum vel og
átti yndislegar stundir. Sérstaklega
naut hún stundanna í handavinnu-
stofunni með öllu því góða fólki sem
þar var. Hún gerði hvert handa-
vinnustykkið á fætur öðru, áhuginn
var svo mikill.
Að mér sækir sár söknuður við að
missa ömmu Laugu.Við ætluðum að
gera svo margt á þessu ári. Eigum
t.d. báðar stórafmæli og fleiri atburð-
um ætluðum við að fagna. Elsku
amma Lauga, ég hugsa til þín með
bros á vör þegar þessir dagar renna
upp. Ég veit að þú tekur þátt í þeim
handan þessa heims.
Það hefur einnig verið dýrmætt
íyrir börnin mín að kynnast lang-
ömmu sinni í leik og starfi. Þannig
hafa þau fengið þroskandi veganesti
út í lífið sem ekki allir fá.
Elsku amma Lauga, ég og fjöl-
skylda mín kveðjum þig með söknuði
og þökkum samfylgdina. Guð blessi
þig og minningu þína.
Ingibjörg Maríusdóttir.
Elsku langaamma mín eða amma
Lauga eins og við kölluðum þig alltaf.
Núna ertu farin frá okkur og við
varðveitum þær dýrmætu minningar
um þann tíma sem við upplifðum og
áttum saman. Þú hefur gefið okkur
svo mikið bæði gleði og visku og
varst líka svo minnug því þú sagðir
Magnús Már Lárusson
Monika Magnúsdóttir, Adólf Adólfsson,
Alan Vagn Magnússon, Margrét Gunnarsdóttir,
Sesselja Magnúsdóttir, Ársæll Örn Kjartansson,
Jónas Magnússon, Drífa Freysdóttir,
Finnur Magnússon, Karin Magnússon.
+
innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar,
ÞÓRDÍSAR JÓNSDÓTTUR,
dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
áður til heimilis
á Eyrarvegi 5.
Hildigunnur Sigurbjörnsdóttir,
Árni Sigurbjörnsson,
Björg Guðrún Sigurbjörnsdóttir.
+
Elskuleg konan mín, móðir okkar, tengda-
móðir, dóttir, systir og amma,
HELGA BJÖRG HILMARSDÓTTIR,
Lyngholti 17,
Akureyri,
sem lést miðvikudaginn 19. janúar, verður jarð-
sungin frá Glerárkirkju fimmtudaginn 27. janúar
kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
kvenfélagið Baldursbrá.
Hermann Jónsson,
Steina Jóna Hermannsdóttir, Númi Ingimarsson,
Rúnar Hermannsson, Ragnheiður Jakobsdóttir,
Áslaug Þorleifsdóttir, Sigfús Stefánsson,
Gunnhildur Hilmarsdóttir, Guðbjörn Jónsson,
Gylfi Hilmarsson, María Ýr Donaire
og barnabörn.
okkur sögur um þann liðna tíma sem
verður mér ætíð dýrmætur fjársjóð-
ur. Þegar ég var yngri þá varst þú oft
hjá okkur á gamlárskvöld og alltaf sú
hressasta. Ég kynntist þér best
sumarið 1998 þegar ég vann sumar-
vinnu á elliheimlinu þar sem þú áttir
heima og heimsótti þig oft. Töluðum
við saman um allt milli himins og
jai’ða. Þú fylgdist með öllu sem gerð-
ist í heiminum, fréttum, slúðursögum
fræga fólksins og ásamt fleiru. Þú
varst langt frá því að vera gamaldags
því þér fannst skyndibitamatur mjög
góður. Þegai’ við töluðum saman fann
ég ekki fyrir aldursmun þótt það
voru tæpir sjö tugir á milli okkar.
Jafnvel gat ég trúað þér fyrir sumum
leyndannálum sem ég gat ekki sagt
foreldum mínum. Núna ertu farínn
til langaafa og við sjáumst vonandi
þegar ég kveð þennan heim, þótt síð-
ar verði. Þín verður alltaf minnst hjá
mér. Nú kveð ég þig með söknuði og
þökkum fyrir að hafa fengið tækifæri
að kynnast þér. Megi Drottinn taka
vel á móti þér.
Hjördís Anna Haraldsdóttir.
Elsku amma Lauga.
Nú ert þú farin frá okkur. Allur sá
tími sem þú varst hjá okkur er okkur
öllum dýrmætur. Þegar þú bjóst í
Álftamýrinni komum við oft í heim-
sókn. A meðan þú og mamma drukk-
uð kaffi inni í eldhúsi lékum við okkur
með gamalt dót, örugglega frá þínum
yngri árum. Eftir að þú fluttir á
Hrafnistu fækkaði ekki heimsóknun-
um.
Þú sagðir okkur frá uppvaxtarár-
um þínum og sagðir stundum
skondnar sögur eins og þegar þú átt-
ir að bæta nærbuxurnar þínar í
íyrsta sinn. Allar stundirnar sem við
áttum eru okkur minnisstæðar hvort
sem þær voru í sumarbústaðarferð-
um, heimsóknum eða ferðalögum.
Þín verður sárt saknað.
Maríus Þór og Harpa Sif
Haraldsbörn.
Elsku amma Lauga, takk fyrir allt
það gamla og góða þegar þú varst hjá
okkur. Nú ertu komin til guðs og nú
ertu orðin frísk og getur hlaupið og
dansað.
Elsku amma, Guð geymi J)ig._
Sólveig Ósk.
Hún Lauga mín er dáin.
Þær voru skírðar stórfenglegum
nöfnum, Geirlaug, Aðalheiður,
Regína og Hulda, systumar. Þær ól-
ust upp hjá afa og ömmu, Benedikt
Jónssyni skipstjóra og Guðrúnu Sig-
ríði Jónsdóttur, á Bókhlöðustígnum,
fyrst í Stöðlakoti og síðan á númer 6.
Lauga systir var elst. Ég systur-
dóttir hennar og einnig dóttir mín
höfum kallað hana þetta, eins og
mamma. Hún mamma mín hefur
misst mikið, því þær voru ekki bara
systur, heldur bestu vinkonur og töl-
uðust við í síma eftir klukkunni,
tvisvar til þrisvar á dag.
í lífi mínu höfum við gert svo
margt saman. Við fórum saman í
íyrstu utanlandsferð mína, hringferð
með Gullfossi. Við ferðuðumst um
landið saman, fjölskyldurnar. Ég var
svo heppin að fá leigt í blokkinni ykk-
ar Mumma í Álftamýrinni, þegar ég
byijaði að búa. Við töluðum oft sam-
an í síma, röbbuðum um daginn og
veginn og fjölskylduna. Þú sagðir
alltaf þína meiningu um allt og alla.
Þú varst bara alltaf í ’ífi mínu.
Elsku Lauga mín. Þakka þér fyrir
allt. Takk fyrir að vera þú.
Við systkinin, foreldrar okkar og
fjölskyldur sendum okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Sigrún Baldursdóttir.
Handrit afmœlis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl-
ingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Pað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.