Morgunblaðið - 25.01.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 55
Stjörnuspá á Netinu
S' mbl.is
-/KLUTAF= eiTTH\SAÐ A/ÝTT
+ .
Þökkum hlýhug við andlát og útför föðursystur
okkar,
ÁSTU JÓNASDÓTTUR /V- ' í
frá Litladal. vmr-—wC*
Sérstakar þakkir til starfsfólks á elliheimilinu
Grund fyrir góða umönnun. tt'U V/' '* .
Bræðrabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts og útfarar elskulegs
fóstursonar míns, bróður og fósturbróður,
ALFS K. WALDERHAUG
frá Ólafsfirði.
Sveinsína Jónsdóttir,
systkini og fóstursystkini.
RAOAUGLVSIIMC3A
Auglýsing um styrki úr
Listskreytingasjóði ríkisins
árið 2000
Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins auglýsirtil
umsóknar styrki til listskreytinga opinberra
bygginga, sem falla undir 1. gr. laga nr.
46/1998 um Listskreytingasjóð.
Samkvæmt 5. gr. ofangreindra laga skal stjórn
Listskreytingasjóðs vera dómnefndinni til ráð-
gjafar um listskreytingu þeirra mannvirkja,
sem lögin taka til og hvernig staðið skuli að
framkvæmdum.
Styrkveitingar ná ekki til listaverka, sem um-
sóknaraðili er þegar búinn að kaupa eða ráða
listamann til að vinna, né til verkefna þar sem
dómnefnd hefur verið skipuð.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2000.
Umsóknareyðublöð og allarfrekari upplýsing-
ar er hægt að fá á skrifstofu SÍM, Sambands
íslenskra myndlistarmanna, Klapparstíg
25—27, 101 Reykjavík, sími 551 1346,
fax 562 6656, netfang: sim@simnet.is.
SAMIK — samstarfs-
samningur íslands og
Grænlands um ferðamál
SAMIK auglýsir hér með eftir umsóknum um
styrki til verkefna, sem aukið gætu samstarf
íslands og Grænlands á sviði ferðaþjónustu
og skyldra verkefna.
Styrkirnir geta aldrei numið nema 50% af heild-
arkostnaði viðkomandi verkefnis.
Umsóknir skulu sendar samgönguráðuneytinu
— merktar SAMIK — fyrir 1. mars nk. á eyðu-
blöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig
að finna á heimasíðu ráðuneytisins og er reikn-
að með að allar upplýsingar komi fram á
dönsku.
Nauðsynlegt er að leggja fram kostnaðaráætl-
un þess verkefnis sem sótt er um, til auk ná-
kvæmra upplýsinga um umsækjendur, verk-
efnið og tilgang þess.
Stefnt er að því að ákvörðun um úthlutun
styrkjanna liggi fyrir 1. apríl nk.
Fyrri helmingur styrksins verður að jafnaði
greiddur út þegar ákvörðun um styrkveitingu
liggur fyrir og seinni helmingur þegar viðkom-
andi verkefni er lokið.
Nánari upplýsingar veita tveir af stjórnarmönn-
um SAMIK; Birgir Þorgilsson í síma 553 9799
og Sigurður Aðalsteinsson í síma 460 7052.
SAMIK,
samgönguráðuneytinu,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu,
150 Reykjavík. www.stjr.is/sam
Tl L S Ö LU
Glæsileg málverk til sölu
Málverk eftir Pétur Friðrik, landslagsmyndir
af Þingöllum; stærð 152x102, árg. 1971 og
180x81, árg. 1972. Einnig landslagsmynd eftir
Guðmund Einarsson (frá Miðdal), stærð
112x71. Áhugasamir sendi inn fullt nafn ásamt
símanúmeri til auglýsingadeildar Mbl., merkt:
„M — 3006", fyrir 29. janúar.
TILKYIMIMIMGAR
Köttur úti í mýri...
...úti er ævíntýri.
Átak til að fækka
flækingsköttum í
Vesturbæ
í samræmi við samþykkt um
kattahald í Reykjavík
tilkynnist hér með að eftir
sjö daga frá birtingu
auglýsingar þessarar mun
sérstakt átak gert til að fanga
flækingsketti í Vesturbæ.
Kattaeigendur í hverfinu eru
hvattir til að halda köttum
sínum inni á meðan á
átakinu stendur.
jafnframt eru kattaeigendur
minntir á að merkja ketti
sína með húðflúri
(tattóveringu) á eyrum og
skrá uppýsingar um eiganda,
heimilisfang og símanúmer.
jafngild er örmerking skv.
stöðlum Alþjóða staðlaráðsins
(ISO 11784 eða 11785).
Hreinsunardeild Reykjavxkurborgar
Félagsmálaráðuneytið
Auglýst eftir viðtökusveitarfélagi
fyrir flóttamenn árið 2000
Móttaka flóttamanna
Félagsmálaráðuneytið auglýsir eftir sveitar-
félögum til þess að taka á móti 20—25 flótta-
mönnum á árinu 2000. í samráði við Flótta-
mannastofnun Sameinuðu þjóðanna er
ákvörðun tekin um hvaðan flóttafólkið kemur.
Við val á sveitarfélagi verður tekið mið af að-
stæðum, svo sem íbúafjölda sveitarfélaga,
atvinnuástandi, félagsþjónustu, heilbrigð-
isþjónustu, menntunarmöguleikum, möguleik-
um á leikskólavistun, framboði á húsnæði o.fl.
Umsóknir skulu hafa borist félagsmálaráðu-
neytinu eigi síðar en einum mánuði frá dag-
setningu auglýsingar.
Nánari upplýsingar veitir Hanna Sigríður
Gunnsteinsdóttir, ritari flóttamannaráðs.
Bessastaðahreppur
Hólmatún —
Breyting á deiliskipulagi
Hreppsnefnd Bessastaðahrepps auglýsir hér
með tillögu að breytingu á deiliskipulagi íbúð-
arhverfisvið Hólmatún í Bessastaðahreppi
samkvæmt 1. mgr. 26. gr., sbr. 25. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Breytingin
er í því fólgin að húsformi keðjuhúsa er breytt
og (Deim jafnframt fjölgað úr átta í fjórtán, með
tilsvarandi breytingu á götu. Auk þess er
spennistöð staðsett við Suðurnesveg, í suður-
horni skipulagssvæðisins.
Skipulagstillagan verður til sýnis á skrifstofu
Bessastaðahrepps, Bjarnastöðum, frá kl.
8.00—16.00 alla virka daga frá 26. janúartil
25. febrúar 2000.
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
breytingartillöguna.
Fresturtil að skila inn athugasemdum rennur
út 10. mars 2000. Athugasemdum skal skilað
til sveitarstjóra Bessastaðahrepps, Bjarnastöð-
um. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillög-
una innan tilskilins frests, teljast samþykkir
henni.
Sveitarstjórinn
í Bessastaðahreppi.
Tilkynning
A hluthafafundum hjá SÍF hf. og IS hf. hinn
29. desember 1999 var samþykkt að sameina
félögin undir nafni SÍF hf.
Vegna þessa mun hlutabréfum ÍS hf. verða
skipt út fyrir hlutabréf í SÍF hf.
Ný hlutabréf í SÍF hf. eru nú tilbúin til afhend-
ingarfyrir hluthafa ÍS hf. og verða þau afhent
á skrifstofu SÍF hf. í Fjarðargötu 13—15,
Hafnarfirði.
Stjórn SÍF hf.
SMAAUGLYSINGAR
FÉLAGSLÍF
□EDDA 6000012519 III - 2
Opið hús ó Sólon
Opið hús verður á Sólon íslandus
miðvikudaginn 26. janúar kl.
20.00 á annari hæð. Gestur
kvöldsins Haraldur Örn Ólafsson
er kunnur öllum ferðamönnum
fyrir afrek sin og félaga sinna í
fjallaferðum. Hann segir frá fyrir-
hugaðri ferð á Norðurpólinn og
fjallar um lengri eða skemmri
göncjuskiðaferðir. Ný ferðaáætl-
un Útivistar mun liggja frami. All-
ir velkomnir, ókeypis aðgangur.
Næsta helgarferð 28.-30. jan.
Þorraferð. Farið á Snæfellsnes
og dvalið að Görðum. Göngu-
ferðir, sameiginlegt þorrablót
o.fl. Fararstjóri verður Fríða
Hjálmarsdóttir.
Ferðaáætlun ársins kynnt á:
www.utivist.is.
I.O.O.F. Rb. 1 s 1491258 E.I.*
□ FJÖLNIR 6000012519 I H.v.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLAN0S
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Þriðjudagur 25. janúar
kl. 20:00: Félagsvist
Spilum félagsvist í kvöld kl. 20
Ferðafélagshúsinu í Mörkinni f
(risi). Fjölmennum.
Sjá textavarp bls. 619.
Aðaldeild KFUK,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Biblíulestur í umsjón
Ragnheiðar Sverrisdóttur.
Allar konur velkomnar.