Morgunblaðið - 25.01.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 57
öldrunarlækningadeild er frjáls heimsóknartirai e. samkl.
Heimsóknartími bamadeildar er frá 15-16 og frjáls við-
vera foreldra allan sólarhringinn. Heimsóknartími á
geðdeild er frjáls.
GRENSÁSÐEILD: Mánud.-föstud. kl. 16-19.30, laugard.
og sunnud. kl. 14-19.30 og e. samkl.
LANDAKOT: A öldrunarsviði er frjáls heimsóknartími.
Móttökudeild öldrunarsviðs, ráðgjöf og tímapantanir í s.
525-1914.
ARNARHOLT, Kjalamesi: Frjáls heimsóknartími.
LANDSPÍTALINN: Kl. 18.30-20.
BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD, Dalbraut 12: Eftir
samkomulagi við deildarstjóra.
BARNASPÍTALIHRINGSINS: Kl. 15-16 eða e. samkl.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS KLEPPI: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Vífilsstöðum: Eftir sam-
komulagi við deildarstjóra.
KVENNADEILD, KVENLÆKNINGADEDLD: Kl. 1850-
20.
SÆNGURKVENNADEILD: Kl. 14-21 (feður, systkim,
ömmur og afar).
VÍFILSSTAÐASPÍTALI: Kl. 18.30-20.
SUNNUHLÍÐ hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heimsóknar-
tími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
ST. JÓSEFSSPÍTALI HAFN.: Alla dap kl. 15-16 og 19-
19.30.
SJÚKRAHÚS SUDURNESJA, KEFLAVÍK: Heimsóknar-
tími a.d. kl. 16-16 og kl. 18.30-19.30. Ástórhátíðum kk 14-
21. Símanr. sjúkrahússins og Heilsugæslustöðvar Suð-
umesjaer 422-0500.
AKUREYRI - SJÚKRAHÚSIÐ: Heimsóknartími alla daga
kl. 15.30-16 og 19-20. Á bamadeild og tyúkrunardefld
aldraðra Sel 1: kl 14-19. Slysavarðstofusími frá kl. 22-8,
s. 462-2209._________________________________
BILANAVAKT____________________________________
VAKTÞJÓNUSTA. Vegna bilana á veitukerfi vatns og
hitaveitu, s. 552-7311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgi-
dögum. Rafmagnsveitan bilanavakt 568-5230. Kópavog-
ur: Vegna bilana á vatnsveitu s. 892-8215. Rafveita Hafh-
arfjarðarbilanavakt 565-2936_________________
SÓFN
ÁRBÆJARSAFN: Safnhús Árbæjar em lokuð frá 1. sept-
ember en boðið er upp á leiðsögn fyrir ferðafólk á mánu-
dögum, miðvikudögum og fostudögum kl. 13. Einnig er
tekið á móti skólanemum og hópum sem panta leiðsögn.
Skrifstofa safnsins er opin frá kl. 8-16 alla virka daga.
Nánari upplýsingar í síma 5771111.
ÁSMUNDARS AFN í SIGTÚNl: Opið a.d. 13-16.
BORGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR: Aðalsafn, Þing-
holtsstræti 29a, s. 552-7155. Opið mád-fid. kl. 9-21, fóst-
ud. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16.
BORGARBÓKASAFNH) f GERÐUBERGI3-6, mán.-fim.
kl. 9-21, fóst. 11-19, laugard. og sunnud. kl. 13-16. S. 557-
9122.________________________________________
BÚSTAÐASAFN, Bústaðakirkju, mán-fím. 9-21, fóst 12-
19, laugard. kl. 13-16. S. 553-6270._______
SÓLHEIMASAFN, Sólheimum 27, s. 553-6814. Ofangreind
söfh og safnið í Gerðubergi em opin mánud.-fid. kl. 9-21,
fóstud. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16.
GRANDASAFN, Grandavegi 47, s. 552-7640. Opið mád. kl.
11-19, þrið.-fóstkl. 15-19.
SEUASAFN, Hólmaseli 4-6, s. 587-3320. Opið mád. kL 11-
19, þrið.-mið. kl. 11-17, fim. kl. 15-19, fóstud. kl. 11-17.
FOLDASAFN, Grafarvogskirkju, s. 567-5320. Opið mád.-
fíd. kl. 10-20, fóst. kl. 11-19, laugard. kl. 13-16.
BÓKABÍLAR, s. 553-6270. Viðkomustaðir víðsvegar um
borgina.
BÓKASAFN DAGSBRÚNAR: SWpholU 60D. Safnið veri-
urlokað fyrst um sinn vegna breytinga.
BÓKASAFN KEFLAVÍKUR: Opið mán.-fósL 10-20. Opið
laugd. 10-16 yfir vetrarmánuði.
BÓKASAFN KÓPAVOGS, Fannborg 3-6: Mánud.-fimm-
tud. kl. 10-21, fostud. kl. 10-17, laugard. (1. okt-30. ap-
rfl)kl. 13-17._____________________________
BÓKASAFN SAMTAKANNA '78, Laugavcgi 3: Opið
mán.-fim. kl. 20-23. Laugard: kl. 14-16.___
BÖRGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu
15: Opið mánudaga til fóstudaga kl. 9-12 og íd. 13-16.
Sími 563-1770.
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakkæ Op-
ið alla daga frá ld. 10-18 til ágústloka. S: 483-1504.
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús,
Vesturgötu 6,1. júní - 30. ágúst er opið alla daga frá kl.
13-17, s: 555-4700. Smiðjan, Strandgötu 60,16. júní - 30.
september er opið alla daga frá kl. 13-17, s: 565-5420,
bréfs. 55438. Siggubær, Kirkjuvegi 10,1. júní - 30. ágúst
er opið laugard.-sunnud. kl. 13-17. Skrifstofur safnsins
verða opnar alla virka daga kl. 9-17.
BYGGÐASAFNIÐ í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl.
13.30-16.30 virka daga. Sími 431-11255.
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá kl.
13-17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir sam-
komulagi.
FRÆÐASETRIÐ í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
sími 423-7551, bréfsími 423-7809. Opið alla daga kl. 13-17
og eftir samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga ísumar
frákl.9-19.__________________________________
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reykjavík. Opið
þriðjud. og miðvikud. kl. 15-19, fimmtud., fóstud. og
laugardaga kl. 15-18. Simi 551-6061. Fax: 552-7570.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18.
ÍUARVALSSTAÐIR: Opið daglega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS - HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22. Föstud. kl. 8.15-19 og
laugd. 9-17. Sunnud. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð á sunnua.
og handritadeild er lokuð á lauganl. og sunnud. S: 525-
5600, bréfs: 525-5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er lokað í jan-
úar. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safiisins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-fÖstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á intemetinu: htt|V/
www.natgall.is
LÍSTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12-18 nema mánud.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í síma
553-2906.
UÓSMVNDASAFN REVKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opið
aMa daga fri M. 13-16. Slmi 563-2530._______
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjamamesi. Lokað
yfir vetrarmánuðina. Hópar geta skoðað safnið eftir
samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Miryasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462-4162. Opið frá 16.9.-31.5. á
sunnudögum milli kl. 14-16. Einnig eftir samkomulagi
fyrir hópa. Skrifstofur opnar virka daga kl. 8-16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, netfang
minaust@eldhom.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sunnudögum kl. 15-17 og eftír sam-
komulagi. S. 567-9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Upplýsingar í síma 422-
7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní tíl 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudögum.
Sími 462-3550 og 897-0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holtí 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl 9-17 og á öðr-
um tíma eftír samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi
12. Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu
116 em opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30-16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSH). Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir. 14-18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardaga
og sunnudaga til ágústsloa frá 1.13-18. S. 486-3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur tíl marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugard. og sunnud. frá kl. 13-17 og eftir samkomu-
lagi. S: 565-4242, bréfs. 565-4251, netfang: aog@natmus-
.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard. frá kl. 13-
17. S. 581-4677.
SJÓMINJASAFNID Á EYRARBAKKA: Hópar ckv. samkL
Uppl.1 s:483-1165,483-1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýnmgar alla daga kL 10-18.
Sími 4351490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Ámagarfi v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þriðjudaga tíí föstudaga kl.
14-16 tíl 15. maí.
STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESL- Opið alla daga kl.
13-18 nema mánudaga. Sími 431-5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema mánu-
daga kl. 11-17.
AMTSBÓKASAFNH) Á AKUREYRI: Mánudaga U1 Bstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15.
LISTASAFNH) Á AKUREYRI: Opið alla daga frá ki. 14-
18. Lokað mánudaga.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ á Akureyri, Hafnarstrætí 81.
Opið skv. samkomulagi yfir vetrartímann. Hafið sam-
band við Náttúrufræðistofnun, Akureyri, í síma 462-
2983.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kL 10-17 frá 1. júní -
1. sept, Uppl. í síma 462 3555.
NORSKA HÚSŒ) í STYKKISHÓLMI: Opið daglega (sum-
arfríkl. 11-17.
ORÐ DAGSINS_____________________________
Rcykjavík söni 551-0000.
Akureyri s. 462-1840.___________________
SUNPSTAÐIR______________________________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöflin er opin v.d. kl.
6.30-21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, nelgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-2150, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafaryogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl. 8-
20.30. Arbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl.
8-20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt kl. 11-15.
þri., mið. ogföstud. kl. 17-21.
SUNDLAUG KÓI’AVOGS: Opin virka daga 680-22.
Laugd. og sud. 8-18 (vetur) 8-19 (sumar).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-fóst 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-fóst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mád.-
fóst 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12.
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
680-7.45 og kl. 16-21. Um hdgar kl. 9-18.
SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opið aUa virka daga kl. 7-
21 og kl. 11-15 um helgar. Sími 426-7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.455.30 og 14-22,
helgar 11-18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-fÖ8tad. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16.
SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-fost kl. 7-9 og 1680-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sími 461-2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-fóst 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-fóst 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643.
BLÁA LÓNH); Opið v.d. kl 11-20, helgar kl. 10-21.
UTIVISTARSVÆÐl__________________________
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl.10-17. Lok-
að á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjöl-
skyldugarðurinn er opinn sem útívistarsvæði á veturna.
Sími 5757-800.__________________________
SORPA___________________________________
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl, 12.30-19.30 en lokaðar á
stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust Garðabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-1950 virka daga. UppLsími 520-
2205.
Heima-
hlynning
með opið hús
HEIMAHLYNNING verður
með samverustund fyrir að-
standendur í kvöld, þriðjudag-
inn 25. janúar, kl. 20-22 í húsi
Krabbameinsfélags Islands,
Skógarhlíð 8.
Margrét Jónsdóttir, félags-
ráðgjafi hjá Tryggingastofnun
ríkisins, verður með fræðslu
um tryggingamál. Þessi fundur
er sameiginlegur með að-
standendum frá m.a. krabba-
meinsdeild Landspítalans og
líknardeildinni í Kópavogi.
Kaffi og meðlæti á boðstól-
um.
Fundur Vísinda
félags Islands
Þriðji fundur Vísindafélags Islands
veturinn 1999-2000 verður haldinn í
Norræna húsinu miðvikudaginn 26.
janúar kl. 20.30. Þar flytja fornleifa-
fræðingarnir Adolf Friðriksson og
Orri Vésteinsson, Fornleifastofnun
fslands í Reykjavík, fyrirlestur um
rannsóknir á fornbýli á Hofstöðum í
Mývatnssveit
Enduruppgröftur á skálanum
mikla á Hofstöðum í Mývatnssveit
hefur staðið yfir síðan 1991 og er nú
eitt umfangsmesta rannsóknarverk-
efni í víkingaaldarfornleifafræði á
Norðurlöndum. Skálinn var fyrst
grafinn upp af Daniel Bruun og
Finni Jónssyni 1908 og komust þeir
að þeirri niðurstöðu að hann væri af
hofi frá söguöld. Skálinn öðlaðist
eftir það nokkra frægð í ritum um
víkingaöld sem eina góða dæmið um
heiðið hof á Norðurlöndum. Um
þessa niðurstöðu hafa menn þó efast
allt frá miðri 20. öld og rannsóknir
þær sem nú standa yfir hafa sýnt að
Hofstaðir eru ekki frábrugðnir öðr-
um býlum frá sama tíma að öðru
leyti en að skálinn er óvenjustór.
Yfirstandandi rannsóknir á Hof-
Íslandssími
býður upp
á WAP-
þjónustu
ÍSLANDSSÍMI býður nú, fyrst
fjarskiptafyrirtækja á Islandi, upp á
WAP-þjónustu fyrir GSM-síma. Að-
gangurinn er á stafrænu formi;
ISDN-GSM. Þetta er mun hraðvirk-
ari tækni en boðið hefur verið upp á í
WAP-kerfinu til þessa.
WAP-kerfið er hluti af samskipta-
máta framtíðarinnar og að margra
mati helsta nýjung á sviði þráðlausra
fjarskipta síðan NMT-kerfið var tek-
ið í notkun. Þeir sem hafa aðgang að
WAP-kerfi á GSM-símum sínum og
vefsíðum með WAP-miðlara geta
auk þess að nálgast upplýsingar á
síðunum nýtt sér margháttaða þjón-
ustu sem býðst á Netinu. Þeir geta
til að mynda lesið tölvupóst í síman-
um sínum, skoðað dagbækur sínar,
sinnt bankaviðskiptum, bókað far-
seðla svo fátt eitt sé nefnt. Þetta er
hægt núna á mun skemmri tíma en
áður eftir að farið var að bjóða upp á
WAP-þjónustu á starfrænu formi.
Islandssími býður fyrirtækjum og
stofnunum, sem hafa hug á að bjóða
upplýsingar eða þjónustu af netsíð-
um sínum fyrir farsímanotendur, af-
not af þeim búnaði sem til þarf í sam-
starfi við hugbúnaðarfyrirtækið
Dímon.
Dímon sér um að breyta hefð-
bundnum heimasíðum yfir á WAP-
form. Þetta hefur í för með sér mik-
inn sparnað enda er búnaður sem
þessi dýr í innkaupum og flókinn í
uppsetningu. Búnaður Islandssíma
er mjög öflugur og getur þjónað allt
að 4.000 notendum samtímis.
Leiðtogi bahá’a
andast
FRÚ Rúhíyyih Rabbání, alþjóðlegur
forrystumaður bahá’í samfélagsins,
andaðist á miðvikudagsmorgun í
Haifa, ísrael, níræð að aldri.
Frú Rabbání
var einkabarn
Williams Suther-
lands Maxwells,
frægs arkitekts
frá Montreal í
Kanada og May
Bolles, þekkts
bahá’í kennara.
Árið 1937 giftist
hún heimsleiðtoga bahá’í trúarinnar,
Shoghi Effendi Rabbání, en Bahá-
’u’lláh, upphafsmaður trúarinnar,
var langafi hans.
„Hún varð fyrst fræg sem eigin-
kona og ötull stuðningsmaður
stöðum miða að því að varpa Ijósi á
hvernig fyrstu kynslóðir íslendinga
löguðu sig að nýjum aðstæðum og
hvaða áhrif þeir höfðu á umhverfi
sitt. A Hofstöðum er hægt að rekja
hvernig byggingartækni þróaðist
frá því nokkrum árum eftir að
landnám hófst upp úr 870 og fram á
11. öld og sjá hvernig áherslur í bú-
skaparháttum breyttust eftir því
sem menn lærðu á landið og/eða
breyttu umhverfi sínu með ofbeit og
skógarhöggi. Á Hofstöðum hefur
búið höfðingi á 10.-11. öld en það
vekur ýmsar spurningar um hvernig
valdamenn komu undir sig fótunum
í hinni ungu nýlendu og af hverju
sumum farnaðist verr en öðrum. I
fyrirlestrinum verður fjallað um
þessi atriði og kynntar nýjar vís-
bendingar frá Hofstöðum um hlut-
verk helgiathafna í heiðnu samfé-
lagi.
Fundurinn er öllum opinn, og fé-
lagsmenn eru hvattir til að taka með
sér gesti og vekja athygli áhuga-
samra á fundinum. Að fyrirlestri og
umræðum loknum verður kaffistofa
Norræna hússins opin.
Shoghi Effendi og síðar, eftir andlát
hans árið 1957, sem framúrskarandi
meðlimur heimssamfélags bahá’ía.
Átti hún ríkan þátt í þróun heims-
miðstöðvar bahá’í samfélagsins í
Haifa, ísrael, allt frá því hún settist
þar að árið 1937, þegar bahá’í trúin
hafði breiðst út til um 40 landa, allt
til dagsins í dag, þegar trúin hefur
fest rætur í 190 löndum og 45 sjálfs-
stjómarsvæðum," segir í frétt frá
andlega þjóðaráði bahá’a á Islandi.
Frú Rabbání var íslenskum
bahá’íum vel kunn. Hún heimsótti
bahá’í samfélagið á Islandi í septem-
ber árið 1982 og dvaldist hér á landi í
fimm daga. Hún heimsótti bæði ísa-
fjörð og Neskaupstað auk þess sem
hún átti fundi með bahá’íum á höfuð-
borgarsvæðinu. Rúhíyyih Rabbání
átti einnig fund með frú Vigdísi
Finnbogadóttur, þáverandi forseta.
Tveir meðlimir Andlegs þjóðar-
ráðs bahá’ía á Islandi verða við-
staddir útför Frú Rabbání í Israel og
íslenskir bahá’íar munu minnast frú
Rabbání með sérstökum minningar-
hátíðum sem haldnar verða um land
allt á næstunni.
Fræðslu-
fundur um
campylobacter
ÖRVERUFRÆÐIFÉLAG íslands
stendur fyrir fræðslufundi um
campylobacter þriðjudaginn 25. jan-
úar kl. 20 í Odda, húsi félagsvísinda-
deildar Háskóla Islands, stofu 101.
Fjallað verður stuttlega um ætt-
kvíslina campylobacter, eiginleika
og klíníska þýðingu. Lýst verður
hvemig staðið er að ræktun og teg-
undagreiningu campylobacter úr
sýnum frá mönnum við sýklafræði-
deild Landspítala. Sagt verður frá
sjúkdómsmynd campylobacter-sýk-
inga, meðferð og fylgikvillum. Rann-
sóknir á faraldsfræði campylobacter,
bæði á Islandi og erlendis. Að lokum
verður lýst þeim íhlutandi aðgerð-
um, sem þegar hefur verið gripið til
hér á landi til að hamla gegn aukinni
tíðni campylobacter-sýkinga hér á
síðustu árum og fjallað um áhættu-
greiningu.
Fyrirlesarar eru Ásmundur E.
Þorkelsson, matvælafræðingur hjá
Hollustuvemd ríkisins, og Hjördís
Harðardóttir, læknir á sýklafræði-
deild Landspítalans.
Fundurinn er opinn öllum meðan
húsrúm leyfir.
Námskeið
um iktsýki
ENN em nokkur pláss laus á ikt-
sýkinámskeið Gigtarfélagsins, sem
hefst 31. janúar nk. Á námskeiðinu er
m.a. lögð áhersla á fræðslu um sjúk-
dóminn, einkenni, áhrif mataræðis,
þjálfun, meðferð og hjálpartæki.
Meðferð iktsýki beinist fyrst og
fremst að því að draga úr einkennum
hennar. Áuk lyfjameðferðar skipa
m.a. sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun
mikilvægan sess í meðferð á iktsýki.
Með sjúkraþjálfun má m.a. bæta
vöðvastyrk og draga úr verlqum.
Iðjuþjálfar gegna lykilhlutverki við
kennslu liðvemdar og útvegun
margskonar hjálpartækja.
Námskeiðið verður haldið mánu-
daginn 31. janúar og miðvikudaginn
2. febúar frá kl. 20-22. Leiðbeinendur
em Amór Víkingsson, gigtarsér-
fræðingur, Kolbrún Einarsdóttir,
næringarráðgjafi, Anna Ólöf Svein-
bjömsdóttir, iðjuþjálfi, og Unnur
Péursdóttir, sjúkraþjálfari. Skráning
fer fram á skrifstofu Gigtarfélagsins.
Opið hús
hjá Útivist
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist stendur
fyrir opnu húsi miðvikudaginn 26.
janúar á veitingastaðnum Sóloni ís-
landusi kl. 20. Gestur kvöldsins verð-
ur Haraldur Örn Ólafsson.
Haraldur hefur ásamt félögum
sínum stundað gönguskíðaferðir um
ísland auk þess sem hann hefur
gengið yfir Grænlandsjökul, heim-
sótt Suðurpólinn o.fl. Hann skipu-
leggur nú ferð á Norðurpólinn.
Haraldur mun fjalla um lengri og
skemmri göngusldðaferðir, undir-
búning ferða, hvað þarf til, hverjir
geta stundað þessa skemmtilegu
iðju, hvaða árstími er bestur og
raunar allt sem nauðsynlegt er að
vita og geta til að upplifa íslenska
náttúru. Einnig mun Haraldur sýna
myndir úr ferðum.
Aðgangeyrir er ókeypis og allir
velkomnir.
Ferðaáætlun Útivistar fyrir árið
2000 mun liggja frammi þetta kvöld.
Fasteignaþjónustan
qjj SkiUagata 30, sími 552 6600
Mosfellsbær
Glæsilegt, vel skipulagt 217 fm einbýlishús ásamt tvö-
földum 54 fm bílskúr. Séríbúð og gott geymslurými í
kjallara. Sólstofa, hitalagnir í stéttum. Verðlaunagarður
með gosbrunni.
Verð
21 millj.