Morgunblaðið - 25.01.2000, Qupperneq 60
JO ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÍDAG
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
- sjhópa kl. 10-14. Léttur hádegisverður
framreiddur. Mömmu- og pabba-
stund í safnaðarheimilinu kl. 14-16.
Dómkirkjan. Bamastarf í safnaðar-
heimiiinu kl. 14 fyrir 6-7 ára böm, kl.
15.30 fyrir 8-9 ára böm og kl. 17 fyrir
10-12 ára böm.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrúnskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
—- Laugameskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Sr.
Bjami Karlsson, sóknarprestur, út-
skýrir og stýrir umræðum um hug-
sjón Laugameskirkju. „Þriðjudagur
með Þorvaidi" ki. 21. Lofgjörðar-
stund þar sem Þorvaldur Halldórsson
syngur, Gunnar Gunnarsson leikur á
flygil og sr. Bjami Karlsson flytur
ritningarorð og leiðir bænastund.
Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri
borgara, kl. 16.30 í umsjón Ingu J.
Backmann og Reynis Jónassonar.
Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirlqa. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
umst, kynnumst, fræðumst.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
: með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í við-
talstímum hans.
Æskulýðsstarf á vegum KFUM &
K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfími ÍAK, léttur málsverð-
ur, helgistund og samvera. Sr. Guðni
Þór Ólafsson kemur í heimsókn. KI.
17 TTT 10-12 ára starf á vegum
KFUM og K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund
kl. 10-12. Kyrrðar- og bænastund kl.
12.10-12.25. Organisti kirkjunnar
> leikur á orgelið frá kl. 12. Þakkar- og
bænaefnum má koma til presta og
djákna kirkjunnar. Léttur hádegis-
verður í safnaðarheimilinu að lokinni
bænastund. Starf fyrir 9-10 ára stúlk-
ur kl. 15-16. Starf fyrir 11-12 ára
stúlkur kl. 16.30-17.30. Æskulýðsfé-
lagið fyrir 8. bekk kl. 20-22.
Grafarvogskirkja. Opið hús eldri
borgara kl. 13.30-16. Kyrrðarstund,
handavinna, söngur, spil og spjall.
Kaffiveitingar. Kirkjukrakkar í
Rimaskóla kl. 18-19 fyrir 7-9 ára
böm. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára kl.
18-19. Æskulýðsstarf fyrir unglinga
15 ára og eldri kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund
kl. 18.
Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í
dag kl. 12.30. Fyrirbænaefnum má
koma til prests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10-
12.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyr-
irbænir kl. 18.30. Opið hús fyrir 8-9
ára böm kl. 17-18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
10-12 ára böm í Vonarhöfn, Strand-
bergi, ki. 17-18.30.
Fríkirkjan í Haftiarfírði. Opið hús kl.
17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorgunn
kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og
Þuríður.
Keflavfkurkirkja. Fjölskyldustund í
Kirkjulundi kl. 10.30-11.30. Helgi-
stund, fræðsla og samfélag fyrir
aðstandendur bama undir grann-
skólaaldri. Umsjón: Brynja Eiríks-
dóttir. Fermingarandirbúningur kl.
13.40-15 í Kirkjulundi.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
16.30 kirkjuprakkarar, 7-9 ára
krakkar í leik og lofgjörð.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgameskirkja. TTT 10-12 ára
starf alla þriðjudaga kl. 17-18. Helgi-
stund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15-
19.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30
í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr-
inu.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Kl. 10
mömmumorgunn í félagsheimilinu
Fellaborg. Ki. 16 KFUM og KFUK
fyrir börn 9-12 ára.
Nú er kalt íHl $ ■
Ullarjakkarnir komnir ; |||B
Verð frá 7.900 JhHL
Anna og útlitið verður með
fatastils- og litgreiningamámskeið. UppL í sima 892 8778.
JU Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433.
Mikið af nýskráðum
fyrirtækjum
Höfum þó nokkuð úrval af litlum heildverslunum í ýmsum vöruflokk-
um. Komið og skoðið skrána hjá okkur og fáið upplýsingar.
Frystihús á Suðurnesjum i mjög góðu ástandi. Tæki fyrir niðursuðu
sem er þar stunduð til útflutnings. Mjög góð aðstaða með verbúð
og öllum tækjum sem þarf ásamt góðri frystiaðstöðu. Hús, tæki
og rekstur til sölu strax. Áhvílandi góð lán.
3. Barnafataverslun á Vesturlandi til sölu. Vönduð, góð og ódýr föt,
einnig örlítill innflutningur. Laus strax vegna veikinda.
4. Lítil fasteignasala til sölu sem var í fullum gangi. Allur búnaður
fylgir með. Lögmaður á staðnum. Mjög sanngjarnt verð. Nú er
blússandi sala i fasteignum.
5. Ein stærsta og vinsælasta sólbaðstofa landsins ertil sölu. Alls
eru 13 bekkir og hægt að bæta við 2 túrbó-bekkjum. Miklar endur-
bætur eru að eiga sér stað og nýtt tölvukerfi er að koma. Otrúlega
mikil viðskipti, einnig í vörusölu sem enn er hægt að auka. Gjöfult
fyrirtæki fyrir rétt fólk. Hægt að yfirtaka mikið af lánum.
6. Gamall og virðulegur söluturn til sölu. Er með lottó og er einn af
þeim hæstu í lottósölu. Gott verð ef selst strax.
7. Matsölustaður sem er aðeins opinn á daginn. Er í góðu viðskipta-
og framleiðsluhverfi. Selur hversdagsmat. Gott fyrir tvær samhentar.
8. Söluturn sem er aðeins opinn á daginn. Hefur verið starfandi í áratugi
og gefur ágætis veltu og afkomu. Mikið af stórum fyrirtækjum um-
hverfis. Einstaklega gott verð. Sannkölluð kaup aldarinnar.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
SUÐURVERI
SlMAR 581 2040OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Skattur á
innstæður
PENINGAGRÆÐGI þing-
manna á örugglega eftir að
ganga fram af fólki. Fólk
þarf að sætta sig við skatt-
lögð lúsarlaun og ef það
ætlar að setja peninga inn á
sparnaðarreikning er farið
að skattleggja þá líka. Nú
er ekki hægt að spara því
að fjármagnstekjuskattur-
inn étur upp alla vextina
svo að enginn hagnast á að
hafa peningana sína í
banka. Sem sagt: tvískatt-
lögð mánaðarlaun. Skatt-
leysismörk eru ekki til
lengur þar sem allt er
skattlagt, lægstu bætur og
styrkir.
Hvernig geta þingmenn
leyft sér að setja fjár-
magnstekjuskatt á inn-
stæður í bankabókum?
Telja þeir alla vera sof-
andi sauði og búast þess
vegna ekki við mótmælum?
Er fólk orðið svo vonlaust
um að mæta skilningi hjá
þessum þingmönnum að
það telji þýðingarlaust að
reyna? Hvers vegna var
verið að kjósa svo skiinings-
lausa einstaklinga í stjórn?
Eruð þið sem kusuð þessa
menn ekki farin að halda að
þið hafið gert mistök?
Eg er heldur betur kom-
in á þá skoðun að það þurfi
að stokka upp í þessum
þingsætum. Safna undir-
skriftum og fá fólk til að
fella þessa ómannúðlegu
stjórn. Heldur fólk virki-
lega að þessir menn telji sig
starfa fyrir þjóðina? Þeir
vinna ekki að hagsmunum
þjóðfélagsþegnanna heidur
aðallega fyrir sjálfa sig, eða
þannig lítur það út (af því
að það er þannig). Ef ein-
hverjir bankar auglýsa
ávöxtun á peningum eru
þeir bara að meina ávöxtun
fyrir bankana sjálfa, og lát-
ið nú ekki plata ykkur.
Virðingarfyllst,
Katrín Halldórsdóttir.
SD-smyrsl
VELVAKANDA barst eft-
irfarandi bréf:
Okkur langar til að koma
á framfæri þakklæti til allra
þeirra sem hafa skrifað til
Velvakanda um notkun SD-
smyrslisins. Við höfum
reynt að gera okkar besta
með útkomu smyrslisins,
þar á meðal þróun vegna
lýsislyktar, og hefur loksins
tekist að ná henni burtu.
Við þökkum landsmönn-
um fyrir að SD-smyrslið
varð að veruleika.
Kærar þakkir.
F.h. framleiðenda SD,
sjávar- og jurtasmyrslis,
Sigríður Einarsdóttir,
Daðey Daðadóttir.
Tapað/fundið
Leðurhanskar
fundust
LEÐURHANSKAR fund-
ust í versluninni Evu á
Laugavegi. Þeirra má vitja
í versluninni. Uppl. í síma
562-0625.
Gleraugu
fundust
GLERAUGU fundust fyrir
utan Sævarhöfða 31 (Sem-
entsverksmiðjan) fostudag-
inn 21. janúar sl. Upplýs-
ingar gefur Haukur í síma
587-5400.
Stór, svört leður-
taska týndist
STÓR, svört leðurskóla-
taska týndist í miðbæ
Reykjavíkur um kvöldmat-
arleytið fóstudaginn 21.
janúar sl. Skilvís finnandi
er vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Börk í
síma 565-3097.
Dýrahald
Elvis er týndur
ELVIS er 7 mánaða fress,
svartur með hvítar loppur
og hvítan maga. Hann er
með löng, hvít veiðihár og
hægra auga er minna en
það vinstra. Elvis á heima í
Hafnarfirði og er hans sárt
saknað. Þeir sem hafa orðið
varir við Elvis vinsamlegast
hafið samband við Önnu
eða Rúnar í síma 695-3647.
Fress týndist
DÖKKGRÁR og hvítur
fress týndist frá Stigahlíð
um miðjan desember. Hann
er ekki með ól, en eyrna-
merktur. Þeir sem hafa
orðið hans varir vinsamleg-
ast hafi samband í síma
588-7520.
Snati er týndur
SNATI, sem er stór, 3ja
ára, geltur fressköttur með
langa rófu, týndist frá nýja
heimilinu sínu að Háteigs-
vegi hinn 25. desember sl.
Hann átti áður heimiii í
Mosfellsbæ og gæti því ver-
ið hvar sem er á höfuðborg-
arsvæðinu. Snati er eyrna-
merktur R7142 og ber
silfurlita endurskinsól. Ef
einhver hefur séð Snata er
viðkomandi beðinn að láta
vita í síma 696-1958 eða
552-1958. Fundarlaun.
Kanínur fást gefíns
ÞRJÁR fullorðnar kanínur
fást gefins. Upplýsingar í
síma 567-5518.
Morgunblaðið/Ómar
Skipverjar á Lómi frá Tallinn gera við trollið á bryggjunni í Hafnarfirði.
Yíkverji skrifar...
Víkverji brá sér til Grindavíkur í
síðustu viku til að fylgjast
með veiðum og vinnslu. Hann var
þar reyndar á laugardagsmorgni,
en kom engu síður á óvart hve lítið
var um að vera. Það er engin vertíð
lengur sögðu karlarnir á hafnar-
voginni. Það er ekkert gaman að
þessu lengur, ekkert kapp, heldur
bara jafnt og þétt nudd og afköstin
ráðast af því hve kvótinn er mikill.
Á árum áður voru netin lögð strax
og róa mátti eftir áramót og ekki
tekin upp fyrr en á lokadegi. Nú er
enginn lokadagur og menn taka
netin upp ef útlit er fyrir brælu eða
helgarfrí er framundan. Kappið er
meira segja ekki meira en svo að
nú taka menn netin upp til að geta
notið þess að fara á þorrablót. Sá
hefði fengið að heyra það, sem
hefði gert svo fyrir 20 árum!
Tímarnir eru vissulega breyttir
og reyndir sjómenn tala gjarnan
um tímana fyrir og eftir kvótakerfí.
Fyrir kvótakerfí voru vertíðarbát-
ar, sem þættu litlir í dag, að veiða
1.600 til 1.800 tonn frá áramótum
fram í miðjan maí. Nú má gera ráð
fyrir að skammturinn sé kannski
100 til 300 tonn og þykir það gott.
Bátur af þessari stærð með 1.600
tonna kvóta væri gullnáma í dag.
xxx
En það er ýmislegt sem hefur
breyst til batnaðar, hvað sem
menn segja um kvótakerfið. Með-
ferð aflans er miklu betri núna.
Fyrir um 20 árum, þegar þorska-
flinn varð 461.000 tonn á einu ári,
var þorskinum mokað á land óað-
gerðum eftir allt upp í fjórar nætur
í netunum í sjó. Vinnslan réði ekki
við þetta mikla magn nema verka
megnið í skreið, sem á endanum
olli fjölmörgum verkendum stór-
tapi, þegar markaðurinn í Nígeríu
hrundi. Fiskurinn sem kemur á
land í dag er mun betri, það er
gert að honum í meira mæli en áð-
ur og yfirleitt eru netin dregin
daglega. Því næst að skapa mun
meiri verðmæti úr fiskinum nú en
áður og er það vissulega jákvætt,
en gömlu góðu stemmninguna
vantar alveg.
xxx
*
Islensk erfðagreining hefur nú
fengið rekstrarleyfi fyrir gagna-
grunn á heilbrigðissviðinu. Víkverji
telur þann atburð einhvern þann
mikilvægasta í heilbrigðisþjónustu
landsins fyrr og síðar. Það er í
huga Víkverja enginn vafi á því að
með gagnagrunninum verður hægt
að bæta heilbrigðisþjónustu á Is-
landi veralega og koma í veg fyrir
margt böl, sem fólk hefði annars
þurft að búa við. Víkverji óskar
þjóðinni til hamingju með þennan
atburð. Það spillir svo ekki fyrir að
hún fær árlega 70 til 140 milljónir
króna fyrir starfsleyfið og verður
þeim fjárhæðum varið til að efla
heilbrigðisþjónustu, rannsóknir og
þróun.