Morgunblaðið - 25.01.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000 63
FÓLK í FRÉTTUM
ALAN PARKER
UM þessar mundir er verið að
frumsýna Ösku Angelu - Angel-
a's Ashes, nýjustu mynd breska
leikstjórans Alans Parker, víða
um lönd. Reyndar hófust sýning-
ar í örfáum kvikmyndahúsum í
Bretlandi og Bandaríkjunum í
desember, svo hún teljist gjald-
geng við tilnefningar til Oskars-
og BFA-verðlauna í næsta mán-
uði. Af hennar völdum komst
Ieikstjórinn á síður blaðsins fyrir
skömmu, þar sem hann andmælti
þeirri gagnrýni íra að hann
drægi upp ósanna mynd af fá-
tæktinni í landinu á fjórða og
fimmta áratugnum í landinu. En
sjálfsævisögulega bókin hans
Franks McCourt, sem myndin er
byggð á og dregur nafn sitt af,
fjallar einmitt um ástandið eins
og hann upplifði það á bernsku-
árum sínurn í Limerick, eftir að
fjölskylda hans hafði snúið aftur
frá Bandaríkjunum. Við tók sult-
ur og seyra ofan á óreglu heimil-
isföðurins, svo það hefur verið
vandasamt að draga upp glans-
mynd af efni bókarinnar. Parker
sannaði hinsvegar í The Commit-
ments (’91), að honum er einkar
lagið að fanga írsku þjóðarsálina.
Fékk að auki úrvalsleikarana
Robert Carlyle og Emily Watson
til að fara með hlutverk foreldra
söguhetjunnar, Frank, sem er
leikinn af þrem strákum, 7, 11 og
15 ára.
Þó svo að Irarnir kvarti, eru
góðu fréttirnar þær að myndin
hefur fengið almennt lofsamlega
dóma og Parker kominn á rétta
braut eftir misjafnt gengi á síð-
asta áratug. Parker er í sérstöku
áliti hjá undirrituðum (hef séð
allar myndirnar hans utan Shoot
the Moon (’82)), enda gerði hann
hverja snilldarmyndina frá Mid-
night Express (’78), til The
Commitments. Semsé allar mynd-
irnar hans utan sú fyrsta, Bugsy
Malone (’76), sem var þó í flesta
staði ágætis byrjendaverk. Fyrsti
skellurinn, The Road To Well-
ville, kom því einsog skrattinn úr
sauðarleggnuml994 og Evita
(’97j, sú næsta, og síðasta á und-
an Osku Angelu, olli a.m.k. von-
brigðum á þessum bæ.
Parker, sem hefur oftast skrif-
að handrit mynda sinna, einn eða
í samvinnu við aðra, lumar einnig
á umtalsverðum tónlistarhæfileik-
um og hefur samið tónlist við
nokkrar myndir, Whafs Eating
Gilbert Grape, líklega frægust.
Frumraun hans á kvikmyndasvið-
inu var handritsgerð Melody
(’71), Ijúfrar, breskrar smámynd-
ar um uppreisnargjarna ungl-
inga. Hlaut þokkalega aðsókn,
ekki síst fyrir tilstilli tónlistar
The Bee Gees, á þessum diskóár-
um. Sá sem hvatti hann til dáða
var framleiðandi myndarinnar,
sjálfur David Puttnam. Hann stóð
einnig að baki Bugsy Malone,
fyrsta leikstjórnarverkefninu.
Reyndar hafði Parker hlotið
nokkra reynslu við auglýsinga-
sjónvarpsmyndagerð, Footstep
(’73), Our Cissy (’74) og The
Evacuees (’76), þeirra helstar.
Stíll Parkers er nokkuð háv-
aðasamur, ef svo má segja, Mikil
átök og hreyfingar tökuvélanna
kvikar, stundum árásargjarnar.
Efniviðurinn oftast á þeim nótum,
valið virðist þó vera að taka
breytingum í rósamari átt. Tón-
list skiptir jafnan miklu máli í
kvikmyndagerðinni, er snar þátt-
ur í sumum þeirra, fimm teljast
hreinræktaðar tónlistarmyndir.
Eins og gengur fellur ekki öll-
um viðfangsefnin og asinn, Park-
er hefur löngum verið umdeildur,
það háir ekki kraftmiklum mönn-
um. Verkefnavalið er einstakt, til
efs að nokkur samti'mamaður hafi
glímt við jafn margar greinar og
Parker, það með glæsilegum
árangri í ofanálag. Söngleikir,
hrollvekjur, þjóðfclagsádeilur,
risavaxin tónlistarmyndbönd, inn-
hverfar sálarlífsmyndir, hrotta-
Parker ásamt starfsfólki við tökur á Fame 1979. Myndin hlaut tvenn
Óskarsverðlaun fyrir tónlist.
legar hasarmyndir,
hreinræktuð
drömu, allt er
þetta að finna á af-
rekaskránni þó eft-
ir hann liggi að-
eins 13 myndir!
Fyrsta myndin,
Bugsy Malone, fór
sigurför um heim-
inn og var seinna
meir (öfugt við
hefðina), sett upp
sem söngleikur á
sviði. Fagmannleg
mynd í alla staði
þó ekki liggi ljóst
fyrir hvaða al-
durshóp hún er
ætluð. Unglings-
krakkar með Jodie
Foster í farar-
broddi, fara með
hlutverk fullorðinna Mickey
gangstera og fylgikon-
ur þeirra í spaugilegri
sýn á bannárin vestra.
Parker skaust beint í hóp eftir-
tektarverðustu leikstjóra samtím-
ans, strax með annarri mynd
sinni, Miðnæturhraðlestinni -
Midnight Express (’78). Harðsoð-
inni og raunsærri lýsingu á óför-
um bandarísks eiturlyfjasmyglara
í dýflissu ómennsks réttarkerfis
Tyrkja. Fimm ára andleg og
líkamleg þjáningasaga þar sem
ekkert er dregið undan, grimmd-
in ólýsanleg og óaðfinnanlega
gerð myndin fór sigurför um
Rourke var á toppnum sem Harry
Angel í Angel Heart.
heiminn. Þá flutti Parker sig
vestur um haf, í listaháskóla á
Manhattan, þar sem unga fólkið
dreymir um frægð og frama.
Varð Fame vinsælasta mynd leik-
stjórans og hlaut tvenn Oskars-
verðlaun fyrir tónlistina. Shoot
the Moon (’81), státar af glæstum
leikarahóp, með sjálfan Albert
Finney og Diane Keaton í aðal-
hlutverkum hjóna sem skilja eftir
langa sambúð. Hlaut lítið braut-
argengi en góða dóma.
Leikstjórinn kúventi í næsta
Sígild myndbönd
THE COMMITMENTS, 1991
★★★★
Byggð á einni af sögunum úr
þrennu Roddys Doyle, þekktasta og
virtasta, núlifandi rithöfundar íra
(hinar tvær, The Van og The Snapp-
er, hafa báðar verið kvikmyndaðar).
Sögupersónurnar mislitur hópur
ungra Dyflinnarbúa úr verkamanna-
stétt, sem stefna að því að stofna
hljómsveit, verða ríkir og frægir.
Það gengur brösuglega, ágreinings-
efnin endalaus og úr öllum áttum,
ekki síst tónlistar- og trúarleg.
Myndin endurspeglar ekki aðeins
skoðanir og tónlistarsmekk hópsins,
heldur ástandið í þessu margklofna
landi mikilla andstæðna, lista og
söngs. Dæmigert velur hljómsveitin
sér svarta sóltónlist til flutnings,
telja sig „negra“ Evrópu. Myndin er
þó fyrst og fremst frábær skemmtun
þar sem mestmegnis óþekktir leik-
arar fara á kostum - bæði í túlkun á
marglitum persónum og mögnuðum
tónlistarflutningi sem varð margfóld
metsöluvara um allan heim. Hrein-
ræktuð snilld undir vökulu lista-
mannsauga Parkers.
MISSISSIPPIBRENNUR -
MISSISSIPPIBURNING, 1988
★★★ xk
Þegar þrír svartir jafnréttisbar-
áttumenn hverfa sporlaust í Mississ-
ippi árið 1964 eru tveir ólíkir alríkis-
lögreglumenn sendir á stúfana.
Þungskýjaður þriller um miðalda-
myrkur það sem ríkti í Suðurríkjun-
um á sjöunda áratugnum (og er víst
enn viðloðandi) og grípur Parker til
allra ráða til þess að ýta við samvisku
áhorfandans. Fær eftirminnilega
hjálp frá samstarfsmönnum sínum;
tökumanninum Biziou (Oskarsverð-
laun), stórleikaranum Hackman og
fram á sjónarsviðið stígur athyglis-
verð leikkona, Frances McDormand.
Lee Ermey Willem Dafoe og Brad
Dourif eru einnig eftirminnilegir.
Grimmdarleg mynd og áhrifarík.
ANGEL HEART, 1987
★★★%
Satanísk hryllingsmynd um einka-
spæjara (Mickey Rourke) sem fær
það verkefni hjá dularfullum náunga
(Robert De Niro), að hafa uppi á
týndum manni. Ef þið eruð rétt stillt
inná myndina eru í henni atriði sem
elta ykkur í svefninn. Parker bland-
ar saman leynilögreglusögu, í ætt við
Chandler, og yfirnáttúrulegri hroll-
vekju um endurholdgun, andatrú,
djöfladýrkendur og hið illa, sem
smýgur inn í merg og bein. Flókinn
söguþráður gengur upp að lokum
sem mögnuð draugasaga. Parker
kann sannarlega að skelfa en það
skrýtna er að hann þurfti að stytta
rúmsenu vegna bandaríska kvik-
myndaeftirlitsins á meðan ofbeldið
rann í gegn. Charlotte Rampling og
Lisa Bonet eru áhrifaríkar í auka-
hlutverkum. Parker notar, sem oft-
ar, tónlist á einkar eftirminnilegan
hátt og útlit og lýsing er allt með
þeim hráslagalega hætti að seint
verður jafnað. Hrikaleg mynd um
samskipti manna og myrkraaflanna,
þó alls ekki laus við húmor.
Reuters
Hér er leikstjórinn Alan Parker og aðalleikkona Osku Angelu, Emily
Watson við kynningu á myndinni í Dublin 11. janúar síðastliðinn.
verkefnavali, og sýndi um leið
ótakmarkaða fjölhæfni, því fyrir
valinu varð kvikmyndagerð
meistaraverks Pink Floyd, The
Wall (’82). Hér tók Parker mikla
áhættu þar sem hann var búinn
að fá viðurkenningu sem „al-
varlega" sinnaður leikstjóri, en
komst frá verkinu sem sigurveg-
ari. Myndin er eins og tónlistin,
allt í senn; seiðandi, melódísk,
grimm, Ijót og falleg. Einkar
frumleg, í rauninni ofvaxið tón-
listarmyndband.
Birdy (’85) segir af raunalegri
og sérstakri vináttu tveggja
einstaklinga, sem þeir Nicolas
Cage og ennfrekar Matthew Mod-
ine (í hlutverki taugabilaðs her-
manns úrVíetnamstríðinu), leika
eftirminnilega vel, leikstjórnin
óaðfinnanleg og hlaut myndin
Grand Prix á Cannes.
Þá koma tvö snilldarverk í röð.
Hrollvekjan ægilega, Angel Heart
(’87) sem var ekki hvers manns
hugljúfí og hin firnasterka og
miskunnarlausa þjóðfélagsádeila,
Mississippi Burning (’88). Come
See the Paradise (’90) var af svip-
uðum toga, nú var tekin fyrir
meðferð stjórnvalda á Banda-
ríkjamönnum af japönskum upp-
runa á stríðsárunum síðari, eftir
Pearl Harbour. Var ekki í alveg
sama gæðafiokki en engu síður
eftirminnileg og athyglisverð.
The Commitments (’91) sló þeim
hinsvegar flestum við.
Skammt er á milli hláturs og
gráts. Það fékk leikstjórinn að
reyna, því The Road to Welville
(’94) varð fyrsti skellurinn á
glæsilegum ferli, og það á eftir
hans bestu mynd! Parker féll og
fall hans var mikið, eins og
stendur í góðri bók. Ekki skorti
mannskapinn. Anthony Hopkins
fer með aðalhlutverk Kelloggs
þess sem morgunkornið er kennt
við. Að þessu sinni, öfugt við
frammistöðuna í Legends Of the
Fall, er ofleikur hans óþolandi og
myndin ótrúleg mistök frá þess-
um mannskap. Parker á greini-
lega ekki að koma nálægt gaman-
myndum! Næst var Evita (’97),
e.t.v. ívið skárri, lítið meira. Sök-
inni má þó skella að talsverðu
leyti á Madonnu í titilhlutverkinu.
Hún er jafn ömurleg leikkona og
hún er frábær söngkona.
Við komumst að raun um hvort
Eyjólfur sé að hressast, vestur á
Melum í næsta mánuði, en þá
áætlar Háskólabíó að taka Ósku
Angelu til sýninga. Vonum það
besta, það munar um minna en
Alan Parker (sem orðinn er einn
æðsti maður The British Film
Institute), í sínu rétta formi í
einslitri kvikmyndaflóru samtím-
ans.
Sæbjörn Valdimarsson
VISA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4507-4500-0026-7523
4548-9000-0053-6690
4539-8600-0012-1409
4543-3700-0029-4648
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA (slandi sundurklippt,
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
Hyggur þú á nám
í Bandaríkjunum?
Ráðstefna um nám í Bandaríkjunum
og tengsl þess við atvinnulífið
Stofu 101 í Lögbergi, Háskóla íslands
miðvikudag, 26. janúar kl. 16-18.30
íslensk ameríska félagið
Alþjóðaskrifstofa Háskólastigsins
Fulbright stofnunin