Morgunblaðið - 25.01.2000, Side 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
U m fjarte
milli fólks o
Norræna ráðherranefndin styrkir ungt fólk
utan sambandið. Sjávarútvegs-
stefna ykkar fellur engan veginn að
sameiginlegu lanbúnaðarstefnunni.
Það myndi sennilega hafa neikvæð
áhrif á efnahag íslendinga ef þeir
gengju inn.“
Þrátt fyrir að Laura sjá ekki
ástæðu fyrir íslendinga til að sækja
um aðild gegnir öðru máli um Lithá-
en. „Við erum ekki háð einni auðlind
eins og þið. En við lítum ekki ein-
ungis á málið út frá efnahagslegum
forsendum. Við minnust þess að
vera undir hæl Sovétríkjanna og
viljum þess vegna festa okkur kyrfi-
lega í Vestur-Evrópu meðan tæki-
til þess að ferðast og kynna sér aðstæður
og hagi í öðrum löndum. Örn Amarson hitti
á dögunum að máli þrjá unga blaðamenn
frá Rússlandi og Litháen, sem hafa verið
hér á landi undanfarið, og ræddi við þá um
---------------7---------------------------
stjórnmál, Island og sitthvað fleira.
í dag, þriðjudag , verða mœlingar í Apótekinu Firði Hafnarfirði frá 14.00 til 18.00
Á morgun, miðvikudag, veröa mœlingar í Apótekinu Hagkaupi Skeifunni frá 14.00 til 18.00
Fimmtudaginn 27. janúar verða maelingar í Apótekinu löufelli frá 14.00 til 18.00
Föstudag 28: janúar verða mœlingar í Apótekinu Suðurströnd frá 14.00 til 18.00
Allar mælingar verða skráðar í þina eigin bók sem afhent verður við fyrstu heimsókn
Vinsamlegast geymið auglýsinguna
Apótekið er á eftirtöldum stöðum:
Smáratorgi 1, Kópavogi * Smiðjuvegi 2, Kópavogi * Kringlunni 8-12, Nýkaupi * Spönginni 13, Grafarvogi
Iðufelli 14, Breiðholti * Skeifunni 15, Hagkaupi * Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi * Fjarðargötu 13-15,
Firði í Hafnarfirði * Þverholti 2, Nýkaupi f Mosfellsbæ * Furuvöllum 17, Hagkaupi Akureyri
Hugum saman að heilsunni þinni
Morgunblaðið/Þorkell
Violeta, Laura og Alexander, Qölmiðlafólk frá Litháen og Rússlandi, hafa verið í heimsókn hér á landi.
færi er til. Við höfum ekki önnur
ráð.“
Alexender segir að Rússar velti
Evrópusambandinu lítið fyrir sér og
lítið sé fjallað um það í fjölmiðlum.
„Það er einna helst að fjallað sé um
einhver tæknileg mál sem tengjast
sambandinu. Ef af austurstækkun-
inni verður þurfa Rússar vegabréfs-
áritanir til landa sem þeir hafa áður
getað ferðast óhindrað til. Það er
miklu meira rætt um NATO en
Evrópusambandið í Rússlandi."
Hver er óvinurinn?
Það þarf ekki annað en að minn-
ast á NATO til þess að umræðurnar
fari á flug. Og það er
vissulega áhugavert
að heyra skoðanir
þessa unga fólks sem
kemur frá sitthvoru
fyrrum sovétlýð-
veldinu. Alexander
segir að loftárásir
NATO í Kosovo í
fyrra hafi minnt
Rússa rækilega á að
þeir eru ekki stórveldi lengur.
„Skellt var skollaeyrum við öllum
mótmælum sem komu frá rússnesk-
um stjórnvöldum. Annars skil ég
ekki hvers vegna fyrrum sovétlýð-
veldi vilja ganga í NATO. Þetta er
hemaðarbandalag sem sameinar
meðlimi sína gegn óvini. En ég spyr
hver er eiginlega óvinurinn? Ekki
verður það Rússland. Það er enginn
óvinur og ég held að það muni skapa
vandamál innan NATO í framtíð-
inni.“
Laura deilir ekki skoðunum Alex-
anders á NATO. Hún segir að lönd á
borð við Litháen, sem gegnt hafa
hlutverki stuðpúða stórvelda gegn-
um tíðina, hafi mikið gagn af NATO.
„Þrátt fyrir að ég hræðist ekki út-
þenslu Rússa í náinni framtíð held
ég að það sé mikilvægt fyrir ríki sem
hafa búið við óöryggi að komast í
varnarbandalag á borð við NATO.“
Af landi ogþjóð
Alexander segir að það sem hafi
vakið mesta athygli hans hér á landi
sé hin sífellda barátta landans við
náttúruöflin og höfuðskepnurnar.
„Þrátt fyrir að land-
ið sé að mestu óíbúð-
arhæft hafið þið
reist borgir og bæi.
Þið berjist við nátt-
úruna og þið sigrið.
Rússland er mikið
land og auðugt en
við viljum ekki
leggja þetta erfiði á
okkur, sem þið ger-
ið, til þess að landið nýtist okkur. f
stað þess bíðum við og vonum að
eitthvað gerist án þess að við hugum
að málum.“
Violeta, sem hefur lítið haft sig í
frammi í samræðunum, segist hafa
tekið eftir því hversu lítil samskipti
séu á milli fólks í hinu daglega
amstri. Hún segir að það sé eins og
fjarlægðin milli einstaklinga sé
meiri hér á landi en annarsstaðar.
„En um leið og maður byrjar að
ræða við fólk þá opnast það og er
gott til viðræðu. Það sem hefur þó
sennilega heillað mig mest við þjóð-
lífið er hversu vel það er skipulagt.
Það virðist allt ganga svo vel fyrir
sig og það er allt svo friðsælt hérna.
íslendingar eru greinilega greindir
og kunna vel til verka."
Hin mikla bílaeign landsmanna
kemur þeim spánskt fyrir sjónir og
þau segjast vera vanari því að sjá
fólk úti en ekki einungis bíla. Alex-
ander er ekki viss um hvort hin
mikla bílaeign landsmanna sé orsök
eða afleiðing þess
hversu fólk virðist
vera fjarlægt hérna.
„Það er auðvitað
langt á milli húsa
hérna og þess vegna
er þessi bílaeign ef
til vill skiljanleg. Það
er ríkur þáttur í
menningu Rússa að
heimsækja ná-
granna oft og iðulega og það færir
fólk nær hvert öðru, en þegar fólk
þarf alltaf að setjast upp í bíl þegar
það vill heimsækja einhvern er
kannski ekkert skrýtið að það geri
minna af því en ella.“
Breytingarnar
til batnaðar
Þessi þrjú ungmenni hafa lifað
mikla breytingatíma í heimalöndum
sínum - breytingar sem flestir Is-
lendingar þekkja eingöngu af afsp-
urn og í gegnum fjölmiðla. Þau eru
öll sammála um að með falli komm-
únismans hafi ástandið í heimalönd-
um þeirra batnað. Alexander segir
að ungt fólk horfi með bjartsýni
fram á veginn. „Þrátt fyrir það hafa
komið upp ákveðin vandamál. Til að
mynda er ungt fólk í Rússlandi af-
huga stjórnmálum. Eg held að
ástæðan liggi í því að það sér enga
stjómmálamenn sem það treystir.
Þau hafa enga fulltrúa til þess að
kjósa og þess vegna missir það
áhugann. Það er afar slæmt ef unga
fólkið, sem er það fólk sem þarf að
búa í framtíðinni, getur ekki treyst
fólkinu sem tekur
ákvarðanir um það
hvernig framtíðin
mun líta út.“ Laura
og Violeta taka í
sama streng. Öll eru
þau meðvituð um
þær hættur sem fel-
ast í því þegar ungt
fólk hættir að
treysta stjórnmála-
flokkum og Alexander segir að sú
þróun sem hefur átt sér stað undan-
farin ár í Mið-Evrópu varðandi vin-
sældir fasískra flokka sé hafin í
Rússlandi. „Mikið af ungu fólki
heillast um þessar mundir af hug-
myndafræði ýmissa öfgasinnaðra
þjóðemisflokka. Það er áhyggju-
efni.“
Við minnumst þess
að vera undir hæl
Sovétríkjanna og vilj-
um þess vegna festa
okkur kyrfiiega í
Vestur-Evrópu með-
an tækifæri er til
Russland er mikið
land og auðugt en
við viljum ekki leggja
þetta erfiði á okkur,
sem þið gerið,
til þess að landið
nýtist okkur
Mánaðarlega getur þú komið í Apótekið þar sem
hjúkrunarfrœðingur og lyfjafrœðingur verða til ráðgjafar
Hugaé aé
heilsunni
Alexander Malkerich er
ungur blaðamaður frá
Pétursborg sem hefur
verið hér að kynna sér
starfsemi fjölmiðla á íslandi. Hann
eyddi mestum tíma á Morgunblað-
inu og segist hafa orðið hrifinn af
hvernig blaðið er skipulagt. „Ég hef
fengið margar góðar hugmyndir
hérna. Einnig hafa aðsendar greinar
frá lesendum vakið athygli mína.
3 Það er einstætt að blað af þessari
stærðargráðu birti nánast allar að-
sendar greinar. Það er örugglega
mjög hagstætt lýðræðislegri um-
fjöllun í landinu. Það sama gildir um
minningargreinar, manni finnst
fyrst svolítið skrýtið að þær fái svo
mikið vægi innan blaðsins."
Afstaða fslands til
ESB skiljanleg'
Laura Gvozdaite starfar hjá
fréttastofu í Vilnius í Litháen og
sérhæfir sig í málum sem tengjast
baltnesku löndunum. Hún kom til
landsins með stöllu sinni Vieloleta
Bogdanaviciute sem starfar við við-
skiptafréttir í sömu borg. Þær
ákváðu að stilla saman strengi sína
og koma til landsins til þess að
kanna hvers vegna Island stendur
fyrir utan Evrópusambandið út frá
stjórnmálalegum forsendum og
efnahagslegum - en umræðan um
Evrópusambandið er að hefjast í
Lettlandi um þessar mundir þar
sem stjómvöld landsins hafa hafið
samningaviðræður við sambandið
um væntanlega inngöngu. Þær hafa
heimsótt flestar stofnanir ríkisins
sem hafa eitthvað með samskipti við
Evrópusambandið að gera. Þegar
þær eru spurðar um álit þeirra á
þeirri ákvörðun Islendinga að sækja
ekki um aðild segjast þær skilja
hana mjög vel.
„Eftir að hafa hitt fólk úr stjórn-
kerfinu skil ég hvers vegna íslend-
ingum finnst fýsilegra að vera fyrir
Blóðsykursmœling * Kólesterólmœling
BMI mœling * Þyngdarmœling
Blóðþrýstings/púlsmœling
Vefjafitumœling * Ráðgjöf við lyfjanotkun
Hoiiráð við
háþrýsííngt