Morgunblaðið - 09.05.2000, Blaðsíða 1
105. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ástand fer versnandi í Sierra Leone og talið að landið rambi á barmi nýrrar borgarastyijaldar
Breskir
þegnar flutt-
ir á brott
Freetown, Abuja. AP, AFP.
UTANRÍKISRAÐHERRA Bret-
lands, Robin Cook, tilkynnti í gær-
kvöldi að breska ríkisstjórnin hefði
ákveðið að láta flytja breska þegna
frá Afríkuríkinu Sierra Leone
vegna ástandsins sem þar ríkir.
Fullyrt er að landið rambi nú að
nýju á barmi borgarastyrjaldar.
Ráðlagt að halda
sig innandyra
Liðsveitir Sameinuðu Þjóðanna í
landinu hafa ekki getað tryggt að
friðarsamkomulag sem gert var
milli andstæðra fylkinga á síðasta
ári væri virt. Enn er nokkur hundr-
uð friðargæsluliða saknað og er tal-
ið að liðsmenn uppreisnarmanna,
RUF-hreyfmgarinnar, hafi a.m.k.
suma þeirra í haldi.
Um 250 breskir fallhlífarher-
menn lentu í gær í útjaðri höfuð-
borgar landsins, Freetown. Nokkur
hundruð hermenn til viðbótar,
herskip og þyrlur á vegum Breta
eru nú í nágrannaríkinu Senegal.
Cook sagði í yfirlýsingu í breska
þinginu að breskum ríkisborgurum
í Sierra Leone hefði verið ráðlagt
að halda sig innandyra og bíða þess
að haft yrði samband við þá.
Hermenn RUF skjóta
á mótmælendur
Að minnsta kosti fjórir létust og
tugir slösuðust þegar hermenn
RUF-hreyfingarinnar skutu á mót-
mælendur sem safnast höfðu sam-
an fyrir utan heimili Foday Sankoh,
leiðtoga RUF, í Freetown í gær.
Hópur um 5.000 mótmælenda var
á leið að taka þátt í mótmælasam-
komu gegn RUF þegar fólkið
breytti skyndilega um stefnu og
hélt að heimili Sankoh. Þar köstuðu
mótmælendur grjóti og múrstein-
um að heimili Sankoh og voru tugir
friðargæsl'uliða Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ), sem höfðu gætur á San-
koh, bornir ofirliði. Hermenn RUF,
sem einnig voru á staðnum, hófu
við þetta skothríð á fjöldann og er
vitað til þess að a.m.k. einni hand-
sprengju hafi verið kastað. „Við er-
AP
Breskir fallhlífarhermenn í fylgd með friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna nálægt Freetown í gær. Erlendir
ríkisborgarar hafa verið hvattir til að yfirgefa Sierra Leone vegna yfirvofandi borgarastyrjaldar í landinu.
um ... að sýna heiminum að Foday
Sankoh er skrímsli sem vill myrða
íbúa Sierra Leone,“ sagði Abubak-
arr Sillah, einn mótmælendanna.
Átökin stóðu stutt yfir, en við Og
við var skotið í átt að heimili San-
koh úr nærliggjandi götum fram
eftir degi.
■ Bretar senda/26
Reynt að binda enda á verkföllin í Noregi
Stjórnin reynir
að liðka fyrir
Fjármálaráðherrar EMU funda vegna stöðu evrunnar
FULLTRÚAR norska alþýðusam-
bandsins, LO, hófu fund um þrjúleyt-
ið í gær með fulltrúum öflugustu
samtaka vinnuveitenda, NHO, til að
reyna að leysa vinnudeiluna sem nú
er að lama mikinn hluta atvinnulífs í
Noregi. Stóð fundurinn enn er síðast
fréttist en Ijóst var að líkur voru tald-
ar á að deilan leystist og yrði þá verk-
fallinu samstundis hætt. Náist ekki
samningar munu enn fleiri leggja
niður vinnu í dag og er áætlað að alls
verði þá liðlega 102 þúsund manns í
verkfalli. Fullyrt er að ríkisstjórn
Jens Stoltenbergs hyggist liðka fyrir
samningum með því að tryggja með
lagasetningu að vinnuveitendur í
NHO þurfi ekki, einir vinnuveitenda,
að taka þátt í kostnaði við víðtækar
umbætur á endurmenntunaraðgerð-
um í þágu félagsmanna LO.
Að sögn talsmanna LO var ætlun-
in að leggja áherslu á kröfur um að
tímakaup hækkaði að jafnaði um
tvær krónur, rúmar 17 íslenskar
krónur, láglaunafólk fengi tvöfalda
þá hækkun, bætt yrði við tveim sum-
arleyfisdögum á ári og samið til
tveggja ára. Gangi þessar kröfur eft-
ir verður launahækkunin um 5%, að
sögn netútgáfu Aftenposten og
norska ríkisútvarpsins.
„Þetta er enn erfitt. Nóttin verður
löng og við tökum okkur þann tíma
sem við þurfum,“ sagði leiðtogi LO,
Yngve Hágensen, er hann ræddi við
fréttamenn eftir stutt hlé á funda-
höldunum í gærkvöldi. Forseti NHO,
Leif Frode Onarheim, vildi ekki
svara því hvort hann væri vongóður
og spáði löngum fundi.
Meðal þeirra 10.000 sem bætast í
hópinn í dag ef ekki semst eru rösk-
lega 5.000 manns í trjávöruiðnaði en
einnig munu 32 starfsmenn er sjá um
eftirlit með orkuflutningum til papp-
írsverksmiðja leggja niður störf. Um
160 starfsmenn hjá Nor-Cargo
Thermo, er annast flutninga og dreif-
ingu sjávarafurða, munu leggja niður
störf en fyrirtækið annast um 30% af
öllum fiskútflutningi Norðmanna til
Evrópulanda.
Norður-Irland
Endurreisn
undirbúin
London. AP.
PETER MANDELSON, ráð-
herra bresku ríkisstjómarinnar
í málefnum Norður-írlands,
sagði í gær að hann hygðist
senn hefja undirbúning að því
að héraðsstjórn N-írlands yrði
endurreist 22. maí nk. Mandel-
son upplýsti einnig að von væri
á Cyril Ramaphosa, fyrrverandi
formanni Afríska þjóðarráðsins,
og Martti Ahtisaari, fyrrverandi
forseta Finnlands, til Belfast á
mánudag í næstu viku. Þau
munu annast eftirlit með því að
afvopnun vígasveita í héraðinu
fari fram í samræmi við væntan-
legt samkomulag deiluaðila.
David Trimble, formaður Sam-
bandsflokks Úlsters (UUP),
segir að enn sé spumingum
ósvarað varðandi fyrirheit Irska
lýðveldishersins um afvopnum.
■ Staðfesting/27
MORGUNBLAÐIÐ 9. MAÍ 2000
Yfírlýsingar stöðva
ekki frekari lækkun
Brussel. AP, AFP.
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR 11
Evrópuríkja, aðildarríkja Efna-
hags- og myntbandalagsins (EMU),
lýstu í gær yfir áhyggjum vegna
veikrar stöðu evrunnar, hinnar sam-
eiginlegu myntar ríkjanna. Ráð-
herrarnir komu saman til fundar í
Brassel og ræddu aðgerðir til að
styrkja stöðu gjaldmiðilsins sem
hefur lækkað mjög í verði gagnvart
öðmm myntum síðustu vikur.
„Við lýsum áhyggjum okkar
vegna stöðu evrunnar, sem endur-
speglar ekki styrk efnahagslífsins á
evrusvæðinu,“ sagði í sameiginlegri
yfirlýsingu ráðherranna og
Evrópska seðlabankans (ECB) eftir
fundinn. Ráðherrarnir lögðu
áherslu á að mikill vöxtur væri nú í
evrópsku efnahags- og atvinnulífi
og sögðust staðráðnir í að hraða
efnahagsumbótum í ríkjum sínum
til að sporna gegn neikvæðri gengis-
þróun evmnnar. Þrátt fyrir yfirlýs-
ingu ráðherranna hélt evran áfram
að lækka á gjaldeyrismörkuðum í
gær, féll úr rúmlega 0,9 dollumm í
0,897 dollara skömmu eftir að yfir-
lýsingin var birt. Við lok viðskipta á
mörkuðum í Evrópu var verð henn-
ar komið niður í um 0,893 dollara.
Á fundi fjármálaráðherranna í
gær var ákveðið að tvöfalda gjald-
eyrisforða Evrópska seðlabankans
Fjármálaráðherra Spánar, Rodrigo de Rato, ræðir við fréttamenn í
höfuðstöðvum ráðherraráðs Evrópusambandsins í gær.
með því að færa þangað gjaldeyri
frá seðlabönkum aðildarríkjanna.
Ákvörðunin eykur getu ECB til að
bregðast við gengislækkun evmnn-
ar með því að verja hluta forðans til
að kaupa evrur á markaði. Gjaldeyr-
iskaupmenn hafa lengi búist við því
að til inngripa kæmi en ekki er á
valdi ráðherranna að ákveða slíkt
því Evrópski seðlabankinn nýtur
allmikils sjálfstæðis við ákvörðun
peningamálastefnu. Á síðustu mán-
uðum hefur bankinn reynt að
hækka vexti til að vega upp á móti
fallandi gengi evrunnar en án ár-
angurs.