Morgunblaðið - 09.05.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 69
ÍDAG
BRIDS
Umsjón Guðmiindur
I’áll Arnarson
ÞAÐ gerðist tvisvar í Poii-
tiken-mótinu að þrjú grönd
voru spiluð redobluð, tvo og
þrjá niður. í bæði skiptin
kom Norðmaðurinn Boye
Brogeland við sögu.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður + G95 v D108 ♦ 8542 * DG8
Vestur Austur
+ 73 + ÁKD62
v G6532 v K9
♦ 107 ♦ DG9
+ 6542 + 1093
Suður + 1084 v Á74 ♦ ÁK63 +ÁK7
Þetta er fyrra spilið, en
hér er Brogeland í norður,
Erik Sælensminde í suður,
en Danirnir Jens Auken og
Dennis Koch-Palmund í AV:
Vestur Norður Austur Suður
Koch-P Brogeland Auken Sælensm.
- - - ltígull
Pass Pass Dobl lgrand
Pass 2grönd Pass 3grönd
Pass Pass Pass Redobl Dobl Allirpass Pass
Brogeland og Sælens-
minde spila eðlilegt kerfi,
svo Brogeland á vissulega
hámark fyrir passi sinu við
tígulopnun makkers. Þegar
Sælensminde grandar ofan í
opnunardobl Aukens þá sýn-
ir hann 18-19 punkta og
jafna skiptingu, svo það er
skiljanlegt að Boye lyfti því í
tvö grönd. En redoblið á
þremur gröndum er nokkuð
hart, þrátt fyrir „bullandi
hámark“.
Enda fór samningurinn
hratt og örugglega tvo niður
þó svo að út kæmi hjarta upp
á tíu blinds og kóng austurs.
Sælensminde varð að gefa
slag á tigul og Auken tók þá
flmm næstu á spaða. Gjaldið
fyrir að fara tvo niður í
redobluðu spili á hættunni
er 1.000, en Boye náði þeirri
tölu til baka í næstu umferð,
eins og við sjáum á morgun.
SKÁK
lliiisjón Ilelgi Áxs
Grétarsson
Hvítur á leik.
MEÐFYLGJANDI staða
kom upp á milli pólska stór-
meistarans Aleksander
Wojtkiewicz, hvítt, (2.563)
og Finnans Timo Lampen
(2.307) á XIX. Reykjavík-
urskákmótinu. 22. Hxc6+!
Kb8 23. Hc8!+ Bxc8 24.
Da8+ Kc7 25. Re6+ Kd6 26.
Rxd8 Re5 Svartur verður
mát eftir 26. ...Hxd8 27. Dc6
27. Rf7+! Ke6 Enn var
riddarinn friðhelgur þar
sem eftir 27. ...Rxf7 mátar
hvítur með 28. Dc6 28. Rxh8
og svartur gafst upp.
Arnað heilla
A A ÁRA afmæli. í dag,
t/U þriðjudaginn 9. maí,
verður níræður ísak Sigur-
geirsson, fyrrverandi bóndi
á Undirvegg í Kelduhverfi,
Litla Hvammi 7, Húsavík.
Eiginkona hans er Klara
Tryggvadóttir.
Þau verða að heiman í
dag.
Ljósmynd: Bonni
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 1. janúar sl. í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík af sr.
Sigurði Arnarsyni Dagrún
Hálfdánardóttir og Yngvi
Daníel Óttarsson. Heimili
þeirra er að Stýrimannastíg
10, Reykjavík.
Með morgunkaffinu
✓
Ast er.,
að setja upp heimili.
TM R*fl. U.S. P»t. on. — aU righU resorvod
© 2000 Lo* Angeles Tlm«» Syndcale
Brytinn bað mig að
skila því að ef greifinn
borðaði ekki laxafor-
réttinn, fengi hann
engan eftirrétt.
Eins gott að við vor-
um í stígvélum.
Af því myndin er ekki
ætluð börnum.
Raddir framtíðar
Nei, það er ekki eldur í okkur, bara bein, en
þaö er hægt að brenna beinin og það er svona
hrærivél inni í okkur sem hrærir matinn sem
við boröum.
Pétur, Kvlstaborg.
UOÐABROT
HUGGUN
Hvað hjálpar þér í heimsins glaumi,
að heiminum verðirðu’ ekki að bráð?
Þá berast lætur lífs með straumi,
og lystisemdum sleppir taumi, -
hvað hjálpar, nema herrans náð?
Og þegar allt er upp á móti,
andinn bugaður, holdið þjáð,
andstreymisins í ölduróti
allir þó vinir burtu fljóti,
guðs er þó eftir gæzka’ og náð.
Hver dugar þér í dauðans stríði,
er duga ei lengur mannleg ráð,
þá horfin er þér heimsins prýði,
en hugann nístir angur og kvíði, -
hvað dugar, nema Drottins náð?
Grímur Thomsen.
ST J ÖRJVUSPÁ
eftir Frances Urakc
NAUT
Afmælisbarn dagsins:
Þú leggur mikið upp úr því
að fara rétt að hlutunum
og tekur það ákaflega
nærri þér þegar aðrir
svindla á reglunum.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú þarft að hafa betri skip-
an á því hvar þú lætur hlut-
ina því það getur valdið erf-
iðleikum að þurfa aftur og
aftur að leita að því sama.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú er komið að því að vinur
þinn verður að endurgjalda
þér greiða. Vertu tillitssam-
ur og biddu ekki um meira
en hann er fær um að veita.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) W
Það er farsælla að segja hug
sinn en að byrgja hlutina
inni. Mundu þó að ekki er
sama hvernig þeir eru sagð-
ir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að berjast fyrir
sjálfstæði þínu bæði heima
fyrir og í vinnunni. Varastu
samt að ganga of langt svo
ekki komi til eftirmála.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Þú þarft að leggja ráðagerð-
ir þínar undir dóm annarra
því það skiptir öllu í sam-
starfi að ná samkomulagi
um það sem máli skiptir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) vBkL
Þú þarft að melta þá hluti
sem nú valda þér hugar-
angri. Leggðu allt kapp á að
finna farsæla lausn svo þú
getir sofið rólegur.
sept. - 22. október)
X*X
Einbeittu þér að þeim verk-
efnum sem fyrir liggja áður
en þú tekur að þér önnur og
ný. Leitaðu aðstoðar ef eitt-
hvað vefst fyrir þér.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að hafa alla þræði í
hendi þér áður en þú ræðst í
þær framkvæmdir sem þig
dreymir um. Góður undir-
búningur tryggir farsæla
framkvæmd.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) AlC)
\ Nú er úr vöndu að ráða og
því skaltu fara þér hægt
þegar þú veltir fyrir þér
möguleikunum til lausnar
vandanum.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) 4MP
Nú er að bretta upp erm-
arnar og drífa sig í að klára
hlutina. Þá fyrst ertu til-
búinn til að kanna ný ævin-
týri og leggja línurnar fyrir
framtíðina.
Vatnsberi r .
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu ekki dragast lengur
að taka á þeim vanda sem
við blasir. Þú verður hissa
hversu auðvelt málið er þeg-
ar það er brotið til mergjar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér er nauðsynlegt að
brydda upp á einhverju
nýju til þess að gefa lífinu
lit. Leitaðu samt ekki langt
yfir skammt því tækifærin
eru við hendina.
Stjörnuspána á að Iesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
•300° beygju-
radíus
•Henta fyrir
langa hluti
fetra
TRILLUR
HJÓLABORÐ 0G VAGNAR
—. <
ÁRVÍK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
MORE & MORE
- ' I A LIFE PHILOSOPHY
Nýjar vörur
Flottir bolir, stuttbuxur, skór
Vorum að fá Axiom herraboli
Sírni 588 80500piö virkti datja kl. 10.30—18, laugardaga kl. 11 —16
Byggingaplatan WDtM)(2®
sem allir hafa beðið eftir
VIROC® byggingaplatan er fyrir VIROC® byggingaplatan er platan
veggi, loft og gólf sem verkfræðingurinn getur
VIROC®byggingaplatan er eldþolin, fyrirskrifað blint.
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VIROCbyggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIRQC byggingaplatan
er umhverfisvæn
ÞP
&co
Leitið frehari upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚIA 29 S: 553 8640 & 568 6100
*
iMultivitamin
TtHtMrUtti
^S)
Apótekin
Léttu líf
og lund
Það nær enginn kjör-
þyngd á augabragði.
Hreyfing gerir gagn.
Þú finnur fljótlega
að úthaldið eykst og
líkaminn styrkist.
Lífið verður skemmtilegra
ef þú hreyfir þig reglulega
og borðar léttan,
hollan og góðan mat,
ávexti og grænmeti.
Ekki ofgera þér. Setfu þér raunhæf markmið með skemmtilegri hreyf-
ingu. Rösk ganga í hálftíma á dag gerir mikið gagn.
Njóttu fjölbreyttrar hreyfingar í góðum félagsskap. Sundlaugarferð
með fjölskyldunni, hjólreiðatúr eða ærslaleikir með börnunum létta
lund og auka samheldnina.
Göngum 2000 skref til móts við heilbrigði og hreysti 27. maí!
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu
www.landlaeknir.is