Morgunblaðið - 09.05.2000, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐ JUDAGUR 9. MAÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir þáttaskil hafa
orðið f íslenskum stjórnmálum með stofnfundinum um helgina
- Urðu einhver þáttaskil í íslenskum stjórn-
málum nú um helgina með formlegri stofnun
stjórnmálaílokks Samfylkingarinnar að þínu
mati?
„Ég er þeirrar skoðunar að svo hafi verið.
Þarna fæddist flokkur sem hafði verið lengi í
burðarliðnum, en var áður kosningabandalag
fjögurra flokka. Það veit öll þjóðin að fæðing-
arhríðirnar voru ákaflega erfiðar. Samfylk-
ingin hefur gengið í gegnum þungt skeið. Það
má að vissu leyti kenna því um að við fórum í
kosningar með stefnuskrá sem var samtíning-
ur úr stefnu þessara flokka. Það var verið að
gera málamiðlanir vegna manna sem ætluðu
sér svo aldrei að vera með í leiknum,“ svarar
Össur.
Formaðurinn er með
ákaflega sterkt umboð
„Núna höfum við ekki aðeins búið til flokk
heldur höfum valið flokknum forystu, sem hef-
ur umboð. Aður var ekki slíku til að dreifa. Við
lifum á tímum forystustjórnmála. Það var ekki
til staðar kjörinn leiðtogi hjá okkur þegar við-
horf til forystumanna stjómmálaflokkanna
voru könnuð. Þetta gerði okkur loðin og á
stundum ómarkviss að mati kjósenda. Nú er
þetta úr sögunni. Flokkurinn hefur formann
með ákaflega sterkt umboð. En við tókum líka
á mörgum merkilegum málum á þessu stofn-
þingi þó ég haldi því ekki fram að flokkurinn
hafi fæðst með fullskapaða stefnu,“ segir Öss-
ur.
Átakahefðinni verði útrýmt
„Við lögðum þarna grunn að ákveðnum að-
ferðum til þess að vinna okkur inn í framtíð-
ina,“ segir hann. „Sterk átakahefð hefur ein-
kennt flokkana á vinstri vængnum. Ég hef
einsett mér að útrýma henni og leggja áherslu
á að iðka samræðustjórnmál, þar sem menn
ræða sig að niðurstöðu. Þáttur í því er að ein-
angra málaflokka, sem við þurfum að takast á
við og kalla sem oftast til sérfræðinga til að
eiga orðaskipti við okkur. Það gerðum við með
glæsilegum árangri á málstofum sem haldnar
voru á stofnfundinum.“
Össur var spurður hvort Samfylkingin hefði
látið málefnavinnuna sitja á hakanum á þeim
tíma sem liðinn er frá kosningum og beint
kröftunum þess í stað að skipulagsvinnu
vegna stofnunar flokks.
„Það er rétt að mikil orka fór í skipulags-
vinnu. Hinsvegar leit ég á það sem mitt hlut-
verk að nota kosningabaráttuna í aðdraganda
fundarins til þess að skerpa stefnuna í grund-
vallaratriðum. Ég notaði því tiltölulega lang-
dregið formannskjör undir hugmyndavinnu
og mér fannst það skila sér vel inn á fundinn
og út af honum líka. Þessar hugmyndir, s.s. í
Evrópumálum, menntamálum, varðandi
einkavæðingu, notkun Netsins til að efla beint
lýðræði og kjördæmaskipan, voru teknar upp,
settar í ákveðið vinnuferli á fundinum, og þeg-
ar upp var staðið var þetta orðið að sam-
þykktri stefnu flokksins í mörgum megin-
dráttum," segir Össur.
Sú stefna sem þingflokkurinn
í heild hafði skrifað upp á
- Ef við tökum kvótamálið sem dæmi, sem
Samfylkingin hefur haldið fram að sé mál
dagsins, þar hefur þingflokkurinn þegar sett
fram stefnu í frumvarpi sem liggur fyrir þing-
inu. Bætti flokksþingið þarnokkru við?
„Já, fullu .samþykki sínu. Sú stefna sem ég
lýsti í kosningabaráttunni er sú stefna sem
þingflokkur Samfylkingarinnar hafði í heild
sinni samið og skrifað upp á. Það var útaf fyrir
sig mikið afrek í aðdraganda þessa stofnþings
og skiptir miklu máli að hver einasti þingmað-
ur Samfylkingarinnar fylgdi þessari stefnu.
Það hefur ekki gerst í neinum öðrum flokki,
sem hafa flestir verið klofnir í af-
stöðunni til sjávarútvegsmála. Ég
fór á fundi um allt land og kynnti
þessa stefnu og bar þetta svo upp í
ræðu minni á stofnfundinum. Éitt
af því merkasta sem liggur eftir
stofnfundinn er að Samfylkingin er
nú einhuga um þessa stefnu sem
þarmeð er borin upp af næststærstu stjórn-
málahreyfingu landsins.“
Brýnt að vinda ofan
af gjafakvótakerfinu
„Ég tel að Samfylkingin hafi gert það upp
við sig að brýnasta mál dagsins sé að vinda of-
an af gjafakvótakerfinu og við erum einhuga
um að það eigi að gera með því að taka 10% af
heildarkvótanum á hverju ári, setja á markað
og láta markaðinn mynda verðið. í þessu fel-
ast kaflaskil í umræðunni. Þetta er í fyrsta
sinn sem stjórnmálaflokkur kemur fram með
fullburða stefnu í þessu máli.
Stefna Framsóknarflokksins og Sjálfstæð-
Fæðingar-
hríðirnar
voru ákaf-
lega erfíðar
Össur Skarphéðinsson, nýkjörinn formaður Samfylk-
ingarinnar, boðar harðari stjórnarandstöðu eftir stofn-
un nýs flokks, sem hann segir að greini sig með skýrum
hætti frá öðrum flokkum. Samfylkingin sé að endur-
nýja sitt hugmyndafræðilega farteski og stokka upp
viðhorfín gagnvart markaðnum. Össur segir í samtali
við Omar Friðriksson að Samfylkingin þurfí að vera
nægilega sterk til að lifa af ágreining um einstök mál.
Engar deilur
spruttu um
afstöðu til
hers og NATO
isflokksins er óljós í dag. Þeir hafa sagt að
bíða eigi eftir niðurstöðum úr nefndavinnunni
en hafa sjálfir ekki fullmótaða stefnu í þessum
efnum í dag,“ segir Össur.
Að sögn hans er það ákaflega merkur þátt-
ur í sjávarútvegsstefnu Samfylkingarinnar að
hún gefur nýliðum kost á að komast að í grein-
inni og gefi líka þeim landshlutum sem hafi
blætt vegna núverandi kerfis, tækifæri á að
njóta nálægðarinnar við miðin.
„Þetta kerfi myndi líka leiða til þess að loks-
ins gæti íslandssagan í sjávarútvegi hafist á
nýjan leik. í áranna rás hafa byggðirnar verið
byggðar upp með þeim hætti að ungir og at-
hafnasamir menn hafa orðið sér úti um bát,
farið að stunda útgerð og malað gull fyrir sitt
byggðarlag. Samkvæmt okkar kerfi geta
menn þetta loksins aftur. Hið nýja og ferska
blóð þyrfti vissulega að keppa á markaði, ná
meiri virðisauka út úr greininni, bæta nýtingu
og finna betri markaði til að lifa af, en þegar
upp er staðið tel ég að þetta leiði til þess að
fiskveiðiarðurinn, sem kemur inn í þjóðfélag-
ið, verði meiri í svona kerfi en því sem við bú-
um við í dag,“ segir Össur.
Aðspurður hvort líklegt sé að sú stefna sem
Samfylkingin boðarleiði til sátta sem talið hef-
ur verið nauðsynlegt að ná um fiskveiði-
stjórnkerfið, segir Össur að verjendur gjafa-
kvótakerfisins hafi hvergi dregið af sér í vörn
fyrir það.
„Samt sem áður hefur almenningur aldrei
bifast í þeirri trú að þetta sé ranglátt kerfi þar
sem jafnræði skortir átakanlega en það blasir
jafnframt við að almenningur er líka þeirrar
skoðunar að stjórnkerfi fiskveiða eigi að
byggjast á aflamarkskerfinu. Sú sáttaleið sem
stjórnmálamaður þarf að finna byggist þess-
vegna á því að geta sett fram stefnu sem bygg-
ir á aflamarkskerfinu en tryggir jafnframt
jafnræði allra varðandi aðgang að veiðum.
Þetta kerfi sem við setjum fram
gerir það.
Ein sterkasta röksemdin sem
teflt hefur verið gegn stefnu okkar
byggist á því að hún myndi baka
ríkissjóði skaðabótaábyrgð.
Nýuppkveðinn Hæstaréttardómur
í svokölluðu Vatneyrarmáli slær
stoðum undan þessum rökum að mínu viti.
Dómurinn segir líka fortakslaust að núver-
andi stjórnkerfi veiti engum óafturkallanlegt
forræði og myndi ekki eignarrétt á veiðiheim-
ildum. Hæstiréttur leggur svo lykkju á leið
sína og bendir í reynd á að það sé í lagi að taka
meiri fégjöld en gert er í dag. Það er mjög í
anda okkar. Ég tel því að þessi dómur hafi
rutt ýmsum hindrunum úr vegi. í vaxandi
mæli fmnst mér að í stjórnarliðinu séu menn
farnir að ræða um að láta sjávarútveginn
greiða kostnað sem hlýst af ýmiss konar þjón-
ustu sem hann fær. Ég tek eftir að Morgun-
blaðið segir að sá kostnaður liggi fyrir, þannig
að einhversstaðar eru uppi hugmyndir um
Morgunblaðið/Kristinn
hversu há gjöld eigi mögulega að taka. Það er
því e.t.v. ekki eins mikið haf þarna á milli og
margir telja. Þetta mun allt koma í ljós,“ segir
Össur.
Kom upp sú staða að fulltrúi
Kvennalista í forystunni væri í hættu
- Það fór ekki framhjá neinum að á stofn-
fundinum var lagt kapp á að ekki yrði efnt til
deilna og átaka og allt yrði slétt og fellt. Var
það með ráðum gert?
„Það er rétt að menn lögðu sig í framkróka
um að draga úr möguleikum á ágreiningi. Á
fundinum kom t.d. upp sú staða að fulltrúi
Kvennalista í forystu flokksins væri í hættu og
við kosningar til ritara tefldi eitt sterkasta afl-
ið í flokknum, Ungir jafnaðarmenn, fram mjög
efnilegri ungri stjórnmálakonu, Katrínu Júl-
íusdóttur, gegn Steinunni Valdísi Óskarsdótt-
ur. Þessi fundur var þannig að það var alls
ekki hægt að stjórna honum eins og stundum
var líklega hægt á miklu minni fundum gömlu
flokkanna. Fundurinn tók ákvörðun um að
Steinunn Valdís yrði í forystu
flokksins. Ég ímynda mér að það
hafi verið gert vegna þess að menn
vildu halda ákveðnu jafnvægi. Ég
dreg heldur enga dul á að það var
haft í huga við val æðstu forystu-
manna að það gilti ákveðið jafn-
ræði á milli þeirra sem að flokkn-
um komu. En þetta er án efa í síðasta skipti
sem það verður gert. Næst þegar menn koma
til landsfundar verður Samfylkingin orðinn
einn heilsteyptur flokkur.“
Össur segist vilja koma á nýjum vinnu-
brögðum en þeim sem oft mátti sjá í gömlu
flokkunum, sem hann segir að hafi allt of oft
falist í því að láta skerast í odda.
„Menn eiga að ræða sig niður á niðurstöðu
og ég er alveg sannfærður um að spurningin
um framtíðargengi Samfylkingarinnar mun
ekki síst ráðast af þeirri samstöðu og ein-
drægni sem okkur tekst að ná fram í röðum
okkar. En ég kvíði engu í þeim efnum eftir
þennan glæsilega og einhuga fund okkar um
helgina," segir Össur.
- A-flokkarnir hafa þó ekki verið lagðir nið-
ur. Má líta svo á að þeir verði áfram til taks ef
þessi sameiningartilraun gengur ekki upp?
„Nei, ég hef hvergi orðið var við að nokkur
maður hugsi með þeim hætti. Ég get ekki um
það sagt hvenær gömlu flokkarnir verða lagð-
ir niður, en án efa verður það gert,“ svarar
Össur.
Engar deilur spruttu
um Atlantshafsbandalagið
Hann segist hafa rennt nokkuð blint í sjóinn
varðandi það hvernig til tækist á stofnþinginu,
„en ég varð snortinn af því að sjá sitja saman í
salnum gamla alþýðubandalagsmenn og
krata, sem oft á tíðum höfðu vegist á innan
verkalýðshreyfingar og jafnvel á vettvangi
sveitarstjórnar. Ég skynjaði sterklega að
þarna var orðið til eitt sameinað afl. Ég tel að
það séu engar líkur á að það sé hægt að snúa
til baka. Viljinn til þess að vinna saman kom
m.a. fram í því að það spruttu engar deilur um
hið gamla mál, sem forðum klauf þessa hreyf-
ingu í herðar niður, sem er afstaðan til Atl-
antshafsbandalagsins og til hersins. Þó er það
vitað mál að í þessum flokki er að finna menn
sem eru á algerlega á öndverðum meiði við
mig í því máli. Ég vil hins vegar að flokkurinn
verði þannig. Hann á að vera stór og breið
kirkja. Fólk sem er á móti her og Atlantshafs-
bandalaginu á heima þarna alveg einsog sá
meirihluti sem er á hinum kantinum, vegna
þess að svona hreyfing verður að vera nægi-
lega seig og sterk til að lifa af ági'eining um
einstök mál. Það sem bindur okkur eru grunn-
stefin um frelsið og jafnréttið.“
- Það hafa oft komið fram ólíkar áherslur í
málum innan Samfylkingarinnar. Hefurstofn-
un stjórnmálaflokks í för með sér að nú verði
agavaldið aukið og allir knúnir til að tala einni
röddu?
„Nei. Það verður enginn þvingaður til eins
eða neins. Við munum auðvitað öll standa
saman um að reyna að hafa sem minnstan
ágreining og í heilbrigðum flokki er ágrein-
ingurinn ræddur innan vébanda flokksins en
út á við koma menn fram sem ein heild. Annað
ber ógæfuna í sér. Það þýðir ekki að ég ætli að
koma eins og hamar í hausinn á þeim sem
kunna að vera í minnihluta, en minnihlutinn
þarf að virða rétt meirihlutans alveg eins og
meirihlutinn þarf að virða rétt minnihlutans
til þess að koma sínum málum á framfæri inn-
an flokksins."
Hann bendir einnig á að með stofnun
stjórnmálaflokks sé nú orðið til skipulag og
stofnanir, s.s. flokksstjórn, framkvæmda-
stjórn og landsfundur, þar sem hægt sé að
jafna ágreining.
„Þetta var ekki áður. Þingflokkurinn var
eiginlega eina eining hreyfingarinnar en án
nokkurra skipulagslegra tengsla við aðra,“
segir Össur.
Finnst Samfylkingin
ágætt nafn
- Fram kom fyrir þingið að ágreiningur
væri um hvort skipta ætti um nafn á Samfylk-
ingunni en tillögu um nafnabreytingu var vís-
að til nefndar fram að landsfundi. Hver er af-
staða þín íþvímáli?
„Mér finnst Samfylkingin vera ágætt nafn.
Sú nafngift er orðin mér ákaflega töm í munni.
Ég hélt að það yrði miklu sterkari þrýstingur
á nafnbreytingu en raun varð á og hafði sagt
að ef menn vildu breyta nafninu þá myndi ég
ekki leggjast gegn því. Ég held hins vegar að
þetta skipti ekki verulegu máli,“ sagði Össur.
- Hvar staðsetur þú hinn nýja flokk Sam-
fylkingarinnar í litrófi stjórnmálanna?
„Við lítum á okkur sem höfuðandstæðing
Sjálfstæðisflokksins í íslenskum stjórnmálum.
Það er erfitt fyrir menn að festa
merkimiða á okkur og kalla miðju-
flokk eða vinstriflokk vegna þess
að við viljum ná yfir breitt svið í
samfélaginu. Við erum fyrst og
fremst flokkur jafnaðarstefnunn-
ar. Við erum lítil þjóð í stóru landi
sem hefur lifað af hörmungar og
hallæri í gegnum aldirnar vegna samhjálpar.
Það er því ákaflega sterk hefð fyrir samhjálp
og jafnaðarhyggju á íslandi. Þess vegna geri
ég mér vonir um að vel framsett stefna, sem
er sett fram af heiðarleika og án nokkurs
hroka og flokkur sem reynir að skilgreina þau
vandamál sem berja að dyrum og leitar svara
við þeim, eigi mikinn hljómgrunn. Við erum
jafnaðarflokkur og það skiptir mig engu máli
hvort menn vilja kalla hann miðjuflokk eða
vinstriflokk. Mitt starf í stjórnmálum gengur
ekki eftir merkimiðum.“
Flokkar sem kenna sig við jafnaðar-
mennsku hafa horfið frá sósíaliskri hug-
myndafræði og leggja ekki lengur áherslu á
Boðar harðari
stjórnarand-
stöðu eftir
stofnfund