Morgunblaðið - 09.05.2000, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐ JUDAGUR 9. MAÍ 2000 17
Aðalfundur Sambands norðlenskra kvenna
mmm
Vor- og sumarlistarnir
Konur gleymi ekki
sjálfum sér í umhyggju
fyrir öðrum
AÐALFUNDUR Sambands norð-
lenskra kvenna var haldinn í
Sveinbjarnargerði á Svalbarðs-
strönd nú nýlega.
Fundurinn hófst með helgistund
sem Valgerður Valgarðsdóttir
djákni sá um en hún talaði m.a. um
nauðsyn þess að konur gleymdu
ekki sjálfum sér í umhyggju fyrir
öðrum. Til að geta sinnt kærleiks-
verkuin yrðu þær að rækta sjálfar
sig. Það tókst mjög vel á þessum
fundi því þar ríkti mikil eindrægni.
Tilgangur sambandsins er að
efla samstarf og kynni meðal kven-
félagskvenna á Norðurlandi og
vera tengiliður kvenfélagasam-
bandanna á Norðurlandi. Samband
norðlenskra kvenna á að stuðla að
og styðja hvers konar fræðslu og
menningarstarfsemi. Fram kom
tillaga á fundinum um að opna
fundinn meira og hvetja norð-
lenskar konur til að eyða saman
einni helgi á ári.
Á fundinum fluttu erindi Guðrún
Alda Harðardóttir um leikskóla-
kennaradcild Háskólans á Akur-
eyri og Haukur Ágústsson um
Ijarkennslu Verkmenntaskólans á
Akureyri. Einnig sagði ein félags-
konan, Helga Rósantsdóttir, frá
reynslu sinni sem nemandi í dag-
skóla Verkmenntaskólans, en þar
stundar hún nám með unglingum
sem eru yngri en yngstu börnin
hennar.
Að loknum kvöldverði var kvöld-
vaka í boði Kvennasambands Ak-
ureyrar. Daginn eftir skoðuðu
konur Menntasmiðju kvenna,
Punktinn og Minjasafnskirkjuna.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
I sóknarhug
ER AUKIN HASKOLAMENNTUN SVAR VIÐ
ATGERVISFLÓTTA AF LANDSBYGGÐINNI?
Hádegisverðarfundur með Sigríði Önnu
Þórðardóttur, formanni menntamálanefndar
Alþingis, og Þorsteini Gunnarssyni, rektor
Háskólans á Akureyri, á Fiðlaranum, Skipagötu 14,
Mmiðvikudaginn 10. maf frá kl. 12:00 tii 13:00
• Hver er stefna stjórnvalda í uppbyggingu háskólanáms
á landsbyggöinni?
• Er fjarnám framtíðarlausn fyrir ungt fólk á landsbyggð-
inni eða endurmenntun eða símenntun fyrir þá eldri?
• Hvað þætti þarf að bæta til að stórauka námsframboð á
háskólastigi?
• Hvaða nýjar námsgreinar koma til greina við Háskólann
á Akureyri?
• Hvernig tengjum við best atvinnulíf og menntun?
Þátttakendur í aðalfundi Sambands norðlenskra kvenna sem haldinn var í Sveinbjamargerði.
komnir!
Ármúla 17a • S: 588-1980
www.otto.is
Tvö fíkniefnamál
um helgina
17 ára
piltur
tekinn
með 100
g af hassi
ÞRÍR ungir menn voru hand-
teknir þar sem þeir voru við
fíkniefnaneyslu í bíl á Akur-
eyri um helgina.
Við leit í bílnum fundust
100 grömm af hassi sem einn
þeirra, sá yngsti, 17 ára pilt-
ur, viðurkenndi að eiga. Hann
játaði einnig við yfirheyrslur
hjá rannsóknardeild lög-
reglunnar á Akureyri að hafa
ætlað sér að selja fíkniefnin.
í bflnum fundust einnig
tæki til fíkniefnaneyslu og
nokkrir neysluskammtar af
hassi.
Viðurkenndi talsverða
fíkniefnaneyslu
Þremenningarnir viður-
kenndu einnig að hafa verið
við hassneyslu þegar þeir
voru handteknir og eigandi
fíkniefnanna viðurkenndi
einnig talsverða fíkniefna-
neyslu síðustu vikur og mán-
uði. Mönnunum var öllum
sleppt að lokinni yfirheyrslu,
eftir um sólarhring frá að því
þeir voru handteknir.
Annað fíkniefnamál komu
upp á Akureyri um helgina,
en síðasta föstudagskvöld
handtóku menn úr rannsókn-
ardeild lögreglunnar á Akur-
eyri tvo menn í bíl utan við
bæinn þar sem þeir voru að
neyta fikniefna. Lítilræði af
hassi fannst í bíl þeirra.
Skipstjóri sýknaður af
ákæru um fiskveiðibrot
Þetta, og ýmislegt fleira, munu Sigríður Anna og Þorsteinn
fjalla um og svara spurningum fundarmanna.
Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 461 2740
eða á netfangi benedikt@afe.is.
SKIPSTJÓRI í Hrísey hefur í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra verið
sýknaður af ákæru um fiskveiði-
brot, en honum var gefið að sök í
ákæruskjali að hafa verið við rækju-
veiðar innan fiskveiðilandhelgi Is-
lands mánudaginn 7. febrúar síðast-
liðinn norður af Grímsey á svæði
sem afmarkað var með skyndilokun.
Þess var krafist að skipstjórinn
yrði dæmdur til refsingar og til
upptöku á veiðarfærum sem notuð
voru við veiðarnar sem og þeim afla
sem fékkst í umræddri veiðiferð,
um 200 kfló af rækju. Skipstjórinn
neitaði sakargiftum fyrir dómi og
var krafist sýknu af öllum kröfum
ákæruvaldsins.
Flugvél Landhelgisgæslunnar,
sem var við eftirlitsflug undan
Norðurlandi umdræddan dag, varð
vör við bátinn, Svan EA, þar sem
hann var við togveiðar á svæði sem
afmarkað var sem bannsvæði sam-
kvæmt skyndilokun Hafrannsókn-
astofnunar.
í niðurstöðu dómsins kemur fram
að ágreiningslaust sé að skipstjór-
inn hafi verið við veiðar í svonefndri
Paradísarholu, á veiðisvæði sem
skyndilokun Hafrannsóknastofnun-
ar náði til. Tilkynning um skyndi-
lokunina, sem skipstjóranum barst
um svonefnd NAVTEX, hafi hins
vegar verið misvísandi, en að mati
dómsins er það brýn skylda stjórn-
valda að tryggja fullnægjandi birt-
ingu reglna í málum þar sem brot
gegn þeim geta varðað refsingu.
Skipstjórinn var því sýknaður af
þeirri sök ákæruvalds að hann hafi
verið við ólöglegar fiskveiðar innan
landhelgi íslands og kröfum um
upptöku afla og veiðarfæra var
hafnað. Ríkissjóði var gert að
greiða allan kostnað sakarinnar.
hreinsunin
gsm897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
MVKIAVÍK-AKUREYRI-REVKIAVIK .Jljúgðufrekar
•730kr . með flu^vallarsköttun
Bákaðu í síma 570 3030 og 460 7000
FLUGFELAG ISLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.1lugfelag.is