Morgunblaðið - 09.05.2000, Blaðsíða 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
I
Ur dagbók lögreglunnar
Afengi tekið
af unglingum
Helgin 5. til 8. maí
NOKKURT annríki var hjá lög-
reglumönnum þessa helgi og
fengu þeir til meðhöndlunar 580
verkefni. Að venju tengdist lang-
mestur fjöldi þeirra umferðar-
málum eða helgarskemmtunum
borgarbúa og gesta þeirra.
Um helgina varð lögreglan að
hafa nokkur afskipti af ung-
mennum vegna ölvunar þeirra og
óláta. Börnin söfnuðust saman
víðsvegar um borgina. Nokkru
magni af áfengi var hellt niður
og annað haldlagt. Þá hafði lög-
reglan einnig afskipti af tveimur
einstaklingum sem höfðu verið
að kaupa áfengi fyrir ungmenni.
Atján unglingum var ekið í ungl-
ingaathvarf í miðborginni sem
rekið er af lögreglu, ÍTR og Fé-
lagsþjónustunni þangað sem þau
eru sótt af foreldrum.
Um helgina voru 80 ökumenn
kærðir fyrir hraðakstur, þar af
tveir sviptir ökuréttindum á
staðnum.
í eftirlitsmyndavélum lög-
reglu var því veitt athygli að
morgni sunnudags er tveir menn
voru að henda varningi í höfnina.
Lögreglumenn voru sendir á
vettvang og mennirnir hand-
teknir. I fyrstu vildu þeir ekki
kannast við athæfi sitt. Upptök-
ur lögreglu af atburðarás verða
notaðar sem sönnunargögn í
málinu.
Tilkynnt var um reyk í lyftu
Miðbæjarmarkaðarins að kvöldi
sunnudags. Talsverður eldur
reyndist vera í sófa í geymslu á
2. hæð hússins. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn.
Sýna gangandi vegfarend-
um mikið tillitsleysi
Því miður ber mikið á því að
ökumenn sýni gangandi vegfar-
endum mikið tillitsleysi og virði
ekki reglur um bann við stöðvun
og lagningu ökutækja. Þetta má
t.d. sjá í miðbænum í Pósthús-
stræti og Vonarstræti. Um helg-
ina sektaði lögreglan tugi öku-
manna af þessum sökum og
fluttu einnig nokkur ökutæki
brott með kranabifreið. Árekst-
ur varð á Bústaðavegi við Suður-
hlíð síðdegis á föstudag. Annar
ökumanna var fluttur á slysa-
deild vegna áverka.
Snemma á sunnudagsmorgun
var bifreið ekið á hringtorgið á
Hringbraut við Suðurgötu. Virð-
ist sem ökumaður hafi ekki veitt
því athygli að þarna er lykkja á
akstursleið þótt hún ætti ekki að
koma ökumönnum í borginni að
óvörum. Bifreiðin var mannlaus
er lögreglan kom að, báðir fram-
hjólbarðar sprungnir og
skemmdir á felgum og undir-
vagni. Við höggið höfðu tveir ör-
yggispúðar opnast. Unnið er að
frekari rannsókn málsins.
Bifreið fauk útaf Hvalfjarðar-
vegi við Tíðaskarð síðdegis á
sunnudag. Ökumaður og farþegi
hlutu minniháttar meiðsli.
Verðmætum stolið
úr fbúðum
Á föstudag var lögreglu til-
kynnt um innbrot í íbúð í mið-
bænum. Þaðan hafði verið stolið
talsverðum verðmætum af ýms-
um toga eins og hljóðfæri og
veiðibúnaði. Á föstudag var lög-
reglu einnig tilkynnt um innbrot
í íbúð í vesturbænum þaðan sem
stolið var tölvu, geisladiskum og
fjármunum.
Karlmaður var staðinn að
þjófnaði úr skápum sundgesta á
einum af sundstöðum borgarinn-
ar. Maðurinn hafði komið sér
upp 6 lyklum að öðrum skápum
en úr þeim hafði verið stolið und-
anfarið. Maðurinn viðurkenndi
að hafa verið þar að verki.
Á laugardag var haldið árlegt
uppboð lögreglu á óskilamunum.
Fleiri þúsund borgarbúa tóku
þátt í uppboðinu og fóru margir
heim með fjölbreyttan varning
sem þar var boðinn upp.
Reiðhjólin eru algengust en að
þessu sinni voru einnig ýmsir
aðrir hlutir eins og tanngómar
og hjálpartæki ástarlífsins sem
komast hafa í vörslu lögreglu
eftir mismunandi leiðum.
Stuðningur
við frumvarp
um fæðing-
arorlof
STJÓRN Félags ábyrgra feðra
ályktaði á fundi sínum 3. maí eftir-
farandi: „Félag ábyrgra feðra
fagnar þeim réttarbótum sem fram
koma í frumvarpi til laga um fæð-
ingar- og foreldraorlof. Sérstak-
lega vill félagið lýsa stuðningi sín-
um við ákvæði um að eigi barn
foreldri sem fer eitt með forræði
þess skuli barnið engu að síður
eiga rétt á fæðingarorlofi með báð-
um foreldrum sínum.
Þetta er orðað þannig í texta
frumvarpsins: „Forsjárlaust for-
eldri á rétt til fæðingarorlofs liggi
fyrir samþykki þess foreldris sem
\ fer með forsjána um að forsjár-
lausa foreldrið hafi umgengni við
barnið þann tíma sem fæðingar-
orlof stendur yfir. ...„Félag
ábyrgra feðra hvetur alla feður til
að rækja vel skyldur sínar við öll
börn sín og telur að umrætt frumv-
arp sé skref í þá átt að feðrum sé
, gert kleift að rækja foreldrahlut-
J verk sitt betur.“
Aðalfundur
FAAS
AÐALFUNDUR FAAS, félag
aðstandenda Alzheimersjúklinga,
verður haldinn á morgun, miðvikudag-
inn 10. maí, í fundarsal Thorarensen -
Lyf, Vatnagörðum 18 í Reykjavík.
Fundurinn hefst kl. 20 og íyrir utan
venjuleg aðalfundarstörf mun Jón
Snædal, öldrunarlæknir, flytja erindi.
Félagsmenn eru hvattir til að fjöl-
menna og taka með sér gesti.
-----^4-4----
Afhenti
trúnaðarbréf
JÓN Egill Egilsson sendiherra af-
henti 5. maí sl. í Ashkabad í Túrk-
menistan trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra íslands í Túrkmenistan,
með aðsetur í Moskvu.
-----+++-----
■ NEMENDUR Vogaskóla árgang-
ur 1959 ætlar að hittast á Þingvöllum
laugardaginn 27. maí. Mæting er við
Vogaskóla kl. 18.30. Farið verður í
rútu í Valhöll á Þingvöllurn. Þátttöku-
gjald er 3.000 kr. og greiðist það fyr-
irfram inn á reikningsnúmer Islands-
banka: 526-14-602799. Skráning er á
netfangið bjami(S)centrum.is
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð sýning en
veitingar til
skammar
HELGINA 29.-30. apríl
var sýningin Handverk og
ferðaþjónusta haldin í
Laugardalshöllinni. Mér
fannst sýningin mjög góð,
þar var mikið um fallegt ís-
íenskt handverk. Það er al-
veg ljóst að þjóðin á marga
góða listamenn.
Ferðaþjónustan var
nokkuð vel kynnt og þar
var margt nýtt að sjá. Það
er mjög gaman að sjá hvað
fólk úr hverjum landshluta
hefur lagt mikla vinnu í að
koma sínum hlutum á
framfæri og allir reyna að
keppast við að bjóða eitt-
hvað sem hinir hafa ekki.
Vinnan á bak við alla þessa
þætti er ómælanleg og sýn-
ir glöggt vilja fólksins til að
auðga land og þjóð.
Þegar búið er að ganga
um svona stórt og yfir-
gripsmikið sýningasvæði í
margar klukkustundir, fer
mann að þyrsta og jafnvel
segir hungrið til sín. Á leið-
inni inn á svæðið var uppi
skilti sem á stóð „café
Dima“. Þessi auglýsing leit
þokkalega út, og í mínum
huga er „café“ eitthvað
sem hljómar lystaukandi.
Það lá við að ég fengi
„kúltúrsjokk" þegar ég
kom að afgreiðsluborði
kaffihússins. Þar var ekki
mikið um fallegt handverk.
Matargerð er jú handverk
og hlýtur að eiga að vera
landkynning eins og annað
sem á sýningunni var.
Á boðstólum var pasta-
salat í plastbökkum sem
illa sást í gegnum, annað-
hvort vegna þess að því
hafði verið lokað heitu eða
plastið ekki nógu gegn-
sætt.
Köld rúnnstykki með
bræddum osti, eflaust búin
til fyrr um daginn, jafnvel
deginum áður. Pizzasneið-
ar, einnig kaldar, trúlega
aðsendar frá einhverjum
pizzastaðnum. Hefðbundn-
ar íslenskar samlokur í
plastpoka, fjórar tegundir,
með hangikjöti, roastbeef,
rækjum ogtúnfiski.
Skúffukaka og á hana
sprautað rjóma. Drykkjar-
vörur á boðstólum voru
rauðvín, bjór, kaffi og gos.
Allt var þetta sett Vá plast-
glös eða pappadiska. Ekki
var hægt að fá rúnnstykkið
og pizzasneiðina hitað.
Hvaða þjóðfélagshópi er
verið að þjóna? Eg þekki
ekki fólk sem neytir slíkrar
fæðu í kaffitímanum. Hvert
er íslensk matarmenning
að fara?
Kaffihúsið var mjög
óvistlegt í alla staði. Það
var bæði þeim sem reka
Laugardalshöllina og þessa
góðu sýningu sem þarna
var til mikillar skammar.
Er nema von að stór
hluti þjóðarinnar sé illa
nærður og akfeitur.
Nú til dags eru sett lög
um marga hluti. Hvernig
væri að hið háttvirta Al-
þingi myndi setja „lög“ um
mannsæmandi aðsöðu til
borðhalds og „góðan mat“
á opinberum sýningum.
Reykjavík 4. maí 2000,
Guðrún Þóra
Iljaltadóttir,
næringarráðgjafi.
Þakkir til Plúsferða -
og aðgengi hjólastóla
HULDA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma á framfæri þökkum
til ferðaskrifstofunnar
Plúsferða fyrir framúr-
skarandi þjónustu.
Einnig langaði hana að
varpa fram þeirri spurn-
ingu til forráðamanna
Laugardalshallarinnar
hvort ekkert aðgengi sé
fyrir hjólastóla í Laugar-
dalshöll? Hún var á sýning-
unni Handverk og ferða-
þjónusta í Laugardals-
höllinni um síðustu helgi og
vinkona hennar sem notar
hjólastól átti í mestu erfið-
leikum með að komast inn í
húsið.
Tapad/fundið
Lok af myndavélar-
botni tapaðist
LOK af myndavélarbotni af
gerðinni Contax, þar sem
rafhlöðurnar eru, tapaðist,
sennilega í vesturbæ ná-
lægt Aflagranda, Melhaga
eða Kaplaskjólsvegi. Lokið
er svart 14 cm að lengd og
SVz cm á breidd. Þetta er
mjög bagalegt fyrir eig-
andann. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband við Karl í
síma 551-8510.
Barnagleraugu
töpuðust
BARNAGLERAUGU töp-
uðust í eða við Háteigs-
skóla eða í eða við
Klambratún föstudaginn
28. apríl. sl. Umgjörðin er
gyllt með brúnum örmum.
Upplýsingar gefur Þórunn
í vs. 568-1000 eða 553-1000.
Cannon-myndavél
fannst
LITIL Cannon-myndavél
fannst í miðbæ Reykjavík-
ur í lok janúar. Upplýsing-
ar í síma 551-0912.
Rúskinnsjakki
tapaðist
DÖKKMOSAGRÆNN
rúskinnsjakki, hálfsíður,
tapaðist í byrjun mars á
Stór Reykjavíkursvæðinu.
Jakkinn er með svörtum
uppslögum á ermum og
einnig á hornunum. Jakk-
ans er sárt saknað. Upplýs-
ingar í síma 567-3435.
Dýrahald
Persnesk læða
hvarf að heiman
GÖMUL persnesk læða,
brúnbröndótt, hvarf frá
Flétturima. Hún fer aldrei
út úr húsi. Upplýsingar í
síma 587-0766 eða 699-
2728.
Læða og kisustrákur
óska eftir heimili
ÁRSGÖMUL hvít læða og
sjö vikna kassavanur kisu-
strákur óska eftir góðu
heimili. Upplýsingar í síma
699-5680.
Morgunblaðið/RAX
Víkverji skrifar...
FÉLAGI Víkverja ákvað nú á vor-
dögum að ráðast í sólpallasmíði
í garði sínum, sér og öðrum til
ánægju. Hann verður nú seint talinn
til handlagnari manna en hann hafði
eigi að síður fullan hug á að takast
sjálfur á við verkefnið. Áskorunin
var talsverð og félaginn kynnti sér
strauma og stefnur í hönnun sólpalla
og hripaði þvi næst niður á blað út-
línur og mál að fyrirhuguðu mann-
virki. Hann gerði sér vissulega grein
fyrir því að einhverjar spýtur þyrfti
að reka saman en þóttist þess full-
viss að með góðra manna hjálp
myndi hann að lokum ná að klambra
saman pallinum.
Hann leitaði þess vegna til þeirra
verzlana sem að undanförnu hafa
dreift til landsmanna litfögrum
bæklingum með myndum af sólpöll-
um, skjólveggjum og sundlaugum í
glæsilegum görðum um alla borg.
Kunninginn kom því fullur bjartsýni
að máli við starfsmenn þessara
verzlana. Hann var hins vegar býsna
fávís um þá verklegu framkvæmd
sem hann hugðist nú ráðast í. Og þar
hófst þrautagangan. Það var einmitt
komið fram við kunningjann sem
hinn fávísa kúnna og fátt umfram
það. Honum gekk erfiðlega að fá
upplýsingar um hvaða efni, lengdir
og stærðir væri bezt að nota og enn
síður hvemig hann ætti að nota þau.
Þegar síðan þekkingu kunningjans
þraut, þraut um leið þolinmæði
starfsmannanna og viðræður um
væntanleg viðskipti fóm út um þúf-
ur. Kunninginn gerði nokkrar til-
raunir á mismunandi tímum dags og
viku til að hitta á betur lundaða
starfsmenn en allt kom fyrir ekki. Að
lokum fór því svo að kunninginn leit-
aði á náðir tengdapabba eins og svo
oft áður og nú er búið að smíða þenn-
an fyrirtaks sólpall í bakgarði kunn-
ingjans. Hann hugsar sér gott til
grillglóðarinnar á pallinum í sumar
og verður reynslunni ríkari í næstu
glímu við starfsmenn timburverzl-
ana hér í bæ.
xxx
Félag sjúkraþjálfara á íslandi átti
afmæli fyrir skömmu og var við
það tækifæri gerð grein fyrir starf-
semi félagsins og sögu þess á síðum
Morgunblaðsins. Sjúkraþjálfarar
vinna mikið og gott starf. Það vita
þeir sem notið hafa aðstoðar þeirra.
Fátt er mikilvægara en að þjálfa fólk
sem hefur slasazt eða veikzt til að
takast á við lífið á ný. Fólk þarf í
mörgum tilfellum að læra að ganga á
ný, tala og hugsa. Þökk sé störfum
sjúkraþjálfara getur fólk staðið upp-
rétt eftir erfið veikindi og slys og
haldið áfram að njóta lífsins. Víkverji
leggur oft leið sína á endurhæfingar-
stöðina á Grensási. Það er greinilegt
að þar er unnið gott starf.