Morgunblaðið - 09.05.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 23
VIÐSKIPTI
Eignarhaldsfélag Kringlunnar og Þyrping sameinast
Nýtt félag á hlutabréfa-
markað innan árs
STJÓRNIR Eignarhaldsfélagsins
Kringlunnar hf. og Þyrpingar hf.
hafa samþykkt áætlun um samruna
félaganna. Samrunaáætlunin þarf
samþykki hluthafafunda beggja fé-
laganna og er áætlað að þeir verði
haldnir um miðjan júní næstkom-
andi.
Sigurður Gísli Pálmason, stjórn-
arformaður Þyrpingar hf., segir að
við samrunann verði til stórt og öfl-
ugt fyrirtæki sem sérhæfi sig í fast-
eignarekstri. „Félagið verður að
miklum meirihluta í eigu þeirra að-
ila sem standa að Þyrpingu. Síðan
stefnum við að því að selja eitthvað
af okkar hlut, gera félagið að al-
menningshlutafélagi og fara á
hlutabréfamarkað innan árs,“ segir
Sigurður Gísli.
Hann þorir ekki að spá fyrir um
hversu mikill hluti af bréfum í fé-
laginu verði seldur til fjárfesta en
segir þó Ijóst að verulegt magn
bréfa verði að selja til þess að nægi-
leg velta verði með þau á markaði.
Aðspurður segir Sigurður Gísli
að helsta ástæða samrunans sé að
styrkja sóknarmöguleika félaganna
í fasteignarekstri, þróunarvinnu og
skyldri starfsemi. „Það eru töluverð
eignatengsl á milli félaganna og það
er einnig hvati til sameiningar. Við
byggjumst efla starfsemina með
margvíslegum hætti. Samruninn
veitir styrk til að takast á við ný og
stærri verkefni á þeim vettvangi
sem félögin hafa haslað sér völl.“
Sigurður Gísli bendir á að sam-
einað félag verði það eina hérlendis
sem bæði þrói verkefni og fram-
kvæmi. „Önnur félög í sama geira
hafa nánast undantekningarlaust
verið háð verktakafyrirtækjum, þ.e.
að þau þróa verkefnin og verktak-
arnir sjá síðan um framkvæmdirn-
ar.“
Rúmlega 10 milljarða kr. eignir
Bókfærðar eignir hins sameinaða
fasteignafélags nema rúmlega 10
milljörðum króna og eigið fé 2,9
milljörðum. Heildarflatarmál fast-
eigna er um 100 þúsund fermetrar.
Eignirnar, sem að mestu leyti eru í
langtímaleigu, eru verslunar-, þjón-
ustu- og skrifstofuhúsnæði.
Áætlað er að samanlögð velta
Eignarhaldsfélagsins Kringlunnar
og Þyrpingar verði rúmlega 1,1
milljarður króna árið 2000. Gert er
ráð fyrir að hagnaður fyrir vaxta-
kostnað, skatta og afskriftir verði
um 800 milljónir króna.
Eignarhaldsfélagið Kringlan hf.
var stofnað árið 1998. Að því standa
fjölmargir eigendur og rekstrarað-
ilar í Kringlunni. Stærstu hluthafar
eru íslenska fasteignafélagið hf.,
sem er að miklu leyti í eigu Islands-
banka og FBA, Þyrping hf. og Hof
hf. Hluthafar eru alls 74 talsins,
einstaklingar og fyrirtæki. Þyrping
hf. var stofnuð árið 1991 til að halda
utan um fasteignir Hagkaups. Fé-
lagið hefur keypt ýmsar fasteignir
til viðbótar á þeim tæpa áratug sem
liðinn er frá stofnun þess.
Að sögn Sigurðar Gísla Pálma-
sonar hefur enn hvorki verið ákveð-
ið hvert nafn sameinaða félagsins
verður né hvernig stjómunarstöður
í því verða skipaðar. „Það kemur í
hlut nýrrar stjórnar að ráða þeim
málum. En hjá félögunum er ágæt-
isfólk í vinnu og ég á ekki von á
öðru en það verði allt áfram.“
Opin kerfi birta ársfiórðungsuppgjör
Hagnaður móðurfélags
37 milljónir króna
AFKOMA samstæðu Opinna kerfa
hf., að loknum íyrsta ársfjórðungi
þessa árs, var 101,6 milljóna króna
hagnaður. Þetta kemur fram í óend-
urskoðuðu uppgjöri samstæðunnar
sem birt var í gær.
Hagnaðurinn fyrir sama tímabil í
fyrra nam 45,8 milljónum króna og
hefur hann því aukist um rúmar 55
milljónir á milli ára.
Hagnaður samstæðunnar án
áhrifa dótturfélaga var 151,4 milljón-
ir króna, en samstæðuna mynda
móðurfélag Opinna kerfa, Skýrr og
Tölvudreifing. Þá var samtals hagn-
aður dóttur- og hlutdeildarfélaga 64
milljónir. Hlutdeildarfélög Opinna
kerfa eru Teymi, Aco, Tæknival,
Grunnur og Element.
Hagnaður móðurfélagsins nemur
37,3 milljónum króna á fyrsta árs-
fjórðungnum, miðað við 42 milljóna
kr. hagnað á sama tímabili árið áður.
I afkomutilkynningu frá Opnum
kerfum kemur fram að söluhagnaður
eigna hjá móðurfélaginu var óveru-
legur á tímabilinu, eða 1,3 milljónir
króna. Heildarvelta samstæðunnar á
tímabilinu var 1.398 milljónir króna,
en var á sama tíma í fyrra um 820
milljónir króna. Veltuaukning móð-
urfélags er á sama tíma 35%.
Fram kemur að útlit fyrir árið
2000 í heild sé gott. Afkoma fyrsta
ársljórðungs hafi verið betri en búist
var við, en á þessu stigi telur félagið
þó ekki ástæðu til að breyta áætlun
félagsins um heildarhagnað ársins
2000.
Sameinaður banki
íslandsbanka og FBA
Framboðsfrest-
ur til bankaráðs
rennur út í dag
FRESTUR til að skila inn fram-
boðum til bankaráðs sameinaðs
banka íslandsbanka og Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins rennur
út í dag kl. 17, en hluthafafundur
þar sem kosning í bankaráðið fer
fram verður haldinn mánudaginn
15. maí næstkomandi.
Þegar sameining bankanna
tveggja var tilkynnt var því lýst
yfir að bankaráð Islandsbanka og
stjórn FBA myndu leggja til við
hluthafafundi félaganna að
bankaráð sameinaðs banka yrði
skipað sjö mönnum.
Þá væri tillaga um að stjórnar-
formaður sameinaðs banka yrði
Kristján Ragnarsson, formaður
bankaráðs íslandsbanka, og Eyj-
ólfur Sveinsson, varaformaður
stjómar FBA, en Magnús Gunn-
arsson, formaður stjórnar FBA,
gefur ekki kost á sér til setu í
bankaráðinu. Kosning í banka-
ráðið fer fram með margfeldis-
kosningu, þannig að hvert at-
kvæði er notað einu sinni við
kosningu allra stjórnarmanna í
einu.
Samkvæmt hluthafalista frá
því tilkynnt var um sameininguna
í síðasta mánuði eru tíu stærstu
hluthafar hins sameinaða banka
FBA Holding SA, dótturfélag
Orca SA, með 14,64%, Lífeyris-
sjóðurinn Framsýn með 7,35%,
Lífeyrissjóður verslunarmanna
með 7,04%, Burðarás með 3,79%,
Sjóvá-Almennar tryggingar með
2,93%, Lífeyrissjóður sjómanna
með 2,38%, Partimonde Holdings
Anstalt með 2,09%, Eignarhalds-
félagið Alþýðubankinn hf. með
1,88%, Kaupþing Luxembourg
S.A. með 1,61% og íslenska
skipafélagið ehf. með 1,57%.
Lítil viðskipti
með deCODE
LÍTIL viðskipti voru með hlutabréf
deCODE Genetics á gráa markaðn-
um í gær. Flest viðskiptin voru á
genginu 29-30 dollarar á hlut sem er
það sama og lokagengi föstudagsins
þegar Morgan Stanley Dean Witter,
sem er umsjónaraðili fyrir skráningu
deCODE á Nasdaq, tilkynnti að fyr-
irhugað útboðsgengi á 8 milljón hlut-
um í félaginu væri 14-18 dollar á
hlut.
Við þessar fréttir lækkaði gengi
deCODE um 25% á gráa markaðn-
uin. Krónan veiktist lítillega á fóstu-
dag og aftur í gær en síðdegis í gær
stóð hún í 108,7.
I morgunpunktum Kaupþings í
gær kemur fram að rekja megi lækk-
unina að hlut til þess að væntanlegt
útboðsgengi deCODE væri lægra en
búist hafði verið við.
Hefur það þau áhrif að gjaldeyris-
streymi verður minna til landsins
eftir að félagið hefur öðlast verð á
skipulögðum verðbréfamarkaði er-
lendis.
Riverside Management Group
RIVERSIDE HOLDINGS II L.P.
1
Burnham International á íslandi Riverside Holdings er í umsjón Riverside Management Group sem sérhæfir sig í fjárfestingum í
býður íslenskum fjárfestum fyrirtækjum í upplýsingaiðnaði. Sérfræðingar þess beina sjónum sínum að nýjum fyrirtækjum
einstakt tækifæri til ávöxtunar sem ætla má að aukist mjög að verðmæti við sölu eða almennt hlutafjárútboð.
í einum framsæknasta Sérþekking og reynsla forsvarsmanna Riverside Holdings hafa nú skilað
fjárfestingasjóði heims, þvj u_þ b. 200% ávöxtun frá maí 1999.
Riverside Holdings II LP. ,
Leitaðu nánari upplysinga hjá: Jóhanni Magnúsi Olafssyni (510 1601, johann@burnham.is),
Jóni Finnbogasyni (510 1606, jon@burnham.is), Ragnari Má Gunnarssyni (510 1602,
ragnarg@burnham.is), Þorsteini Inga Garðarssyni (510 1605, thingi@burnham.is).
BURNHAM
INTERNATIONAL
- Rétt að byrja -
BURNHAM INTERNATIONAL Á ÍSLANDI HF. ENGJATEIGUR 9, 105 REYKJAVÍK SÍMI: 510 1600, FAX: 588 0058. NETFANG: BURNHAM@BURNHAM.IS, VEFFANG: WWW.BURNHAM.IS