Morgunblaðið - 09.05.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 09.05.2000, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunbiaðið/Porkell Leifur Örn Svavarsson og Guðjón Marteinsson. Klífa Forel-fjall á Grænlandi V er ðugt verk- efni fyrir fjall- göngumenn TVEIR íslenskir fjallgöngumenn; Leifur Öm Svavarsson og Guðjón Marteinsson leggja í dag af stað áleiðis til austurstrandar Grænlands þar sem þeir hyggjast freista þess að klífa Forel-fjall. Fjallið er rétt norð- an við heimskautsbaug, 3.400 metra hátt. Leifur Öm segir leiðangurinn, sem kenndur er við útivistarverslun- ina Nanoq, verðugt verkefni fyrir fjallgöngumenn því fjallið sé gríðar- lega einangrað og afskekkt, það hafi heldur aldrei fyrr verið klifið svo snemma árs né sama leið farin og ráðgert er. Leifur og Guðjón em ekki alls óvanir fjallaklifri á þessum slóðum því síðasta sumar klifu þeir við þriðja mann hæstu fjallstinda Grænlands. Leiðangursmennirnir taka sér far með flugvél frá Flugfélagi íslands til Kulusuk í dag. Þaðan taka þeir þyrlu til Tasiilaq, höfuðstaðar Austur- Grænlands, og síðan til þorpsins Is- ortoq sem er við rætur Grænlan- dsjökuls. Farið með hundasleðum að f jalliini Þar hafa fjallgöngumennimir mælt sér mót við tvo grænlenska veiðimenn sem ætla að aðstoða þá yf- ir jökulinn að Forel-fjalli. „Okkur er sagt að þeir tali ekki dönsku, bara grænlensku," sagði Leifur í samtali við Morgunblaðið. Hann bíður því spenntur eftir að sjá hvemig tjá- skipti milli þeirra muni ganga. Áætlað er að leiðangurinn ráðist til atlögu við jökulinn á fimmtudag. Farið verður á hundasleðum og gert er ráð fyrir að ferðalagið að fjalla- klasanum sem geymir Forel-fjall taki fimm til sex daga. Þar skilur leiðir með fjallgöngumönnunum og grænlensku veiðimönnunum og fjallaklifrið hefst. Talið var að Forel-fjall væri hæsta fjall Grænlands fram á miðja þessa öld. Á annan tug leiðangra hefur klif- ið fjallið fil þessa, flestir eftir 1970 en þá varð heimilt að lenda skíðaflug- vélum í nágrenni fjallsins. Mikill kuldi og vindur Vegna þess hve snemma árs er af stað farið eiga fjallgöngumennimir von á strekkingsvindi og miklum kulda, allt að 20 gráða frosti, sem geti gert þeim erfitt fyrir en á móti kemur að líklega verða aðstæður fyrir ferðina til byggða ákjósanlegar. Leifur og Guðjón vonast til að jök- ulsprungur á leið þeirra frá fjallinu til þorpsins Kuummiit verði að mestu lokaðar en leiðin þangað er 150 km löng ef miðað er við loftlínu og er gengið um þéttriðið net skrið- jökla og fjallaskarða. Frá Kuummiit halda leiðangursmenn með báti til Kulusuk þar sem þeir ná áætlunar- flugi til Islands á ný. Leifur segir stefnt að því að ferðinni ljúki í lok júnímánaðar. konan OO SVNOUfl OUÐMUNDSSON Þríkynja skáldsaga Ný bók eftir Sigurð Guðmundsson, höfund Tabúlarasa, um konuna, kallinn og hulstríð i okkur öllum - fyndin, djúp og Ijóðræn. iMí Mál og menninglfejflB malogmenning.is I JvJ I Laugavegi 18 • Síml 515 2500 • Síöumúla 7 • Slml 510 2500 Una Björk Omarsdóttir, unnusta Haraldar Arnar pólfara, sækir mann sinn á norðurpólinn Mikils virði að fá að hittast á þessum óvenjulega stað Morgunblaðið/Sverrir Una Björk Ómarsdóttir, unnusta Haraldar Arnar Ólafssonar pólfara, var í óða önn að pakka niður í gær fyrir ferðalagið á norðurpólinn, en þar ætlar hún að hitta mann sinn á fimmtudag eða föstudag. UNA Björk Ómarsdóttir, lögfræð- ingur og unnusta Haraldar Arnar Óiafssonar pólfara, var í óða önn að pakka niður í gær fyrir ferðalagið á norðurpólinn, en þar ætlar hún að hitta mann sinn á fímmtudag eða föstudag. „Ég er full eftirvæntingar og það verða fagnaðarfundir eftir allan þennan tíma. Við höfum ekki sést síðan 1. mars. Það verður auðvitað mikið ævintýri fyrir mig að fá tæki- færi til að fara alla leið á norðurpól- inn til að taka á móti Haraldi. Ég hlakka mikið til,“ sagði Una Björk í samtaii við Morgunbiaðið. Hún heldur til Boston í Banda- ríkjunum í dag og áfram til Ottawa en þaðan fer hún til Resolute í Norður-Kanada á miðvikudag. Hún verður sfðan í för með Twin Otter- skíðaflugvél kanadíska flugfélags- ins First Air sem fer frá Resoiute á Norðurpólinn á fímmtudag, ef veð- ur ieyflr, til að sækja Harald Öm. „Fjárfestingarbanki atvinnu- lífsins var svo rausnarlegur að láta mér eftir sæti sitt í kanadísku flug- vélinni sem fer á norðurpólinn og Flugleiðir buðu mér flugfarið til Boston. Það er auðvitað mjög mikils virði fyrir okkur Harald að fá tæki- færi til að hittast á þessum óvenju- lega stað - norðurpólnum. Ég hlakka mikið til,“ sagði Una Björk. Orðin vön fjarvistum bóndans Hún er ekki óvön því að sjá ekki bónda sinn í svona langan tfma. Þegar hann gekk á suðurpólinn 1997 var hann jafnlengi í burtu og nú, eða tvo og hálfan mánuð. „Ég er orðin vön þvíað hann sé í burtu svona lengi. Ég reyni að láta þetta sem minnst á mig fá.“ - Þessi leiðangur er kannski öðruvísi en aðrir sem Haraldur hef- ur tekið þátt í vegna þess að nú hef- ur hann verið einn úti á ísnum eftir að Ingþór Bjamason fór heim. Þú hlýtur að hugsa oft til hans? „Já, hugur minn er stöðugt hjá honum. Ég treysti honum vel til að fara varlega og ég veit að hann er varkár og yfirvegaður. Ég hef reynt að hafa ekki miklar áhyggjur af honum. Það var óneitanlega áfall þegar Ingþór þurfti að snúa við. En mér fannst ekki annað koma til greina en að Haraldur héldi áfram því hann var við mjög góða heilsu. Ég studdi hann alveg heilshugar í því að halda áfram þegar ljóst var að Ingþór yrði að fara heim vegna kals.“ Mun kannast við nefbroddinn - Var ekki erfiðara að vita af hon- um einum út á heimskautaísnum? „Jú, en það hefur hjálpað mikið að geta talað við hann reglulega í gegnum Iridium-gervihnattasíma. Við höfum verið í talsambandi þriðja hvern dag eftir að hann varð einn. Það er stórkostleg breyting frá fyrri ferðum hans að geta verið í súnasambandi og það er Iridium- símanum að þakka.“ Nú á Haraldur aðeins 60 kíló- metra ófarna á pólinn og hillir und- ir að hann nái takmarkinu á flmmtudag. „Það er orðið mjög stutt eftir og eftirvæntingin er mik- il. Það er reiknað með að Haraldur verði sóttur á fimmtudaginn ef veð- ur leyfir. Það er ekki hægt að lenda á pólnum nema það sé sólskin og heiðríkja. Við verðum því að vona að veðrið verði okkur hagstætt og ég fái að sjá hann á fimmtudaginn.“ - Hvað verður það fyrsta sem þú segir við Harald þegar þú hittir hann á norðurpólnum? „Það verða orð honum einum ætluð.“ - Haraldur er væntanlega orðinn skeggjaður mjög, ertu viss um að þú þekkir hann aftur? „Já, ætli ég kannist ekki við nef- broddinn á honum. Ég hef nú Iíka séð hann með mikið skegg áður þannig að það verður ekkert nýtt fyrir mig.“ Stefnir að því að ná pólnum á morgun HARALDUR Öm Ólafsson pólfari stefnir að því að komast á norður- pólinn á morgun, miðvikudaginn 10. maí, eftir átta vikna göngu. Hann átti 59,5 km eftir ófarna á mánudagsmorgun og hugðist nota þrjá göngudaga til að ljúka þeirri vegalengd sem eftir er. Á sunnudag gekk Haraldur 20 km og krækti fyrir margar vakir á leið sinni. Ekki er útséð um hversu mikill farartálmi þær gætu reynst á siðustu kílúmetmnum og viðbúið að Haraldur verði fyrir töfum af þeirra völdum eða annarra hindr- ana. Hann gerði bakvarðasveit sinni ljóst í gær að hann teldi krók betri en keldu og sagðist myndu fara varlega á viðsjárverðum vaka- svæðum nú sem fyrr. Bakvarðasveitin heldur utan í dag Á sunnudag skein sólin á Harald í fyrsta skipti í eina og hálfa viku og kvaðst hann hafa verið mjög ánægður með það eftir svo langan tíma. Ský dró hins vegar fyrir sólu seinnipart dagsins og var enn al- skýjað og blint á mánudagsmorgun, auk þess sem snjóað hafði þá um nóttina. „Ferðin gengur vel og maður fyllist, gleði og spenningi þegar nær dregur ferðalokum. Þetta eru létt spor þótt dagarnir séu langir og orkufrekir, því ánægjan er svo mik- il yfir því að sjá vegalengdina rninnka," sagði Haraldur í samtali við bakvarðasveitina í gær. Bakvarðasveit Haralds, skipuð Ingþóri Bjarnasyni, Unu Björk Óm- arsdóttur eiginkonu Haralds, Skúla Björnssyni og Halli Hallssyni, flýg- ur tii Boston í dag, þriðjudag, og til Resolute Bay á morgun, miðviku- dag. Þar verður ákvörðun tekin um framhaldið en gróf áætlun gerir ráð fyrir að flogið verði til birgða- stöðvarinnar á Evreka á miðviku- dagskvöld eða snemma næsta dags og Haraldur þá sóttur út á ísinn. Gert er siðan ráð fyrir að pólfarinn komi með bakvarðasveitinni til ís- lands á mánudag. Norðmennirnir Rune Gjeldnes og Torry Larsen hafagengið um 260 km frá pólnum áleiðis til Ward Hunt-eyju og nálgast með degi hveijum það takmark að ganga án utanaðkomandi stuðnings þvert yf- ir Norður-íshafið. Takist þeim að komast til Ward Hunt-eyju í byijun júnímánaðar eftir fjögurra mánaða göngu verða þeir fyrstir til að ljúka því tröllaukna verkefni að ganga 2.100 km á ísnum án stuðnings. Ni'u leiðangrar hafa reynt hið sama en ekki haft erindi sem erfiði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.