Morgunblaðið - 09.05.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 11
FRÉTTIR
aukin ríkisafskipti en aðhyllast markaðsbú-
skap. Ossur var spurður hvernig hann greindi
Samfylkinguna frá stefnu hægri flokka og
hvar mörkin væru á milli Samfylkingarinnar
og Sjálfstæðisflokksins.
„Ef við lítum á stjórnmál dagsins í dag þá er
það mín skoðun að Sjálfstæðisflokkurinn
standi enn varðstöðuna fyrir stórfyrirtækin.
Hann er í forystu ríkisstjórnar sem hefur t.d.
nýlega lagt fram frumvarp sem grípur bein-
línis inn í opna og heiðarlega samkeppni á
sviði farmflutninga. Annað dæmi má taka.
Sjálfstæðisflokkurinn vill af nokkru offorsi
selja allan Landssímann. Eg hef sagt að ég
sjái ekkert athugavert við að flytja samkeppn-
ishluta Landssímans yfir til einkamarkaðar-
ins en ég hef hins vegar hafnað því að dreifi-
kerfi símans verði selt. Astæðan er sú að
flesta vaxtarsprota í atvinnulífinu er að finna
meðal þessara nýju og kornungu frumkvöðla á
sviði hugbúnaðargeirans, sem eru að skapa
ómæld verðmæti í dag. Allir eiga þeir það
sameiginlegt að þeir þurfa að geta selt sínar
afurðir út um allan heim og það er ekki hægt
að bjóða þeim upp á að gera það í gegn um
dreifikerfi, sem er í höndum stærsta sam-
keppnisaðilans. Sjálfstæðisflokkurinn vill
engu að síður selja þetta allt í einu lagi og er
ekkert að hugsa um þessi litlu fyrirtæki. Þetta
er eitt þeirra mála sem aðgreinir okkur.
Enn eitt stórmál sem gi-einir okkur frá
Sjálfstæðisflokknum eru sjávarútvegsmálin.
Við tölum máli fjöldans og segjum afdráttar-
laust að fiskimiðin, sem er ein helsta auðlind
okkar ef mannshugurinn er frátalinn, eigi að
vera í höndum allrar þjóðarinnar. Sjálfstæðis-
flokkurinn berst enn fyrir því að fiskimiðin
séu í höndum fárra útvalinna. Eg óttast líka
mjög að Sjálfstæðisflokkurinn sé að búa sig
undir að nota sitt mikla afl til að innleiða
einkavæðingu í heilbrigðis- og menntakerfinu.
Gegn því leggjumst við alfarið og þar er ákaf-
lega skarpur greinarmunur á okkur og Sjálf-
stæðisflokknum. Þó við leggjumst ekki gegn
því að ríkisfyrirtæki á borð við Landsbanka og
Búnaðarbanka séu samkeppnisvædd, þá drög-
um við línuna þar. Jafnaðarmenn eru þeirrar
skoðunar að menn eigi ekki að geta
keypt sér forgang. Eg vil t.d. ekki
horfa framan í þann heim þar sem
dætur mínar geta ekki orðið sér úti
um bestu menntun sem völ er á hér
á landi nema að borga fyrir hana,“
segir Össur.
Skýrar leikreglur
- I stefnulýsingu stofnfundar Samfylking-
arinnar er að fínna eftirfarandi setningu:
„Samfylkingin styður frjálsa og heilbrigða
samkeppni og aðhyllist markaðsbúskap en
hlutverk ríkisvaldsins er að setja markaðsöfi-
unum þær leikreglur sem tryggja að almanna-
hagsmunir ríki en sérhagsmunir víki.“ Gæti
þessi setning ekki eins verið tekin upp úr
stefnuskrá hefðbundins hægri flokks, sem
boðar frjálshyggju?
„Það er margt sem þú getur fundið í stefnu
Sjálfstæðisflokksins sem hefur upphaflega
orðið til í smiðju jafnaðannannaflokka. Samt
er Sjálfstæðisflokkurinn ekki jafnaðarmanna-
flokkur. Efalítið geturðu fundið einangrað at-
riði í stefnuskrá Framsóknarflokksins sem
Samfylkingin getur skrifað upp á. Dugar það
til að halda fram að hún sé hálfgerður Fram-
sóknarflokkur? Vitaskuld ekki. Við erum að
endurnýja okkar hugmyndalega farteski og
laga það að nútímanum. Hluti af því felst í að
stokka upp viðhorf okkar gagnvart markaðn-
um. Systurflokkar okkar víðsvegar um heim-
inn hafa oft nálgast markaðinn með varfærn-
um huga, jafnvel sýnt honum fullan fjandskap.
Við erum þeirrar skoðunar að eins og
markaðshagkerfið hefur þróast sé það gott
tæki til að dreifa vörum og þjónustu og verð-
leggja þær. Við viljum nýta markaðinn með
þeim hætti. Við viljum hins vegar hafa hemil á
markaðnum og það sem greinir okkur frá
hægri flokkum að þessu leyti er, að við viljum
að það séu settar skýrar leikreglur sem ekki
er hægt að brjóta og síðan á gangur markað-
arins að fá að vera eins og honum er eðlilegt
innan þessa ramma sem við setjum. Þetta hef-
ur verið hlutverk jafnaðarflokka í löndunum í
kringum okkur og hér á landi höfum við knúið
á um þetta.
Ef við lítum t.d. á þær leikreglur sem eru nú
þegar fyrir hendi, s.s. reglur samkeppnislaga
og Samkeppnisstofnun, þá má minna á að það
voru fingur jafnaðarmanns sem skrifuðu lögin
sem þær starfa eftir.“
Aðspurður segir Össur Samfylkinguna að
nokkru leyti mótaða af þeirri hugmyndalegu
uppstokkun sem átt hafi sér stað meðal jafn-
aðarmannaflokka í löndunum í kringum okk-
ur. „Þar eru þó ákaflega mismunandi viðhorf
uppi. Tony Blair [forsætisráðherra Bretlands
og formaður Verkamannaflokksins] vill t.d.
hafa ríkisvaldið veikara en Jospin [forsætis-
ráðherra Frakklands og formaður franska
sósíalistaflokksins], sem vill hafa það sterkt,"
- Ert þú sammála Jospin?
„Já, ég er sammála honum að því leyti að ég
vil ekki veikja ríkisvaldið um of. Þegar ég tala
um sterkt ríkisvald á ég t.d. við það afl sem
ríkið hefur í gegnum Samkeppnisstofnun, sem
þyrfti þó að vera sterkari.“
Eg er ekki maður
aukinna ríkisafskipta
Reisa háskóla
í upplýsingatækni
Samfylkingin boðar að stórauka eigin fjár-
festingu í menntun og var Össur spurður
hvort flokkurinn væri þar með að boða stór-
aukin útgjöld til menntamálanna og hvar ætti
að afla fjármunanna?
Hann bendir á að menntamálin hafi verið
eitt af stóru málunum sem fjallað var um á
stofnfundi Samfylkingai-innar. „Við lítum svo
á að við séum að sigla inn i tíma sem eru tals-
vert öðruvísi en verið hefur, harðskeytt mark-
aðssamfélag þar sem sá sem selur vinnuafl sitt
þarf að geta siglt fimlega á faivegum þekking-
arnetsins. Starfsævi manna verður allt önnur
en verið hefur þegar þekkingarsamfélagið er
komið i fullan gang. Til þess að geta spjarað
sig í slíku samfélagi þarf stöðugt að afla sér
nýrrar menntunar og við lítum svo á að í fram-
tíðinni verði símenntun miklu mikilvægari en
verið hefur fram að þessu. Hún verður veitt
fyrir tilstilli þekkingarsamfélagsins, ekki síst
um fjarkennslu á Netinu. Framhaldsskólarnir
víðsvegar um landið munu breytast yfir í að
verða einnig símenntunarstöðvar. Breyting
menntakerfisins og aðlögun þess að þekking-
Vildu draga úr
möguleika á
ágreiningi
- Með sterku ríkisvaldi, ertu þá ekki að
boða aukin ríkisútgjöld og umsvif ríkisvalds-
ins?
„Nei, það sem um er að ræða er að setja
varnagla og leikreglur sem þarf að fylgja, en
ég er ekki maður aukinna ríkisafskipta," segir
hann.
„Vinstri menn hafa alltaf verið ákaflega
hræddir við hlutabréfamarkaðinn en ég er
þeirrar skoðunar að hluti af þrótti sólrisu-
greinanna á Islandi sé sá aðgangur sem vaxt-
arsprotafyrirtæki hafa að fjármagni í gegnum
hlutabréfamarkaðinn. Hann gegnir ákaflega
mikilvægu hlutverki á því umbreytingaskeiði
sem ríkir einmitt um þessar mund-
ir í íslensku atvinnulífi því fyrir til-
stilli hans er fjármagni beint frá
lágvaxtargreinum yfir í hávaxtar-
gi-einamar, þar sem auðlindin er
ekki lengur stál og steypa heldur
hinn síkviki og skapandi mannshugur korn-
ungra íslendinga. Þarna liggur ævintýrið í ís-
lensku atvinnulífi í dag og það hefði aldrei orð-
ið jafn þróttmikið nema vegna stuðningsins
sem það hefur af þessari þróun markaðarins."
arsamfélaginu mun kosta peninga en þetta er
fjárfesting í mannauði sem skilar arði. Hvað-
an fáum við svo peningana áður en sá arður
fer að skila sér með auknum tekjum til ríkis-
ins? Við höfum sagt að taka eigi upp auðlinda-
gjald og ég tel að það eigi ekki aðeins að leggj-
ast á veiðiheimildir heldur líka á orkulindir,
fjarskiptarásir og allar aðrar sameiginlegar
auðlindir.
Gjaldið á að hluta að nota til að lækka tekju-
skatt en jafnframt til að standa straum af fjár-
festingum okkar í mannauðnum.
Eg er staðfastlega þeirrar trúar að velsæld
Islands í framtíðinni og möguleiki okkar til að
halda unga fólkinu hér heima sé að okkur tak-
ist að búa til framleiðslusamfélag sem byggist
á margbreytilegri hátækniframleiðslu, þar
sem hugvitið er í fyrirrúmi. Við eigum ekki að
láta skeika að sköpuðu í þeim efnum heldur
gera áætlun um stórátak í upplýsingatækni.
Ein af þungamiðjum þess ætti að vera að reisa
háskóla í upplýsingatækni og margmiðlun og
skapa þannig skjól fyrir margvíslega flóru
smáfyrirtækja á þessu sviði, sem sum hver
gætu vaxið í að verða heimsfyrirtæki. Þetta
kostar auðvitað mikla peninga en ég er þeirr-
ar skoðunar að við eigum að taka andvirði
Landssímans og nota það til þessa verkefnis."
Skiptar skoðanir um Evrópumál á
stofnfundinum um helgina
Greinilega kom fram á stofnfundi Samfýlk-
ingarinnar að þar eru mjög skiptar skoðanir
um Evrópumál. Frjálslyndir jafnaðarmenn og
Ungir jafnaðarmenn vildu taka strax af skarið
og marka þá stefnu að sækja ætti um aðild að
ESB en aðrir voru greinilega á öndverðum
meiði. Össur var spurður hvort Samfylkingin
væri ekki í reynd í svipuðum vanda og Ihalds-
flokkurinn í Bretlandi þar sem uppi eru al-
gerlega andstæð sjónarmið í Evi’ópumálum
og að erfitt verði að finna á honum lausn.
„Nei, alls ekki. Ég dreg enga dul á að það er
uppi skoðanamunur innan Samfylkingarinnar
í þessu máli. Þar eru menn sem geta með engu
móti hugsað sér að ganga í Evrópusambandið,
sennilega undir öllum kringumstæðum, og svo
eru aðrir sem vilja banka upp á
strax,“ sagði hann. Þetta segir
Össur að sé þó allt önnur staða en
uppi er í breska íhaldsflokknum,
sem sé beinlínis klofinn í málinu og
nokkrir sterkir leiðtogar nýlega
gengið fram fyrir skjöldu til þess að aðstoða
Verkamannaflokkinn við að koma Bretlandi í
sameiginlega myntbandalagið. Þó skiptar
skoðanir séu innan Samfylkingarinnar hafi
niðurstaðan á stofnfundinum orðið sú sem
hann lagði til, að næsta skref sé að hefja
skipulega yinnu við að skilgreina samnings-
markmið íslendinga í hugsanlegum aðildar-
viðræðum. „Því hefur lengi verið haldið fram
að sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópu-
sambandsins geri að verkum að ísland geti
aldrei gengið þarna inn, “ segir Össur en
kveðst þó ekki vera sammála því.
„Grundvallarreglan um frjálst flæði fjár-
magns myndi hins vegar leiða til þess að er-
lendir menn fengju að fjárfesta hér í fiskiðn-
aði og útgerð. Ég leggst ekki gegn því að það
komi inn erlent fjármagn í fiskiðnaðinn en
eins og staðan er núna og miðað við núverandi
stjórnkerfi fiskveiða finnst mér ekki hægt að
hleypa útlendingum irm í útgerðina. Þetta er
eitt af því sem þyrfti að semja um ef við ætluð-
um að ganga í Evrópusambandið og það er
ýmislegt fleira sem þyrfti að semja um. Ég er
þeirrar skoðunar og hef lagt til innan Sam-
fylkingarinnar, sem samþykkti það um helg-
-ina, að til þess að hægt sé að semja um sér-
stöðu Islands þá þurfum við að vita hver
samningsmarkmið okkar eru. Við þurfum
þess vegna að skilgreina þau. Samfélagið á að
skilgreina markmiðin í umræðu sem fram þarf
að fara,“ segir hann.
„Þetta eru því ekki orðin tóm hjá okkur og
má geta þess að við ætlum að halda ráðstefnu
síðar á þessu ári til að fjalla um og skapa okk-
ar framlag inn í umræðuna um hver samn-
ingsmarkmiðin eigi að vera. Ég er einnig
þeirrar skoðunar að það sé ekki hægt að
sækja um aðild að Evrópusambandinu nema
meirihlutasamstaða sé um þessi samnings-
markmið og vísa til reynslu Norðmanna í því
sambandi."
- Þið ætlið sem sagt að halda áfram að ræða
málin?
„Við ætlum að stíga nýtt skref sem felst í að
skilgreina samningsmarkmiðin. Eða dettur
einhverjum í hug að ganga til samninga um
mögulega aðild, einsog utanríkisráðherra úti-
lokaði ekki í umræðum í þinginu í dag, án þess
að skilgreina áður hverju íslendingar þurfa að
fá fram í slíkum samningum?"
Einkavæðing ýtti
undir þenslu
Við setningu stofnfundarins lýsti Össur yfir
að Samfylkingin væri reiðubúin að taka að sér
stjórn landsmálanna. Aðspurður hvort hann
teldi að Samfylkingunni hefði tekist að skapa
trúverðuga ímynd og traust á að hún væri
reiðubúin að hafa stjórn efnahagsmála með
höndum á þenslutímum sagði hann svo vera.
Samfylkingin hefði á sínum tíma bent á al-
varlega fingurbrjóta ríkisstjórnarinnar við
stjórn efnahagsmála sem lýsi sér m.a. í mikl-
um viðskiptahalla. Þetta eigi ekki síst við um
hvernig staðið var að einkvæðingu ríkisvið-
skiptabankanna í upphafi sem hafi ýtt undir
gríðarlega þenslu í samfélaginu.
Össur rifjar einnig upp að hann hafi bent á
það fyrir seinustu kosningar að mistök við
efnahagsstjórn hafi leitt af sér stóraukinn við-
skiptahalla. „Núna er að koma í ljós að það
sem við sögðum fyrir kosningar var rétt.
Seðlabankinn sagði nú fyrir helgina að við-
skiptahallinn væri alvarleg ógnun við stöðug-
leikann," segir Össur.
- Hvernig sérð þú fyrir þér þróun stjórn-
málanna hér á landi á næstu misserum?
„Ég sé það strax af viðbrögðum Sjálfstæðis-
flokksins að þeim stendur ekki á sama um
hversu vel stofnþing Samfylking-
arinnar tókst. Ég ímynda mér að
það muni hjálpa okkur við að
skerpa skautin í íslenskum stjórn-
málum. Við lítum á okkur sem höf-
uðandstæðing Sjálfstæðisflokks-
ins á þessari stundu og munum að sjálfsögðu
halda uppi harðri stjórnarandstöðu. Ég vænti
þess að hún verði hai'ðari en verið hefur nú
þegar við erum búin að ganga frá þessum
skipulagsmálum. Stjórnmálin kunna að verða
harðari en ég vona líka að þau verði drengileg
og málefnaleg," segir Össur.
Útilokar ekki stjórnarsamstarf
við neinn stjórnmálaflokk
- Er stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn eitthvað ólíklegra en við aðra flokka þó þið
lýsið honum sem ykkar höfuð andstæðingi?
Verður það ekki málefnastaðan sem ræður á
hverjum tíma?
„Ég útiloka ekkert í þessum efnum en hann
er sísti kosturinn í þessari stöðu. Sjálfstæðis-
flokkurinn er orðinn þreyttur við stjórnvölinn
og það hversu honum hefur fatast flugið í
efnahagsmálunum er ákaflega ólíkt þeim
Sjálfstæðisflokki sem ég ólst upp við í föður-
ranni. Það sýnir best þreytumerkin.“
“Ég er ekki reiðubúinn að gefa yfirlýsingar
um hver er helsti kosturinn varðandi stjórnar-
samstarf og að hverju er stefnt. Það sem fyrir
mér vakir er að reyna að gera Samfylkinguna
eins öfluga í íslensku stjórnmálalífi og hægt er
með því að skerpa hugmyndir hennar, flytja
þær af eins miklum sannfæringarþrótti og al-
mættið blæs mér í brjóst. Þegar kemur að
skuldadögum við kosningar taka menn niður-
stöðunni og ráða svo til lykta myndun lands-
stjórnarinnar."
Haft í huga
að ákveðið
jafnræði gilti
Lög Samfylkingarinnar samþykkt á stofnfundinum og síðan vísað til laganefndar
Sömu trúnaðarstörf ekki
lengur en átta ár í röð
STEFNT skal að því við val full-
trúa í ráð og nefndir utan Sam-
fylkingarinnar, hvort heldur er á
Alþingi eða í sveitarstjórnum, að
fulltrúar hennar gegni ekki
trúnaðarstörfum lengur en átta
ár í röð, að því er fram kemur í
lögum Samfylkingarinnar sem
samþykkt voru á stofnfundinum
á föstudag og vísað til laga-
nefndar, sem mun hafa þau til
umfjöllunar fram að fyrsta
landsfundi flokksins sem haldinn
verður árið 2001. Þannig var til-
lögu um nafnbreytingu frá Ung-
um jafnaðarmönnum vísað tíl
laganefndar án umræðu.
f lögunum segir einnig að við
skipan á framboðslista skuli
stefnt að því að liafa hlutfall
kvenna og karla sem jafnast og
hið sama eigi við þegar skipað sé
í ráðherrastörf á vegum flokks-
ins. Þá skuli í öllum stofnunum
flokksins, sem kosið sé til, hvort
kyn eiga rétt til a.m.k. 40% aðal-
fulltrúa og 40% varafulltrúa svo
fremi að nægilega margir séu í
framboði. Ef færri flokksmenn
en 40% af hvoru kyni eru í fram-
boði teljast þeir sjálfkjörnir.
Landsfundur fer með æðsta
vald í málefnum flokksins á
landsvísu og skal hann haldinn
annað hvert ár. Flokksstjórn hef-
ur milli landsfunda æðsta vald í
öllum málefnum fiokksins og ber
hverju aðildarfélagi og hverjum
þeim sem telst til félaga og
gegnir trúnaðarstarfi fyrir Sam-
fylkinguna að hlýða fyrirmælum
hennar og úrskurðum er varða
störf fyrir Samfylkinguna. Fram-
kvæmdastjórn stýrir málefnum
hennar f umboði landsfundar og
flokksstjórnar og framkvæmda-
ráð í umboði hennar.
Byggist á sjálfstæðum
aðildarfélögum
Fram kemur að flokksstarf
Samfylkingarinnar byggist á
sjálfstæðum aðildarfélögum og
beinni aðild þeirra sem það
kjósa. Aðildarfélög geti til dæm-
is verið svæðisfélög, félög bund-
in tilteknum viðfangsefnum
stjórnmálanna og stjórnmálafé-
lög ungs fólks eða aldraðra. Að-
ildarfélög í hverju kjördæmi
myndi kjördæmisráð sem fari
með framboðsmál við kosningar
til Alþingis og aðildarfélög í
hverju sveitarfélagi landsins
myndi fulltrúaráð sem fari með
framboðsmál til sveitarstjórna.
Þá hefur landsfundur rétt til
að víkja aðildarfélagi úr Sam-
fylkingunni ef hann lítur svo á
að það hafi gert sig sekt um at-
höfn sem sé flokknum til tjóns
eða vanvirðu eða brjóti í bága
við samþykktir hennar.