Morgunblaðið - 09.05.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 13
FRÉTTIR
Islenskt sverð til
sýnis í Smithsonian
Skuldir Alþýðubandalagsins um 30 milljónir
Flokksmenn ákveðn-
ir í að standa í skilum
MARGRÉT Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins og
nýkjörinn varaformaður Samfylk-
ingarinnar, segir að mikið hafi
áunnist á seinustu árum í að greiða
niður skuldir Alþýðuflokksins. Hún
segir að flokksmenn séu ákveðnir í
að standa í skilum með þær skuldir
sem enn standa eftir.
Aiþýðubandalagið gerði fyrir
nokkrum árum samkomulag við
Landsbankann um greiðslu skulda
sinna, að sögn Margrétar. „Þegar
ég tók við formennsku árið 1995
voru reikningarnir endurskoðaðir í
fyrsta sinn. Þá kom í ljós að skuld-
irnar voru miklu meiri en talið
hafði verið. Síðan þá hefur tekist að
greiða þær verulega niður á hverju
ári, flokkurinn stendur nú í skilum
og mér sýnist staðan nú vera þann-
ig að Alþýðubandalagið geti greitt
sínar skuldir."
Að sögn Margrétar nema skuldir
Alþýðubandalagsins nú um 30 mil-
ljónum króna. Þær hafi hins vegar
numið um 50 milljónum árið 1995
og því sé ljóst að mikið hafi áunnist
í að greiða skuldirnar niður.
Aðspurð um hvernig það hafi
verið gert, segir Margrét að styrkt-
armannakerfi flokksins hafi skilað
sínu og þá njóti Alþýðubandalagið
styrkja úr séreignasjóði, svonefnd-
um Sigfúsarsjóði og muni gera svo
áfram.
Á von á opnu bókhaldi
Forystumenn Alþýðubandalags-
ins eru að sögn formannsins allir í
persónulegum ábyrgðum fyrir
skuldum þess. „Það gleymist hins
vegar oft í þessari umræðu um fjár-
mál Alþýðubandalagsins og raunar
Alþýðuflokksins líka, að flokkarnir
eiga meiri eignir en nema skuldum.
Þær eru bundnar í húseignum víða
um land og víða eiga flokkarnir sitt
húsnæðið hvor í kjördæmunum. Ég
tel ekki að ganga þurfi á þessar
eignir til að greiða niður skuldir, en
ljóst er að meta þarf upp á nýtt
hvað hinn nýi flokkur þarf af þessu
húsnæði og hvað hann þarf ekki,“
segir Margrét.
En hinn nýi flokkur. Verður bók-
hald hans opinbert?
„Ég á von á því. Ný stjórn
flokksins og framkvæmdastjórn
verður að taka þessi atriði til með-
ferðar og raunar fleiri sem bíða úr-
lausnar. Vilji okkar hefur hins veg-
ar verið mjög skýr í þessum efnum;
við viljum skýrar reglur um fjár-
reiður flokkanna og að allir verði að
lúta þeim. Með því erum við ekki að
ásaka einn eða neinn um að leyna
einhverju misjöfnu - við viljum að-
eins skýrar reglur, enda þiggja
flokkarnir fjármagn frá ríkinu og
eiga að sjálfsögðu að leggja fram
bókhald sitt á móti.“
MEÐAL þein-a vopna sem til sýnis
eru á víkingasýningunni í Smith-
sonian-safninu í Washington, höfuð-
borg Bandaríkjanna, er forláta
sverð - nákvæm eftirlíking af öflugu
sverði frá víkingatímanum. Gunnar
Bjarnason, trésmíðameistari, smíð-
aði sverðið og lét undan þrýstingi
frá skipuleggjendum víkingasýning-
arinnar um að lána það sem tákn
um verksvit og tækni víkinganna til
vopnagerðar.
Lilja Arnadóttir, sérfræðingur á
Þjóðminjasafni Islands, segir að
nokkuð sérstakar ástæður liggi að
baki því að sverðið íslenska sé nú til
sýnis um vopn víkinga. Skipuleggj-
endur sýningarinnar hafi sótt undir-
búningsfund á íslandi í fyrra og
m.a. verið boðið í reisugildi sem þá
var haldið vegna endurbyggingar
skálans í Bröttuhlíð á Grænlandi.
Skálinn var byggður á íslandi og
svo fluttur til Grænlands og við
þetta tækifæri sýndi Gunnar sverð
sitt sem hann smíðaði sjálfur með
þeirri tækni sem víkingarnir tileink-
uðu sér. Smíði sverðsins tók tvö ár.
„Gunnar er mikill meistari, bæði
á járn og tré, og sverðið er geysi-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Gunnar Bjarnason smíðaði vík-
ingasverðið sem nú er til sýnis
hjá Smithsonian.
lega fínn gripur. Bandaríkjamenn-
imir urðu undir eins hrifnir af því
og linntu ekki látum fyiT en Gunnar
hafði fallist á að lána það til sýning-
arinnar,“ sagði Lilja.
N orsk-íslensk-
ur ofurhugi á
ferð í París
NORSK-ísienski ofurhuginn Arne
Aarhus hefur stundað svokallað
„Basejumps“ eða stökk í fallhlíf of-
an af frægum háum byggingum
um víða veröld síðastliðin fimm ár
og er í hópi 50 manna sem stunda
slík stökk.
Fyrir viku stökk Arne m.a úr
Eiffel-turninum í París en hann
hefur á ferli sínum stokkið úr
skakka turninum í Piza á Italíu og
byggingum m.a. í Bandaríkjunum,
Bretlandi og Suður-Afríku.
Hann segist hafa fótbrotnað einu
sinni er hann stökk ofan af fjalli í
Noregi en að öðru leyti hefur allt
gengið vel.
Viðtökurnar á jörðu niðri eru þó
ekki alltaf hlýjar því stundum bíða
lögreglumenn eftir Arne og stinga
honum í fangelsi fyrir athæfi með-
an mál hans eru könnuð. „Margir
halda að það sé ólöglegt að
stökkva og því er mér varpað í
fangelsi. Síðan kemur í ljós að
nokkrum klukkustundum liðnum
að stökkin varða ekki við lög og þá
er mér hent út aftur,“ segir Arne.
Arne Aarhus er 25 ára gamall og
stundar nám í sjávarútvegsfræðum
í Tromsö í Noregi samhliða stökk-
unum. Amerískar sjónvarpsstöðv-
ar borga honum fyrir upptökur af
stökkunum og segist hann hafa
nokkuð góðar tekjur af starfi sínu
þótt hann stundi það aðallega
ánægjunnar vegna.
Arne er fæddur í Noregi, sonur
Hrafnhildar Jóhannesdóttur og al-
inn upp f Þýskalandi. Hann hefur
einnig búið á íslandi og talar
ágæta íslensku og segist vera á
leiðinni til fslands í sumar til að
stökkva ofan af íslenskum fjöllum.
Arne Aarhus í loftinu, Eiffelturninn í forgrunni. Hér er Arne svo með turninn í baksýn, að stökki loknu.
Nýkjörinn formaður í lokaræðu á stofnfundi Samfylkingar
Kveðst vera tilbúinn að
taka við stjórnartaumunum
Einstakling-
ar geta
gengið beint
í flokkinn
í HINUM nýja flokki Samfylkingar
munu félagar ekki þurfa að tengjast
flokknum með því að ganga í aðildar-
félög, heldur geta einstaklingar
gengið beint í flokkinn. Magnús M.
Norðdahl, formaður framkvæmda-
stjórnar Alþýðuflokksins, greindi frá
þessu á 50. flokksþingi Alþýðu-
flokksins síðasta fimmtudag.
„Flokkurinn er byggður upp af að-
ildarfélögum,“ sagði Magnús M.
Norðdahl
„Við opnum einnig fyrir beina að-
ild einstaklinga, sem kjósa að eiga
beina aðild, þannig að enginn sé
þvingaður inn í aðildarfélög."
Hann sagði að það væri gert með
dálítið flóknum hætti, en vitað væri
að margir vildu ganga til liðs við
flokkinn án þess að ganga í félög.
Þeir nytu sama réttar og atkvæðis-
bærir fulltrúar á landsfundi: „Eitt
atkvæði fyrir hverja tíu félagsmenn,
ef þú mætir einn fyrir sjálfan þig
ertu með eitt atkvæði á móti hinum
tíu.“ Þetta væri sennilega einsdæmi.
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, sagði í lokaræðu
á stofnfundi flokksins á laugardag,
að Samíylkingin væri tilbúin til að
taka við stjómartaumunum í land-
inu. Hann fagnaði því að mikið af
ungu fólki hefði tekið þátt í starfinu á
fundinum, og sagði að þrátt fyrir að
mikill skoðanamunur væri í einstök-
um málum innan flokksins, til dæmis
varðandi varnarmál, væru grundvall-
arhugsjónir meðlimanna þær sömu.
„Það er okkar hlutverk á tímum
græðginnar að gæða stjórnmálin
nýju siðferði,“ sagði Össur. „Við ætl-
um að breyta íslenskum stjórnmál-
um úr hagsmunastjórnmálum í hug-
myndastjómmál."
Hann sagði að eflaust myndu and-
stæðingar Samfylkingarinnar segja
að stofnfundurinnn hefði ekki verið
annað en skrautsýning, en í raun
hefði orðið þar einskonar kraftaverk.
„Samfylkingin er tilbúin til að taka
við stjórn landsins," sagði Össur að
lokum.
Breytingartillögnm vísað áfram
Breytingartillögum við stjórn-
málaályktun stofnfundar Samfylk-
ingarinnar var flestum, þar á meðal
ályktunum um athugun á Evrópu-
sambandsaðild, vísað til flokks-
stjórnar, framkvæmdastjómar eða
þingflokks. Samþykkt var ályktun
um að vinna eigi að áætlun til að
draga úr alvarlegum slysum í um-
ferðinni. Einnig var samþykkt viðbót
við stjórnmálaályktunina þess efnis
að flokkurinn skuli vinna að því að
mannréttindi og jafnræði bama séu
virt.
Kosið í framkvæmdastjórn
og flokksstjórn
Katrín Júlíusdóttir, varaformaður
Ungra jafnaðarmanna, hlaut flest at-
kvæði í kjöri til framkvæmdastjóm-
ar Samfylkingarinnar á stofnfundi
flokksins á laugardag eins og fram
hefur komið í Morgunblaðinu. Auk
hennar vom kjömir aðalmenn Ari
Skúlason, Jóhann Geirdal, Ása
Richardsdóttir, Mörður Ámason og
Sigrún Benediktsdóttir.
Varafulltrúar í framkvæmdastjórn
verða Jóna Valgerður Kristjánsdótt-
ir, Magnús Jón Ámason, Elín Björg
Jónsdóttir, Hólmfríður Sveinsdóttir,
Flosi Eiríksson og Örlygur Hnefill
Jónsson.
Katrín Júlíusdóttir bauð sig fram
til embættis ritara gegn Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur, en beið lægri
hlut við atkvæðagreiðslu íyrr um
daginn.
Stefán Jón Hafstein fjölmiðlamað-
ur hlaut flest atkvæði í kjöri til
flokksstjórnar Samfylkingarinnar,
eða 292. Næstir komu Magnús M.
Norðdahl og Hervar Gunnarsson,
báðir með 234 atkvæði. Urslit í kjör-
inu vom tilkynnt í lokahófi stofn-
fundar Samfylkingarinnar á laugar-
dagskvöld. Atkvæði greiddu 365
fúndarmenn, ógildir seðlar vom níu.
Hér fylgir listi yfir aðra flokksstjóm-
armenn, en þeir em alls þrjátíu tals-
ins: Þorvarður Tjörvi Ólafsson,
Björgvin G. Sigurðsson, Cecil Har-
aldsson, Karl V. Matthíasson, Árni
Gunnarsson, Magnús Ami Magnús-
son, Arthúr Morthens, Jakob Frí-
mann Magnússon, Hlín Daníelsdótt-
ir, Drífa Kristjánsdóttir, Helga E.
Jónsdóttir, Bryndís Kristjánsdóttir,
Gísli Bragi Hjartarson, Jón Gunnar
Ottósson, Eiríkur Stefánsson, Ámi
Hjörleifsson, Ingvar Sverrisson,
Hólmfríður Garðarsdóttir, Valgerð-
ur Guðmundsdóttir, Elín Harðar-
dóttir, Haukur Már Haraldsson,
Reynir Ólafsson, Guðrún Halldórs-
dóttir, Elsa Guðmundsdóttir, Guð-
rún Ámadóttir, Drífa Skúladóttir og
Dóra Líndal.