Morgunblaðið - 09.05.2000, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Endurvinnslan hf. á Akureyri
Nýtt hús byggt á
gömlum grunni
FRAMKVÆMDIR við byggingu
nýs verksmiðjuhúss fyrir Endur-
vinnsluna hf. við Réttarhvamm á Ak-
ureyri hefjast innan skamms en nýja
húsið verður reist á grunni þess húss
sem skemmdist í bruna í byrjun
mars sl. Niðurrif á eldra húsinu er
þegar hafíð en stefnt er að því að
hefja starfsemi í nýju húsi um mitt
sumar. Heildarkostnaður við fram-
kvæmdirnar er um 16 milljónir
króna.
Nýja húsið verður ah'slenskt, að
sögn Gunnars Garðarssonar, for-
stöðumanns Endurvinnslunnar á
Akureyri, en gerður hefur verið
samningur um Límtréshús með Yl-
einingum. Grunnflötur hússins er
um 540 fermetrar en vegghæðin í
nýja húsinu verður um helmingi
meiri en í gamla húsinu. Aðstaðan
mun því batna til mikilla muna og
möguleikarnir aukast á komandi ár-
um, að sögn Gunnars.
Endurvinnslan var að hefja til-
raunaframleiðslu á koxi íyrir Jám-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga, úr pappír, plasti og kolum,
þegar húsnæði fyrirtækisins
skemmdist í eldsvoða í byrjun mars
sl. Að sögn Gunnars er stefnt að því
flytja þrýstipressu fyrirtækisins
tímabundið suður á Grundartanga,
eða á meðan unnið er að bygginga-
framkvæmdum á Akureyri, þannig
að hægt verði að halda tilrauninnni
áfram og prófa koxið í ofnum
verksmiðjunnar. „Það veit enginn
hvað út úr þessu kemur en þetta er
vissulega spennandi verkefni.
Enn fer allt sorp á haugana
Akureyringar hafa verið iðnir við
að flokka heimilissorp sitt og sett
plast og pappír í sérstaka gáma, sem
Endurvinnslan endumýtti m.a. til
framleiðslu á vörubrettakubbum.
Fyrirtækið hefur þó ekki tekið við
slíku sorpi frá því í haust og ekki er
útlit iyrir að slíkt verði gert næstu
vikur og mánuði. Allt sorp, flokkað
og óflokkað er því urðað á sorphaug-
unum á Glerárdal. Bæjarbúar era
margir hverjir mjög ónægðir með þá
stöðu mála og skilja ekki tilganginn
með því að flokka sorpið meðan þetta
ástand varir. Gunnar hvetur fólk til
að halda áfram að flokka sorpið, enda
sé aðeins tímaspursmál hvenær farið
verður að nota það á annan hátt.
Karlakórinn Þrestir var með tónleika í Glerárkirkju um helgina.
Morgunblaðið/Kristj án
Þrastasöngur í Glerárkirkju
KARLAKÓRINN Þrestir í Hafnar-
firði, elsti starfandi karlakór lands-
ins, hélt tónleika í Glerárkirlqu á
Akureyri sl. laugardag. Tónleik-
amir voru nokkuð vel sóttir og var
góður rómur gerður að söng kórs-
ins. Sungin voru hefðbundin fslensk
karlakórslög og lög eftir erlenda
höfunda. Einsöngvari var Þorgeir
J. Andrésson, undirleikari Sigrún
Grendal en stjómandi kórsins er
Jón Kristinn Cortes.
Skólanefnd stendur við ákvörðun sina um að loka gæsluvöllum í lok sumars
Eyrarvöllur opinn þar til nýr
leikskóli verður tilbúinn
SKÓLANEFND Akureyrar telur ekki ástæðu
til að breyta þeirri ákvörðun sinni að loka
gæsluvöllum í bænum í lok sumars. Nefndin
leggur þó til að einn völlur, Eyrarvöllur, verði
opinn til loka ágúst á næsta ári þar sem nýr
leikskóli, Iðavöllur, verður ekki tekinn í notkun
fyrr en árið 2001.
Skólanefnd telur farsælast að bjóða einungis
upp á eitt úrræði fyrir börn á leikskólaaldri, þ.e.
leikskóla, og er ákvörðunin m.a. hugsuð til að
hægt sé að efla starfsemi þeirra enn frekar.
Skólanefnd tók þessa ákvörðun í febrúar síð-
astliðnum, en í kjölfar hennar var efnt til undir-
skriftasöfnunar meðal bæjarbúa þar sem fyrir-
hugaðri lokun gæsluvalla var mótmælt. Erindið
barst því skólanefnd aftur til umfjöllunar, en af-
staða nefndarinnar til málsins hefur ekki breyst.
Lítil aðsókn
Á fundi skólanefndar fyrir skömmu þar sem
fjallað var um málið að nýju voru lögð fram
gögn þar sem fram kemur að aðsókn að þeim
tveimur gæsluvöllum sem voru opnir í febrúar
og mars var lítil, en einungis tólf börn sækja
vellina ýmist reglulega eða þá af og til, en um er
að ræða börn sem ekki eru á leikskóla eða á
biðlista eftir leikskólaplássi. Aftur á móti sóttu
46 börn gæsluvellina, sem ýmist voru á leikskóla
eða á biðlista eftir leikskólaplássi.
Skólanefnd segir því ljóst að þegar nýr Iða-
völlur rís og biðlisti eftir leikskólaplássi tæmist
ætti aðsókn að gæsluvöllum að dragast enn
meira saman frá því sem nú er. Bent er á að að-
sókn að leikskólum eftir hádegi hefur minnkað
og því stefnir í að þeir geti sinnt þeirri þörf sem
gæsluvellir uppfylla nú.
Tilboð opnuð í viðbyggingu Oddeyrarskóla
Arfell með lægsta tilboðið
Hugsanleg
saraeining Rarik og
Yeitustofnana
Akureyrarbæjar
Forval
vegna
hag-
kvæmni-
athugunar
SEX tilkynningar bárast Rík-
iskaupum um þátttöku í for-
vali vegna könnunar á hag-
kvæmni þess að sameina
rekstur Rafmagnsveitna ríks-
ins og Veitustofnana Akur-
eyrarbæjar og að staðsetja
höfuðstöðvar sameinaðs fyrir-
tækis á Akureyri.
í flestum tilvikum er um
fleiri en einn aðila að ræða á
bak við hverja þátttökutil-
kynningu. Könnunin er á veg-
um iðnaðarráðuneytisins og
Akureyrarbæjar en tilgang-
urinn með forvalinu er að
velja þátttakendur í fyrirhug-
að lokað útboð.
Þeir aðilar sem sendu inn
tilkynningu eru VSO Ráðgjöf
og Deloitte ■& Touche, Lands-
banki íslands fjármálaráð-
gjöf, PricewaterhouseCoop-
ers ehf., KPMG
endurskoðun - Kema Cons-
ulting og EBH verkfræði-
þjónusta, Hannarr ehf., Nýsir
hf. og Verkfræðistofa Sigurð-
ar Thoroddsen hf.
Héldu
hluta-
veltu
ÞESSAR dugmiklu stúlkur héldu
nýlega hlutaveltu og flóamarkað til
stuðnings Rauða krossi Islands og
söfnuðust 3.290 krónur.
Þær heita Kolbrún Vignisdóttir,
Þórdís Kelley, Herdís María Sig-
urðardóttir og Stella Guðrún Arn-
ardóttir.
F JÖGUR tilboð bárast í viðbyggingu
við Oddeyrarskóla á Akureyri ásamt
innanhússbreytingum á núverandi
húsnæði skólans. Tvö tilboðanna
vora undir kostnaðaráætlun. Árfell
ehf. á Dalvík átti lægsta tilboðið en
fyrirtækið bauðst til að vinna verkið
fyrir tæpar 160 milljónir króna, sem
er 96,8% af kostnaðaráætlun.
Þorgils Jóhannsson á Svalbarðs-
strönd bauð 161,2 milljónir króna,
eða 97,6% en kostnaðaráætlunin
hljóðaði upp á 165 milljónir króna.
Fjölnir bauð 177,6 milljónir króna,
eða 107,5% og SJS verktakar buðu
187 milljónir króna eða 113,2%.
Grannflötur viðbyggingarinnar er
um 740 fermetrar og kjallari um 105
fermetrar. Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist fljótlega en þeim
skal lokið 1. ágúst á næsta ári.
Sumarbúðir KFUM
og K á Hólavatni
Innritun
stendur
yfir
INNRITUN í sumarbúðir KFUM
og K á Hólavatni í Eyjafirði stend-
ur nú yfir.
í sumar verða fimm dvalarflokk-
ar á Hólavatni, tveir fyrir drengi og
tveir fyrir stúlkur, auk þess sem
unglingaflokkur fyrir drengi og
stúlkur verður í júlí.
Starfið á Hólavatni hefst 9. júní
næstkomandi en þá koma drengir á
staðinn. Börn frá 8 ára aldri, fædd
1992 og eldri, geta dvalið á Hóla-
vatni.
Sumarbúðirnar era í skjólgóðum
krika innarlega í Eyjafirði. Vatnið
hefur upp á marga skemmtilega
kosti að bjóða, hressandi bátsferðir,
stangveiði og baðstrandarlíf á heit-
um dögum. Kvöldvökur eru fastir
liðir í starfinu og ýmsar íþróttir eru
stundaðar. Þá fá börnin að fara í
heimsókn á bóndabæ og kynnast
störfum þar.
Innritun fer fram í félagsheimili
KFUM og K í Sunnuhlíð á Akureyri
á mánudögum og miðvikudögum frá
kl. 17 til 18. Upplýsingar utan þess
tíma gefur Jón Óddgeir Guðmunds-
son en hann sér jafnframt um inn-
ritun utan skrifstofutíma.
Morgunblaðið/Kristján