Morgunblaðið - 09.05.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
hann ekki að hafa frekari áhyggjur af
fjármálum sínum í þessari jarðvist.
Þá má geta stóðhestsins Randvers frá
Nýjabæ sem hefur verið mikið í um-
ræðunni í vetur allt frá því hann kom
fram í töltkeppni í Reiðhöllinni í vet-
ur. Fyrst og fremst var það jarp-
skjótti liturinn sem kom honum í um-
ræðuna til að byrja með en sér-
staklega er það toppurinn á faxinu
sem setur afar skemmtilegan svip á
hestinn. En hann hefur fleira til
brunns að bera og sýndi vel í höllinni
gangrými og góðan fótaburð. Verður
spennandi að sjá hvemig knapanum
Vigni Jónassyni tekst til með hann í
dómi í vor.
Annar stóðhestur, Smári frá
Skagaströnd, vakti ekki síðri athygli.
Fjallmyndarlegur hestur þótt ekki
hafi hann fengið hátt fyrir sköpulag í
þau fjögur skipti sem hann hefur farið
fyrir dóm. Annar tveggja eigenda,
Unnsteinn Jóhannsson, reið hestin-
um með gamla laginu og fóru þeir
mikinn. Smári, sem er 7 vetra undan
Safír frá Viðvík og Sneglu frá Skaga-
strönd, er geysi rúmur með miklum
fótaburði og fasi. Flehi góðhross
mætti til nefna svo mörg sem þau nú
vora en þetta látið nægja.
Hressandi skeiðsprettir
Ekki er hægt að skilja svo við sýn-
inguna að ekki sé getið um skeið-
sprettina undir lokin þar sem nokkrir
vaskir sveinar mættu ásamt tveimur
meyjum á víðáttuvökrum jálkum. Nú
í fyrsta sinn var skeiðað inn á tveimur
Hvort um má kenna tilfærslu sýning-
arinnar skal ósagt látið en veður var
heldm' leiðinlegt meðan á sýningunni
stóð. Þá er þess að geta að mjög erfitt
er að halda utan um aðstreymi fólks
inn á vallarsvæðið og kann það að
vera ein skýringin á færri seldum
miðum.
En það sem stendur upp úr á þess-
ari sýningu er sú góða staðfesting að
ekkert lát virðist á miklu framboði á
stöðugt batnandi stóðhestum. Til-
koma fetsins inn í dóm setti svip sinn
á sýninguna nú og eins það hversu
mikla áherslu knapar leggja orðið á
að sýna hægt tölt. Þessi tilhögun eyk-
ur kröíúr til knapanna og ljóst má öll-
um vera að það er orðinn lítill munur á
að fara með hest í kynbótasýningu,
gæðinga- eða íþróttakeppni. Hyllir
kannski undir að hægt verði að sam-
hæfa kröfuraar þegar búið verður að
gera eina keppni úr íþrótta- og gæð-
ingakeppni?
Átján hross tryggðu sér rétt til
þátttöku í kynbótasýningu á lands-
móti en þai' eru stóðhestar sex vetra
og eldri flestir eða 12 með 8,15 eða
hærra. Af stóðhestum fimm vetra og
eldri náðu fjórá' lágmarkseinkunn,
8,05. Tvær hryssur sjö vetra og eldri,
sem er nýr flokkur, náðu einkunn yfir
8,05 sem er lágmaridð.
Niðurstöður dóma fimm efstu
hrossa í hverjum flokki urðu sem hér
segir en hægt er að sjá dóma allra
hrossanna og ýtarlegri upplýsingar á
heimasíðu Bændasamtakanna á
bondi.is.
Stóðhestar 4 vetra
1. Jöfur fi'á Blesastöðum, Ásgeir S.
Herbertsson, f.: Sproti, Hæli, m.: Kol-
brún, Brattholti, sköpulag.: 8,0 - 8,0 -
8,0 - 8,0 - 7,5 - 7,5 - 7,0 - 8,0 = 7,74,
hæfileikar: 8,5 - 8,0 - 6,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5
- 7,0 = 7,99, a.e.: 7,89, hægt tölt: 8,5,
kn.: Logi Laxdal
2. Þráinn frá Sigtúni, eig.: Haf-
steinn Einarsson, f.: Ófeigur, Flugu-
mýri, m.: Þrá, Hala, s.: 7,0 - 7,5 - 8,0 -
7.5 - 8,0 - 9,0 - 8,5 - 6,5 = 7,80, h.: 8,5 -
8,0 - 6,0 - 8,5 - 8,0 - 8,0 - 7,5 = 7,85, a.e.:
7,83, h.t.: 8,0, kn.: Leó G. Arnarson.
3. Fannar frá Auðsholtshjáleigu,
eig.: Gunnar Amarson, f.: Orri, Þúfu,
m.: Otur, Sauðárkróki, m.: Fjöður,
Ingólfshvoli, s.: 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 - 7,5
- 7,0 - 8,5 - 7,5 = 7,98, h.: 8,5 - 7,0 - 5,0 -
9,0 - 8,5 - 8,0 - 7,0 = 7,70, a.e.: 7,82, h.t.:
8,5, kn.: Sigurður V. Matthíasson
4. Gellir frá Árbakka, eig.: Jakob
Hansen, f.: Heimdallur, Árbakka, m.:
Ambátt, Stokkhólma, s.: 9,0 - 8,5 - 9,0 -
8.5 - 8,0 - 7,0 - 8,5 - 8,0 = 8,37, h.: 8,0 -
7.5 - 5,0 - 7,5 - 7,5 - 8,0 - 8,5 = 7,36, a.e.:
7,76, h.t.: 8,0, kn.: Magnús Benedikts-
son
Stóðhestar 5 vetra
1. Askur frá Kanastöðum, eig.:
Bjöm Kristjánsson, f.: Svartur, Una-
læk, m.: Askja, Miðsitju. s.: 8,5 - 8,5 -
HESTAR
stöðum og jafnmörgum út með til-
komu nýrra dyra á suðurenda hall-
arinnar. Þarna komu þeir vekring-
arnir á fullri ferð hver á fætur öðrum
og var hreint ótrúlegt hvað tókst að
láta hestana liggja sprettina á enda í
öllum þessum darraðardansi. Að end-
ingu fækkuðu sumir knapanna fötum
og komu síðustu sprettina ýmist berir
að ofan eða jafnvel neðan. Stúlkumar
voru þó ekki í þeim hópi og olli það
ýmsum vonbrigðum en þama kom
eitthvað nýtt sem vakti spennu og
kátínu meðal sýningargesta og
hressti verulega upp á stemmning-
una.
Þulir sýningarinnar, þeir Sigurður
Sæmundsson og Trausti Þór Guð-
mundsson, komust ágætlega frá sínu.
Trausti var þama að stíga sín fyrstu
skref í þessu hlutverki og má því
segja að hann sé býsna efnilegur. Sig-
urður er orðinn vel sjóaður þulur með
húmorinn tiltækan hvenær sem færi
gefst en tímabært er þó orðið að
senda hann í endurhæfingu í fallbeyg-
ingu nafnorða til að hann uppfylli ýtr-
ustu kröfur. Vel kemur út að hafa tvo
þuli og ekki spillir að hafa menn sem
þekkja vel til allra hluta.
Á hnignunarskeiði
Eftir þessa síðustu sýningu mátti
heyra raddir þess efnis að komið væri
að stöðnun. Samanborið við fyrstu
sýningar sem haldnar voru í Reiðhöll-
inni eru síðari tíma sýningar lítilfjör-
legar. Þær fyrstu voru sannkallaðar
skrautsýningai' þar sem mikið var lagt
9,0 - 8,5 - 7,5 - 7,0 - 8,0 - 8,0 = 8,18, h.:
8,5 - 9,0 - 7,5 - 8,5 - 9,0 - 8,5 - 6,5 = 8,47,
а. e.: 8,35, h.t.: 8,0, kn.: Þórður Þor-
geirsson
2. Kjami frá Árgerði, eig.: Davíð
Matthíasson, Sigurður V. Matthías-
son, Magni Kjartansson, Egill
Ágústsson. F.: Gustur frá Hóli II, m.:
Brynja, Árgerði, s.: 8,5 - 8,0 - 8,5 - 8,0 -
8,0 - 8,0 - 9,0 - 7,5 = 8,21, h.: 8,5 - 8,0 -
8,5 - 8,5 - 8,5 - 8,5 - 7,5 = 8,41, a.e.:
8,33, h. t.: 8,0, kn.: Sigurður V. Matth-
íasson
3. Þymir frá Þóroddsstöðum, eig.:
Bjami Þorkelsson, f.: Galdur , Laug-
arvatni, m.: Hlökk, Laugarv., s.: 9,0 -
8,5 - 7,5 - 8,5 - 9,0 - 7,5 - 9,0 -10,0 =
8,59, h.: 8,0 - 7,5 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,5 -
б, 5 = 8,13, a.e.: 8,31, h.t.: 7,0, kn.:
Daníel Jónsson
4. Frakkur frá Mýnesi, eig.: Haíliði
Þ. Halldórsson og Ingólfur Jónsson,
f.: Gustur, Hóli II, m.: Katla, Bár-
eksst., s.: 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 8,5 - 8,0 -
8.5 - 7,5 = 8,23, h.: 9,0 - 8,0 - 5,0 - 9,0 -
9,0 - 8,0 - 5,5 = 8,02, a.e.: 8,10, h.t.: 8,5,
kn.: Hafliði Halldórsson
5. Gauti frá Reykjavík, eig.: Magn-
ús Amgrímsson og Auður Samúels-
dóttir, f.: Logi, Skarði, m.: Berta,
Vatnsleysu, s.: 8,0 - 8,0 - 8,0 - 8,5 - 7,5 -
7.5 - 8,5 - 8,0 = 8,06, h.: 8,5 - 8,0 - 5,0 -
8.5 - 8,0 - 8,5 - 7,0 = 7,77, a.e.: 7,89, h.t.:
8,5, kn.: Orri Snorrason
Stóðhestar 6 vetra og eldri
1. Númi frá Þóroddsstöðum, eig.:
Bjami Þorkelsson, f.: Svartur, Una-
læk, m.: Glíma, Laugarvatni, s: 7,5 -
8,5 - 8,0 - 8,0 - 9,5 - 7,5 - 8,5 - 8,5 = 8,37,
h.: 8,0 - 8,0 - 9,5 - 8,0 - 9,5 - 8,5 - 9,0 =
8,65, a.e.: 8,54, h.t.: 8,0, kn.: Daníel
í búninga og æfingar og fjöldi manna
lagði mikið á sig til að sem best tækist
til. Æft var dögum og jafnvel vikum
saman og hugmyndaflugið og sköpun-
argleðin var óheft. Nú em aðrir tímar.
Enginn virðist tilbúinn til að leggja á
sig sjálfboðavinnu í margra daga æf-
ingar, menn em jafnvel nískir á að lána
hesta sína. Helst er að menn séu tíl-
búnir að koma með hross sín þjóni það
hagsmunum varðandi kynningu stóð-
hesta eða jafnvel hross sem á að selja.
Svo er að sjálfsögðu fjöldi ungra efni-
legra knapa sem vill fá og þarf að koma
sér á framfæri og þá em þessar sýn-
ingai' kjörinn vettvangur. Nýafstaðin
sýning er líklega sú hraðsoðnasta sem
haldin hefur verið til þessa. Gótt dæmi
þar um er auglýsingaspjaldið sem
hengt var víða upp örfáum dögum fyr-
ir sýningu. í dag háttar þannig til að
auglýsa þarf og kynna hluti mun meira
en tÚ dæmis fyrir 10 ámm. Aðsókn að
þessum sýningum virðist fara minnk-
andi og tímabært að farið sé yfir hlut-
ina og kannað hvað valdi og hvort
hægt sé að snúa þeirri þróun við. Nú
vom sýningamir einungis tvær en
vom fjónu' þegar hæst lét á vordögum
Reiðhallarinnar. Á föstudagssýning-
unni vom áhorfendabekkimir rétt ríf-
lega hálfskipaðir en heita má að tekist
hafi að fylla á laugardag en ekki var
það meira en svo. Greinilegt er að reið-
hallarsýningamar fljóta ekki lengm’ á
fomri frægð, hnignunarskeið ríkir og
snúa þarf vöm í sókn.
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000
63
ISO 9000 árið 2000
“1
Staðlaráð fslands
AÐLÖGUN AÐ
NÝRRI ÚTGÁFU GÆÐASTAÐLAN NA
NÁMSKEIÐ 18. maí
• Meginbreytingar í nýju útgáfunni
• Nýjar kröfur og breyttar kröfur
• Hvað þýðir nýja útgáfan fyrir stofnanir fyrirtæki?
• Hvernig er rétt að bregðast við?
Námskeiðið ferfram hjá Staðlaráði, Holtagörðum, kl. 8.30-12.10.
Þátttökugjald kr. 12.500.
Upplýsingar og skráning í síma 520 7150.
Einnig má skrá sig með tölvupósti: skraning@stri.is
J
Sumartilboo ]
12 tímar - kr. 5.900j
Sigrun
Jóhanna
Stefanía
> Æfingabekkir Hreyfingar
Ármúla 24, sími 568 0677
• Er vöðvabólga að hrjá þig í baki, öxlum
eða handleggjum?
• Stirðleiki í mjöðmum og þreyta í fótum?
• Vantar þig aukið blóðstreymi og þol?
Pá hentar æfingakerfíð okkar þér vel!
Reynslan hefur sýnt að þetta æfingakerfi hentar
sérlega vel fólki á öllum aldri, sem ekki hefur stundað
einhverja líkamsþjálfun í langan tima. Sjö bekkja
æfingakerfið liðkar, styrkir og eykur blóðstreymi til
vöðvanna. Hver tími endar á góðri slökun.
Við erum einníg með göngubraut,
þrekstiga og tvo auka nuddbekki.
Getur eldra fólk notið göðs
af þessum bekkjum?
Já, þessi leið við að hreyfa líkamann er
þægileg, liðkar og gefur góða slökun og
er þess vegna kjörin fyrir eldra fólk.
Opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 9-12 og 16-20,
þriðjudaga og fimmtiidaga frá kl. 9-18
„Ég er búin að stunda bekkina í 8 ár, en meó smá
hléum, og þá strax fór ég að verða stiröari í öllum
liðum. Mér finnst að bekkirnir séu nauðsynlegir, þó
fólk stundi aðra líkamsrækt því þeir bæði styrkja og
nudda. Mjög gott fyrir þá sem þjást af gigt, t.d. liða-
og vefjagigt."
Jóhanna Einarsdóttir
„Ég hef stundað æfingabekkina í rúm 12 ér eða frá
■ því að þeir komu fyrst til landsins. Þær æfingar, sem
bekkirnir bjóða upp á, eru einstaklega fjölbreyttar og
góðar. Það fann ég best þegar ég stoppaði I nokkra
mánuði. Vöóabólgur og stiröleiki létu ekki á sér
standa. En nú er ég byrjuð aftur og er nú oröin
öll önnur. Þvf mæli ég eindregiö með æfinga-
bekkjunum."
Sigrún Jónatansdóttir
„Það eru iiðin 10 og Vi ár síðan dóttir mín sagði mér
að hún hefði pantaö fyrir mig prufutíma í nuddbekki
sem hún hélt að gætu verið mjög góðir fyrir mig. Ég
hafði þá þjáðst lengi af liðagigt og vöövabólgu. Eg er
ekki að orðlengja það en aliar götur síöan hef ég
stundað bekkina allan ársins hring með mjög góóum
árangri. Ef hlé hefur verió á æfingum finn ég mjög
fljótt fyrir stirðleika í liöum og sársauka í vöðvum. Ég
er sannfærð um að bekkirnir hafa hjálpað mér mikiö
í mínu daglega lífi."
Stefanía Davíðsdóttir
Frír kvnningartínii__