Morgunblaðið - 09.05.2000, Síða 66

Morgunblaðið - 09.05.2000, Síða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Hundalíf Smáfólk Veit Monsieur flugás að í næstu viku Hún hefur rétt fyrir sér. Til dæmis. er afmæli Rauða barénsins. Ég ætti að senda honum póstkort. „Hafðu það gott í dag“. Eitthvað viðeigandi. HfatgggMafrift BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Kaupmaðurinn á horninu Frá Guðnýju Sigurðardóttur: ÁSTÆÐA mín fyrir skrifum þessum er reynsla mín af svokölluðum „kaup- manninum á horninu". Þar sem ég hef haft bíl til umráða öll mín búskap- arár hef ég ætíð átt helstu innkaup mín í stórmörkuðunum, en stundum þurft að grípa til þess að hlaupa „út á hom“ til að kaupa smáhluti eftir lok- un stórmarkaðanna. Aldrei hef ég lent í neinum vandræðum með það og ekkert nema gott um viðmót og þjón- ustu að segja. Nema hvað að fimmtu- daginn 4. maí sl., fyrir yfirvofandi mjólkuríræðingaverkfall, var ég full- sein að gera matarinnkaupin og greip í tómt í mjólkurhillum stór- markaðanna. Þar sem ég á 11 mán- aða gamalt pelabam og 6 ára mjólk- ursvelg spyr ég afgreiðslustúlku eins stórmarkaðanna í öngum mínum hvar í ósköpunum ég geti nálgast mjólk. Hún bendir mér á að prófa hjá einhveijum af „kaupmönnunum á horninu“, það sé helsta vonin. Himin- lifandi þakka ég fyrir og held af stað í einu slíku verslunina sem ég man eft- ir í hverfinu mínu, Vesturbænum, þar sem ég hef eins og fyrr segir þurft einstöku sinnum að grípa til þess að versla þar. Þar sem þessi verslun er frekar áberandi staðsett í alfaraleið átti ég svo sem ekki von á að þar væri mjólk að fá. En þegar ég geng að kælinum og sé næstum fulla grind af mjólk byrja ég í fljótfæmi að tína hvern pottinn á fætur öðrum í fangið. Allt í einu heyri ég sagt hast- arlega fyrir aftan mig: „Ekki meir!“ Eg lít við og er þar sennilega sjálfur kaupmaðurinn kominn og bendir mér á að það sé skömmtun. Allt gott og blessað með það, ég tek kvótann minn; þrjá mjólkurpotta og skila hin- um. En þá bætir blessaður maðurinn við að „hann verði nú að eiga eitthvað eftir fyrir fastakúnnana sína!“ Þetta sló mig dálítið, því ég hélt að ekki væri gert upp á milli viðskiptavina sem, eins og nafnið gefur til kynna, kæmu í þeim erindum að eiga við- skipti. Ekki nógmeð það, heldur þeg- ar ég er að greiða fyrir vörurnar seg- ir maðurinn við viðmælanda sinn, þar sem hann var að tala í síma meðan hann afgreiddi mig, að hann væri búinn að vera að fá alls konar fólk inn í dag sem hann hefði aldrei séð áður, allir að kaupa mjólk og voða góðir vinir hans aÚt í einu, og þessum orð- um beindi hann til mín. Ef ég ætti ekki fyrmefnd böm sem þurfa á sop- anum sínum að halda hefði ég hik- laust gengið út án mjólkurinnar. Svona viðmót hef ég aldrei upplifað á ævi minni. Þama er ég að koma inn í verslunina í fyrsta skipti í langan tíma, hugsanlega fastakúnni í fram- tíðinni, aldrei að vita! En í staðinn fyrir að finnast ég velkomin og fá hlýjar móttökur fæ ég þau skilaboð að ég sé tækifærissinnuð og hjartan- lega óvelkomin þar sem ég heyri ekki til fastakúnna verslunarinnar. Og ég sem hef alltaf staðið í þeirri trú að blessaður kaupmaðurinn væri í út- lýmingarhættu vegna gleypigangs stórmarkaðanna. Eg vona bara þeirra vegna að þeir hafi betra við- skiptavit en þessi tiltekni maður, þvi ef hann hagar sér svona við alla nýja viðskiptavini sem koma inn af göt- unni spái ég honum ekki langlífi í við- skiptum. GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, Víðimel 58, Reykjavík. Samfylking krata Frá Rúnari Kristjánssyni: NÚ stefnir í að hið óútskýrða póli- tíska fyrirbæri, sem kallast Sam- fylking, komi sér upp formanni. Augljóst er á bak við tjöldin hefur verið ákveðið að Össur Skarphéðins- son verði þessi formaður. Allir þeir sem talið var að gefa myndu kost á sér ákváðu að draga sig til baka. Ekki mátti hætta á illvíga kosninga- baráttu fyrir hið viðkvæma flokks- barn sem skapast hefur í gegnum ólýsanlegar fæðingarhríðir. Til þess að Össur gæti þó hafist til valda með lýðræðislegri aðferð varð samt að koma kosningu á með einhverjum hætti. Skuggaráðuneytið hefur pælt í þessu og loks hafa menn séð lausn á málinu. Fenginn var mótframbjóð- andi sem engan veginn gat talist hættulegur eða líklegur til að valda miklu róti, enda er hann sammála Össuri um flesta hluti. Vafalaust á umræddur mótframbjóðandi eftir að komast langt í Samfylkingunni fyrir þennan samstarfsvilja sinn, því auð- vitað á að verðlauna menn eftir því hvernig þeir standa sig! Ljóst er að Samfyikingin er fyrst og fremst krataflokkur og verður aldrei annað. Undirlægjuháttur gagnvart ágangi Evrópusambandsins mun því vafa- laust innbyggt stefnuatriði í þessum flokki og þjóðleg stefnumið gamla Alþýðubandalagsins er nú með sitt bakland hjá Vinstri grænum og það mun áreiðanlega koma æ betur í ljós. Vonir Samfylkingarsinna um stórsigur í síðustu kosningum brugðust algerlega, enda var í raun verið að bjóða kjósendum upp á svik- inn héra. Til liðs við Samfylídnguna úr röðum alþýðubandalagsmanna hafa fyrst og fremst gengið þeir sem þegar höfðu ákveðið að snúa baki við fyrri stefnumálum og gerast kratar. Sennilega er ekki mikil eftirsjá að því liði þegar allt kemur til alls. Ég viðurkenni þó að mér þótti afleitt að sjá að Jóhann Arsælsson skyldi hafa lent á þeirri línu, en ef til vill á hann eftir að sjá að félagsskapurinn sé ekki við hans hæfi. Samfylkingin virðist í raun ósamstæður grautur og mikla orku þarf vafalaust til að samræma sjónarmið. Dapurlegt er að vita til þess að merkir forystu- menn sósíalista, eins og Ragnar Arnalds og Svavar Gestsson, skuli hafa gengist inn á það við lok ferils síns, að styðja flokk sem seint verð- ur þeim hugsjónum til brautargeng- is sem þeir töldu sig lengstum standa fyrir. Ekki hefði ég trúað þeim til slíks að óreyndu. Ég ber ekki traust til Samfylkingarinnar, en tel að fyrirfram ákveðinn formaður komi til með að hæfa flokknum, þar sem hann er einmitt alþýðubanda- lagsmaður sem ákvað á sínum tíma að segja skilið við hugsjónir sínar sem sósíalisti og gerast krati. RÚNAR KRIST JÁN SSON, Bogabraut 21,545 Skagaströnd. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.