Morgunblaðið - 09.05.2000, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000 73
FOLKI FRETTUM
Einar Ágúst og Telma komin til Stokkhólms
Einar Ágfúst gefur ungum aðdáendum eiginhandaráritun
daginn fyrir brottför.
Britney linnir
ekki látunum
NÝJASTA smáskífan með Britney Spears, „Oops!... I Did It
Again“, kom út fyrir viku í Bretlandi og fór beint á topp
breska smáskífulistans. Samnefnd breiðskífa kemur siðan út
mánudaginn 15. maí.
Þetta er í þriðja sinn sem hin unga Spears stekkur beint í
efsta sæti breska listans. Á síðasta ári sló smáskífa hennar,
„Baby One More Time“, af samnefndri breiðskífu öll sölumet í
Bretlandi og lagið „Born To Make You Happy“ fylgdi í kjöl-
farið. Platan er að nálgast gullsölu á íslandi en hún hefur þeg-
ar selst í 4.900 eintökum en til að ná gulli þarf hún að seljast í
5.000 eintökum.
„Ég er mjög ánægð með að hafa náð að koma lagi í þriðja
sinn beint á toppinn," sagði Spears. „Ég vil þakka öllum aðdá-
endum minum fyrir það traust sem þeir hafa sýnt mér.“
Britney Spears hefur tekist það enn og aftur: . .
stokkið beint á toppinn i Bretlandi.
Allir til í slaginn
ÞÁ ERU fulltrúar íslendinga í
Söngvakeppni evrópskra sjónvar-
psstöðva komnir til Stokkhólms, en
keppnin fer fram næsta laugardag í
hinni glæsilegu Global-höll.
Lagið sem þau Telma Ágústsdótt-
ir og Einar Ágúst Víðisson flytja
heitir Tell me og er eftir Örlyg
Smára í samstarfi við Sigurð Örn
Jónsson.
Keppendurnh’ munu hafa nóg fyr-
ir stafni í Stokkhólmi þessa vikuna;
sviðsæfingar, blaðamannafundir,
móttökur og fleira er á döftnni. Þau
Einar Ágúst og Telma voru full til-
hlökkunar áður en þau héldu út á
sunnudag en efnt var til blaða-
mannafundar þar sem dagskrá hóps-
ins var kynnt.
Selma Björns samdi danssporin
Örlygur Smári sagði að hópurinn
hefði verið við æfingar upp á hvem
einasta dag undanfarinn mánuð.
„Allt er tilbúið, búningar, sviðsfram-
koma og annað er á hreinu,“ sagði
hann. Það var Selma Bjömsdóttir,
fulltrúi íslands í keppninni í fyrra,
sem aðstoðaði Einar Ágúst og Telmu
við sviðsframkomuna. Dýrleif og
Margrét í versluninni Dýrinu vom
stílistar og aðstoðuðu dúettinn við
val á klæðnaði.
Fyrsta æfingin var í gærkvöldi og
í dag verður fyrsti stóri blaðamanna-
fundurinn þar sem íslenski hópurinn
svarar spurningum fjölmiðlafólks.
„Það er miklu meira en stóra kyöldið
13. maí sem um ræðir,“ sagði Örlyg-
ur. „Það er stanslaus dagskrá alla
vikuna þar sem fulitrúar þeirra 24
þjóða sem keppa reyna að láta ljós
sitt skína og við þurfiim náttúrulega
að láta okkar ljós skína skærast.“
Veðbankar hafa spáð íslenska lag-
inu góðu gengi og segir Örlygur að
auðvitað sé stefnt á efstu sætin. „Við
reynum auðvitað að vinna þessa
keppni en við verðum að vera viðbúin
því að hvað sem er getur gerst, það
em ekki bara lögin sjálf sem skipta
máli heldur líka framkoman á svið-
inu, en við reynum auðvitað að gera
okkar besta.“
Einar Ágúst og Telma virtust af-
slöppuð fyrir brottför en vom full til-
hlökkunar. „Ég er rétt að byija að
finna íyrir stressi núna,“ sagði Éinar
Ágúst daginn áður en haldið var til
Stokkhólms. „Það eina sem ég hef
áhyggjur af í augnablikinu er að ná
ekki úr mér kvefinu. Annars verður
þetta æðislegt. Mér finnst þetta lag
eiga það íyllilega skfiið að lenda í ein-
hverju af toppsætunum, svo er bara
spuming hvað afganginum af
Evrópu finnst."
Sett hefur verið upp sérstök vefs-
íða á slóðinni www.eurovision.is þar
sem finna má allar upplýsingar um
flytjendur, höfunda og lagið Tell me.
Þar verða daglega settir inn pistlar
með myndum um það sem drífur á
daga hópsins í Stokkhólmi.
BlaðauM Morgimblaðsins
laugardaginn 20. mal
Skilafrestur auglýsingapantana
er til kl. 12 mánudaginn 15. maí
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufidltrúar
á auglýsingadeild í síma 569 1111.
fUðrpmilðMfr
AUGLÝSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Þriðjudagstilboð
^ jM 0 ■ ■ ■* .3
á Ruby Tuesday
<>$«
Salatbar á
með aðalrétti
Skipholti 19, Reykjavík • Sími 552 2211
lue^ktu