Morgunblaðið - 16.06.2000, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR16. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landspítalanum gefíð holómsjár-
tæki að andvirði 24 milljóna króna
Auðveldar
greiningu ill-
kynja sjukdóma
LANDSPÍTALINN í Fossvogi
hefur fengið að gjöf holómsjártæki
til greiningar á sjúkdómum í melt-
ingarvegi, en tækið getur auk þess
nýst á fleiri sviðum, svo sem til
greiningar á lungnasjúkdómum.
Arni Ragnar Amason alþingis-
maður afhenti gjöfina í gær ásamt
Asgeiri Theodórs, yfirlækni á St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði og sér-
fræðingi í meltingarsjúkdómum
við Landspítalann í Fossvogi.
Ami og Ásgeir hafa unnið að því
að fjármagna kaup á tækinu síðan
haustið 1997 og hafa safnað til
þess á öðmm tug milljóna króna
frá fyrirtækjum og stofnunum í
landinu auk þess sem þeir hafa
fengið opinber framlög til kaup-
anna. Heildarkostnaður við tækja-
kaupin er 24 milljónir króna, en
tækið er eitt hið fullkomnasta á
sviði rannsókna á meltingarsjúk-
dómum sem til er.
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri við Landspítala -
háskólasjúkrahús, veitti tækinu
viðtöku og sagði hann þetta óvana-
lega rausnarlega gjöf til heilbrigð-
isþjónustunnar allrar.
Arni er einn af þeim sjúklingum
sem fengið hafa krabbamein í
meltingarveg og Ásgeir hefur
meðhöndlað og var það upphafið
að samstarfi þeirra. Árlega grein-
ast um 230-250 íslendingar með
krabbamein í meltingarvegi, en
meinið er erfitt í greiningu og
meðferð og mun tækið því koma
að góðum notum.
Morgunblaðið/Amaldur
Jóhannes Gunnarsson og Ámi Ragnar Ámason við athöfnina.
Björn Rúriksson kostar prófessorsstöður við HÍ og HA
Morgunblaðið/Kristinn
Guðmundur Magnússon, Páll Skúlason, Björn Rúriksson og Þorsteinn Gunnarsson undirrita samninginn.
Styrkir skólana um
10 milljónir króna
BJORN Rúriksson hefur veitt Há-
skóla íslands og Háskólanum á Ak-
ureyri fjárstyrk sem nemur andvirði
prófessorsstarfs í eitt ár í báðum
skólum, eða 5 milljónir króna til
hvprs skólans um sig.
í gær skrifuðu Bjöm og fulltrúar
háskólanna undir samstarfssamn-
ing. Við undirritun samningsins
sagði Páll Skúlason, rektor Háskóla
Islands, það einstaklega jákvætt að
einstaklingur sýndi slíkt frumkvæði
og höfðingsskap í garð háskólanna.
Páll þakkaði Birni einnig fyrir að
tengja saman Háskóla Islands og
Háskólann á Akureyri.
„Skólarnir eru að vinna saman að
ýmsum verkefnum og það skiptir
miklu máli að hugað sé að fjöl-
breytni þegar verið er að efla
menntun og þekkingarsköpun í
landinu," sagði Páll.
Styrkurinn sem Bjöm veitir Há-
skóla Islands rennur til viðskipta-
og hagfræðideildar og á að efla
frumkvæði og nýsköpun á íslensk-
um fjármálamarkaði með því að
stuðla að aukinni þekkingu í áhættu-
stjómun og alþjóðafjármálum. Gera
á deildinni kleift að fá til sín fyrirles-
ara, bæði til þess að kenna og vinna
að rannsóknarverkefnum.
Þekking á sviði
upplýsingatækni efld
Háskólinn á Akureyri mun nota
styrkinn til þess að stofna nýja
stöðu háskólakennara í upplýsinga-
tækni með áherslu á fjárfestingu í
upplýsingakerfum og á það að vera
mjög til hagsbóta fýrir innri
uppbyggingu háskólans en einnig
atvinnulíf í landinu. Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri, sagði við undirritun
samningsins að uppbygging kennslu
og rannsókna á sviði upplýsinga-
tækni væri forgangsverkefni innan
Háskólans á Akureyri á næstu ár-
um.
„Framlag Björns gerir okkur
kleift að byggja upp þekkingu á
þessu sviði miklu fyrr en ella hefði
orðið en einnig er þetta mikilvæg
viðurkenning á framlagi háskólans
til nýsköpunarþekkingar á lands-
byggðinni," sagði Þorsteinn.
Björn segir að með gjöfinni sé
hann að láta gamlan draum rætast,
en hann telji það mikilvægt fyrir
alla framsókn Islands á alþjóðavett-
vangi að byggður verði upp styrkur
meðal fólks um allt land.
,AHt skólastarf á Islandi er geysi-
lega þýðingarmikið og við verðum
eftirbátar annarra þjóða ef við sinn-
um ekki af fyllstu ákveðni þeirri
skyldu okkar að mennta og upp-
fræða ungdóminn,“ sagði Björn.
Hann vill með gjöf sinni sýna fram á
hversu mikilvægt það er að laga- og
skattarammar séu þannig að frjáls-
ræði örvi menn til dáða og þeir geti
síðar meir varið fé til mennta-,
menningar- og mannúðarmála.
Nýir lögreglubflai- af Opel-gerð fyrir utan bflamiðstöð Rikislögreglustjórans.
Bilamiðstöð stuðlar að
Morgunblaðið/Jim Smart
Húpur bifhjúlamanna færði biskupi nýja kiljuútgáfu af Bibliunni.
hraðari endurnýjun
Morgunblaðið/Kristinn
Sdlveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra afhendir Böðvari Bragasyni,
lögreglustjóra í Reykjavík og Haraldi Johannessen ríkislögreglustjóra
lykla að hinni nýju bflamiðstöð.
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN
opnaði í gær nýja bflamiðstöð sem
er þjónustumiðstöð fyrir öll lög-
regluembættin. Um síðustu áramót
var rekstur og umsýsla ökutækja
lögreglunnar sameinuð undir stjórn
Ríkislögi-eglustjórans og er bfla-
miðstöðin opnuð í framhaldi af því.
I fréttatilkynningu frá Ríkislög-
reglustjóranum segir að tilgangur-
inn með þessum breytingum sé
aukin hagræðing í rekstri, samnýt-
ing ökutækja og búnaðar og betri
þjónusta við lögreglustjórana. Auk
þess stuðli þetta fyrirkomulag að
hraðari endurnýjun lögreglubif-
reiða og annars búnaðar.
Á árinu 1999 voru endurnýjaðar
28 lögreglubifreiðir á landinu og á
þessu ári er áætlað að endurnýja
41 bifreið til viðbótar. Á næstu
tveim árum er síðan stefnt á end-
urnýjun um 100 lögreglubifreiða og
má því segja að allur bílakostur
lögreglunnar á landinu, sem nú er
161 bifreið, verði endumýjaður á
fjórum árum. Heildarkostnaður við
þetta átak er um 350 milljónir
króna.
Ný útgáfa Biblíunnar í kiljuformi
Bifhjólamenn færðu
biskupi Biblíuna
HÓPUR bifhjólamanna færði í
gær herra Karli Sigurbjörnssyni,
biskupi íslands, nýja útgáfu af
Biblíunni í kiljuformi. Biskup af-
henti síðan Jóni Gnarr, leikara og
útvarpsmanni, fyrsta eintakið.
Biskup sagði að með þessu væri
Biblíufélagið að undirstrika að Bi-
blían ætti erindi við alla, hún ætti
ekki eingöngu heima í helgi-
dómum og stássstofum heldur alls
staðar og meðal allra. Orð Guðs
hafi í gegnum tíðina borist með
ólikum sendiboðum og í mismun-
andi umbúðum en boðskapurinn
eigi alltaf jafnmikið erindi til
fólks.
Bifhjólamennirnir sem eru í
Bifhjólasamtökum lýðveldisins,
Sniglunum, óku með hina nýju út-
gáfu frá Hallgrímskirkju að
Vegamótatorgi þar sem hljóm-
sveitin Geirfuglarnir lék létta
tónlist.
Samhliða útgáfunni stendur
Biblíufélagið fyrir kynningu undir
yfirskriftinni: Biblían er um þig.
títlit kiljuútgáfunnar er gjör-
ólíkt fyrri útgáfum Biblíunnar en
markmiðið með því er ætlunin að
ná til fólks á aldrinum 20-35 ára.
Kiljuútgáfa Biblíunnar verður til
sölu á bensínstöðvum og mun
kosta 2.000 kr.
:
:
\
: