Morgunblaðið - 16.06.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
MYNDBONP
Hamslaus
neyslumenning
Morgunmatur hinna sigursælu
(Breakfast of Champions)
Gamanmynd
★★%
Leikstjórn og handrit: Alan Ru-
dolph. Byggt á skáldsögu Kurt
Vonnegut. Aðalhlutverk: Bruce
Willis, Albert Finney, Nick Nolte og
Barbara Hershey. (109 mín.)
Bandaríkin, 1999. Sam-myndbönd.
Bönnuð innan 12 ára.
ÞEIR SEM kjósa röklegt sam-
hengi umfram annað í kvikmyndum
ættu ekki að taka Morgunmat hinna
sigursælu á leigu. Um er að ræða
áhugaverða aðlög-
im á samnefndri
skáldsögu rithöf-
undarins Vonnegut
frá árinu 1973. í
sögunni, sem miðl-
að er samviskusam-
lega í kvikmynda-
útgáfunni, er deilt á
hamslausa neyslu-
menningu Bandaríkja samtímans.
Sagan á sér stað í ímyndaðri borg,
Midland City, þar sem bílasölumað-
urinn Dwayne Hoover (Willis) er lif-
andi goðsögn meðal samborgara
sinna. Hann auglýsir vöru sína í röð
vinsælla sjónvarpsauglýsinga og sel-
ur grimmt því allir vilja eignast nýjan
bfl. En Hoover er að missa trúna á
ævistarfíð og leitar meðal annars á
náðir vísindasagnahöfundarins Kil-
gore Trout (Finney) í leit að svörum
við lífsgátunni. Leikstjórinn Alan
Rudolph reynir ekkert að skafa utan
af furðulegheitum skáldsögunnar,
þvert á móti þjappar hann sem mestu
hann má í hina tveggja tíma löngu
kvikmynd sem fyrir vikið verður ein
furðuferð frá upphafi til enda. Frá-
bært leikaralið myndarinnar tekur
heilshugar þátt í vitleysisganginum
og eru þeir Willis og Nolte þar
fremstir í flokki. Myndin er því bráð-
fyndin en tekst engu að síður að
halda utan um kjamann í ádeilu
Vonneguts.
Heiða Jóhannsdóttir
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000 67
Við erum flutt...
Nýti sjíuaiuúíiíier
o 3 0 3200
Fasteignir á Netinu
mbl.is
Verð nú aðeins
1290.000
Sjálfskiptur - Bensín eöa Dísil
Einstakur fjölskyldu- og ferðabíll!
KIA Carnival er sannkallaður Ijölnotabíll. Hann tekurallt að sjö manns ísæti. Að innan
má sveigja hann að þörfum flestra, hvort sem þeir eru einir á ferð eða með stórfjöl-
skylduna og allt hennar hafurtask. Sætunum ersnúið, rennt og raðað á hvem
þann veg sem heppilegastur þykir hverju sinni. Það spillirsíðan ekki fyrir
að rennihurðimar að aftan eru tvær.
Stærð bilsins, kraftur vélarinnar og öryggisbúnaðurinn
genrKIA Carnival að ákaflega heillandi
ferðabíl, um leið og lipurð hans og fjöt-
breyttur staðalbúnaðurinn búa hann
kostum hins ríkulega fólksbíls.