Morgunblaðið - 16.06.2000, Síða 52

Morgunblaðið - 16.06.2000, Síða 52
«52 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Prófessor vikið úr starfí Jóhann Ágúst Reynir Tómas Sigurðsson Geirsson HINN 21.desember 1999 vék rekt- or Háskóla Islands Gunnari Þór Jónssyni prófessor úr starfi vegna lé- legrar virkni í starfi undanfarinn ára- tug. Aður en þetta gerðist hafði læknadeild gert ítarlega athugun á störfum prófessorsins vegna þess að forsvarsmenn Sjúkrahúss Reykjavík- ur höfðu tjáð deildinni og háskólayfir- völdum að þeir bæru ekki traust til hans í læknisstarfi. Fjölmiðlar hafa undanfama daga ^skýrt frá framhaldi málsins, einkum niðurstöðum nefndar sem ijallaði um þetta mál í samræmi við ákvæði 27. gr. laga um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að háskólarektor hafi verið óheimilt að víkja Gunnari Þór Jónssyni úr starfi sem prófessor og yfirlækni. Nefndin taldi að tiltekin formsatriði er vörðuðu uppsögnina hafi ekki verið rétt en þessi rannsókn- amefnd fjallaði ekki um bein efhisat- riði málsins, þ.e.a.s. hvers vegna pró- fessomum var vikið úr starfi. Gunnar Þór Jónsson segir síðan í viðtali við blaðamann í helgarblaði DV 10. júm' síðastliðinn að hann hafi sætt aðför af hálfu deildarforseta og - Varadeildarforseta læknadeildar. Gunnar Þór telur að deifdarforsetar hafi gert mistök sem leiði til milljóna útgjalda fyrir skattborgara þessa lands. Slíkt myndi varla viðgangast erlendis og að deildarforsetum læknadeildar beri að segja af sér vegna þessa máls. Hér er um alvar- legar ásakanir að ræða á Háskóla Is- lands og læknadeild. Þess vegna er nauðsynlegt að draga fram í sviðsljós- ið helstu ástæður þess að læknadeild taldi þörf á að grípa til fyrmefndra aðgerða. — > Slæleg frammistaða Gunnars Þórs hefur verið til umræðu í stjóm lækna- deildar undanfarinn áratug og hafa allir fyrrverandi deildarforsetar læknadeildar á þessum tíma komið að málinu með einum eða öðmm hætti. Gunnar hefur verið hvattur til úrbóta og aðstoð heitið við það en án árang- urs. Af tillitsemi við Gunnar Þór hef- ur verið leitast við að halda upplýsing- um um málið innan læknadeildar. Þessari steftiu er ekki hægt að fram- fylgja lengur þegar Gunnar Þór kýs sjálfur að fara með málið á ritvöUinn með ásökunum á læknadeild. Vanræksla í starfi Prófessomum var kynnt fyrirhug- uð áminning í ársbyijun 1999 og hon- um gefinn kostur á andmælum sem hann gendi ekki fyrr en tveirumbeðn- ir frestir voru löngu liðnir. Aminning var síðan gefin af rektor og einnig undirrituð af forsvarsmönnum læknadeildar. Gunnar var beðinn um greinargerð um hvemig hann hyggð- ist standa að starfi sínu og rannsókn- um í framtíðinni. Að fengnu svari Gunnars var málið kynnt á deild- arfundi læknadeildar en þar eiga sæti prófessor- ar, dósentar og lektorar deildarinnar ásamt full- trúum stúdenta. Lækn- ingaforstjórar kennslu- sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa einnig fengið fundarboð. Deildarfundur sam- þykkti að fara þess á leit við rektor að hann veitti Gunnari lausn um stundarsakir. Álitsgerð nefndar þeirrar sem kannaði mál hans tók því miður aðeins til formsatriða í mál- inu en ekki efnisatriða. Málið snýst að mati okkar um efnisatriðin en ekki um formsatriði sem túlka má með mismunandi hætti. I greinargerð læknadeildar og áminningunni til Gunnars Þórs voru meginefnisatriðin sem hér segir: Prófessorinn hefur ekki unnið nein teljandi fræðastörf eða birt neinar vísindagreinar í rúman áratug. Að- eins ein grein um framhandleggsbrot í Reykjavík á einu ári (frá 1990) getur talist að verulegu leyti hans verk. Fræðastörf af hendi hans hafa því nánast ekki verið til síðasta áratug. Hann hefur aðeins einu sinni (árið 1992) haft læknanema í stuttu rann- sóknanámi og aldrei sótt um né fengið neina rannsóknastyrki. Engar grein- argerðir, erindi eða tillögur um fram- þróun í fagi hans hafa sést frá honum sl. áratug, jafnvel þótt hann hafi verið beðinn um slíkt. Hann hefur ekki lagt nema sáralítið til innra starfs lækna- deildar og mætt illa á fundi deildar- innar sem er hluti af vinnuskyldu hans. Mæting í kennslustundir hefur oft ekld verið sem skyldi. Frumkvæði vegna kennslunnar hefur skort. A sjúkrahúsinu var hann í andstöðu við stjómendur sem höfðu séð ástæðu til að áminna hann formlega í tvígang vegna vandkvæða í læknisstörfum hans þar. Það eitt er vanvirða íyrir háskólann. Allt er þetta með eindæm- um í læknadeild og hvar sem er í há- skólum. Vera kann að einhvers staðar finnist prófessor sem ekki hefur unn- ið mikið meira (þó ekki í læknadeild) en það teljum við ekki geta verið af- sökun fyrir því að vinna ekki þau störf sem manni er trúað fyrir og fmnst undarleg sú niðurstaða framan- greindrar nefndar að telja það brot á jafnræðisreglu. Prófessorinn hefur í svari sínu borið við aðstöðuleysi en ekki leitað úrbóta. Aðstaða hans var ekki verri en annarra kennara við læknadeildina. Faglegar kröfiir í læknadeild Læknadeild hefur ávallt leitast við að ráða til deildarinnar hæfustu sér- fræðinga sem völ er á. Megináherslan er lögð á fæmi og virkni við vísinda- störf og kennslu. Vísindastörf em gmndvöllur góðrar og nútímalegrar kennslu. Kröfur læknadeildar verða að standast samanburð við erlenda læknaskóla. Það er mat deildarstjóm- ar að vel hafi til tekist á undanfömum áram og áratugum þótt alltaf séu til undantekningar. Læknadeild hyggst ekki slaka á þessum kröfum sínum nema síður sé. Nefna má að nýverið samþykkti læknadeild nýjar reglur deildarinnar varðandi hæfniskiöfur vegna nýráðninga og framgangs kennara, sem em strangari en geng- ur og gerist meðal annarra deilda HI. Brottvikning Læknadeild hefur til þessa forðast að fara með mál þetta á opin- beran vettvang segja Jóhann Ag. Sigurðsson og Reynir Tómas Geirs- son. Það er leitt að pró- fessorinn og lögmaður hans skuli kjósa sjálfír að gera það. Það er hlutverk deildarforseta að stuðla að því að fagleg hæfni og vís- indaleg virkni í starfi sé aðalsmerki kennara læknadefidar. Gunnar Þór Jónsson var beðinn um að sýna með greinargerðinni (svipuð aðferð og þegar sótt er um háskólastarf) hvem- ig hann hyggðist bæta ráð sitt sem nútímalegur starfsmaður við lækna- deild. Hann lagði þar á borðið hvemig hann myndi standa að verki næstu ár. Svar hans var með þeim hætti að á deildarfundi læknadeildar komu ekki fram nein andmæli við tillögu um að honum yrði tímabundið vikið úr starfi og mál hans rannsökuð. Hann hafði síðan tækifæri til að bæta úr allt fram til loka nóvembermánaðar, m.a. með því að leggja fram rannsóknaáætlanir sem hefðu getað leitt til styrkveitinga frá tveimur helstu rannsóknasjóðum landsins. Ekkert slíkt barst. Engar ástæður vora heldur til að veita manni sem átti að hafa rannsókna Alþjóðleg einkabankaþjgnusta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.