Morgunblaðið - 16.06.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR16. JÚNÍ 2000 5!*^
UMRÆÐAN
Útskýringarí Listíorku- .
fullri vinsemd stöðvum
AÐ UNDANFORNU hefur
mikið verið til umræðu í fjöl-
miðlum hugmyndir um að
flytja til Hríseyjai- nokkra
þroskahefta einstaklinga frá
höfuðborgarsvæðinu til búsetu
um lengri eða skemmri tíma á
sama tíma og mikil óvissa er
uppi í búsetumálum þeirra í
heimabyggð sinni. Niðurstaðan
er sú að fallið hefur verið frá
þessum hugmyndum og um
leið verið eytt óvissu um búsetu
margra fatlaðra einstaklinga.
Enn er þó langt í land að
ástandið sé orðið viðunandi á
höfuðborgarsvæðinu í búset-
umálum fatlaðra. í umræðunni
hafa þó komið fram athugasemdir
sem við teljum skylt að bregðast við.
Forsvarsmenn hugmyndarinnar
um búsetu fatlaðra einstaklinga í
Hrísey hafa undrast skjót viðbrögð
Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Fyrir mörgum mánuðum hafði Har-
aldur L. Haraldsson ráðgjafi samand
við framkvæmdastjóra samtakanna
þar sem hann spurði um álit á mögu-
legri notkun húsnæðisins á Hlein fyr-
ir fatlaða. Honum var bent á að nýta
viðkomandi húsnæði fyrir brottflutta
fatlaða Hríseyinga sem vildu aftur
koma heim eða til hvfldar og hress-
ingar fyrir fatlað fólk í 2-3 vikur í
senn (svipaða hugmynd lagði for-
maður samtakanna til í 19-20 á Stöð 2
í samræðum við sveitarstjóra Hrís-
eyinga). 5. aprfl var haft eftir sveitar-
stjóra í Morgunblaðinu að hugmynd-
um um sambýli fyrir fatlaða af
höfuðborgarsvæðinu hefði verið vel
tekið í rfldsstjóm. Skýrsla fram-
kvæmdastjóra svæðisskrifstofu
Reykjaness boðaði því engin ný tíð-
indi nema þá helst að gengið skyldi út
frá að starfsemi byrji í september ár-
ið 2000 og að verið væri að vinna í því
að kanna hvort fatlaðir væru tilbúnir
að flytja til Hríseyjar og aðstandend-
ur samþykkir þeim flutningi. Eftir
hveiju áttum við að bíða með við-
brögð? Því hefur verið haldið fram að
fyrrnefnd skýrsla hafi aðeins verið
tillögur til umræðu og þar hafi komið
fram hugmyndir um að koma á fót
skammtímavist í Hrísey. I skýrsl-
unni er fjallað um þrjá valkosti og
mælt með einum þeirra, þ.e.a.s. vist-
un fatlaðra einstaklinga með miðl-
ungs þjónustuþörf þar sem lágmar-
ksdvöl hvers einstaklings væri sex
mánuðir og allt að þrjú ár.
Höfundi skýrslunnar var fullkunn-
ugt um að slíkar tillögur gætu
Landssamtökin Þroskahjálp ekki
samþykkt. Landssamtökin Þroska-
hjálp fengu þessa skýrslu ekki senda
með beiðni um neinar viðræður, allra
síst gátu samtökin ímyndað sér að
skýrsla þessi væri umræðu-
grundvöllur fyrir eitthvað annað en í
henni stóð.
Okkur þykir vont þegar gefið hef-
ur verið skyn að í málflutningi sam-
Fatlaðir
Allar vangaveltur um
meintan landsbyggðar-
fjandskap Landssam-
takanna Þroskahjálpar,
segja Halldór Gunnars-
son og Friðrik Signrðs-
son, bera vott um mikla
vanþekkingu.
takanna endurspeglist landsbyggð-
arfordómar og að aðrir hagsmunir en
hagsmunir þroskaheftra skjólstæð-
inga samtakanna ráði ferðinni.
Samtökin vinna skv. stefnuskrá
sem samþykkt var 1992. Þar er
áhersla lögð á að fatlaðir njóti þjón-
ustu í heimabyggð sinni eins og aðrir.
„Flutningur fatlaðra vegna skorts á
þjónustu og stuðningi í heimabyggð á
að heyra sögunni til.“ Að baki þessari
stefnu Þroskahjálpar liggur sú hug-
myndafræði að fatlaðir séu eðlilegur
hluti hvers samfélags og tilvera
þeirra sé til þess fallin að auka marg-
breytileika þess. Þeim erfiðleikum
sem samfara séu fötlun einstakl-
inganna verði best mætt í því um-
hverfi þar sem þeir ólust upp og í ná-
inni samvinnu við aðstandendur
þeirra. Þessi sjónarmið voru lögð til
grundvallar þegar hugmynd-
um búsetu fyrir fatlaða í Hrís-
ey var hafnað. Landssamtökin
Þroskahjálp hafa reynt að
vera þessari stefnu sinni trú,
m.a. með því að stuðla að upp-
byggingu húsnæðis og hefur
landsbyggðin þar til allra síð-
ustu ár notið forgangs hvað
varðar þessa uppbyggingu.
Þroskahjálp á núna álíka
margar íbúðir á Akureyri og í
Reykjavík, jafnmargar íbúðir
á Dalvík og í Hafnarfirði, jafn-
margar íbúðir í Kópavogi og í
Fellabæ svo dæmiséu tekin.
Auk þess hafa samtökin stuðl-
að að uppbyggingu húsnæðis
fyrir fatlaða, m.a. á Egilsstöðum, Fá-
skrúðsfirði, Þorlákshöfn og Sauðár-
króki. Allar vangaveltur um meintan
landsbyggðarfjandskap Landssam-
takanna Þroskahjálpar bera því vott
um mikla vanþekkingu.
Rétt er að geta þess að Þroska-
hjálp á Norðurlandi eystra hefur ná-
kvæmlega sama viðhorf til umrædds
máls og Landssamtökin.
í dag er staðan sú að þjónusta við
þroskahefta er um margt betri á
landsbyggðinni en á höfuðborgar-
svæðinu og fagna Landssamtökin
Þroskahjálp þeirri uppbyggingu sem
þar hefur átt sér stað, m.a. vegna
baráttu samtakanna. A höfuðborgar-
svæðinu hefur hins vegar gengið erf-
iðlega að fullnægja þörf eftir þjón-
ustu og löngu orðið tímabært að
vinna markvisst að varanlegri úr-
lausn þeirra mála.
Landssamtökin Þroskahjálp
harma það ef Hríseyingum hefur
fundist þeir sem einstaklingar eða
sveitarfélag hafa orðið illa úti í þess-
um umræðum. Við höfum aldrei efast
um að tilboð þeirra um að byggja upp
þjónustu við fatlaða var sett fram af
heilindum. Við ítrekum þá skoðun að
tilboð um tveggja til þriggja vikna
dvöl til hvfldar og skemmtunar væru
samtökunum mjög að skapi, enda allt
annars eðlis en fram komnar búsetu-
hugmyndir. Sá áhugi okkar var
ítrekaður á fundi með fulltrúum
Hríseyinga þann 9. júní sl. og var
þeirri hugmynd vel tekið.
Það er von okkar að ekki sé of seint
að skoða þessi mál nánar í vinsemd.
Frábærar aðstæður í Hrísey og
stefnuskrá Landssamtakanna
Þroskahjálpar yrði þar sá grunnur
sem byggja ætti á.
Halldór er formaður Landssamtak-
anna Þroskalyálpar og Friðrik er
framkvæmdastjóri sömu samtaka.
FYRIRTÆKI á ís-
landi hafa í vaxandi
mæli stutt ýmiss konar
menningarstarfsemi
með beinum hætti. Á
þessu ári er þetta mjög
áberandi, einkum
vegna þess að Reykja-
vík er Menningarborg
Evrópu árið 2000.
Landsvirkjun er eitt
þeirra fyrirtækja, sem
tekist hafa á hendur að
vera máttarstólpar
menningarborgarinn-
ar, og leggur fram
verulega fjármuni til
þess verkefnis.
Framlag Félags ís-
lenskra myndlistarmanna til dag-
skrárinnar Reykjavík menningar-
borg Evrópu árið 2000 er sýningin
Ný tækni sem tekin
hefur verið í notkun
gerir það að verkum að
rými myndast í stöðvar-
húsi Ljósafossvirkjun-
ar, segir Friðrik
Sophusson, og hefur
Landsvirkjun ákveðið
að nýta það til sýningar-
halds í framtíðinni.
List í orkustöðvum. Að frumkvæði
félagsins var ákveðið að hafa mynd-
listarsýningar í tveimur virkjunum
Landsvirkjunar, Ljósafossvirkjun
við Sog og Laxárvirkjun í Þingeyj-
arsýslu. Sýningin í Ljósafossi var
opnuð fyrr í mánuðinum en sýningin
í Laxárvirkjun verður opnuð í dag.
Ný tækni sem tekin hefur verið í
notkun gerir það að verkum að rými
myndast í stöðvarhúsi
Ljósafossvirkjunar og hefur
Landsvirkjun ákveðið að nýta það til
sýningarhalds í framtíðinni. Stiga-
gangur með lyftu hefur verið byggð-
ur við húsið, þannig að aðgengi er
auðvelt. Þá hefur „Ljósgjafinn“, lág-
mynd Ásmundar Sveinssonar, verið
lagfærð. Hugmyndin er að sýning-
araðstaðan verði í framtíðinni ann-
ars vegar nýtt til að gera lífríki
Sogsins og Þingvallavatns sérstök
skil og hins vegar til að standa fyrir
sérstökum sýningum
íyrir þá fjölmörgu, sem
leið eiga um á ferð
sinni um þessar slóðir.
I Laxárvirkjun eru að-
stæður allt aðrar, en
ekki síður heillandi.
Þar er sýningin í hrá-
um berggöngunum og
hafa listamennimu^
mótað verk sín með til-
liti til þess.
Menning og náttúra
Eins og öllum er
kunnugt er yfirskrift
Friðrik menningarborgarinnar
Sophusson „Menning og náttúra".
Það fer vel á því að
listamennimir skuli hafa valið að
sýna list sína í virkjunum, því að
varla er hægt að hugsa sér tilkom-
umeiri samleik menningar og nátt-
úru en einmitt þann sem leikinn er í
íslenskum raforkustöðvum.
I sýningarskrá, sem er einkar
glæsileg, ritar Jón Proppé gagnrýn-
andi eftirfarandi: ^
„Virkjanimar era vissulega eitt
skýrast tákn þess af hve mikilli
harðfylgni íslendingar hafa tekist á
við það að byggja upp samfélag sitt
á þessari nær óbyggilegu eyju
lengst norður í hafi. En listin er lflca
til vitnis um það að okkur hafi tekist
að yfirvinna þau eyðingaröfl sem
hér höfðu ráðið frá örófi þar til
nokkram norrænum mönnum datt
sú firra í hug að það mætti búa í
þessu landi. Hvort tveggja sýnir að
hér er þrátt fyrir allt skapandi og_
þróttmikið mannlíf í nánum tengsl-3*"
um, bundið djúpri virðingu, við nátt-
úrana og landið."
Sýningamar í Ljósafossstöð og
Laxárvirkjun era opnar til 15. sept-
ember. Með þessu greinarkorni vil
ég vekja athygli á þessu merka
framtaki Félags íslenskra mynd-
listarmanna um leið og ég hvet
landsmenn til að koma við og skoða
listaverkin á vettvangi þar sem
menning og náttúra mætast.
Höfundur er forstjóri
Landsvirkjunar.
Aðsendar greinar á Netinu
vg> mbl.is
—ALLTA/= C/77Hl«Ð /VÍ7T
Sjálfuppbl
Pumpa
frá kr. 190
vindsængur
wmmm
Bakpokar 65 I....frá kr. 3.350
Bakpokár 75 I.... frá kr, 3.750
Bakpokar .........frá kr_g490
Mittistöskur .....frá kr. 290
Mittistöskur m/brúsa kr. 1.600
önguskór SALOMON 20 - 50%]
Gönguskór frá kr. 3.900
Goretex skór frá kr. 6.900
llflstimrir
Ármúla 40
Sími: 553 5320
l/ersluninl
AMRK
Kælitöskur frá kr. 550 • Kælielement frá kr. 190 • Attavitar frá kr. 190 • Tjaldhælar m/10 frá kr. 250 • Legghlífar frá kr. 490