Morgunblaðið - 16.06.2000, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 16.06.2000, Qupperneq 62
62 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Dýraglens Ferdinand Hvemig eyðir afi þinn tímanum Hann segist hafa nú þegar hann er kominn á nóg að gera allan eftirlaun? daginn.. Að gera hvað? Afa hluti.. Kringlunni 1 103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329 Nesjavallaleið og Grafningur á einnig að vera ætlaður þeim almenn- ingsfarartækjum sem kallast leigubflar, segir bréfritari. Gegn leigubilum Frá Kristni Snæland: AF EINHVERJUM óskiljanlegum ástæðum virðist skipuleggjendum borgarumferðar, hátíðarhalda eða annarra stórsamkoma vera í nöp við leigubíla og viðskiptavini þeirra. Vegna Tónleika Eltons Johns var reiknað með miklum fjölda gesta. Aðkoma og brottför bíla var sem gerist, inn og út frá stæðum um Reykjaveg og Engjaveg. Gangandi umferð var að venju aðallega frá Suðurlandsbraut og niður með Reykjavegi. Brottför gangandi öll á sama veg út á Reykjaveg og upp að Suðurlandsbraut. Þetta er leið gang- andi alltaf frá samkomum í dalnum, hvort sem þær eru haldnar á vellin- um, í höllinni eða öðrum hlutum dalsins. Vegna tónleikanna skipaði lögreglan leigubílum að bíða í röð í afrein frá Sundlaugavegi bak við áhorfendapalla lauganna og þar með ósýnilegum gangandi gestum sem streymdu út og upp Reykjaveg að Suðurlandsbraut í leit að leigubílum. Þarna stóð svo fólkið og skammaðist vegna lélegrar þjónustu leigubílanna sem á sama tíma stóðu ónotaðir í röð lögreglunnar bak við áhorfendapalla lauganna. Tónlistarhátíð í Laugardal Menningarborgin hélt mikla tón- leikahátíð í dalnum sl. helgi. Snill- ingamir sem skipuleggja ætluðu leigubílum hluta af bílastæðum við Skautahöllina. Á auglýsingablaði var þetta kynnt en með afar ósmekkleg- um hætti bætt við að vissulega væri skynsamlegra að nota strætisvagna. Þegar komið var að syæðinu í leigu- bíl kom í ljós að Engjavegur var lok- aður við Glæsibæ og aðkeyrsla frá Reykjavegi var lokuð við hringtorg- ið. Sá leigubflstjóri sem vildi komast á hið auglýsta leigubflastæði komst ekki að því. Með alkunnri þijósku ogþrákelkni að viðbættu virðingar- leysi við merkingar komst þó undir- ritaður inn á svæðið og alveg að hinu auglýsta stæði leigubíla. Engar sér- merkingar voru þar vegna leigubfla og stæðið því fullt af einkabílum sem vonlegt var. Strætisvagnamir sem fólkið átti að nota fremur en leigu- bíla sáust ekki heldur. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir merkingar um að umferð inn á svæðið væri bönnuð bflum, var stöðugur straum- ur bíla fram hjá merkingunum inn á svæðið og lögreglan lét sem hún sæi það ekki (enn eitt dæmið um skipu- legt uppeldi ökumanna í því að virða ekki umferðarmerki). Kristnihátíð í plaggi sem Kristnihátíðamefnd og ríkislögreglustjóri senda nú inn á hvert heimili á landinu er leigubflum úthýst. Leigubílar og viðskiptavinir þeirra virðast vera óæskilegir, a.m.k. ekki hluti almenningssam- gangna. Samkvæmt plagginu er hópferðabílum, sérmerktum bílum, og mun þar átt við bfla fatlaðra, og neyðarbflum ætlað að mega aka Nesjavallaveg og um Grafning. Þetta dæmalausa plagg segir að hópferðabflar muni fara úr Reykja- vík á klukkutíma fresti. Samkvæmt þessu mætti ætla að tveir til fjórir hópferðabflar væm á veginum hveiju sinni. Einn til tveir með fatl- aða og væri þeim almenningsfarar- tækjum sem leigubflar era leyfð af- not af veginum þá mætti ætla tvo til tíu slíka á klukkustund. Á þessum fimmtíu kílómetra vegi gætu þá ver- ið um sextán bflar á klukkustund eða einn bfltl á hverja þijá kflómetra svona lauslega reiknað. Að reikna ekki með leigubílum inn á þessa sér- leið almenningssamgangna er því dæmafár klaufaskapur og ef ekki það þá hrein óvirðing við þau al- menningssamgöngutæki sem leigu- bflar era. Hvað annað? Við fjöldasamkomur á Laugar- dalsvelli ætti að ætla leigubflum hægri akrein Reykjavegar frá Hof- teigi upp að Laugarteigi og loka þá fyrir aðra umferð upp Reykjaveg frá Hofteigi að Laugarteigi.. Við stór- samkomur á Laugardalshallarsvæð- inu ætti að ætla leigubflum hægri akrein Reykjavegar frá Suðurlands- braut niður að hringtorginu og gæta þess þá jafnframt að engum bflum sé lagt þar upp á gangstéttina eða út á grasið. Rfldslögreglustjóri ætti svo að sjá sóma sinn í því að koma því á framfæri við fjölmiðla að Nesjavalla- leið og Grafningur sé að sjálfsögðu einnig ætlaður þeim almenningsfar- artækjum sem kallast leigubílar. KRISTINN SNÆLAND, leigubflstjóri. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.