Morgunblaðið - 16.06.2000, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 16.06.2000, Blaðsíða 66
- 66 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ 4%h ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ símí 551 1200 Stóra sóiM ítl. 20.00 ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric-Emmanuel Schmitt Aukasýning í kvöld fös. 16/6. Allra siðasta sýning. GLANNI GLÆPUR í LATABÆ Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson. Sun. 18/6 kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning leikársins. Litta stíM kt. 20.30: HÆGAN, ELEKTRA — Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir [ kvöld fös. 16/6, örfá sæti laus. Ailra síðasta sýning. Miðasalan er opin mánud.—þríðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga. Sími 551 1200. thorev@theatre.is — www.leikhusid.is 1 FJKFÉLAG LSLANDS ^AsTaSNÍiI 552- 3000 Sjeikspír eins og hann leggur sig lau. 24/6 kl. 20 fös. 30/6 kl. 20 Panódíl fyrir tvo í kvöld 16/6 kl. 20.30 laus sæti Síðustu sýningar í sumar 530 3O3O Stjömur á morgunhimni sun 18/6 kl. 20 nokkur sæti laus fim 22/6 kl. 20 lau sæti Síðustu sýningar Hádegisleikhús: LEIKIR í dag, fös 16/6 kl. 12 Síðasta sýning Miðasalan er opin frá kl. 12—18 alla virka daga, kl. 14-18 laugardaga og fram aö sýningu sýningar- daga. Miðar óskast sóttir I viðkomandi leikhús (Loftkastalinn/lðnó). Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dðgum fyrir sýningu. f Nœ turqa tinn s,« ,s j<,oso * í kvöld og laugardags- kvöld leika hinir frábæru Stcfán P. og Pétur. Ath! Frítt inn í kvöld til kl. 23.30. HftRMONIKUBALL verður í ÁSGARBI, Glæsibæ við Álfheima, á morgun, að kvöldi þjóðhátíðardags, kl. 22. Allir velkomnir FÓLK í FRÉTTUM • • Músíkalskar sogur Nurse With Wound The Swinging Reflective, World Serpent 1999 STEVEN Stapleton hefur framið súrrealíska tónlistargjörninga sína í félagsskap við ýmsa góða menn und- ir nafninu Nurse With Wound frá því í kringum árið 1978. í lok síðasta árs kom út diskurinn The Swinging Reflective með samvinnuverkefnum NWW og ýmissa eðal jaðarrokkara eins og Current 93, Coil, David Tibet, Foetus og Stereolab frá árunum1980-1999. Undirtitill umræddrar plötu er „Favorite Moments of Mutual Ecstasy" og það er eins og við manninn mælt. Sælan er ekki aðeins viðkomandi tónlistarfólks heldur einnig þess sem situr við hátalarana. Það eru ekki aðeins fyrsta flokks skruðningar sem um ræðir heldur einnig yndis- lega músíkalskar sögur. Sum tónlist hefur þau áhrif á skiln- ingarvitin að heilu kvikmyndirn- ar flæða manni fyrir hugskots- sjónum, en þessarri plötu fylgja sögur. Þær eru ekki skrifaðar inn í umslagið, tónlistin segir allt sem segja þarf jafnt í litrík- um ævintýrum sem dramatísk- um ástarsögum og æsispenn- andi reyfurum. Að mörgu leyti tekst best til í sam- starfi Stereolab við Nurse With Wound, því þar mætast tveir heim- ar. Þægilegt, leikandi melódískt popp Stereolab og ögrandi hljóða- hamfarir NWW tvinnast dásamlega saman í lögunum „Animal or Veget- able“ og „Simple Headphone". Þó fléttan sé endurtekningasöm haldast eyrun þó ávallt vakandi því samsetn- ing þessa heima er það forvitnileg. The Swinging Reflective er nokk- uð tvístruð plata, enda koma um 15 aðilar að tónsmíðunum. En viti menn, það er ekki löstur plötunnar heldur einmitt hennar helsti styrk- leiki. Þó að efniviðurinn sé sóttur í mörg horn, þá er eins og að menn hafi náð sérstaklega vel saman í hugsuninni að baki verkefnunum. Hvort sem það snýst um háleita tónlistarheimspeki eða einfaldlega „gúddí fílíng“ tónlistarfólksins, skil- ar það sér í afskaplega heildstæðri stemmningu og ákveðnum anda sem svífur yfir vötnunum. Það má kannski skrifa það á einstæðan per- sónuleika Stapletons sjálfs sem vafalaust hefur átt síðasta orðið í vinnslu plötunnar. I viðtali við tíma- ritið Wire nýverið, segir Stapleton að sérstaða NWW felist ekki endi- lega í hinu óhefðbundna, heldur því að flytja hefðbundinn efnivið yfir í ólíklegt umhverfi og skapa þannig hljóm sem skipar honum í sérflokk. Hann segir einnig að á tímabili hafi hann haft svo sítt skegg að það hafi flækst við græjumar í hljóðveri hans þar sem hann sat við tónsmíðar. Kannski það hafi haft einhver áhrif á andrúmsloft tónlistarinnar? „Ég dansa ekki, hatturinn minn gæti fok- ið af höfði mér.“ Frá unga aldri var Stapleton alger tónlistarfíkill, sér- staklega eftir að hann uppgötvaði „krautrokk“-menningu Þjóðverja og bönd eins og Neu!, Faust og Can. Hann hafði þó engan hug á að búa til tónlist sjálfur fyrr en tækifærið til að taka upp plötu hoppaði upp í fangið á honum. Hann var að vinna við að líma skilti á hurðir í hljóðveri í Englandi þegar einn tæknimannanna bað hann um að benda sér á gott tilraunaband því hann langaði til að prófa að taka upp eitthvað nýtt og ögrandi og að viðkomandi þyrftu ekki að borga neitt fyrir upptökurnar. Stapleton hringdi þá umsvifa- laust í tvo vini sína og sagði þeim að þeir væru hér með í hljóm- sveitinni Nurse With Wound og að þeir væru að fara að taka upp sína fyrstu breiðskífu í vikunni á eftir. Aður en þetta skall á höfðu félagarnir þrír aldrei snert hljóð- færi en tvínónuðu þó ekki við að taka upp plötuna Chance Meeting á sex klukkutímum sem er upp- full brakandi frískra hugmynda og er enn þann dag í dag álitin ein besta plata NWW. Seinna meir komst Stapleton að því að hann vinnur langbest í einrúmi, hvort sem um er að ræða geitakofasmíðar, listmálun eða tónlistarsköpun. Hann segist engan áhuga hafa á málamiðlunum og því geti NWW aldrei verið hljóm- sveit þó hann hafi reyndar í rúm 15 ár unnið mjög náið með David Tibet úr „hljómsveitinni" Current 93. Það má margt segja um tónlistina á The Swinging Reflective. Það er t.d. á hreinu að ekki er hún dansvæn. Stapleton segist ekki dansa því hatt- urinn hans gæti fokið af höfði hans. Því sé tónlistin hans ekki danstónlist þó hann hafi reyndar mikinn áhuga á takti sem slíkum. Eins og góð saga, er platan upp- lifun. En maður verður að lesa hana til að skilja um hvað hún snýst og njóta hennar. Kristín Björk Kristjánsdóttir Steven Stapleton, höfuðpaur Nurse With Wound, sitjandi. .* Bæjarstjóri Bolungarvíkur, Ólafur Kristjánsson, gefur út geisladisk Djass að hætti Óla Kitt Bolungarvík. Morgunblaðið Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörn Þeir voru góðir saman, stórdjassararnir Ólafur Krisljánsson og Björn Thoroddsen. Skagaleikflokkurinn sýnir „LIFÐU“ eftir Kristján Kristjánsson í Bjarnalaug, Akranesi. föstudag 16/6 kl. 20 sunnudag 18/6 kl. 20 Miðapantanir í síma 431 3360. Ólafi Kristjánssyni og meðspil- ÞAÐ var gríðarleg stemmning í þéttsetnu samkomuhúsinu Víkurbæ á útgáfutónleikum Ólafs Kristjáns- sonar, bæjarstjóra Bolungarvíkur og tónlistarmanns er hann kynnti nýútkominn hljómdisk sem ber nafnið Gamlar minningar, en á hon- um leikur Ólafur þekkta djass- standarda á píanó með aðstoð Bjarna Sveinbjömssonar á bassa og Póturs Grétarssonar á trommum. Þar að auki ljær dóttir Ólafs, Edda Borg, tveimur lögum söngrödd sína. Gestur tónleikanna var hinn kunni djassgítarleikari Björn Thoroddsen. Það má með sanni segja að bæjar- stjórinn hafi verið í miklu stuði og þeir 180 gestir sem sóttu tónleikana, sem var liður í tíu daga listaveislu í Bolungarvík, voru yfir sig hrifnir enda vart hægt annað þegar Óli Kitt, eins og hann er oftast kallaður á heimaslóðum, leikur djassinn eins og honum einum er lagið. Þarna var boðið upp á tveggja tíma tónlistarveislu þar sem djass- sveiflan fékk að njóta sín enda sýndi Óli alla sína bestu takta er hann renndi fimum fingrum um hljóm- borðið, og útkoman var frábær djass að hætti Óla Kitt. Leikin voru mörg laganna af nýja hljómdisknum, þar á meðal lög eins og Summertime, Autumn Leav- es og Cheek To Cheek, svo einhver séu nefnd, en auk þess renndi Óli sér í gegnum nokkur önnur lög sem hann heldur upp á. Þá fluttu þau Edda Borg og eiginmaður hennar Bjarni Sveinbjörnsson dúett fyrir rödd og bassa við mikla hrifningu viðstaddra. í lok tónleikana voru Ólafur og aðstoðarmenn hans hylltir vel og lengi. Olafur er menntaður tónlistar- kennari og var einn af hvatamönn- um að stofnun tónlistarskóla Bol- ungarvíkur fyrir 35 órum og fyrsti skólastjóri hans. Það var svo í fyrra að gamall nem- andi hans, Hrólfur Vagnsson tón- listarmaður, sem býr í Hannover í Þýskalandi og á og rekur hljóðverið Studio Vagnson og útgáfufyrirtækið Cordaria þar í landi sóttist eftir að fá að hljóðrita og gefa út hljómdisk með djasstónlist síns gamla kenn- ara, honum til heiðurs. Reyndar sagði Ólafur að hann hefði grun um að Hrólfur væri að hefna sín á sér. Hrólfur kom svo til Bolungarvík- ur í ágúst í fyrra með upptökubúnað sinn og hljóðritaði efnið á hljóm- diskinn í því umhverfi sem Ólafur nýtur sín sennilega hvað best í, en það er á sviðinu í félagsheimilinu í Bolungarvík. Gamli nemandinn og nú útgef- andinn mætti einmitt frá Þýskalandi hálftíma áður en þessir vel heppn- uðu útgáfutónleikarnir hófust með fyrsta upplagið af hljómdisknum „Gamlar minningar", sem nú er kominn í almenna dreifingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.