Morgunblaðið - 16.06.2000, Page 70

Morgunblaðið - 16.06.2000, Page 70
70 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Ut að borða með Selmu PPmiP mi í tilefni að útgáfu nýjustu smáskífu Selmu, Respect yourself, býður mbl.is upp á laufléttan spurninga- leik. Kíktu á heimasíðu Selmu, www.selma.is, og svaraðu nokkrum spurningum á mbl.is, þar sem hægt er að vinna: • Smáskífuna Respect yourself með Selmu • Smáskífuna Hitgirl með Selmu • 100 miða á tónleika í Háskólabíói með Selniu 24. júní kl. 14 • Árituð póstkort með Selmu Auk þess fá nokkrir heppnir þátttak- endur skenimtilegan vinning: Hádegisverð fyrir tvo MEÐ SELMU á veitinga- staðnum Apótekið. apbtEk har . g ri 11: Selma er einn okkar vinsælasti tónlistarmað- ur og á næstunni mun hún feta sín fyrstu spor t útgáfumálum erlendis. Otgáfa nýjustu smá- skífu Selmu, Respect yourself, er væntanleg 28. júní næstkomandi. Skráðu þig strax á mbUsI m ^v^mbl.is 4 ^ALLTAT 4£/TTH\SA€7 A/YTT . Á FÓLK í FRÉTTUM r í afmælis- og þjóðhátíðarskapi Sumar, bros og hamingja ÚTVARPSÖLDUNGURINN PartyZone hefur nú í tæp tíu ár kynnt fyrir landsmönnum ferskustu strauma plötu- snúðamenningarinnar. Um- sjónarmenn hans hafa einnig verið afar iðnir við plötuút- gáfu af samnefndum plötum auk þess sem þeir hafa tekið á móti mörgum af þekktari plötusnúðum heimsins og leitt þá inn í íslenska næturklúbba. Til þess að fagna komu sumarsins ætla þeir svæðis- gleðskapsfélagar að bjóða upp á breska sumarsveiflu á morgun, þjóðhátíðardag okk- ar f slendinga. Leikin verður „house“-tónlist og diskó til þess að fagna sumrinu. Lund- únarplötusnúðarnir Idjut Boys og Rhythmdoctor ásamt íslensku vínylpiltunum Kára og Margeiri ætla að sjá um að halda þjóðhátíðardaginn óheilagan. Herlegheitin byrja í útvarpsþættinum PartyZone sem er á dagskrá öll laugar- dagskvöld kl. 21:00 en eftir hann flytja þeytaramir sig yf- ir á Kaffi Thomsen þar sem þeytingurinn verður eflaust hávær lengst fram eftir morgni. L Eg tárast ekki yfir biómyndum GISU MARTEiNN Baldursson er annar stjórnenda fréttatengda spjallþáttarins Kastljóss i Sjón- varpinu sem vakiö hefur mikla at- hygli og umtal allt síóan hann hóf göngu sína í byrjun ársins. Þáttur- inn er nú í stuttu fríi vegna fyrir- feróar Evrópukeppninnar f knatt- spyrnu og Gísli féllst treglega á að líta stuttlega af sjónvarpsskjánum til aö svara nokkrum persónuleg- um og viðeigandi spurningum. Hvernig hefur þú það í dag? Bara Ijómandi gott, þakka þér. Hvad ertu með í vösunum í augnablikinu? Mold, vinnuhanska og GSM-síma, því ég er að vinna í hinum litla, en ágæta garði mínum. Ef þú værir ekki dagskrárgerðarmaður/ fréttamaður hvað vildirðu þá helst vera? Geimfari. Því ég held að það sé svo ágætt. Hvernig eru skilaboðin á talhólfinu hjá þér? Ég hef ekki hugmynd um það. Kannski „Þetta erGísli Marteinn, í augnablikinu er ég utan þjónustu- svæðis. Talið eftir tóninn." Eða eitthvað. Hverjir voru fyrstu tónteikarnir sem þú fórst á? Það voru einhverjir menningarlegir tónleikar f Norræna húsínu sem mér fannst rosalega leiðinlegir, enda ungur og vitlaus. Ég man ekkert hverjir léku. Síóan fórég að sjá hinn gagnmerka fræðimann Meatloaf í Reiðhöllinni í Vfðidal, þegar ég var aðeins eldri, en enn- þá vitlaus. sos SPURT & SVARAÐ Gísli Marteinn Baldursson Hvaða hlut myndir þú fyrst bjarga úr eldsvoða? Ef allt heimilisfólk væri hólpið myndi ég ekki drýgja neina hetju- dáð til að bjarga einhverju drasli úr brennandi húsi. Ef tíminn væri nægur myndi ég hins vegartína út bækur, Ijósmyndir og handverk dóttur minnar. Hver er þinn helstl veikleiki? Vaki alltof lengi frameftir. Hefurdu tárast í bíói (hvenær síðast)? Égtárast ekki yfir bíómyndum. Finndu fimm orð sem lýsa per- sónuleika þínum vel. Ég tárast ekki yfir bíómyndum. Hvaða lag kveikir blossann? „Light my fire.“ Hvert er þitt mesta prakkarastrik? Það var misheppnaö, en einu sinni reyndum við féiagarnir að skríða eftir loftræstikerfi sund- laugar á höfuðborgarsvæóinu, til að sjá inn í kvennaklefann. Við skoðuöum teikningar en eftir að hafa skriöið í hálftíma vorum við orðnir svo villt- ir að við uröum hræddir um að komast aldrei út. Svo fór þó ekki en við reyndum þetta ekki aftur. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragdað? Ég man ekki hvað ég hef eldað mér þegar lítið hefur verið til í ís- skápnum, en þó gætu hrísgrjón með bökuöum baunum hafa lent í potti hjá mér. Kannski nokkrar kartöflur með. Annars er mér sama um furðulegheitin, ef matur- inn er góður. Hvaða plötu keyptirðu síðast? Nýju plötuna með Eels „Daisies of the Galaxy“. Mjöggóð. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Sandra Bullock. Mér finnst hún ekki geta leikiö konan. Hverju sérðu mest eftir í lífinu? Ég reyni að lifa þannig að ég þurfi ekki að sjá eftir því sem ég geri. En þú getur spurt mig aö þessu aftur eftir svona fimmtíu ár. Þá get ég eflaust ausið úr brunninum. Trúir þú á líf eftir dauðann? Já, staðfastiega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.