Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 1
226. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hörðustu átökin milli Israela og Palestínumanna í mörg ár
Albright boðar fund
með Barak og Arafat
Amman, Gaza-borg, Genf, Jerúsalem, Sameinuðu þjóðunum, Washington. AFP, AP.
Reuters
Palestínumenn, sem féllu í átökum við fsraelska hermenn á Gaza-svæð-
inu, bornir til grrafar í gær.
AÐ minnsta kosti fimmtán manns
létust í átökum Palestínumanna og
ísraela í dag, flestir þeirra Palest-
ínumenn. Eftir fímm daga óeirðir á
sjálfstjórnarsvæðum Palestínu-
manna á Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu hafa þá ekki færri en 56
beðið bana, þar af þrjú börn, og um
þúsund manns hafa særst. Eru
þetta hörðustu átökin sem brotist
hafa út á sjálfstjórnarsvæðunum í
mörg ár.
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti í
gærkvöldi að hún myndi eiga fund
með Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, og Yasser Arafat, leiðtoga
Palestínumanna, í París á miðviku-
dag, til að ræða ástandið í Mið-
Austurlöndum og reyna að stuðla
að friði.
Palestínskir mótmælendur lögðu
eld að húsum í nokkrum borgum á
sjálfstjórnarsvæðunum og í norður-
hluta ísraels í gær og köstuðu
steinum og bensínsprengjum að
ísraelskum hermönnum. A nokkr-
um stöðum skutu mótmælendur að
hermönnum með hríðskotarifflum.
ísraelski herinn sendi skriðdreka
og þyrlur á vettvang til að dreifa
mótmælendunum.
ísraelsstjórn hvatti yfirvöld í
Palestínu til að binda tafarlaust
enda á óeirðirnar. „Þeir sem trúa
því að ofbeldi sé áhrifarík aðferð í
samningaviðræðunum hafa rangt
fyrir sér,“ segir í yfirlýsingu stjórn-
arinnar. Palestínumenn drógu Isra-
ela hins vegar til ábyrgðar og sögðu
hernám þeirra í Palestínu vera or-
sök vandans. Palestínskir lögreglu-
menn hafa reynst tregir til að kveða
mótmælin niður þar sem þeir óttast
að landar þeirra muni álíta þá sam-
verkamenn ísraela.
Enn frekari hvati til að halda
friðarferlinu áfram
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, skýrði frá því
að hann hefði rætt við Barak og
Arafat símleiðis í gær og hvatt þá til
að gera allt sem í þeirra valdi stæði
til að lægja öldurnar. Annan sagðist
hafa miklar áhyggjur af ástandinu,
en kvaðst vona að óeirðirnar hefðu
ekki áhrif á friðarviðræður þjóð-
anna. „Raunar ætti þetta að vera
okkur ennþá frekari hvati, enn önn-
ur ástæða ef þess er þörf, til að
halda friðarferlinu áfram,“ sagði
Annan á fréttamannafundi í Genf.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
ræddi einnig við Barak og Arafat í
gær og sagði að bandarískir emb-
ættismenn reyndu hvað þeir gætu
til að miðla málum. Madeleine Al-
bright sagði á fréttamannafundi í
París að deilur ísraela og Palest-
ínumanna þyrfti að leysa við samn-
ingaborðið en ekki á götum úti og
sagði atburði síðustu daga sérstak-
lega sorglega í ljósí þess að deilu-
aðilarnir væru „mjög nálægt“ því
að ná samkomulagi.
Yngsta fórnarlambið
átján mánaða
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
kom saman í gærkvöldi til að ræða
ástandið í Mið-Austurlöndum.
Fundurinn var haldinn að ósk Pal-
estínumanna, sem fóru þess á leit
að ráðið hvetti Israela til að kalla
hersveitir sínar á brott frá Muster-
ishæðinni í Jerúsalem og til að hefja
rannsókn á orsökum átakanna.
Óeirðirnar hófust á fimmtudag
þegar Palestínumenn mótmæltu
heimsókn harðlínumannsins Ariels
Sharons, leiðtoga Likud-flokksins,
á Musterishæðina í Jerúsalem.
Yngsta fórnarlamb átakanna er
átján mánaða gömul palestínsk
stúlka, sem var borin til grafar í
gær, en bifreið sem hún var farþegi
í varð fyrir skotum ísraelskra
landnema á Vesturbakkanum á
sunnudagskvöld.
■ Leiðtogar/28
Tíu ár frá sameiningu
Þýzkalands
Deilt um
hverjum
beri heið-
urinn
Berlin. AFP, Reuters.
ÞESS er minnzt í dag, að rétt tíu ár
eru liðin frá formlegri sameiningu
Þýzkalands. Agreiningur um hvem-
ig túlka beri atburði sameiningarárs-
ins og árangurinn sem náðst hefur
þennan fyrsta áratug sameinaðs
Þýzkalands hefur verið áberandi á
þessum tímamótum. Forystumenn í
þýzkum stjómmálum hafa deilt um
það opinberlega undanfarna daga,
hver fylkingin hafi lagt mest af
mörkum til að gera sameininguna
mögulega. Og samkvæmt niður-
stöðum nýrrar skoðanakönnunar
em færri en annar hver Austur-
Þjóðverji ánægðir með það lýðræðis-
kerfi sem þeir hafa nú haft einn ára-
tug til að venjast.
Helmut Kohl, sem vann sér inn
viðurnefnið „kanzlari sameiningar-
innar“ fyrii- markvissa stefnu sína í
þeim málum fyrir tíu ámm en hefur
síðustu tíu mánuði þurft að berjast
fyrir pólitískum orðstír sínum vegna
leynireikningahneykslisins svokall-
aða, hefur tekið dýpst í árinni í þeim
orðaskiptum sem þýzkir stjórnmála-
foringjar hafa átt undanfarna daga
vegna sameiningarafmælisins.
Gerhard Schröder kanzlari sagði
hins vegar að sameiningarafmælið 3.
október væri „sízt af öllu tilefni til að
gera tilraun til að slá sér á flokks-
pólitískum nótum upp á því sem
áunnizt hefði með hinni friðsamlegu
byltingu í Austur-Þýzkalandi".
■ Sundruð þjóð/38-39
Trudeau
vottuð
virðing
Montreal. AP.
LEST sem flutti jarðneskar leif-
ar Pierre Elliott Trudeau, fyrr-
verandi forsætisráðherra Kan-
ada, kom í gær til Montreal frá
höfuðborginni Ottawa. Tmdeau
lést sl. fimmtudag, áttræður að
aldri, en hann var forsætisráð-
herra í samanlagt 15 ár.
Þúsundir manna vora við
brautarstöðina í gær, en talið er
að um 60.000 manns hafi um
helgina mætt á Þinghæðina í
Ottawa til að sýna Trudeau
hinstu virðingu sína. Fjöldi fólks
safnaðist saman við svonefndan
Aldarloga í Ottawa í gær, þar
sem komið hefur verið fyrir
skreytingum til að heiðra leið-
togann látna. Meðal þeirra var
Margaret Tmdeau, fyrrverandi
eiginkona hans, en þau skildu
1977. Hún hneig niður í grasið
við logann og grét hátt, og vinur
hennar hjálpaði henni á fætur
og á brott. Þau hjón eignuðust
þrjá syni, en einn þeirra lést af
slysföram fyrir tveimur ámm.
■ Kom til/28
Slobodan Milosevic ræðst á stjornarandstöðuna í sjónvarpsávarpi
Fjöldamótmæli í Serbíu
Belgrad, Moskva, Pans. AFP, AP.
HUNDRUÐ þúsunda manna tóku
þátt í mótmælagöngum og verkföll-
um víðs vegar um Serbíu í gær, til
að þrýsta á Slobodan Milosevic
Júgóslavíuforseta að segja af sér.
Milosevic réðst harkalega að
stjórnarandstöðunni í sjónvarps-
ávarpi í gær, og gerði lýðum ljóst að
hann hefði ekki í hyggju að viður-
kenna ósigur áður en önnur umferð
forsetakosninganna færi fram.
Milosevic sakaði pólitíska and-
stæðinga sína um að ganga erinda
vestrænna ríkja og sagði að „Júgó-
slavía myndi óhjákvæmilega liðast í
sundur" ef þeir kæmust til valda.
„Okkar stefna tryggir frið, en
þeirra [leiðir til] átaka og ófriðar,"
sagði forsetinn og bætti því við að
hann teldi það skyldu sína að „vara
þjóðina við afleiðingunum". Milos-
evic hafði ekki komið fram í sjón-
varpi frá kosningunum í síðustu
viku, en stjórnarandstöðuleiðtoginn
Zoran Djindjic lýsti ræðu forsetans
sem „augljósri ógnun við þjóðina."
Allsherjarverkfall
Mikill fjöldi Serba lagði niður
vinnu í gær, á fyrsta degi alls-
herjarverkfalls sem stjórnarand-
staðan boðaði til í því skyni að
knýja á um afsögn Milosevic.
Umferð stöðvaðist í Belgrad og í
fleiri borgum, almenningssamgöng-
ur lágu víða niðri og vegartálmum
var komið upp á þjóðvegum. Verka-
menn í tveimur stærstu kolanámum
Serbíu lögðu niður vinnu og var
áhrifa vinnustöðvunarinnar þegar
tekið að gæta í gær. Kennarar tóku
víða þátt í verkfallinu og serbneska
veðurstofan tilkynnti að veðurspár
yrðu ekki gefnar út fyrr en Milosev-
ic hefði játað ósigur sinn. Þá kröfð-
ust 86 starfsmenn ríkisútvarpsins í
Belgrad þess að útvarpsstöðin
hætti að draga taum forsetans í
fréttaflutningi og dagskrárgerð.
Um tuttugu þúsund manns tóku
þátt í mótmælum í fæðingarbæ
Slobodans Milosevic, Pozarevac.
Um 40 þúsund manns mótmæltu í
Novi Sad, næst stærstu borg lands-
ins, og svipaður fjöldi fagnaði Voj-
islav Kostunica, sem fór með sigur
af hólmi í forsetakosningunum, í
bænum Cacak.
Verkfallið hafði minni áhrif í
Belgrad en víða annars staðar, en
AP
Yfir 40 þúsund stuðningsmenn sijórnarandstöðunnar tóku þátt í mót-
mælum gegn Milosevic í borginni Cacak í gærkvöldi.
stjórnvöld lokuðu þar óháðum fjöl-
miðlum og reyndu að hindra mót-
mælaaðgerðir. Frekari aðgerðir eru
þó boðaðar í höfuðborginni og eiga
þær að ná hámarki á fimmtudag.
■ Forsetahjónin/30
MORGUNBLAÐIÐ 3. OKTÓBER 2000