Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
tír kvikmyndinni Ógeð og ofsi.
Hreinskilnir
andkerfissinnar
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
ÓGEÐ OG OFSI (THE
FILTH AND THE FURY)
★ ★★
Leikstjóri: Julian Temple.
Channel Four Films 2000.
HEIMILDARMYND þessi er um
það hvemig pönksveitin Sex Pistols
varð til upp úr fátaekt og vonleysi
verkamannastéttar Englands átt-
unda áratugarins. Hvemig hljóm-
sveitarmeðlimimir, og þá sérstaklega
Johnny Rotten og Sid Vicious, stork-
uðu ráðandi íhaldsöflum með ögrandi
framkomu sinni, lífsstíl og tónlist.
Myndin er gerð úr gömlu myndefni
frá tónleikum, sjónvarpsviðtölum og
nýjum viðtölum við eftirlifandi með-
limi sveítarinnar ásamt gömlu viðtali
við Sid sem lést af of stóram eitur-
lyfjaskammti. Saga sveitarinnar er
rakin og það sem einkennir alla frá-
sögn er hreinskilni, bæði af hendi
sveitarmanna og leikstjórans. Engin
rómantík, eftirsjá eða dýrkun er til
staðar og það gerir myndina mjög
sterka.
Með alls konar myndbrotum úr
bresku samfélagi og sjónvarpi tíma-
bilsins tekst höfundi að skapa bæði
rétta andann og ringulreiðina sem
ríkti innan sveitarinnar og meðal
stjórnmálamanna sem íyrtust við
sveitinni án þess að spyrja sig upp úr
hvað samfélagi hún væri sprottin.
Þetta er vel gerð og margslungin
heimildarmynd sem skýrir ekld bara
frá pönkinu, stórmerkilegu fyrirbæri
í sögu Bretlands sem breiddi úr sér
til allra átta, heldur frá ýmsum
mannlegum og samfélagslegum hlut-
um.
Fyrir gamla pönkara gerist það
vart unaðslegra en að sitja í myrkr-
inu og finna hvemig rödd Johnny
Rotten hjjómar eins og af himnum: „I
am an Antichrist" um leið og myndin
byrjar. Minningunum rignir.
Hildur Loftsdóttir
C-
2
§
Q
CL
2
1
UJ
Q
O
c-
O
Uj
Q
O
DEVELOP 10
NAGLAVÖRUR
KYNNING
DEVELOP 10 er einnig fáanlegt
í verslunum Lyfju í Hafnarfirði, Kópavogi
og Grindavík.
dPb IVFJA
DEVELOP 10 DEVELOP 10 DEVELOP 10
o
o
"O
o
o
§
5
T3
Yfirvegað
verk
lt e g n b o g i n n
FERÐALAG FELICIU
(FELICIA’S JOURNEY)
Leikstjóm pgliandrit: Atom
Egoyan. Aðalhlutverk: Bob Hosk-
ins, Elaine Cassidy, Gerard Mc-
Soley, Peter McDonald og
Arsinée Khajian.
FERÐALAG Feliciu er byggt á
skáldsögu eftir William Trevor og
hefur Egoyan tekist mjög vel til við
að umsemja söguna fyrir skjáinn og
skapa mjög sérstakt og yfirvegað
kvikmyndaverk.
Felicia er sautján ára írsk stúlka.
Hún á í sálarstríði þar sem kærast-
inn er farinn til Englands, og hún sit-
ur eftir með barn í maganum. Hún
leggur af stað að leita hans og hittir
fyrir Hilditch nokkurn, einmana pip-
arsvein með ástríðu fyrir mat og
matargerð. Hann á líka í sínu sálar-
stríði og er ekki allur þar sem hann
er séður.
Elaine Cassidy og Bob Hoskins,
aðalleikarai- myndarinnar, era væg-
ast sagt stórkostleg í hlutverkum
sínum. Bæði era þau með eindæm-
um tráverðug auk þess sem samleik-
ur þeirra er frábær. Eiginkona leik-
stjórans, Arsinée Khajian, leikur
móður Hilditch og hún er mjög
skemmtileg.
Egoyan hefur fullkomna stjórn á
því sem hann er að gera og hefur
imm
KVIKMYNDAHATIÐ I REYKJAVIK
Leiðin til
fyrirgefn-
ingar
II í ó b o r g i n
„THE STRAIGHT STORY“
★ ★>/2
Leikstjóri: David Lynch. Handrit:
Joan Roach, Mary Sweeney. Tón-
list: Angelo Badalamenti. Aðal-
hlutverk: Richard Farnsworth og
Sissy Spacek. Bandaríkin/
Frakkland/Bretland.
DAVID Lynch er þekktur sem
einn frumlegasti leikstjóri Banda-
ríkjanna, einkum fyrir glæpahroll-
vekjur sínar, sem stundum virðast
ekki af þessum heimi. Því kemur
það nokkuð á óvart að í þessari
nýjustu mynd hans, The Straight
Story, vottar hvorki fyrir óeðli né
glæp heldur er sögð sönn sagan af
gömlum manni, Alvin Straight,
sem ferðaðist vikum saman á
sláttuvélinni sinni til að geta heils-
að upp á bróður sinn. Þeir höfðu
ekki talast við í áratug eða meira
vegna rifrildis en Alvin vildi ekki
kveðja þennan heim ósáttur við
bróður sinn og lagði því í hina
hægu langferð.
Ur því gerir Lynch einhverja
bestu mynd sem gerð hefur verið
nokkru sinni um fyrirgefninguna
jafnvel þótt hún sé ekki um neitt
annað en ferðalag mannsins. Hún
er einstaklega sönn í einfaldleika
sínum og minnir söguefnið og hin
einfalda uppbygging, gamalmenni í
vegamynd, á Börn náttúrannar.
Sá aldni heiðursleikari Richard
Farnsworth leikur hinn stirðfætta
Alvin og er góðmennskan en líka
þrjóskan uppmáluð. Hvar sem
hann kemur skilur hann eftir góð-
semi og hjartahlýju og á jafnvel
ráð handa fólki sem á vegi hans
verður svo stundum getur hann
komið fram í hlutverki frelsandi
engils. Og rétt eins og hann reynist
öðra fólki hjálpsamur mætir hann
ekki öðram en miskunnsömum
Samverjum. Fólk er boðið og búið
að verða honum til hjálpar og verð-
ur að segjast eins og er að það eitt
er ákveðinn léttir að fá vegamynd
frá Bandaríkjunum þar sem ekki
eru framin tuttugu blóðug morð.
Sissy Spacek fer með lítið en
mikilvægt hlutverk dóttur Alvins,
sem heima situr, og klárar sig vel
af þvi. Myndin fjallar að einhverju
leyti um einsemdina, það er enginn
meira einn en gamli maðurinn á
sláttuvélinni, og sorgleg saga dótt-
urinnar undirstrikar þessa einsemd
með sérlega hófstilltum hætti.
Lynch hefur einnig gert hálf-
gerðan nútímavestra úr ferðalagi
mannsins, um þennan einmana kú-
reka á sveitavegunum á sléttum
Miðvesturríkja Bandaríkjanna.
Ferðin er- í sjálfu sér viðburða-
snauð en þó felst í henni allt líf
mannsins eins og við sjáum það í
samskiptum hans við annað fólk, í
gömlu andliti Farnsworth og í leið-
inni löngu og hægu inn í fyrir-
gefninguna.
Arnaldur Indriðason
Sykurlaus
mynd
Háskólabíó
SÆT MYND - (SWEET
MOVIE) ★
Leikstjóri og handritshöfundur
Dusan Makavejev. Kanada/
Frakkland/Þýskaland 1975.
ALLT í einu er Dusan Makavejev
orðinn snillingur. Það má víst ekki
minna vera þegar gestir Kvik-
myndahátíðar eiga í hlut. Um stöðu
hans í kvikmyndaheiminum má
sjálfsagt deila, hitt er naglfast að
maðurinn er hugmyndaríkur furðu-
fugl sem á að baki fáar, sérstæðar
og misjafnar myndir. Nokkrar góð-
ar og eftirminnilegar, eins og Mont-
enegro; aðrar vondar og eftirminni-
legar, eins og Sweet Movie.
Sjálfsagt rembast einhverjir við að
bera á hana lof og verði þeim að
góðu. Það örlar á frískum hugmynd-
um og umhugsunarverðum pólitísk-
um boðskap, en allt kafnar í yfir-
drifnum sóðaskap, sem höfundi
virðist ómissandi. Jafnvel tjáningar-
máti Johns Waters virkar pempíu-
legur við hliðina á úrgangsást Serb-
ans, sem ber allt annað ofurliði.
Sæbjörn Valdimarsson
tír kvikmyndinni Ferðalag Feliciu.
skapað sérlega yfirvegað kvik-
myndaverk þar sem hann teymir
áhorfendur um huga og sál tveggja
ólíkra mannvera. Þessi hægi en
þokkafulli ryþmi er sérstakur fyrir
sögu af þessu tagi, og er hér fléttað-
ur saman við góða og áhrifaríka
framsamda tónlist og fallega írska
þjóðlagatónlist. Lýsingin og sviðs-
hönnun öll hin fallegasta, í stíl við öll
fagmannlegheitin.
Það er helst að mér hafi fundist
endirinn aðeins úr samhengi, en það
er ekkert sem skaðar formfagra og
áhugaverða kvikmynd.
Hildur Loftsdóttir