Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.10.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 2000 43' Ólafur Örn, einn Hollvætta, Magnea í skólanefnd og Elísa- bet Gunnarsdóttir í afmælisnefnd. Byggingar MI frá vinstri: íþróttahús, bóknámshús, heimavist (og kennsla) og verkmenntahús á Torfnesi. Morgunblaðið/Gunnar Hersveinn Daði, Ólafur, Ingibjörn og Björn (og Gunnar rétt ókominn) í txma í rafeindatækni hjá Gylfa Gunnarssyni. blaðinu 30. september (bls. 14) var afmælishátíð MÍ haldin á laugar- daginn í íþróttahúsinu á Torfnesi. Þar flutti Bjöm Bjarnason mennta- málaráðherra ávarp. Hann sagði m.a. frá sterkum áhuga í MÍ á upp- lýsingatækninni og viljanum til að nýta hana sem best í þágu nem- enda. Hann sagði einnig frá því að nýlega væri lokið mati á innra starfi skólans í samvinnu menntamála- ráðuneytis, kennara, nemenda og óhlutdrægra sérfræðinga. „Eg tel, að skóhnn geti unað vel við niður- stöðu matsins," sagði Bjöm. „Þar er sagt, að margir góðir og metnað- arfullir kennarar starfi við skólann og vinnuaðstaða innan veggja hans jafnt fyrir kennara og nemendur sé á við hið besta í landinu. í samfélagi skólans sé sterk vitund um mikil- vægi menntunar og nauðsyn þess að hlúa að skólanum og starf Holl- vætta sé góð vísbending um þetta en góður andi ríki innan skólans og nemendur og starfsmenn séu vel- viljaðir í garð hans og sýni honum hollustu. Þessi jákvæðu ummæli sýna að byggt er á traustum granni þegar lögð era á ráðin um framtíð Menntaskólans á ísafirði á þessum tímamótum því að í skólastarfi má aldrei leggja árar í bát heldur verða menn sífellt að líta til framtíðar með ákveðin markmið í huga.“ Mennta- málaráðherra nefndi einnig að skól- inn nyti þess að vera nálægur blóm- legri menningarstarfsemi á Isafirði, „einkum á sviði tónlistar, leiklistar og myndlistai- auk þess sem íþrótta- aðstaða er hér góð, skíðasvæði ein- stakt og þetta nýja íþróttahús stendur við hlið bóknámshúss skól- ans“. Hvernig auka má möguleika nemenda í MÍ Bjöi-n Teitsson flutti stutt ágrip af sögu skólans á hátíðinni, en hann var skipaður skólameistari MI árið 1979. Hann segir að skólinn standi ágætlega núna og sé í góðu sam- bandi við byggðina. Skólinn sé einn- ig í góðum tengslum við atvinnulíf- ið. „Það er erfitt að segja til um framtíðina," segir Björn Teitsson. „En á meðan samfélagið stefnir áfram á braut þjónustu og upplýs- inga leggjum við áherslu á áfram- haldandi tölvuvæðingu skólans." Bjöm nefnir samstarf við bæði Há- skólann á Akureyri og Verk- menntaskólann á Akureyri um fjamám. Tíu nemendur á Vestfjörð- um stunda t.a.m. hjúkranarfi-æði við háskólann á vegum Fræðslu- miðstöðvar Vestfjarða, m.a. með að- stoð fjarfundabúnaðar í MI. Einnig er hópur í nútímafræðum sem er nýtt nám á vegum Háskólans á Ak- ureyri og Háskóla íslands. Björn er stjórnarformaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða en námskeið á vegum hennar era m.a. í húsakynnum MI og þar er önnur tenging við háskólalífið. Hann segir þar af leiðandi þýðingu skólans fyr- ir Vestfirði vera mikla. „Mennta- skólinn hefur verið til mikils gagns fyrir svæðið," segir hann, og nefnir keppnina um háskólamenntaða menn. Stúdentar frá MÍ era líklegri til að koma aftur heim en þeir sem fara strax við sextán ára aldur til skólavistar á öðram svæðum. „Nokkrir kennarar við skólann eru til dæmis stúdentar héðan,“ segir Bjöm. Helsti ógnvaldur skólans er, þrátt fyrir að nemendafjöldi sé í sögulegu hámarki, fólksflóttinn frá Vestfjörðum. Haldi flóttinn áfram þurfa skólamenn að horfa fram á al- varlega tilvistarkreppu. Menntaskólinn á Isafirði er einn- ig verknámsskóli eins og fram kem- ur hér í annarri grein. Nefna má tveggja ára málmiðnaðardeild sem Tryggvi Sigtryggsson stjórnar í verknámshúsinu og vélstjómar- braut undir stjóm Guðmundar Ein- arssonar. Granndeild rafiðna er svo undir stjórn Gylfa Gunnarssonar.-^v Þá má nefna matartæknibraut og sjúkraliðabraut. Samfélagið fylgist vel með starfi Menntaskólans Undanfarið hefur minna borið á því að ungt fólk á menntaskólaaldri á skólasvæði MI sæki í aðra skóla og hafa nokkrir þeirra sem það hafa gert snúið aftur heim. En sagt er að samfélagið sem skólinn sprettur úr hafi ávallt fylgst vel með gengi skól- ans. Magnea Guðmundsdóttir, full- trái Fjórðungssambands sveitarfé- laganna í skólanefnd MI og varaformaður hennar, telur að skól- inn sé góður og að nemendum líði almennt vel í honum. „Samfélagið . , fylgist vel með honum og veitir ' þarft aðhald með uppbyggilegri og jákvæðri gagnrýni. Magnea segir að vel hafi tekist að halda í kennara við skólann og ávallt hafi verið þrýstingur á að vera með margar námsleiðir. Hún segir að núna séu breyttir tímar fyrir heimavistina, því aðeins tíu nemendur era á henni þetta skóla- ár. Finna þurfi henni því nýtt hlut- verk. Menntaskólinn á ísafirði á holla vini og hafa þeir kallað sig Holl- ■ r vætti MÍ. Ólafur Öm Ólafsson hót- elstjóri er meðal þeirra. Hann hefur meðal annars unnið að því að búa Gamla apótekið undir að verða fé- lagsmiðstöð ungs fólks á Isafirði, meðal annars nemenda við MI. Gamla apótekið er í miðbænum og þar er núna m.a. kaffistofa, bilijard- herbergi, tölvustofa, útvarpsstöð og leikherbergi. Menntaskólinn á Isafirði hefur fengið nýtt merki en það hannaði Högni Sigurþórsson á Flateyri. Merkið á að kalla fram jákvæðar kenndir og er í tveimur útgáfum, annað í lit en hitt svarthvítt. Litur- inn er gulur sem táknar gleði sem er undirstrikuð með brosboganum. t ,f Framtíðin er vissulega öllum óviss, en í MI hefur verið ákveðið að búa sig undir hana með björtum vilja. Árelía Oddbjörnsdóttir á öðru ári á rnála- og sainfélagsbi-aut í Menntaskólanum á ísafii-ði og Ingólfur Hallgrímsson á þriðja ári á tölvu- og hagfi-æðibraut voru íi-ufluð af blaðanxanni Moi-gunblaðins þegar þau sátu yfir frönsku á ágætu bókasafni skólans, sem Guðný ísleifsdóttir sér um, en hún útskrif- aðist úr MÍ árið 1976 ásamt manni sínum Jóni Reyní Sigurvinssyni, aðstoðarskóla- stjóra MÍ. Árelía og Ingólfur búa í Bolungai-vfk og fax-a ineð nitunnl á iniIIi. Þau staðfesta þann grun blaðamanns að í MÍ sé góður andi. „Hér þekkjast allir vegna þess að við erum ekki svo mörg. Sambandið við kennarana er einn- ig persónulegi-a en tíðkast í skólum í stórum bæjarfélögum," segjaþau. Fékigslífið í MÍ er gott að þeirra mat.i. Þau nefna íþróttamót, heimsóknir milli skóla, Góður andi í skólanum svokölluð mctakvöld og síðast en ekki síst Sólrisuhátíð sem nemendur standa fyrir í bæjarfélaginu í marsmánuði. Leikfélagiö í MÍ er einnig nefnt en það hefur oft staðið fyrir uppsetningu leikrita í fullri lengd á Sólrisuhátíð. Blaðamaður hitti skömmu síðar Vigdísi Jakobsdóttur teik- stjóra sem var að æfa leikþátt með hópi nem- enda, byggðan á brotum úr sögu skólans. Leikþátturinn var sýndur við góðar undir- tektir á afmælishátíðinni 30. september. Formaður nemendaráðs á þessu skólaári er Skúli Þórðarson, ritari er Jón Friðgeir Jó- hannsson og Vilborg Guðrún Sigurðardóttir er gjaldkeri. Skúli er bjartsýnn á félagslífið í vetur. Hann nefnir að við skólann ííðkist að velja sprellikarl, sem sjái um íþróttavið- burði. Núna er sprellikarlinn Freysteinn Gislason. Einnig er valinn inenningarviti og það er Gunnar Pétur Garðarsson. Hlutverk menningarvita er m.a. að hafa umsjón með vikudagskrá Sólrisuhátíðar. Af öðrum viðburðuin nefnir Skúli skóla- böllin, utanbæjarferðir, árshátíð, ræðu- keppni, menningarkvöld o.fl. Hann r.egir að nemendur (aki þátt í hátíð- inni í dag, 3. október, m.a. með skrúðgöngu um bæinn og skoðunarferð f húsið þar sem starfsemi MI byrjaði, Gatnla barnaskólann. Vigdís, fremst. til vinstri, stjórnaði þessum leikurum skólans á afmælishátíðinni. Árelía og Ingólfur gh'ma við frönsku á bókasafninu. Vísindaferð MÍ 3. og 4. árs nemar Menntaskól- ans á ísafirði fara í náttúru- fræðiferð inn í ísafjarðardjúp fimmtudaginn 5. október nk. Þeir gista í Reykjanesi og fara í Hveravík í heitar lindir og gamla sundlaug til að taka sýni. 6. okt. fara þeir í Kaldalón og ætla t.d. að kveikja í grillkolum við skriðjökulinn. Þennan dag er einnig farið í kirkjugarðinn í Unaðsdal og gengið til kirkju hjá séra Baldri Vilhelmssyni. Fararstjórar eru Helga Friðriksdóttir og Jón Reynir Sigui-vinsson. -5 ■ Enskunám í Englandi Bjóðum enskunám við einn viitasta mála- skóla Englands. Skólinn sér þér fyrir fæði og húsnæði hjá enskri fjölskyldu. Um er að ræða alhliða ensku 18 ára og eldri og viðskiptaensku. Unglingaskóli í júlí og ágúst. "7 j Upplýsingar gefur Jóna María Júlíusdóttir, sími 862 6825 eftir kl. 18.00. GJAFABRJÓSTAHÖLD Meðgöngufatnaður í úrvali Þumalína, Pósthússtræti 13 V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.