Morgunblaðið - 11.11.2000, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Föngum
frá Kosovo
sleppt?
Strassborg. AFP.
VOJISLAV Kostunica, forseti Júgó-
slavíu, hefur heitið því að kanna
kröfur um, að hundruðum Kosovo-
búa verði sleppt úr serbneskum
fangelsum. Kom
þetta fram er
hann ávarpaði
þing Evrópuráðs-
ins í fyrradag, en
hann hefur farið
fram á, að Júg-
óslavía fái aðild.
Kostunica
sagði, að til stæði
að endurskoða
dóma yfir mönn-
um í serbneskum fangelsum og leita
þeirra, sem hefðu horfið eða vitn-
eskju um hvarfið.
Júgóslavía sótti formlega um aðild
að Evrópuráðinu í fyrradag og var
það um leið síðasta skrefið í þá átt að
binda enda á alþjóðlega einangrun
landsins. Tók Walter Schwimmer,
framkvæmdastjóri ráðsins, við um-
sókninni úr hendi Goran Svilanovic,
utanríkisráðherra Júgóslavíu, og
sagði að um væri að ræða „sögulegan
dag fyrir Júgóslavíu og Evrópu".
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra fjallaði í ávarpi sínu á fundin-
um um hlutverk Evrópuráðsins í
uppbyggingarstarfinu í Júgóslavíu.
Evrópuráðið hefði, að hans áliti, mik-
ilvægu hlutverki að gegna við upp-
byggingu og eflingu mannréttinda
og lýðræðislegra stjórnarhátta í
Júgóslavíu vegna einstakrar reynslu
þess af sambærilegu uppbyggingar-
starfi í ríkjum Mið- og Austur-
Evrópu á síðasta áratug.
Framlag þess myndi að verulegu
leyti felast í aðstoð við samningu
laga ásamt þjálfun embættismanna
og dómara. Mikilvægt væri að nýta
sérþekkingu ráðsins í samvinnu við
aðrar alþjóðastofnanir, sérstaklega
Evrópusambandið og Oryggis- og
samvinnustofnun Evrópu (ÖSE).
Lýðræðisleg Júgóslavía hefði mikil-
vægu hlutverki að gegna fyrir varan-
legan stöðugleika á Balkanskaga.
300 hafa sýkst og um 100 látist í síðasta ebólafaraldrinum
Aðeins þriðjungur
sýktra deyr í Uganda
Kampala. AFP.
ALLS hafa nú 103 látist í Úganda af
völdum ebóla-veinmnar frá því um
miðjan september að sögn heilbrigð-
isyfirvalda þar í landi, en vísinda-
menn eru engu nær en áður um upp-
tök faraldursins. Embættismenn
sögðu að algengt væri að ættingjar
og grannar þeirra sem hafi sýkst en
náð sér forðist alla umgengni við þá
af ótta við að smitast. Engin hætta
mun vera á slíku smiti og hétu emb-
ættismenn að gert yrði átak til að
uppfræða almenning í þessum efn-
um.
I Úganda hefm' 301 maður sýkst
en dánartíðnin er þó aðeins 30% og
miklu lægri en í þeim faröldrum,
sem upp hafa komið í Súdan og Za-
íre. Af þeim, sem hafa lifað sjúk-
dóminn af, hefur 171 maður náð sér
að fullu. Er þessi árangur þakkaður
því hve skjótt var brugðist við en
það hefur sýnt sig, að því fyrr, sem
sjúklingar komast undir læknis-
hendur, því meiri eru batahorfurn-
ar.
Bundið við breiddargráðu?
Ebólasýkin kom fyrst upp í Zaíre,
sem nú heitir Kongó, 1976 og síðan í
Súdan og þá létust 50-90% þeirra,
sem hana tóku. Grunur lék á, að úg-
andískir uppreisnarmenn hefðu að
þessu sinni borið í sér veiruna frá
Súdan en það er þó ekki líklegt
vegna þess, að ekki er vitað um
neinn ebólafaraldur þar. Einhvers
staðar leynist þó veiran en vísinda-
menn vita enn ekki hvar.
„Faraldramir hafa allir komið
upp á sömu breiddargráðu og lík-
lega er veiruna víða að finna á því
svæði. Við vitum þó ekki hvað kem-
ur faraldri af stað,“ segir Pierre
Rollins, læknir og formaður nefndar
frá bandaríska sjúkdómaeftirlitinu.
Talsmaður WHO, Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, sagði, að
faraldurinn í Úganda yrði talinn
afstaðinn þegar 42 dagar væru liðn-
ir frá síðasta sjúkdómstilfelli en þá
ætla vísindamenn að hefja skipulega
leit að veirunni í dýrum og plöntum
á þessu svæði.
Reuters
fbúar þorpsins Rwot-Obilo í Gulu-sýslu í Úganda bíða hér ásamt starfsmanni heilbrigðismálayfírvalda (með
grímu) eftir jarðsetningu ættingja sem lézt úr ebóla-veikinni.
Taka bið
fram yfir
einka-
sjúkrahús
Kaupmanuahöfn. Morgfunblaðið.
FJÖLDI danskra sjúklinga hef-
ur hafnað tafarlausum aðgerð-
um á einkasjúkrahúsum og kýs
fremur að bíða þess að komast
að á sjúkrahúsum sem eru nærri
heimili þeirra. Hefur þetta kom-
ið starfsmönnum Kaupmanna-
hafnai'amts mjög á óvart þar
sem borgaryfirvöld hafa lagt um
35 milljónir danskra króna, um
350 milljónir ísl. króna á síðustu
tveimur áram til þess að stytta
biðlista fyrir bæklunar- og aðrar
aðgerðh’.
Um er að ræða aðgerðir á
borð við hnjáliðsaðgerðir, gláku-
aðgerðir og æðahnúta. Til
marks um viðbrögð sjúklinga
má nefna að um 800 sjúklingum
hefur nýlega verið boðið að fai'a
í glákuaðgerð á einkastofu í
Kaupmannahöfn. 146 neituðu,
153 svöruðu ekki og 85 höfðu
farið í aðgerð annars staðar.
Berlingske Tidcnde vitnar í Leif
Flemming Jensen, formann
sjúkrahúsanefndar danska
þingsins, en hann furðar sig á
dræmum undirtektum í ljósi
þess að um 2.700 manns séu á
biðlista eftir glákuaðgerð við
Herlev sjúkrahúsið og hve mik-
ill bati hljótist í flestum tilfellum
af aðgerð. Sama hefur verið upp
á teningnum annars staðar í
Danmörku, aðeins 17 af 70
sjúklingum sem bíða eftir
mjaðmaaðgerð í Aabenraa þáðu
aðgerð á einkasjúkrahúsi, helm-
ingurinn af 57 sjúklingum sem
bíða hnéaðgerðai' þar féllust á
að fara til Svíþjóðar í aðgerð og
um 60% sjúklinga í Hróarskeldu
afþökkuðu að gangast undir að-
gerð á mjaðmai'lið á sjúkahúsi í
Kaupmannahöfn.
Ekki er vitað hver ástæðan er
fyrir þessari tregðu og hafa
sveitarfélögin nú sent út spurn-
ingalista til sjúklinganna í leit að
skýi-ingu.
Réttarhöld í máli Bandaríkjamanns í Moskvu
Breytingar á rússneska hernum
Sakaður um að
njósna um tundur-
skeytatækni
Moskvu. AP, AFP.
RÉTTARHÖLDUM var haldið
áfram í Moskvu í gær í máli Banda-
ríkjamannsins Edmonds Popes,
sem ákærður hefur verið fyrir
njósnir í Rússlandi. Er hann sagður
hafa fengið upplýsingar hjá sjötug-
um prófessor við Bauman-tækni-
stofnunina í Moskvu en margt er á
huldu um framgang málsins og
sannanir gegn Pope. Hinn ákærði
er fyrrverandi sjóliðsforingi og
stofnandi tæknifyrirtækis, CERF,
er einbeitir sér að rannsóknum á
tækni sem notuð er á hafinu og þró-
uð hefur verið utan Bandaríkjanna.
Leyniþjónusta Rússa, FSB, sakar
Pope um að hafa aflað sér leyni-
legra upplýsinga um tundurskeyti
af gerðinni Shkval. Verjendur hans
segja á hinn bóginn að búnaðurinn
sé tíu ára gamall, ekki lengur leyni-
legur og Pope hafi viljað nýta tækn-
ina til annars en vopnasmíði.
Pope er 54 ára gamall og var
handtekinn í apríl og hefur hann
síðan setið í Lefortovo-fangelsinu í
Moskvu. Talið er að hann geti hlotið
allt að 20 ára fangelsidóm. Saksókn-
arar hvöttu hann í gær til þess að
játa sig sekan, þá gæti svo farið að
hann fengi mun mildari dóm.
Réttarhöldin í máli Popes fara
fram bak við luktar dyr en prófess-
orinn, Anatólí Babkín, bar loks vitni
fyrir réttinum í gær og var ekki
sagt frá því í fjölmiðlum hver svör
hans hefðu verið. Auk verjanda og
saksóknara rakti nefnd tæknisér-
fræðinga gamimar úr prófessorn-
um.
Verjandi Popes, Pavel Astakov,
sagði í gær að vitnisburður Babkíns
væri ekki lengur mikilvægur þar
sem hann hefði nú undir höndum ný
gögn sem sönnuðu sakleysi skjól-
stæðingsins. Astakov dreifði í lið-
inni viku bréfi sem hann sagði rétt-
inn hafa fengið frá Babkín. Par
sagðist hann hafa verið mjög slæm-
ur fyrir hjarta er hann var spurður
um samskiptin við Pope og hafa lát-
ið undan þrýstingi er hann bar vitni
um meint lögbrot. Hann hefði aldrei
hitt Bandaríkjamanninn augliti til
auglitis og aldrei gefið honum nein-
ar leynilegar upplýsingar. „Ég und-
irrítaði meira að segja skýrsluna
um yfirheyrsluna án þess að lesa
hana,“ segir Babkín. Hann hafi
einnig lesið vitnisburð upp fyrir
myndband við þessar aðstæður.
Kvalinn af beinkrabbameini
Mál Popes hefur vakið mikla at-
hygli í Bandaríkjunum en þar telja
menn sannanir gegn manninum
Reuters
Bandaríkjamaðurinn Edmond
Pope við réttarhöldin gegn hon-
um í gær.
vera ótraustar og þingið hefur var-
að kaupsýslumenn við að ferðast til
Rússlands þar sem þeir geti búist
við að verða fangelsaðir þótt þeir
hafi ekkert gert af sér. „Við höfum
enn sem komið er ekki séð neinn
vitnisburð um að Pope hafi brotið
rússnesk lög,“ sagði sendiherra
Bandaríkjanna í Rússlandi, James
Collins. Pope þjáist af sjaldgæfu
beinkrabbameini og hefur fjöl-
skylda hans árangurslaust farið
þess á leit nokkrum sinnum að
enskumælandi læknar fái að fylgj-
ast með heilsu hans. Réttarhöldun-
um var frestað tvívegis í liðinni viku
vegna kvalakasta sem fanginn fékk.
FSB leggur honum til túlk og hefur
hafnað tilmælum verjanda um að
fenginn verði óháður túlkur til
starfans.
Fækkað um
fimmtung á
fimm árum
Moskvu. Reuters, AFP.
ÖRYGGISRÁÐ Rússlands sam-
þykkti í gær umdeild áfonn um
stórfellda fækkun heimanna og
Vladímír Pútín forseti sagði að það
væri orðið löngu tímabært að
hrinda þeim í framkvæmd til að
tryggja öryggi landsins. Búist er
við að áformin verði til þess að
Rússar verði háðari kjarnavopnum
sínum komi til styrjaldar.
Rússneskar fréttastofur höfðu
eftir Sergej ívanov, ritara öryggis-
ráðsins, að hermönnum og borgar-
alegum starfsmönnum hersins yrði
fækkað um 600.000 á fimm árum.
Hershöfðingi sem á sæti í ráðinu
sagði að þetta væri um fimmtungur
heraflans.
Pútín lagði áherslu á að rúss-
neski herinn þyrfti að vera „hreyf-
anlegri og skjótvirkari" til að geta
unnið skjóta sigra í svæðisbundnum
átökum líkt og í Tsjetsjníu þar sem
rússneskar hersveitir hafa reynt að
brjóta uppreisnarmenn á bak aftur
í þrettán mánuði.
Fær meira fé á
hvern hermann
Vladímír Potapov, aðstoðarritari
ráðsins, sagði að ákveðið hefði verið
að fækka hermönnunum um
470.000 og borgaralegum starfs-
mönnum hersins um 130.000 fyrir
lok ársins 2005. Potapov bætti við
að herinn myndi ekki geta háð alls-
herjarstríð án þess að beita „óhefð-
bundnum“ vopnum fyrr en árið
2010 þar sem hann væri orðinn svo
veikur. Hann benti á að rússnesk
stjórnvöld samþykktu fyrr á árinu
nýja stefnu í öryggis- og hermálum
þar sem þau áskilja sér rétt til að
beita kjarnavopnum ef ráðist yrði á
landið.
Rússneskir embættismenn sögðu
að stefnt væri að því að minnka
ekki ríkisútgjöldin til hermála og
herinn fengi því meira fé á hvern
hermann.
Umræðan um umbætur á hern-
um hófst eftii' stríðið í Tsjetsjníu á
árunum 1994-96 þegar hann beið
auðmýkjandi ósigur fyrir uppreisn-
armönnum. Tilraunir Borís Jeltsíns,
forvera Pútíns í forsetaembættinu,
til að koma á úrbótum báru ekki
árangur vegna deilna milli hers-
höfðingja landhersins, flotans og
sjóhersins. Ennfremur kom í ljós að
niðurskurður heraflans er dýr því
sjá þarf fyrrverandi hermönnum
fyrir húsnæði og starfsþjálfun, auk
starfslokagreiðslna.