Morgunblaðið - 11.11.2000, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ
36
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
S
Vísindavefur Háskóla Islands
Hvað er Hanta-veira?
VISINDI
Umfjöllunarefnin á Vísindavefn-
um undanfarna viku hafa verið
margvísleg að vanda. Spurn-
ingum um tiivist af
ýmsu tagi hefur
verið svarað, nánar
tiltekið um tilvist til-
raunastöðvarinn-
ar Black Mesa,
manneðlis og
hjarta, sjálfsmyndar
áhrif eldflaugar hafi á
hyrfi. Möguleikinn á
www.opinnhaskoli2000.hi.is
kyneðlis, krabbameinsdrepandi efna, krabbameins í
faghópa og eilífðarvélar. Fjallað hefur verið um ósonlagið; hvaða
ósonlagið og hvaða áhrif það hefði á lífið á jörðinni ef ósonlagið
jarðskjálfta ef allir Kínverjar stykkju niður af stól á sama tíma var
ræddur, vöngum velt yfir því hvort hlutir væru lifandi, hverjir 10 merkilegustu atburðir ísiands-
sögunnar eru og hvernig skuli mæla þenslu á fasteignamarkaðnum. Einnig birtust svör við spurn-
ingum um flugtíma milli íslands og Ameríku, hlaupársútreikninga, innsigli Háskóla íslands, læri-
sveina Jesú, mengi rauntalna, algebru, ummál íslands, eldrauð krítarsteinsjarðlög, mælingar á
spennu í jarðlögum, Hantaveiruna, splæst gen, frumufjölda í mannslíkamanum, aðfangadag jóla
og latneskan texta jólaguðspjallsins.
Slóð Vísindavefjarins er http://www.visindavefur.hi.is, netfangið er ritstjorn@visindi.rhi.hi.is og
síminn 525-4765.
Reuters
Suður-kóreskur hermaður, sem barðist í Kóreustríðinu á sínum tima,
hjá víggirðingu við landamæri Suður- og Norður-Kóreu fyrir skömmu,
þegar forsetar þjóðhöfðingjar landanna hittust á sögulegum fundi.
Hvað er Hanta-veira?
SVAR:
I Kóreustríðinu, sem háð var á
árunum 1950-1953, varð vestræn-
um læknum fyrst kunnugt um dul-
arfullan „nýjan“ sjúkdóm sem
lagðist á hermenn Sameinuðu
þjóðanna sem þar börðust. Sjúk-
dómnum var gefið nafnið kóresk
blæðandi hitasótt (Korean hemorr-
hagic fever). Yfir 2000 hermenn
sýktust og margir þeirra dóu af
völdum sjúkdómsins. Þrátt fyrir
ítarlegar rannsóknir færustu
manna tókst ekki að greina or-
sakavaldinn fyrr en árið 1976, en
hann reyndist vera veira sem fékk
nafnið Hantaan í höfuðið á Hanta-
an fljótinu nálægt landamærum
Norður- og Suður -Kóreu þar sem
sóttin var landlæg. Veiran var ein-
angruð úr hagamús, Apodemus
agrarius, en hún er aðalhýsill veir-
unnar. Til eru fleiri skyldar veir-
ur, sem eru af svonefndri Bunya-
veiru-fjölskyldu, og eru nagdýr
náttúrulegir hýslar þeirra víða um
heim. Hefur skilningur manna
aukist mjög á undanförnum árum
á því hvernig þessar veirur valda
sjúkdómi í mönnum. Veiran
skemmir æðaveggi í mönnum sem
leiðir til þess að æðarnar verða
lekar.
Þegar músin eða önnur nagdýr
sýkjast tekur veiran sér bólfestu í
mörgum líffærum dýranna. Það
skiptir þó mestu að þau skilja út
veiruna í munnvatni, þvagi og
hægðum á meðan þau lifa, en dýr-
in lifa í góðu sambýli við hana.
Talið er að veiran berist til manna
með úðasmiti frá þvagi og saur
dýranna. Faraldsfræði sjúkdóms-
ins er háð hegðun nagdýrsins sem
ber veiruna. Þess vegna er sjúk-
dómurinn árstíðabundinn og er
hann algengastur á haustin og
snemma vetrar í Kóreu, Kína og
austasta hluta Rússlands.
Einkenni sjúkdómsins í mönnum
eru hiti, blóðþrýstingsfall, nýrna-
bilun. Flestir sjúklingar fá roða-
myndun í andliti og einkum á
hálsi. Þeir sem veikjast mest fá
útbreidda marbletti vegna húð-
blæðinga og blóðhlaupin augu.
Nýrnabilunin er þó alvarlegust og
getur hún leitt til dauða. Dánar-
tíðnin er um 5-10%.
í Skandinavíu, Austur-Evrópu
og vesturhluta Rússlands er til
vægara form þessa sjúkdóms, sem
gengur undir nafninu Nephrop-
athia epidemica, en veiran sem
veldur honum nefnist Puumala.
Veiran hegðar sér eins og Hanta-
anveiran en blæðingar eru fátíðari
og dánartíðnin lægri (1%). Þá hef-
ur þriðja veiran af þessum ætt-
meið greinst á Balkanskaga en
hegðun hennar er fremur ætt við
Hantaanveiruna en Puumalaveir-
una. Sú veira gengur undir nafn-
inu Dobrava.
í maí 1993 brutust út atsóttir
eða hópsýkingar í suðvesturhluta
Bandaríkjanna, nánar tiltekið í Ar-
isóna, Nýju-Mexíkó, Kólóradó og
Úta. Sýkingin lýsti sér í lungna-
sjúkdómi með hárri dánartíðni.
Rannsóknir gátu ekki skýrt þessa
farsótt fyrst í stað. Umfangsmikl-
ar rannsóknir á vegum bandarísku
faraldsfræðistofnunarinnar leiddu
í ljós að orsök sjúkdómsins var
veira, náskyld Hantaanveirum.
Var hún nefnd Sin Nombre en
músartegundin Peromyscus man-
iculatus reyndist aðalhýsill veir-
unnar. Músin lifir á landsbyggð-
inni í útihúsum, hlöðum og jafnvel
á heimilum manna. Sjúkdómurinn
sem veiran veldur hefur fengið
nafnið Hantaveiru-Iungnaheilkenni
(Hantavirus pulmonary syndr-
ome). Navaró-indíánum hefur
lengi verið vel kunnugt um þennan
sjúkdóm og þeir tengt hann mús-
um. Síðar hefur sjúkdómurinn
fundist í Vestur-Kanada og í
mörgum ríkjum Suður-Ameríku.
Atsóttin vorið 1993 tengdist
mikilli fjölgun músa á þeim land-
svæðum þar sem sóttin geisaði.
Mikill þurrkur hafði hrjáð svæðin
mörg undangengin ár þar til mikil
úrkoma varð snemma árs 1993.
Gróður lifnaði vel við og nagdýr-
um fjölgaði óvenju mikið. Fór þá
ekki hjá því að menn kæmust oft í
návist músanna.
Einkenni Sin Nombre-sýkingar
eru frábrugðin einkennum Hanta-
anveiru-sýkingar að því leyti að
veiran veldur bráðum lungnasjúk-
dómi, sem leitt getur til öndunar-
bilunar, en blæðingar og nýrna-
skemmdir eru sjaldgæfar.
Dánartíðni Hantaveiru-lungna-
heilkennis er há eða 40-50%.
Þeir sjúkdómar, sem hér hefur
verið lýst, ganga nú allir undir
nafninu Hantaveiru-sjúkdómar og
er þeim skipt í tvo flokka, blæð-
andi hitasótt með nýrnaheilkenni
annars vegar og Hantaveiru-
lungnaheilkenni hins vegar. Engin
viðunandi sértæk meðferð er til
við sjúkdómnum, en talið er að
veirulyfið ríbavírín komi að nokkr-
um notum ef það er gefið snemma
í sjúkdómi. Ekkert bóluefni er til
gegn sjúkdómnum. Ekki er talin
hætta á að sjúklingar geti smitað
aðra menn. Forvarnir byggjast á
því að forðast nagdýr og hindra að
Eru vandamál á toppnum?
Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður?
Jurta(j
ull
Hárvörur leysa VANDANN
OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
UTSÖLUSTAÐIR: HEILSUVORUVERSLANIR 0G APOTEK UM ALLT LAND.
BATMAN ER MÆTTUR
MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA
www.nordiccomic. com
Viltu vinna heima?
www.ercomedia.com
s. 881 5969
KOSTABOÐ
Allt aö
afsláttur
riform
Fyrsta flokks hönnunarvinna hátúni6A(íhúsn. Fönix)s(Mi: 5524420
Fagleg rábgjöf /í
Fullkomin tölvuteiknun ‘
þau komist inn í mannabústaði og
önnur hús. Þá er mikilvægt að
sótthreinsa þau svæði þar sem
sýkt nagdýr hafa dvalist.
Haraldur Briem
sóttvarnalæknir
Er í alvöru til eitthvað
sem heitir eðli, hjá
mannfólki og sem munur
á milli kynjanna?
SVAR:
Hugmyndir um mannlegt eðli,
og þá hugsanlega ólík og jafnvel
ósættanleg eðli karla og kvenna,
eru ævagamlar. Þær gengu jafn-
vel svo langt að fela í sér að nán-
ast væri um tvær aðgreindar teg-
undir fólks að ræða.
Tvíhyggjuhugmyndir af þessu tagi
hafa einkennt vestræna hugsun
allt frá Grikklandi hinu forna og
fram á þessa öld. Körlum var
þannig eignaður stærri og öflugri
heili, enda voru rökhugsun og
skynsemi taldar séreign karla.
Konur stjórnuðust hinsvegar af
tilfinningum frekar en skynsemi,
heili þeirra var álitinn vanþroska
og lítils megnugur og þær því
tengdar líkama (móðurlífi) frekar
en anda og sál.
Talið var að barnastúss og
heimilishald væru sniðin að eðlis-
lægri umhyggjuhvöt kvenna en
rökvíst karleðlið gerði stjórnun og
valdabrölt í bland við óhefta veiði-
hvöt að „eðlilegum“ hluta karl-
mennskunar. Höfuðandstæðurnar,
karl og kona, urðu því að koma
saman og fullkomna hvort annað í
heilögu hjónabandi.
Það var hinsvegar ekki fyrr en á
sjötta og sjöunda áratug þessarar
aldar að femínistar höfnuðu á rót-
tækan hátt öllum hugmyndum um
„eðli“ kynjanna, og beindu sjónum
sínum þess í stað að menningar-
og félagsbundinni kynjamótun.
Talsmenn mótunarhyggju halda
því fram að kynjamunur sé fyrst
og síðast félagslegt sköpunarverk,
eitthvað sem hefur orðið til og er
viðhaldið í samfélagi við annað
fólk, en ekki eðlislægt fyrirbæri.
Þú fæðist kvenkyns (eða karlkyns)
en það er samfélagið sem gerir þig
að konu (eða karli).
Slík samfélagsmótun á sér stað
allt í kringum okkur, innan fjöl-
skyldunnar, vinahópsins, í fjölmiðl-
um, skólakerfinu, á vinnumarkaði
og svo framvegis. Kynjamótunin
er sívirk og ein fyrsta birtingar-
mynd hennar er þegar kornabörn
fá bleik eða blá armbönd á fæðing-
ardeildinni. Upp frá því mótar vit-
undin um kyn alla framkomu og
viðhorf til barnsins. Strákum er
þannig hrósað fyrir hvað þeir eru
stórir og sterkir en stelpur eru
hvattar til að vera sætar og fínar.
Andstæðupörin kyn og kyngervi
(„sex“ og „gender") eru hér lykil-
hugtök. Kyn vísar til líffræðilegs
kyns en kyngervi er notað um þá
menningarbundnu merkingu sem
samfélagið leggur í hið líffræðilega
kyn, það er væntingar um karl-
mennsku og kvenleika. Þannig
hefur hvert samfélag ákveðnar
væntingar um hvað það þýði að
vera karl eða kona, um verksvið
og skyldur kynjanna og það
hvernig konur og karlar eigi að
líta út og hegða sér.
Það voru einmitt mannlræðing-
ar sem ruddu mótunarhyggjunni
braut á sínum tíma með því að
benda á að kynhlutverk og það
sem kallað hafði verið „eðli kynj-
anna“ var ákaflega breytilegt frá
einu samfélagi til annars. Hug-
myndir um kynjabundinn mun og
æskilega hlutverkaskiptingu milli
karla og kvenna finnast alls staðar
en þær eru breytilegar frá einu
samfélagi til annars. Niðurstaðan
var því sú að karl- eða kven-„eðli“
væri menningarleg afurð en ekki
óbreytanlegt náttúrufyrirbæri sem
hægt væri að ganga að, óháð sam-
félagsgerð.
Þrátt fyrir röksemdir mótunar-
sinna eru hverskyns hugmyndir
um eðlislægan kynjamun ótrúlega
lífseigar í dægurmenningu. Má
þar nefna metsölubækur sem
ganga út á það að kynin tvö komi
hvort frá sinni plánetu og eigi
fátt sameiginlegt. Þá fjallaði
leikritið „Hellisbúinn", sem sýnt
var við metaðsókn hér á landi, á
klisjukenndan hátt um þá
árekstra sem óhjákvæmilega
myndast þegar „karl- og kveneðl-
ið“ rekast á.
Það sem er hinsvegar horft
fram hjá í öllu tali um karl- og
kveneðli er margbreytileiki
mannfólksins. Þvert ofan á allan
kynjamun kemur breitt litróf ein-
staklinga sem falla engan veginn
inn í svarthvítt tveggja flokka
kerfi. Það að dæma stöðu, hlut-
verk, hegðun eða útlit einstakl-
inga, rétt eða rangt, viðeigandi
eða óviðeigandi, eftir því hvort
manneskjan sem um ræðir er
karl eða kona er bæði heftandi og
niðurnjörvandi fyrir einstakl-
ingana og fyrir samfélagið þýðir
það sóun á mannauði. Þess vegna
er nauðsynlegt að tryggja félags-
legt svigrúm svo að fólk geti
fundið sér réttan bás í litrófi
samfélagsins, óháð stöðluðum
hugmyndum um „eðli“ kynjanna.
Þetta svar er samið frá sjónar-
hóli kynjafræðings. Ásta Kristjana
Sveinsdóttir heimspekingur hefur
einnig svarað sömu spurningu á
Vísindavefnum.
Þorgerður Þorvaldsdóttir
sagn- og kynjafræðingur